Morgunblaðið - 19.12.2007, Side 1

Morgunblaðið - 19.12.2007, Side 1
STOFNAÐ 1913 346. TBL. 95. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is Leikhúsin í landinu Góðir gestir... kíktu í leikhúsið >> 52 Girnilegar jólauppskriftir á www.jolamjolk.is KVIKMYNDASVIÐIÐ ÍSLENSKUR SAMTÍMI GERIST Í REYKJAVÍK EN SVÆSNU SÖGURNAR Á VESTFJÖRÐUM >> 53 FRÉTTASKÝRING Eftir Andra Karl andri@mbl.is SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæðis- ins (SHS) undirbýr nú af kappi vinnu- reglur vegna eldsvoða í háhýsum, sem rísa hratt um þessar mundir og víða á höfuðborgarsvæðinu. Í gegn- um tíðina hafa hæstu byggingarnar verið íbúðarhúsnæði, s.s. í Sólheim- um, en breyting er að verða á. At- vinnuháhýsi eru að ryðja sér til rúms og teygja sig hærra en áður hefur þekkst. Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðs- stjóri höfuðborgarsvæðisins, segir að aðallega sé horft til nágrannaþjóð- anna þegar kemur að vinnureglum. „Sumt af því sem við höfum verið að skoða er orðið að Evrópustöðlum en er ekki í reglugerðum hjá okkur, nema þá staðfesting á að umrædd reglugerð sé til staðar. En við höfum hér á landi ansi öfluga brunahönnuði sem fundað hefur verið með.“ Raunar hafa verið haldnir fundir meðal starfsmanna Brunamálastofnunar, SHS, byggingafulltrúa Reykjavíkur- borgar og helstu brunahönnuðum. Að sögn Björns Karlssonar bruna- málastjóra hafa menn verið sammála um helstu atriði og m.a. um að sér- stakar slökkviliðslyftur verði í háhýs- um sem og leiðslur til að flytja vatn upp hæðir. Áhersla á innbyggðar varnir Mikil áhersla er lögð á innbyggðar brunavarnir í hinum nýju háhýsum en ekki síður nýtt verklag. „Þetta er ný veröld sem við erum að máta okk- ur inn í og ný vinnubrögð sem þarf að þróa,“ segir Jón Viðar. Þar á hann t.a.m. við að bækistöð slökkviliðsins getur ekki ávallt verið á jörðu niðri ef upp kemur eldur, heldur þarf að flytja hana nær eldinum – þá nokkr- um hæðum fyrir neðan. „Þá þarf að taka upp allt önnur vinnubrögð og vinna eftir öðrum forsendum. Ef til dæmis þarf að rýma bygginguna á skömmum tíma verða mennirnir að vera á tánum.“ Hjá SHS eru menn bjartsýnir á að verklag fyrir háhýsin verði tilbúið á sama tíma og Turninn á Smáratorgi, „þannig að þeir sem koma til með að sækja þangað líði ekki fyrir lélegt verklag af okkar hálfu,“ segir Jón. Morgunblaðið/Júlíus Burður Á hlaupum upp háhýsi. Þróa þarf ný vinnu- brögð SHS verður tilbúið um leið og Turninn Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is HÆKKANIR á matvælaverði, m.a. vegna hækk- andi hráefnisverðs, hafa alls ekki skilað sér að fullu hér á landi þó verðhækkanir hafi þegar orðið um- talsverðar undanfarnar vikur og mánuði. „Það eru mjög miklar hækkanir enn í farvatninu,“ segir Mar- teinn Magnússon, markaðsstjóri heildsölunnar Eggerts Kristjánssonar hf. „Þær hækkanir sem við höfum séð eru því aðeins hluti af því sem við eigum eftir að sjá.“ Gera má ráð fyrir að hækkanirnar muni skella á með nokkrum þunga strax á fyrstu mánuðum næsta árs. „Þessar hækkanir eiga eftir að koma mjög sterkt inn í neysluvísitöluna á þeim tíma,“ seg- ir Marteinn. Ástæðurnar eru margar og samverkandi. Upp- skerubrestir hafa orðið víða um heim, aukin sam- keppni er um kornakra og þá skiptir stighækkandi olíuverð veigamiklu máli. Orkuverð er að hækka víða erlendis, sömuleiðis flutningskostnaður og verð matvælaumbúða. „Þetta gerist allt samhliða og hefur hvað áhrif á annað,“ segir Marteinn. Allar matvörur sem innihalda korn, olíur og kakó eru m.a. af þessum sökum vísar til að hækka enn frekar. Einnig mjólkurvörur og kjöt. „Við erum nánast að tala um matvörur,“ segir Marteinn. Hann segir áhrifin mun víðtækari en menn hafi séð fyrir. Marteinn bendir á að ekki aðeins hafi hveitiupp- skera brugðist víða í ár og það orsaki minni fram- leiðslu, heldur sé hveitið lakara en áður. Uppskerubrestir fylgja árferði og því allt eins lík- legt að næsta ár verði betra í því tilliti og hækkanir muni því að einhverju marki ganga til baka. Hins vegar segir það ekki alla söguna. Aðrir þættir, s.s. aukin eftirspurn eftir afurðum, hafa fest í sessi. Aukin krafa um gæði, t.d. lífræna ræktun, þýði einnig minni framleiðslu á hvern hektara ræktaðs lands. „Við höfum búið við lágt matvælaverð undanfarin ár en ég tel að hækkanir séu að mörgu leyti komnar til að vera,“ segir Marteinn. „Við komum til með að búa við hærra matvöruverð á næstunni. Þetta er hinn blákaldi raunveruleiki.“ „Mjög miklar hækkanir á matvörum í farvatninu“ Í HNOTSKURN »Það sem af er þessu ári hefur hveiti ogmjöl hækkað í verði um 5,4% þrátt fyrir lækkun virðisaukaskatts fyrr á þessu ári. »Þá hefur verð á pasta hækkað um 8,4% ásíðustu 12 mánuðum. Hækkanir á hráefnisverði hafa enn ekki skilað sér að fullu út í verðlagið „ÉG er titrandi af fögnuði yfir að syngja hér,“ sagði Kristján Jó- hannsson tenórsöngvari í Ufsar- veitugöngum Kárahnjúkavirkjunar í gær en áhorfendur viknuðu undir söng hans. Verktakafyrirtækið Arnarfell bauð á þriðja hundrað manns, þ. á m. starfsfólki sínu, á jólatónleika í iðrum jarðar. Kristján sagði hljómburðinn fín- an, þó bergmál væri nokkurt. „Ég hef ekki sungið á neinum svipuðum stað áður, þó ég hafi fyrstur Íslend- inga sungið í Kerinu fyrir tuttugu árum. Ég er svo brjálaður sjálfur að mér finnst allt svona bara stórkost- legt. Einhver sagði við mig að ég væri bæði skráður og óskráður konungur Hamraborgarinnar eftir Kaldalóns og auðvitað lét ég hana vaða út í bergið!“ Auk söngs Kristjáns flutti sr. Lára G. Oddsdóttir jólaguðspjallið og bað menn að minnast með mín- útu þögn þeirra fimm manna sem látist hafa við gerð Kárahnjúka- virkjunar. Þá var jólasálmurinn Heims um ból sunginn sameig- inlega af öllum viðstöddum og var sú stund einkar hátíðleg. | Miðopna Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Söngur Kristjáns fékk fólk til að vikna KOSTNAÐARHLUTFALL, þ.e. rekstrarkostnaður sem hlutfall af tekjum, er útbreiddur mælikvarði til þess að meta hagkvæmni í rekstri banka og hjá íslensku bönkunum er þetta hlutfall lægst í samburði við stórbanka Evrópu. Hæst var kostn- aðarhlutfallið í Þýskalandi. Ísland var sem fyrr segir með lægsta hlut- fallið og Norðurlöndin fimm skipuðu sér í sjö efstu sætin ásamt Bretlandi og Spáni. Þetta kemur fram í nýrri úttekt al- þjóðlega ráðgjafarfyrirtækisins Arthur D. Little, en í úrtaki þess voru skoðuð kostnaðarhlutföll 51 stórbanka í 15 löndum Evrópu, en Landsbankinn var ekki með í úrtak- inu. Kaupþing banki er með annað lægsta kostnaðarhlutfallið og Glitnir með það fjórða lægsta. Erik Alm- quist hjá Arthur D. Little segir þessa góðu frammistöðu eftirtektar- verða. | 16 Tróna á toppnum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.