Morgunblaðið - 01.11.2007, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2007 11
FRÉTTIR
REYKJAVÍKURBORG og Orku-
veita Reykjavíkur líta svo á að ekki
þurfi samþykki eigenda til einfaldra
ákvarðana eins og stofnunar dóttur-
félaga eða kaup á hlut í félögum.
Einungis þurfi að bera ákvarðanir
undir eigendur, þ.e. sveitarstjórnir,
ef OR takist á hendur ábyrgðir og
skuldbindingar sem geta fallið á
sveitarsjóði. Dæmi um slíkt voru
kaupin á hlut í Hitaveitu Suðurnesja.
Þetta kemur fram í svari Reykjavík-
urborgar til umboðsmanns Alþingis
vegna spurninga sem hann setti
fram um málefni REI.
„Í samræmi við framangreindan
skilning, sem fylgt hefur verið í öll-
um tilvikum þegar OR hefur stofnað
dótturfélag eða fest kaup á hlut í fé-
lagi, fólu þær ákvarðanir sem teknar
voru á stjórnar- og eigendafundi OR
hinn 3. október sl. ekki í sér ábyrgðir
eða skuldbindingar eigenda sem
samþykkja þurfti af viðkomandi
sveitarstjórnum. Nauðsynlegt er að
fram komi að ekki var verið að selja
eigur OR. Allir þeir hlutir sem seldir
hafa verið eru nýtt hlutafé og verð-
mæti eignarhluta í félögum er allt
enn til staðar. Þær ákvarðanir sem
teknar voru á eigendafundi OR
munu ekki skerða efnahag OR. Hið
bókfærða virði eignanna byggist að
meginstofni til á mjög nýlegum við-
skiptum með eignirnar. Sem dæmi
má nefna að gengi hlutarins í Enex,
tók mið af nýlegu mati á virði félags-
ins í tengslum við hlutafjáraukningu.
Hluturinn í Hitaveitu Suðurnesja er
metinn á sama verði og hann var
keyptur á fyrr á þessu ári. GGE lagði
sinn hlut í hitaveitunni, sem var
u.þ.b. helmingi stærri, inn á sama
gengi,“ samkvæmt bréfi Reykjavík-
urborgar til umboðsmanns Alþingis.
Í niðurlagi svars Reykjavíkur-
borgar til umboðsmanns Alþingis
kemur fram að engin ákvæði sé að
finna í sveitarstjórnarlögum um
samstarf sveitarfélaga við einka-
aðila.
Tímabært er að endurskoða
sveitarstjórnarlögin
Er það mat Reykjavíkurborgar að
tímabært sé að endurskoða VIII.
kafla sveitarstjórnarlaganna sem
fjallar um samvinnu sveitarfélaga. „Í
81. gr. segir að sveitarfélög geti haft
samvinnu sín á milli um framkvæmd
einstakra verkefna. Geti slík sam-
vinna meðal annars farið fram á vett-
vangi héraðsnefnda, byggðasam-
laga, landshlutasamtaka og
Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Engu orði er minnst á samstarf á
vettvangi félaga sem lúta reglum
einkaréttarins, s.s. sameignarfélög
eða hlutafélög. Samt er það stað-
reynd að sveitarfélög kjósa í auknum
mæli að koma starfsemi sinni fyrir í
slíkum félögum, ein eða í samstarfi
með öðrum, hvort sem það eru ríki
eða sveitarfélög vegna samkeppnis-
réttarlegra, skattalegra eða rekstr-
arlegra sjónarmiða. Það er því að
mati Reykjavíkurborgar mjög brýnt
að sá kafli sveitarstjórnarlaga verði
endurskoðaður,“ samkvæmt svari
Reykjavíkurborgar.
Bréf borgarlögmanns f.h. Reykja-
víkurborgar birtist í heild á mbl.is.
Ekki þarf samþykki
eigenda til einfaldra
ákvarðana
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík
HVERFISGÖTU 6, 101 REYKJAVÍK, SÍMI 562 2862
Vetur
2007
Kynningardagar
26. okt. - 3. nóv.
Stærðir 42-54
M
bl
9
21
22
7