Morgunblaðið - 01.11.2007, Qupperneq 10
10|Morgunblaðið
Það hefur færst í aukana um allan
heim að fyrirtæki verji hluta af því
fé, sem annars væri notað til að
kaupa gjafir handa starfsfólki og við-
skiptavinum, í að styrkja góðgerð-
arstarfsemi af ýmsu tagi, bæði hér-
lendis og annars staðar í heiminum.
Flestar hjálparstofnanir, ýmis
trúfélög, góðgerðarfélög og hags-
munasamtök, vistheimili og deildir á
sjúkrahúsum eða hjúkrunarheim-
ilum, taka fegins hendi við fram-
lögum frá fyrirtækjum og ein-
staklingum.
Þess er skemmst að minnast að
KFUM og KFUK stóðu að söfn-
uninni „Jól í skókassa“, en það er
söfnun fyrir börn og munaðarleys-
ingja í Úkraínu.
Rauði krossinn, Slysavarn-
arfélagið og fjölmargir aðrir aðilar
eru líka farnir á stúfana til að geta
glatt og stutt þá sem minna mega sín
yfir hátíðarnar.
Enginn vafi leikur á því að þörfin
fyrir slíka góðgerðarstarfsemi er
mikil, enda er víða neyðarástand og
milljónir barna búa við fátækt, sjúk-
dóma og jafnvel hungursneyð.
Jólagjafir atvinnulífsins til starfs-
manna og viðskiptavina eru orðnar
að hefð en þó er engin ástæða til að
gleyma þeim sem búa við fátækt og
eymd á hátíð ljóssins, það er til sóma
fyrir sérhvert fyrirtæki og án alls
efa ekki í óþökk viðskiptavina og
starfsfólks að hluta þeirrar of-
gnóttar sem við Íslendingar búum
við sé varið til einhverrar góðgerð-
arstarfsemi.
Gleði „Jól í skókassa“ er gott dæmi
um hvernig hægt er að gleðja aðra.
Gleðjið aðra um jólin
Íversluninni sia við Laugaveger farið að örla á jólaösinni, aðsögn eigandans, MargrétarEinarsdóttur, og segir hún
greinilegt að fólk ætli sér að forðast
að vera á síðustu stundu með gjafa-
kaup og jólaskreytingar þetta árið.
Jólastemning beint í æð
,,Hér í sia er mikið úrval af alls
kyns jólaskreytingum fyrir heimili og
fallegri gjafavöru. Sjálf skreytum við
verslunina hátt og lágt til þess að fá
jólastemninguna beint í æð. Við sem
hér störfum höfum gaman af jólaös-
inni á Laugaveginum þar sem mikið
er um að vera á aðventunnni. Við
verðum ekki mikið vör við hið marg-
umtalaða jólastress því við fáum ekki
betur séð en það liggi vel á þeim sem
hingað koma.“ Sia-vörurnar eru
framleiddar í Svíþjóð og eru þekktar
og vinsælar. Þær hafa verið fluttar
inn til Íslands í nokkur ár en versl-
unin við Laugaveginn hefur verið
starfrækt í eitt ár. ,,Hér er hægt að
kaupa stóra hluti og smáa, Við erum
til dæmis með kertastjaka, kerti,
servíettur, dúka, púða og fallega
myndaramma sem eru tilvaldir fyrir
foreldra sem vilja gefa afa og ömmu
fallega mynd af afkomendunum.
Fyrir utan smávöruna seljum við
húsgögn; borðstofuborð- og stóla,
sófa og hægindastóla. Við höfum líka
verið að prófa okkur áfram með hús-
gögn í barnaherbergi, svo sem
kommóður, fataskápa, rúmgafla,
borð og stóla og þessum vörum hefur
verið ákaflega vel tekið. Við erum
líka með alls kyns skraut í barna-
herbergi, handklæði og sængurver,
að ógleymdum mjúku böngsunum
sem öll börn, stór sem smá, elska.“
Margrét segir starfsfólkið skella
sér á jólahlaðborð til þess að komast í
réttu stemninguna áður en verslunin
fyllist af fólki í hátíðarskapi. Að lok-
um segir hún starfsfólkið hlakka til
að selja fallegu hlutina sem fylla
hvern krók og kima í versluninni og
minna á gleðileg jól.
Hlakkar til Margrét Einarsdóttir hlakkar til að taka á móti gestum og
gangandi á Laugaveginum.
Stórt og smátt
í jólapakkana
Jólalegt Mjallhvít jólatré eru líka
skemmtileg á að horfa.
Ljós Glitrandi kerti og góð bók eða
mynd hæfir vel í skammdeginu.
Frumlegt Hér er Óli Lokbrá útbú-
inn sem sofandi jóladagatal.
Gegnsætt Nettar vínþrúgur úr
gleri eru skemmtilegt jólaskraut.
Gefum góðar stundir
Gjafakort Þjóðleikhússins er kjörin jólagjöf
fyrir fjölskylduna eða fyrirtækið