Morgunblaðið - 19.12.2007, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Enn betra golf 3
Enn betra golf
Eftir
Arnar Má Ólafsson
landsliðsþjálfara og
Úlfar Jónsson
margfaldan
Íslandsmeistara
og golfkennara
Eftir Arnar Má Ólafsson
landsliðsþjálfara og
Úlfar Jónsson
margfaldan Íslandsmeistar
a
GOLF
ENN BETRABETRA
G
O
LF
A
rnar M
ár Ó
lafsson og Ú
lfar Jónsson
11/20/07 11:46:42 PM
Jólabók golfarans!
Borgartúni 23 · 105 Reykjavík · Sími: 512 7575 - www.heimur.is
eftir Arnar Má Ólafsson og Úlfar Jónsson
Fæst í helstu bókabúðum og víðar!
Verð kr. 3.490,- m/vsk
„SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN hefur alltaf
reynt að halda umfangi hins opinbera innan þeirra
marka að það geti fallið undir almannahagsmuni
og grunnþjónustu við borgarana. Mér finnst að
þegar ríkisfyrirtæki eru komin út í svona rekstur,
sem ekki falla inn í þennan ramma, hljótum við að
velta því fyrir okkur hvort það sé eitthvert annað
fyrirkomulag betra á rekstrinum en að þetta sé
ríkisfyrirtæki sem sé að spila með almannafé.“
Þetta segir Gísli Marteinn Baldursson, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, um stofnun nýs
dótturfyrirtækis Landsvirkjunar, Landsvirkjun
Power (LP).
Spurður hvort hann vilji selja Landsvirkjun
segist hann ekki vilja fara nákvæmlega út í hvern-
ig best sé að útfæra þessa fyrrgreindu skoðun
sína. Það þarfnist umræðu.
„Það er út í hött að tala um
einhvern ágreining í Sjálfstæð-
isflokknum, þó svo flokksmenn
allir séu ekki á nákvæmlega
sama punkti á þessum ás milli
ríkisrekstrar og einkarekstr-
ar,“ segir hann. „Það hefur allt-
af verið þannig í Sjálfstæðis-
flokknum að við höfum þurft að
ræða það mjög vel hvenær er
rétti tímapunkturinn til að fara
með fyrirtæki úr ríkisrekstri
yfir í einkarekstur. Það gerðist t.d. í málum bank-
anna og með Póst og síma. Sú umræða er enn í
gangi varðandi ríkisútvarp.“ Hann segir Sjálf-
stæðisflokkinn hafa borið gæfu til að nýta þann
kraft sem felist í mismunandi sjónarmiðum, „á
grundvelli þess lykilatriðis að ríkið þurfi ekki að
vera að vasast í verkefnum sem einkaaðilar geta
gert jafnvel eða betur.“
Grundvallarmunur á REI og LP
Gísli Marteinn segir grundvallarmun á stofnun
LP nú og stofnun Reykjavík Energy Invest (REI)
í haust.
„Hér er um að ræða fyrirtæki sem er að fullu í
eigu Landsvirkjunar og er að vinna í nákvæmlega
sömu verkefnum og menn hafa verið að vinna í á
meðan REI málið var svo illa tilfundið að það var
engin leið fyrir nokkurn mann að styðja það,“ seg-
ir Gísli Marteinn. „REI málið var klúður. Hér er
mun betur vandað til verka, þótt þessar hug-
myndafræðilegu spurningar séu eitthvað sem við
þurfum að fara yfir.“
Annað fyrirkomulag en
ríkisrekstur heppilegra í LP
Út í hött að tala um einhvern ágreining í Sjálfstæðisflokknum, segir Gísli Marteinn
Gísli Marteinn
Baldursson
ELLILÍFEYRISÞEGI sem tapaði
dómsmáli gegn íslenska ríkinu á
mánudag, fellir sig ekki við sýknu-
dóm héraðsdóms og mun áfrýja mál-
inu til Hæstaréttar. Í málinu gerði
lífeyrisþeginn, 82 ára kona, kröfu um
að greiða ætti fjármagnstekjuskatt
af þeim hluta lífeyris sem væri
ávöxtun af innborguðu árgjaldi.
Að mati héraðsdóms hafði konan
ekki sýnt fram á að hún sætti ann-
arri skattalegri meðferð en aðrir í
hennar stöðu. Sama regla gilti um
alla lífeyrisþega, lífeyrir þeirra væri
skattlagður sem tekjuskattur án til-
lits til aldurs, efnahags eða stöðu að
öðru leyti. Taldi dómurinn að konan
hefði ekki heldur sýnt fram á að
ávöxtunarhluti lífeyrisgreiðslna væri
sambærilegur við aðrar fjármagns-
tekjur og mismunandi skattlagning
því brot á jafnræðisreglunni.
Dómurinn taldi að til þess að unnt
væri að sýna fram á meinta mismun-
un og brot á jafnræðisreglu stjórn-
arskrár yrði stefnandi a.m.k. að
sanna að í greiðslunni fælust fjár-
magnstekjur að tiltekinni fjárhæð,
sem hlyti skattalega meðhöndlun á
annan hátt en aðrar fjármagns-
tekjur. Það hefði ekki verið gert og
raunar óvíst að slíkt væri gerlegt að
mati dómsins. Að sama skapi yrði
ekki á það fallist að unnt væri að
bera saman tekjur af lífeyrissparn-
aði og tekjur af öðru fjármagni og
draga þá ályktun að um ólögmæta
mismunun væri að ræða vegna mis-
munandi skattlagningar teknanna.
Fellir sig
ekki við
sýknuna
GARÐAR Ólason sveitarstjórnar-
maður í Grímsey hefur tekið sæti
oddvita í sveitarfélaginu til bráða-
birgða í stað Brynjólfs Árnasonar,
sem stendur til boða að segja upp
sem oddviti í tengslum við meint
auðgunarbrot hans. Ekki er hins-
vegar um að ræða að honum hafi
verið sagt upp sem oddvita, að sögn
Alfreðs Garðarssonar sveitar-
stjórnarmanns. Alfreð segir að
Gunnar Hannesson hafi þá tekið
sæti sem hreppsnefndarmaður. Al-
freð segir að yfirferð á fjársvikamáli
fyrrverandi oddvita sé að ljúka og
búist sé við að kæra verði lögð fram
fljótlega. Um verulega fjármuni sé
að ræða.
Tekur sæti
oddvita
♦♦♦
LANDSVIRKJUN og Becromal á
Íslandi hf. hafa undirritað viljayfir-
lýsingu um viðræður vegna raforku-
kaupa til hreinkísilverksmiðju í Þor-
lákshöfn. Viðræðurnar munu standa
a.m.k. til loka janúar. Hreinkísill er
notaður í sólarrafala og framleiðslan
hefur engin skaðleg úrgangsefni né
útblástur í för með sér, að því er segir
í frétt frá Landsvirkjun.
Ólafur Áki Ragnarsson, bæjar-
stjóri Ölfuss, sagði að sveitarfélagið
hefði boðið Becromal iðnaðarlóð vest-
an við Þorlákshöfn. Samkvæmt að-
alskipulagi er þar gert ráð fyrir 16
hektara atvinnusvæði en Becromal
mun þurfa 12 hektara lóð. Ólafur Áki
sagði að til framleiðslunnar þyrfti
talsvert af vatni og af því væri nóg til í
Ölfusi. Einnig mundi höfnin í Þor-
lákshöfn vel geta annað flutningum
yrði hreinkísilverksmiðja reist þarna.
Í frétt frá
Landsvirkjun
kemur fram að
samhliða viðræð-
um um raforku-
kaup muni
Becromal vinna
að hagkvæmniat-
hugun á verkefn-
inu. Verksmiðja á
borð við þá sem
fyrirtækið áform-
ar að byggja notar allt að 150 MW og
um 1.300 GWst af rafmagni á ári. „Ef
samningar takast er ráðgert að verk-
smiðjan verði byggð í Þorlákshöfn og
fái rafmagn frá nýjum virkjunum í
Þjórsá. Gert er ráð fyrir að starf-
ræksla hefjist á árinu 2009 og allt að
400 ársstörf verði unnin í verksmiðj-
unni.“
Ólafur Áki óttaðist ekki að erfitt
yrði að manna verksmiðjuna. Hann
sagði að Árborgarsvæðið, allt frá
Hveragerði og Selfossi og vestur í
Þorlákshöfn, væri eitt atvinnusvæði
og því töluverður mannfjöldi til stað-
ar. „Við teljum að það verði engin
sprenging hér á svæðinu heldur
þægileg aukning,“ sagði Ólafur Áki.
Nokkuð hefur borið á atvinnuleysi í
Þorlákshöfn og Ölfusi undanfarið
vegna þrenginga í sjávarútvegi. Ólaf-
ur Áki sagði að mörg atvinnuverkefni
hefðu verið skoðuð en þetta væri eitt
af þeim áhugaverðustu og mest al-
vara að baki, að hans mati.
Á liðnu sumri undirrituðu Lands-
virkjun og Becromal á Íslandi raf-
magnssamning vegna raforkukaupa
Becromal fyrir rafþynnuverksmiðju
á Akureyri. Verksmiðjan á Akureyri
mun taka til starfa á næsta ári og þar
munu starfa um 70 manns.
Viðræður um orku til
hreinkísilverksmiðju
Bæjarstjóri Ölfuss telur mikla alvöru að baki áformunum
Ólafur Áki
Ragnarsson
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
ÍBÚAR grænlenska bæjarins Kulu-
suk tóku flugvélum Flugfélags Ís-
lands sérstaklega fagnandi í gær og
fyrradag en þá loks tókst að fljúga
þangað með þrjú tonn af jólapósti og
pökkum auk ferskra matvæla eftir
um tveggja vikna ófærð. Einnig
hafði fjöldi farþega beðið færis á að
komast þangað fyrir jól og úr því
rættist loks. Sjóleiðin til bæjarins er
ófær á þessum árstíma og því stóla
bæjarbúar alfarið á flugsamgöngur
til að fá ferskvörur.
Flugfélag Íslands flýgur tvisvar í
viku til Kulusuk yfir vetrartímann.
„Það er búið að ganga óvenju illa
að fljúga þangað undanfarið,“ segir
Vigfús Vigfússon, deildarstjóri
fraktdeildar Flugfélags Íslands.
„Við flugum tvo daga í byrjun des-
ember en höfðum þá ekkert getað
flogið í ellefu daga þar á undan.“
Síðan féll flug aftur niður vegna
veðurs og ekki fyrr en í gær og
fyrradag, tæpum tveimur vikum síð-
ar, sem loks tókst að koma jólavarn-
ingnum til Kulusuk.
„Við sendum frá okkur rúmlega
þrjú tonn auk fjölda farþega á
mánudaginn í tveimur vélum en
önnur varð að snúa við vegna veð-
urs,“ segir Vigfús.
Brúnin léttist þó aftur á mönnum í
gærmorgun þegar rofaði til og hægt
var að senda það sem eftir var af
jólavarningnum.
Vigfús segist reikna með að
þröngt hafi verið orðið í búi vegna
ófærðarinnar. Í farminum í gær var
m.a. grænmeti og ferskir ávextir,
t.d. mandarínur og epli í kassavís.
„Já, það má segja að okkar mönnum
hafi verið tekið fagnandi,“ segir
Vigfús um móttökurnar á Kulusuk.
„Þetta er mikill léttir. Það er líka
mjög gaman fyrir okkur að klára
þetta, við vorum orðnir hálfsvekktir
yfir hvað þetta gekk brösuglega.“
Starfsmönnum Flugfélags Íslands var vel tekið í Kulusuk á Grænlandi
Ljósmynd/Vigfús Vigfússon
Hátíð Ragnar Kormáksson, starfsmaður hlaðdeildar FÍ, kom bönunum og öðru góðgæti fyrir í flugvélinni.
Flugu með
jólin til
Grænlands