Morgunblaðið - 01.11.2007, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Elsku amma, nú
ertu komin á betri stað
til hans afa. Vitum að
þar líður þér vel, ert
heilsuhraust og hress.
Þú hefur gengið í gegnum lífið með
sorgum og gleði, en alltaf staðið upp-
rétt og sterkari fyrir vikið. Þú ert fyr-
irmynd okkar sem eftir eru hér. Þú
tókst öllu sem á móti blés sem verk-
efni sem þyrfti að klára og yfirstíga.
Maður fer að hugsa um farinn veg
og hve margar og skemmtilegar
minningar maður hefur með þér,
enda varstu mikill karakter og við lit-
um ávallt upp til þín. Svo mikill kraft-
ur í þér, þú lést þér aldrei leiðast og
hafðir ávallt nóg að gera. Að sitja í
volæði var ekki til í þínum orðaforða.
Þú varst alger kraftakona, sem lét í
sér heyra og hafði sínar skoðanir. Þér
fannst alltaf svo gaman að fá fólk í
heimsókn og þú varst góð heim að
sækja, sagðir alltaf „hvað er títt?“
þegar maður mætti inn um dyrnar.
Þú varst alltaf hress og það var gam-
Lilja Ingimarsdóttir
✝ Lilja Ingimars-dóttir fæddist í
Reykjavík 10. maí
1919, en ólst upp á
Akranesi. Hún and-
aðist á Sjúkrahúsi
Akraness 20. októ-
ber síðastliðinn og
fór útför hennar
fram frá Akranes-
kirkju 29. október.
an að hlusta á þig tala.
Oftar en ekki vorum
við skellihlæjandi því
þú varst svo orðheppin
ef þannig má að orði
komast. Þú varst líka
mjög næm á fólk og
það þýddi ekkert að
plata þig neitt. Þú viss-
ir betur og oft vissir þú
meira en við! Maður
rifjar upp þegar við
systur vorum hjá ykk-
ur afa á Brekkubraut-
inni að renna okkur á
bala niður tröppurnar.
Þvílíkt fjör. Öll barnabörnin á fullu
hvort sem það var á jólum, páskum og
helgum. Jólin voru sérstaklega
skemmtileg þar sem allt gengið gisti
hjá ykkur og þó þið flyttuð yfir á
Skarðsbrautina í minni íbúð var samt
alltaf nóg pláss. Uxahalasúpa, kóte-
lettur og hamborgarsteik … ummm.
Og svo sérlagaður frómas í eftirrétt.
Þetta gat ekki verið betra og þessi
matur er ómissandi á jólahátíðum í
fjölskyldunni og verður um ókomin
ár. Þú varst mikið í spilamennsku eins
og afi var. Það var ekki sjaldan sem
var tekinn einn leikur í bridds, okkur
börnunum til mikils ama, þar sem við
fengum ekki að vera með. En það var
nú alltaf tekin félagsvist, rommí eða
ólsen á undan til að róa okkur ungana.
Við vorum nokkur barnabörnin
sem fengum að búa hjá þér á Skag-
anum meðan við vorum í framhalds-
skóla þar. Þar fengum við ýsu fjórum
sinnum í viku og kjötbollur einu sinni.
Neglur og hár voru aldrei eins góð á
okkur og þegar við vorum hjá ykkur.
Svo þegar setið var og horft á sjón-
varpið á kvöldin sast þú og föndraðir
meðan afi las textann á því sem var að
gerast í sjónvarpinu. Þannig að þá
gast þú ekki misst af neinu sem var í
gangi. Útilegurnar gleymast seint
þar sem þið mættuð með flottustu úti-
legugræjur sem afi bjó sjálfur til.
Volgan, bíllinn sem var svo mjúkur í
akstri. Við gleymum ekki ennþá
þeirri sérstöku lykt sem var í þeim bíl.
Á sunnudögum var farið á rúntinn
niður á bryggju og um Akranes, farið
í bakarí og keypt bakkelsi.
Það eru líka ófáir sem eiga hand-
verk frá þér, hvort sem það er sæng-
urverasett með milliverki eða þá ker-
amikjólatrén sem þú gerðir gommu
af. Þú varst svo dugleg í föndrinu og
þá sérstaklega í seinni tíð. Þú varst
alltaf að og þegar maður kíkti til þín í
heimsókn var heill hellingur að skoða
sem þú hafðir gert.
Elsku amma! Þú skilur svo mikið
eftir þig hér hjá okkur sem eftir erum
hér. Hvort sem það eru veraldlegir
hlutir eða krafturinn og innblásturinn
sem þú sendir til okkar. Síðustu ár
hafa verið erfið í veikindum og erfitt
að hugsa til þess að þér hefur ekki lið-
ið sem best. Við vitum núna að þér líð-
ur vel í faðmi afa og að þú munt láta
að þér kveða þar sem þú ert. Takk
fyrir allt sem þú hefur skilið eftir í
hjarta okkar og takk fyrir þau góðu
áhrif sem þú hefur haft á okkar líf.
Hvíl í friði, elsku amma!
Lilja og Fjóla.
✝ Örn GuidoBernhöft fædd-
ist í Reykjavík 23.
apríl 1930. Hann
lést á hjúkrunar-
heimilinu Holtsbúð í
Garðabæ 22. októ-
ber síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru hjónin Óskar
Guido Bernhöft
stórkaupmaður og
Jóhanna María
Möller. Óskar Guido
Bernhöft var sonur
Vilhelms Georgs
Theodórs Bernhöft tannlæknis og
konu hans, Kristínar Þorláks-
dóttur Johnsons. Jóhanna María
Möller var dóttir Jóhanns Georgs
Möller, verslunarstjóra á
Hvammstanga og síðar á Sauð-
árkróki, og Þorbjargar Pálma-
dóttur. Yngri systkini Arnar voru
Ragnar Vilhelm Bernhöft og
Kristín Bernhöft, gift Pétri Orra
Þórðarsyni.
Örn kvæntist 20. janúar 1961
Reykjavík, lengst af í Garðastræti,
Eftir stúdentspróf frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1951 hélt
hann utan til náms í Technische
Hochschule í München 1952-1956,
fyrst í efnaverkfræði og síðar í
rafmagnsverkfræði. 1957 hóf Örn
störf hjá Reykjavíkurborg, fyrst
hjá Teiknistofu Rafmagnsveitunn-
ar, þar sem hann gegndi um hríð
starfi forstöðumanns, síðar sem
fulltrúi skipulagsstjóra og svo á
skrifstofu borgarstjóra. Í byrjun
áttunda áratugarins hóf Örn störf
hjá innflutningsfyrirtæki fjöl-
skyldu sinnar, H.Ólafsson & Bern-
höft, og starfaði þar meðan heils-
an leyfði. Örn var meðal þeirra
fyrstu hér á landi sem gerðu við
sjónvarpstæki og settu upp sjón-
varpsloftnet enda var hann alla tíð
áhugasamur um rafmagnstækni.
Hann var mikill hestamaður og
gefinn fyrir útilegur og ferðalög.
Örn gegndi trúnaðarstörfum fyrir
FR, Félag farstöðvaeigenda á Ís-
landi, og var um tíma formaður
þess. Hann var félagi í Frímúr-
arareglunni.
Útför Arnar fer fram frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík í dag og
hefst athöfnin klukkan 15.
Svövu Jóhönnu Pét-
ursdóttur, f. í
Reykjavík 11. desem-
ber 1930. Foreldrar
hennar voru Pétur
Sigurðsson, fyrrver-
andi kaupfélagsstjóri
og síðar innheimtu-
maður í Reykjavík, f.
á Hörgslandi á Síðu
20. september 1897,
d. 24. september
1971, og Kristín
Gísladóttir, f. á Mos-
felli í Grímsnesi 12.
nóvember 1903, d. 3.
október 1988. Börn Arnar og
Svövu eru: 1) Pétur Sverrisson, f.
23. nóvember 1954, d. í London 25.
september 1977. 2) Sigurður Örn
Bernhöft, f. 5. ágúst 1968, kvænt-
ur Katrínu Gunnarsdóttur, f. 10.
janúar 1970. Börn þeirra eru: Pét-
ur Már Bernhöft, f. 13. desember
1995, Sigríður Kristín Bernhöft, f.
11 nóvember 1997, og Svava Rós
Bernhöft, f. 15. mars 2005.
Örn ólst upp í foreldrahúsum í
Elsku afi, nú ert þú farinn frá okk-
ur. Við eigum eftir að sakna að koma
til þín hjúkrunarheimilið Holtsbúð og
fá þig ekki lengur í heimsókn til okk-
ar. Það verður tómlegt um jólin þeg-
ar þú verður ekki með okkur því þú
varst svo mikill jólakarl í þér, við höf-
um ekki þekkt nein jól án þín. Við vit-
um að þú varst mikill hestamaður og
áttir góða hesta sem þú gast ekki
notið síðustu árin af því að þú varst
svo veikur. En við skulum hugsa vel
um Feng eða Pabbabrún eins og
hann er stundum kallaður í sveitinni.
Það var líka gaman að vera með ykk-
ur ömmu í sumarhúsinu austur í Flóa
þar sem hægt var að læra að hjóla og
gera eitthvað af sér eins og að leika
sér í blómunum hennar ömmu henni
til mikils ama. Við huggum okkur við
það að núna ertu kominn á betri stað
og líður betur.
Kæri afi, við elskum þig og sökn-
um þín sárt.
Sigríður Kristín og Pétur Már.
Rauðhærði 10 ára strákurinn, sem
kom að Þingeyrum þegar ég var 5
ára, var við komuna herskár prakk-
ari.
Hann kom beint frá Reykjavík í
sveitina til ömmubróður síns, Jóns S.
Pálmasonar, og konu hans, Huldu Á.
Stefánsdóttur, sem þar bjuggu.
Heimilið var fjölmennt og var ég sú
yngsta á bænum. Ég góndi á þennan
frænda minn eins og naut á nývirki
og ég neita því ekki að í fyrstu var ég
svolítið óttasleginn, slíkur var kraft-
urinn og hugmyndaauðgin.
Eftir nokkurn tíma vorum við
orðnir góðir vinir, því drengurinn var
hjartahlýr og viðkvæmur þótt yfir-
borðið væri hrjúft á stundum. Ég
komst einnig fljótt að því, að hann
var vinur í raun og varði frænku sína
ef að henni steðjuðu hættur.
Milli foreldra minna og Arnar
komst fljótlega á traust samband,
sem entist alla þeirra lífstíð. Skap-
höfn Arnar og pabba var um sumt lík
og eru mér þá efst í huga eiginleikar
eins og trygglyndi og kjarkur.
Örn var í mörg sumur á Þingeyr-
um. Hann fór í göngur, þegar hann
hafði til þess aldur, en slíkt var mikil
upphefð. Hann var laginn við að fara
með hesta og hafði unun af. Í raun
var Örn efni í afbragðsbónda.
Veturinn áður en hann hóf nám í
menntaskóla dvaldist hann í sveitinni
vetrarlangt við nám hjá sr. Þorsteini
Gíslasyni í Steinnesi, en Þorsteinn
rak þar skóla og var afburðakennari.
Síðan tók við nám í MR. Og þar á
eftir verkfræðinám í Þýskalandi.
Skömmu eftir að Örn var farinn til
Þýskalands fékk ég afnot af herberg-
inu hans í Garðastræti 44 og öllu því
góða sem fylgdi því að dvelja á heim-
ili Maríu frænku minnar og Guidó
Bernhöft. Þar kynntist ég systkinum
Arnar, Kristínu og Ragnari, sem
bæði urðu mér mjög kær.
Leiðir okkar Arnar lágu lítið sam-
an á þessum árum, því við vorum yf-
irleitt hvor í sínu landinu. Ég fylgdist
þó alltaf svolítið með. Svava var kom-
in inn í líf hans og Pétur sonur henn-
ar. Ég frétti af sorglegu fráfalli Pét-
urs og svo síðar af gæfunni sem
fylgdi fæðingu Sigurðar.
Örn vann hjá Reykjavíkurborg um
skeið eftir að hann kom heim frá
Þýskalandi. Eftir það fór hann að
vinna hjá fjölskyldufyrirtækinu H.
Ólafsson og Bernhöft hf. Nokkur síð-
ustu æviárin átti hann hins vegar við
mikla vanheilsu að stríða.
Örn var vinur minn alla tíð. Hann
var einn af þeim, sem ég hefði getað
gengið til og beðið um að gera mér
greiða, sem hann hefði gert, ef það
hefði á annað borð verið á hans færi.
Ég var boðin til hans í stórafmæli og
ógleymanlegt brúðkaup einkasonar
hans Sigurðar og Katrínar.
Ég hef misst vin yfir móðuna
miklu, vin sem var mér mikils virði.
Ég votta Svövu, Sigurði, Katrínu,
Pétri Má, Sigríði Kristínu, Svövu Rós
og systkinum Arnar, Ragnari og
Kristínu, mína dýpstu samúð.
Guðrún Jónsdóttir arkitekt
Örn Guido Bernhöft
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
GUÐBRANDUR JÓNSSON,
áður til heimilis að
Langholtsvegi 2,
Reykjavík,
andaðist laugardaginn 27. október.
Útförin verður gerð frá Fossvogskirkju föstudaginn
2. nóvember kl. 15.00.
Elín Jósefsdóttir,
Jóna Sesselja Guðbrandsdóttir, Ásbjörn Einarsson,
Einar Jón Ásbjörnsson, Elísabet Reykdal Jóhannesdóttir,
Elín Björk Ásbjörnsdóttir, Gísli Jóhann Hallsson
og barnabarnabörn.
Ástkær dóttir okkar, móðir, amma, systir og
mágkona,
GEIRFINNA GUÐRÚN ÓLADÓTTIR,
Framnesvegi 30,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
mánudaginn 29. október.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 2. nóvember
kl. 15.00.
Að ósk hinnar látnu eru blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á SPES - barnaheimilin í Togo (reikn.1151-26-
2200 í SPRON, kt. 471100-2930) og Minningarsjóð líknardeildarinnar
(s. 5431159).
Innilegar þakkir færum við starfsfólki líknardeildarinnar og öllum þeim
sem sýnt hafa stuðning og hlýhug í veikindum hennar.
Margrét Jómundsdóttir, Óli Ragnar Jóhannsson,
Líf Gunnlaugsdóttir,
Tinna Gunnlaugsdóttir,
Eiður Jack Erlingsson,
Jómundur Ólason, Guðríður Áskelsdóttir,
Eiður Ólason, Guðrún Sigurjónsdóttir,
Elvar Ólason, Þórhildur Þorsteinsdóttir.
✝
Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma,
HÓLMFRÍÐUR HÓLMGRÍMSDÓTTIR
frá Vogi við Raufarhöfn,
Þorragötu 9,
Reykjavik,
lést laugardaginn 27. október.
Útförin fer fram frá Neskirkju föstudaginn
2. nóvember kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Bragi Guðmundsson.
✝
Minningarathöfn um ástkæran eiginmann minn,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
SIGMANN TRYGGVASON
frá Hrísey,
sem lést á Hrafnistu í Reykjavík sunnudaginn 28.
október, verður haldin í Fossvogskirkju í dag
fimmtudaginn 1. nóvember kl. 11.00.
Jarðsungið verður frá Hríseyjarkirkju þriðjudaginn
6. nóvember kl. 14.00.
Lilja Sigurðardóttir,
Sigurður Sigmannsson, Henný Pétursdóttir,
Hanna Sigmannsdóttir, Jakob Þorsteinsson,
Margrét Sigmannsdóttir, Guðmundur Skarphéðinsson,
Tryggvi Sigmannsson,
Gísli Viðar Sigmannsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR
frá Hjartarstöðum,
sem lést á sjúkradeildinni á Egilsstöðum
mánudaginn 22. október, verður jarðsungin frá
Egilsstaðakirkju mánudaginn 5. nóvember
kl. 14.00.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.