Morgunblaðið - 01.11.2007, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2007 45
THE INVASION kl. 6D - 8:20D - 10:30D B.i. 16 ára DIGITAL
DARK IS RISING kl. 6 - 8 B.i. 7 ára
ÍÞRÓTTAHETJAN m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
IN THE LAND OF WOMEN kl. 8 - 10:10 LEYFÐ
THE KINGDOM kl. 10:10 B.i. 16 ára
/ KRINGLUNNI
SAMBÍÓIN - EINA BÍÓKEÐJAN Á ÍSLANDI WWW.SAMBIO.IS
/ AKUREYRI
THE INVASION kl. 8 B.i. 16 ára
ÍÞRÓTTAHETJAN m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
STARDUST kl. 5:50 - 8 B.i. 10 ára
/ KEFLAVÍK
HALLOWEEN kl. 10:20 B.i. 16 ára
HEARTBREAK KID kl. 8 LEYFÐ
THE BRAVE ONE kl. 8 B.i. 16 ára
3:10 TO YUMA kl. 10:20 B.i. 16 ára
GOOD LUCK CHUCK kl. 8 - 10:10 LEYFÐ
HALLOWEEN kl. 10:20 B.i. 16 ára
SUPERBAD kl. 8 B.i. 12 ára
/ SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRISÝND Í KRINGLUNNI
AKKA SÝND Í KRINGLUNNI
Stórkostleg ævintýramynd í anda Eragon.
ÞEGAR Á BJÁTAR MÁ TREYSTA Á ÞAÐ AÐ SANNAR HETJUR GEFAST EKKI UPP!
600 kr.
Miðaverð
SÝND Í KRINGLUNNI
HJARTAKNÚSARINN ADAM BRODY ÚR THE O.C OG MEG RYAN
FARA Á KOSTUM Í MYND SEM ENGIN ÆTTI AÐ MISSA AF.
SÝND Í KEFLAVÍK OG SELFOSSISÝND Í KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK
- S.F.S., FILM.IS
Heppnir tónleikagestir
vinna nýjan iPod nano
í boði FL Group
VORBLÓT /// EFTIR ÍGOR STRAVINSKÍJ
HÁSKÓLABÍÓ /// FÖSTUDAGINN 2. NÓVEMBER /// KL. 21
/// eftirpartí með hljómsveitarmeðlimum og dj þorbirni /// miðaverð 1.000 KR.
www.sinfonia.is /// midi.is
fl group er aðalstyrktaraðili
sinfóníuhljómsveitar íslands
Eftir Ásgeir H Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
KLING & Bang-hópnum hefur
verið boðið að verða einn sam-
starfsaðili í Frieze Projects, sem
er hluti af hinni árlegu Frieze-
myndlistarkaupstefnu í London.
Kaupstefnan er á góðri leið með að
verða ein sú mikilvægasta í veröld-
inni en hún er haldin í Regent
Park í London og að sögn Krist-
jáns Björns Þórðarsonar hjá Kling
& Bang þekur sýningarsvæðið í
heild svæði á stærð við fimmtán
fótboltavelli. Meðal þeirra sem
valdir voru til að sýna í Frieze
Projects í ár var Elín Hansdóttir,
en hún starfar í Berlín. Frieze er
þó meira en kaupstefna því eitt
virtasta listtímarit heims er gefið
út undir merkjum þess. „Þeir
höfðu samband að fyrra bragði,“
segir Kristján Björn aðspurður, en
enn er óvíst hvaða ár Kling &
Bang-hópurinn verður samstarfs-
aðili enda velur hátíðin samstarfs-
aðila til nokkurra ára í senn og val-
ið stendur því á milli þeirra
fjögurra hátíða sem haldnar verða
til ársins 2011.
Bókaútgáfa og húsnæðisleit
Kling & Bang-liðar fá frjálsar
hendur með hvað þau munu gera
og hverja þau fá til samstarfs við
sig vegna verkefnisins. „Þá er
óvenjulegt að við erum hópur lista-
manna og ætlum okkur að vinna
saman,“ segir Kristján Björn um
hópinn sem er nýkominn frá Berl-
ín. „Þar sýndum við í fyrsta skipti
öll sem einn hópur, sem er kannski
upphafið að einhverju meira,“ bæt-
ir hann við en átta manns skipa
Kling & Bang og fjöldi manns til
viðbótar hefur átt í samstarfi við
þau.
Margt fleira er framundan í
starfi Kling & Bang, meðal annars
er von á bók um hópinn til þess að
fagna fimm ára afmæli hans – en
auk þess eru þau að leita fyrir sér
með nýtt húsnæði eftir að þau
misstu upphaflegt húsnæði sitt á
Laugavegi. „Það er erfitt fyrir
okkur að taka þátt í almennum
leigumarkaði og styrkirnir hafa
verið af skornum skammti, og þá
helst til utanferða,“ segir Kristján
en segir þó viðræður við ýmsa að-
ila vera í gangi.
Kling & Bang til London
Fær frjálsar hendur á Frieze-myndlistarkaupstefnunni í
Regent Park Sýningarsvæðið á við fimmtán fótboltavelli
Morgunblaðið/Eggert
Litrík list Frá innsetningu þeirra Pauls McCarthy og Jasons Rhoades í
Kling og Bang á Laugaveginum árið 2004.
http://www.frieze.com/
http://this.is/klingogbang/
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
NÝJASTA þáttaröðin um Silvíu
Nótt, The Silvia Night Show, nýtur
töluverðra vinsælda í Svíþjóð um
þessar mundir, en samkvæmt Evr-
óvisjón-síðunni oikotimes.com hafa
um 120.000 manns horft á fyrstu
þrjá þættina sem sýndir eru á
sjónvarpsstöðinni TV 400. Ekki er
langt síðan stöðin keypti þættina,
en í þeim er Silvíu fylgt eftir í eft-
irminnilega ferð í Evróvisjón-
keppnina á síðasta ári. Að sögn
Gauks Úlfarssonar, leikstjóra þátt-
anna, koma viðtökurnar honum
ekki á óvart. „Þetta er ferskt land-
svæði þar sem karakterinn hefur
ekki fengið að njóta sín. Hún hefur
hins vegar fengið að sýna nokkurn
veginn allar sínar hliðar hér á Ís-
landi, og þjóðin hefur kannski
fengið nóg,“ segir hann og hlær.
„En þetta kemur ekkert á óvart,
enda frábær sería. Ég held hins
vegar að Íslendingar geti ekki not-
ið hennar fyrr en eftir svona tíu
eða tuttugu ár. Þá munu þeir
kannski sjá hvað þetta var ótrúlega
mikið verk,“ bætir Gaukur við.
Ekki korn af sannleika
TV 400 er undirstöð TV 4 í Sví-
þjóð, en á stöðinni eru sýndir þætt-
ir á borð við American Idol og Am-
erica’s Next Top Model. Aðspurður
segir Gaukur að velgengni þátt-
anna á stöðinni geti hugsanlega ýtt
undir að þeir verði sýndir víðar.
„Það eina sem ég veit er að margir
eru mjög spenntir, og ætli þessar
fréttir ýti ekki enn frekar undir
það.“
Á oikotimes.com, þar sem vel er
fylgst með gangi mála í for-
keppnum í Evrópu, kemur einnig
fram að orðrómur sé uppi um að
Silvía Nótt ætli að koma fram í
Laugardagslögunum á laugardag-
inn kemur, í von um að komast aft-
ur í Evróvisjón-keppnina.
„Það er ekki korn af sannleika í
því,“ segir Gaukur hins vegar um
þann orðróm.
Silvía Nótt stór í Svíþjóð
Morgunblaðið/Eggert
Svíagrýla? Silvía Nótt er ekki dauð
úr öllum æðum, það er alveg ljóst.
Ætlar hins vegar ekki að koma fram í
Laugardagslögunum á Íslandi