Morgunblaðið - 01.11.2007, Side 23
borð og bekkir, flísar á gólfi og
veggjum sem minna svolítið á flís-
arnar í Sundhöll Reykjavíkur.
Fiskurinn er borinn fram í pappa-
kössum en hann var himneskur á
bragðið. Þorskurinn, ýsan, kolinn,
rækjurnar, smokkfiskurinn svo
ekki sé nú minnst á ostrurnar, sem
reyndar voru ekki djúpsteiktar! allt
smakkaðist þetta jafnvel. Við skild-
um hvers vegna fólkið hafði beðið
svona rólegt. Allir vissu sem var að
þarna myndu þeir ekki verða svikn-
ir af réttunum.
Við hliðina á veitingastaðnum var
hægt að kaupa fisk og taka með
sér, og þar var röðin enn lengri.
Þarna var líka búð með ýmiskonar
matvælum, mörgum merktum Rick
Stein sem og matreiðslubókum eft-
ir hann og minjagripum.
Þorskurinn er frá Íslandi!
Stúlkan við kassann spurði að
sjálfsögðu hvernig mér hefði líkað
fiskurinn. Ég viðurkenndi að hann
hefði verið frábær, já, og meira að
segja okkur, sem værum frá Íslandi
þar sem fiskur væri ekki af verri
endanum, hefði þótt hann ein-
staklega góður. Við vorum komin
nokkuð frá staðnum þegar við
heyrðum hróp og köll og litum við.
Þarna kom stúlkan á harðahlaupum
og sagðist bara vilja segja okkur að
hún hefði farið að tala um okkur og
þá hefði henni verið sagt að þorsk-
urinn væri einmitt frá Íslandi og
kæmi til þeirra í frystum blokkum.
Óneitanlega gladdi þetta Íslending
á erlendri grun. Við vorum sann-
arlega stolt af íslenskri framleiðslu.
Þeir sem hafa gaman af mat-
reiðslu gætu brugðið sér á nám-
skeið í Padstow Seafood School
sem Rick Stein rekur. Dags-
námskeið kostar 165 pund og
tveggja daga námskeið með gist-
ingu og fullu fæði kostar 695 pund.
Ekkert er einfaldara en að fljúga
frá London til Padstow, nenni
menn ekki að aka, en ökuferð að
sumarlagi er þó drjúg viðbót við
upplifunina í Cornwall. Rick Stein
rekur einnig kaffistað, kökubúð,
gjafavörubúð, hótel og fleira í Pad-
stow sem allt dregur að ótal gesti
allan ársins hring.
um Rick Stein!
www.rickstein.com
með bláum neonljósarörum sínum
sem lýsa upp framhlið hins annars
síðklassíska byggingarstíls.
Eins og gefur að skilja er þarna
mörg merk og þýðingarmikil lista-
verk að finna, bæði á alþjóðlegan
sem og innlendan mælikvarða; verk
eftir listamenn eins og Andy War-
hol, Anselm Kiefer, Roy Lichten-
stein, Richard Long, Robert Rausc-
henberg og fleiri. En að auki setur
safnið reglulega upp ýmiskonar
áhugaverðar sýningar. Til dæmis
var fyrir skömmu sett upp sýningin
„There is Never a Stop and Never a
Finish“, þar sem minning banda-
ríska myndlistarmannsins Jason
Rhoades var heiðruð. Hann andaðist
í fyrra fjörutíu og eins árs að aldri.
Einnig má finna þarna verk eftir
Íslandsvininn Diether Roth, Martin
Kippenberger og Paul McCarty,
sem allir höfðu áhrif á Rohades. Þau
verk, eins og reyndar mörg önnur á
safninu, koma úr einkasafni listunn-
andans og lögfræðingsins Friedrich
Christian Flick. Auk þess er vert að
minnast á viðvarandi sýningu verka
þýska listamannsins Joseph Beuys.
Alltént er ferð þangað vel þess
virði. Af nógu er að taka. Og ef sam-
tímalistinn fellur fólki ekki í geð er
allavega hægt að njóta bygging-
arinnar.
Myndlist Reglulega eru settar upp
ýmsar áhugaverðar sýningar í
Hamburger Bahnhof.
www.hamburgerbahnhof.de
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2007 23
Síðumúla 34 - sími 568 6076
Ýmislegt áhugavert
fyrir safnara
Ýmislegt áhugavert fyrir safnara
Borðstofuhús ögn
Stakir skápar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Til sölu glæsileg tveggja herbergja kjallaraíbúð,
Snorrabraut 36, frábær staðsetning v/miðbæinn,
nýjar skolpleiðslur, nýjir ofnar, ný gólfefni, nýjar innréttingar,
nýjar hurðir og fl. Íbúðin er ósamþykkt.
Verð 18,9 millj. - veðbandalaus.
Tek jafnvel bíl sem innborgun.
Jón Egilsson Hdl. sími 568 3737/896 3677.
Til sölu glæsileg
2ja herbergja kjallaraíbúð