Morgunblaðið - 01.11.2007, Side 22
ferðalög
22 FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Fríðu Björnsdóttur
fridavob@islandia.is
Löng röð áhugasamra gestabeið fyrir utan Stein’sFish & Chips í Padstow ánorðurströnd Corwall.
Það rigndi af og til en fólkið lét það
ekki á sig fá. Allir vildu fá að
bragða á hinum frægu, en þó ein-
földu réttum meistarakokksins
Rick Stein sem er einn af bestu
sjónvarpskokkum í Bretlandi Stein
hefur verið með fjöldann allan af
matreiðsluþáttum í BBC allt frá
árinu 1995.
Padstow er lítið fiskiþorp og íbú-
ar þess ekki nema um 3.800 talsins.
Samt streymir fólk hvaðanæva að
til þorpsins og flestir í þeim til-
gangi að fá sér að borða á ein-
hverjum af veitingastöðum Rick
Stein, gista á hótelinu hans eða til
að bregða sér á námskeið í Padstow
Seafood School.
Rick Stein fæddist í Oxfordshire
árið 1947. Fjölskylda hans átti
sumarhús í Padstow svo hann eyddi
þar miklum tíma á hverju ári. Árið
1965 fluttist fjölskyldan þangað
fyrir fullt og allt og líklega mega
íbúar Padstow þakka sínum sæla að
svo skyldi fara. Framtíð þorpsins
var ekki björt af ýmsum orsökum
en eftir að Stein ákvað að hefja þar
rekstur fyrir yfir 30 árum hefur
hamingjuhjólið snúist þorpinu í vil.
Milljónir horfa á
sjónvarpsþættina
Frá upphafi hefur Rick Stein lagt
megináherslu á að framreiða fersk-
an fisk á veitingastöðum sínum,
gjarnan veiddan af fiskimönnunum
í Padstow. Hann er líka þekktastur
fyrir ótal sjónvarpsþætti um fisk og
fiskrétti. Fyrsta þáttaröðin hét
„Taste of the Sea“. Hún var sýnd í
BBC árið 1995 og yfir 4 milljónir
áhorfenda fylgdust með af áhuga.
Síðan þá hefur Stein komið að ein-
um 10 þáttaröðum um fiskrétti auk
þess sem hann hefur tekið þátt í
gerð matreiðsluþátta sem byggja á
fiskfangi úr Miðjarðarhafinu og
víðar.
Fiskur og franskar
Snúum okkur að biðröðinni fyrir
utan Stein’s Fish & Chips. Hún sil-
aðist hægt áfram og ekki að
ástæðulausu. Þegar við nálguðumst
dyrnar kom í ljós að inni fyrir voru
ekki nema 32 sæti við ein þrjú borð.
Umsetningin getur ekki verið mikil
því staðurinn er opnaður kl. 12 og
honum lokað aftur kl. 14.30. Síðan
er aftur opið frá 17 til 21. Lítið er
lagt upp úr innréttingum, einföld
Íslenskur þorskur hjá sjónvarpskokkin
Ljósmynd /Fríða
Fullt hús Þrátt fyrir það að hvert sæti sé skipað komast ekki margir inn í einu. Þarna eru aðeins þrjú borð.
Fiskur og franskar Fiskurinn er borinn fram í pappa-
kassa, ekki dagblaðapappír eins og tíðkast í Bretlandi.
Þolinmæðin Fólk stóð í röð og beið eftir að komast inn
til að bragða á fiskinum sem reyndist vel þess virði.
Marengskökur Þær eru girnilegar
þessar í Rick Stein bakaríinu. Þær
kosta 1,67 pund eða rúmar 200
krónur stykkið.
Eftir Ólaf Guðstein Kristjánsson
Nú er Berlín, líkt og margirvita, miðpunktur lista og aðmargra mati ekki bara í
Þýskalandi, heldur gjörvöllum heim-
inum. Hingað flykkjast listamenn
frá öllum heimshornum til að njóta
þess magnaða og skapandi and-
rúmslofts sem borgin hefir upp á að
bjóða. Að auki hefir borgin af ótelj-
andi galleríum og listasöfnum að
státa.
Eitt þessara safna er Hamburger
Bahnhof: Museum für Gegenwart
(safn fyrir samtímann), sem er stórt
listasafn fyrir samtímamyndlist við
Invalidenstraße 50-51 í hverfinu
Mitte, rétt hjá Hauptbahnhof braut-
arstöðinni.
Þarna er fyrir að finna margt af
því merkilegasta sem gert hefir ver-
ið í samtímamyndlist á þessari og
síðustu öld. Byggingin sem safnið
hýsir er ekki síður merkileg. Hún er
frá árinu 1847 og er því elsta braut-
arstöðvarbygging Berlínar. Orðið
Bahnhof þýðir einmitt brautarstöð.
Hefir hún og staðið af sér bæði stríð
og sinnuleysi fyrrum Austur-
Þýskalands gagnvart því að viðhalda
merkum byggingum. Talsvert hefir
verið átt við húsið á þessum 160 ára
líftíma þess og hefir það tvisvar
þjónað tilgangi safns; sem Königlic-
hes Bau- und Verkehrsmuseum frá
1906 (síðar Verkehrs- und Baumu-
seum) til seinna stríðs og frá 1996
sem samtímalistasafn.
Fjöldi þýðingarmikilla
listaverka
Nýjustu viðbætur hússins má
rekja til 1989 er byrjað var að leggja
grunninn að því að gera húsið að
listasafni. Er það arkitektinn Josef
Paul Kleihues sem ber að mestu
leyti ábyrgð á því, en að auki á lista-
maðurinn Dan Flavin stóran þátt í
því að gera bygginguna áberandi
Ljósmynd/ Ólafur Guðsteinn Kristjánsson
Samtímalistasafn Byggingin er elsta brautarstöðvarbygging Berlínar.
Hamburger
Bahnhof í Berlín
W W W. I C E L A N DA I R . I S
Ferðaávísun gildir
HUGURINN BER ÞIG
AÐEINS HÁLFA LEIÐ
Það er stutt
til Manchester
og jólanna
SPENNANDI TILBOÐSVERÐ
FRÁ 39.900* KR. Á MANN
Í FJÓRAR NÆTUR
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
3
97
33
10
/0
7
* Innifalið: Flug fram og til baka, flugvallarskattar
og gisting í 4 nætur á Thistle Manchester Hotel með morgunverði.
Prófaðu eitthvað nýtt fyrir jólin. Jólaskapið
í Manchester gerir þessa líflegu borg ennþá
skemmtilegri. Það er ensk hátíðarstemning á
pöbbunum, fjör í tónlistinni, góður matur
á fyrsta flokks veitingastöðum og hagstætt
að líta inn í verslunarhúsin og búðirnar.
Jólamarkaðir í Manchester eru á fjórum stöðum
í miðborginni, á Albert Square og St Ann's Square
og í Exchange Street, New Cathedral Street,
Brazennose Street.
Hugsaðu gott til Manchester og jólanna.
Nýttu þér þetta einstaka tilboð sem gildir
á tilteknum brottfarardögum
í nóvember og desember.
TAKMARKAÐ SÆTAFRAMBOÐ