Morgunblaðið - 19.12.2007, Page 2

Morgunblaðið - 19.12.2007, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is HÚSFYLLIR var á fundi um nið- urrif húsa í miðbænum á veitinga- húsinu Boston á Laugavegi í gær- kvöldi. Þar var rýnt í spurningar á borð við þær hvort fagleg sjón- armið réðu niðurrifinu eða hags- munir fasteignabraskara. Á fund- inum flutti Snorri Freyr Hilmarsson formaður Torfu- samtakanna erindi og segir Óttar M. Norðfjörð, skipuleggjandi fundarins, að erindið hafi haft mik- il áhrif á fundargesti. „Snorri upp- lýsti fundargesti um margt sem þeir vissu ekki um og við lá að fólk gapti,“ segir Óttar. „Torfu- samtökin stækkuðu um fjórðung í kvöld, félagatalan fór úr 300 í 400 þar sem allir á fundinum skráðu sig í samtökin. Við komumst að þeirri niðurstöðu að halda tónleika með okkar færasta tónlistarfólki og meðal annarra hugmynda sem komu fram, var mótmælaganga og fleira. Við eigum eftir að vinna úr þessu og athuga hvað raunhæft er að gera á næstu dögum og vikum. Við ætlum að safna saman öllum staðreyndum í málinu og senda fólki þær með það í huga að viðtak- endur sendi ráðamönnum í borg- inni persónuleg bréf og tjái hug sinn á grundvelli fyrirliggjandi staðreynda. Kjarninn í þessu öllu er sá að það er ákveðinn upplýsingaskortur á ferðinni í samskiptum almenn- ings og þeirra sem eiga lóðirnar. Það þarf að losa um þennan hnút. Til að mynda kom öllum hérna á fundinum mjög á óvart að það ætti að rífa 100 hús í miðbænum. Það hafði enginn heyrt af því og mér finnst í raun stórmerkilegt að mið- bæjarbúar skuli ekki vera upp- lýstir um þetta. En eins og Snorri Freyr kom inn á í erindi sínu, þá virðist sem fólki sé nánast vísvit- andi haldið óupplýstu.“ Að mati Snorra Freys eru allt aðrar kringumstæður í skipulags- málum í borginni nú á dögum en fyrir nokkrum áratugum með því að nú eru öflug og fagleg fast- eignafélög í kringum húsageirann í heild. Líti menn nú nánast á deili- skipulag sem óafturkræfan bygg- ingakvóta en það vekur spurningar um skipulagsforræði borgarinnar. Húsavinir blása til sóknar Hyggjast mót- mæla niðurrifi 100 húsa Morgunblaðið/Golli Húsfyllir Mjög fjölmennt var á fundinum í gærkvöldi og mikil andstaða meðal fundarmanna við áform um niðurrif húsa í miðborg Reykjavíkur. LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði vöru- bílstjóra í gær eftir ábendingu frá vegfaranda sem fannst frágangur á farmi bílsins bjóða upp á hættu fyrir aðra umferð. Grjóthnullungar á stærð við handbolta voru aftan á pallinum og lágu hærra en skjólborð. Bílstjórinn mun hafa stansað á Reykja- nesbrautinni þegar hann varð þess var að vegfar- andanum stóð ekki á sama um fráganginn en að sögn þess síðarnefnda ók bílstjórinn á brott þegar hann fregnaði að lögreglan hefði verið látin vita. Hann var síðan stöðvaður nokkru síðar. Að sögn vegfarandans lá mjög nærri því að grjóthnullungar yltu aftur af vörubílspallinum og þótti honum því rétt að gera lögreglu viðvart. Morgunblaðið/Ingvar Grunur um lélegan frágang AÐEINS eitt tilboð var undir kostn- aðaráætlun Vegagerðarinnar í út- boði sem Vegagerðin efndi til vegna byggingar mislægra gatnamóta á Reykjanesbraut við Arnarnesveg. Suðurverk hf. – Skrauta ehf. átti lægsta tilboðið sem hljóðaði upp á 669 milljónir króna. Í kostnaðaráætl- un Vegagerðarinnar var reiknað með að verkið kostaði 697,8 milljón- ir. Alls bárust sex tilboð og var hæsta tilboð 13% yfir kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar. Gatnamótin við Arnarnesveg eru með stærstu verkefnum Vegagerð- arinnar á höfuðborgarsvæðinu. Gert er ráð fyrir hringtorgi á efri hæð gatnamótanna, á Arnarnesveginum, og er það í fyrsta skipti sem hring- torg er byggt þannig hér á landi. Framkvæmdinni á að vera lokið um mitt ár 2009. Arnarnesvegur, sem tengja mun saman syðri og nyrðri byggðir höf- uðborgarsvæðisins, mun verða lagð- ur frá þessu hringtorgi og að Breið- holtsbraut á næstu þremur árum. Bauð 669 milljónir í verkið Ný gatnamót við Arnarnesveg Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is „SÆL, ég er að hringja frá Vodafone, það var keyptur sími á kennitöluna þína fyrir nokkrum dögum …“ Stúlka: Nei, það var enginn sími keyptur.“ Starfsmaður Vodafone: „Jú, það var keyptur sími á kennitöl- una þína [fer með kennitölu].“ Stúlka: „Ég keypti allavega ekki neinn síma, en það getur vel verið að ég fái hann í jólagjöf.“ Starfsmaður Vodafone: „Nú, já, ókei. Heyrðu, ég hringi í þig aftur á eftir.“ Nokkurn veginn þannig hljóm- aði símtal sextán ára stúlku og starfsmanns símafyrirtækisins Vodafone í fyrradag, en með þessum hætti komst stúlkan að því að í jólapakkanum frá mömmu og pabba væri farsími. Móðir hennar hafði nokkrum dögum áður keypt símann og skráð hann á kennitölu dótt- urinnar. Framhaldi málsins lýsir stúlk- an á eftirfarandi hátt: „Konan hringdi svo aftur og kom með geðveikt asnalega afsökun, sagð- ist hafa hringt í vitlaust síma- númer. En af hverju sagði hún þá kennitöluna mína? Þetta var frekar hallærislegt,“ segir hún hlæjandi. Hún segir starfsmann- inn hafa verið „pínu“ vandræða- legan þegar hann áttaði sig á því að með símtalinu hefði hann ljóstrað upp um jólagjöfina. „Mér finnst hallærislegt að þeir séu að hringja í fólk og kjafta frá jólagjöfum,“ segir stúlkan um klúðrið. Hún segir símtalið þó ekki hafa eyðilagt fyrir sér jólin. „Það hefði nú samt verið gaman ef jólapakkinn hefði komið á óvart!“ Hrannar Pétursson, upplýs- ingafulltrúi Vodafone, segir mis- tök hafa átt sér stað við skrán- ingu símtækisins. Þegar símtæki sé keypt sé skráð hvort um gjöf sé að ræða eða ekki, en það hafi hins vegar farist fyrir í þessu til- viki. Ástæðan fyrir símtalinu hafi verið sú að bjóða átti stúlkunni að virkja ákveðna þjónustu síma- fyrirtækisins. „Þarna var einfald- lega um mistök að ræða sem við auðvitað hörmum og biðjum hlut- aðeiganda afsökunar á,“ segir Hrannar. Hann telur mistökin einstök og segir að ýmsar ráðstafanir hafi verið gerðar til að tryggja að svona nokkuð endurtaki sig ekki fyrir jólin. „Við höfum ákveðið að geyma öll þjónustusímtöl til eigenda nýrra símtækja fram yf- ir jól,“ segir hann. „Það á ekki að vera möguleiki á að þetta endurtaki sig.“  Starfsmaður símafyrirtækisins Vodafone ljóstraði upp um jólagjöf til sex- tán ára stúlku frá mömmu og pabba  Ekki von á fleiri slíkum hringingum „Þetta var frekar hallærislegt“ VATNAMÆLINGAR í gær gáfu til kynna að vænta mætti flóðs í Austari-Jökulsá í Skagafirði. Þar náði rennslið hámarki um hádegi í gær. Lög- reglustjórinn á Sauð- árkróki varaði bændur sem eiga land að ánni við hættunni. Í gær- kvöldi hafði lögreglan á Sauðárkróki ekki heyrt af neinum vandræðum vegna vatna- vaxta. Þá var flóðið tekið að sjatna í Aust- ari-Jökulsá og Héraðsvötnum sem taka við vatni árinnar. Árni Snorrason, forstöðumaður Vatna- mælinga Orkustofnunar, sagði að snögg flóð gætu komið í allar hálendisár við mikla úrkomu og leysingar. Samkvæmt mælingum Vatnamælinga, sem hægt er að skoða á vefnum, hækkaði skyndilega í mörgum ám í gær. Miklir og snöggir flóða- toppar komu t.d. í Skjálfandafljót við Ald- eyjarfoss. Árni sagði slíka toppa koma mjög skarpt og spýjurnar stafa af ísagangi þegar árnar brytu af sér. Vatnamælingar hófust fyrir 60 árum og er afmælisins minnst í dag með málstofu á Orkustofnun f.h. og afmælisdagskrá e.h. á Hótel Loftleiðum. Árni sagði að á þessu tímabili hefðu stærstu flóð norðanlands yf- irleitt verið vorflóð. Nú sæjust æ oftar vetr- arflóð sem svipaði til vetrarflóða á Vestur- og Suðurlandi þar sem hálendið er lægra. Þetta sýndi að lægðirnar nú væru hlýrri en áður, kæmu með rigningu og gætu leyst snjóa. Þetta væri vísbending um hvað gæti gerst í langtímabreytingum á veðurfari. Flóðatoppar í ám fyrir norðan Árni Snorrason HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest farbanns- úrskurð Héraðsdóms Reykjaness yfir karl- manni sem er ákærður fyrir tilraun til manndráps en til vara fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Er manninum gert að sæta farbanni til 16. janúar. Hann hefur sætt farbanni frá 9. nóvember. Maðurinn er grunaður um að hafa að- faranótt fimmtudagsins 8. nóvember sleg- ið annan mann ítrekað með brotinni gler- flösku í höfuð, háls og víðar í líkamann, með þeim afleiðingum að hann fékk m.a. mar á augnknetti og augntóftarvefjum, yf- irborðsáverka á brjóstkassa og öxl og djúpt sár í gegnum hálsvöðva. Farbann staðfest í Hæstarétti SKILAFRESTUR fyrir minningargreinar, sem birtast eiga í Morgunblaðinu fimmtu- daginn 27. desember og föstudaginn 28. desember, er til hádegis föstudaginn 21. desember. Greinar sem birtast eiga 2. janúar 2008 verða að berast fyrir hádegi föstudaginn 28. desember. Skilafrestur minningargreina SKRÁÐ hraðakstursbrot voru tæplega 4 þúsund á landinu í nýliðnum nóvember samkvæmt nýrri skýrslu um afbrotatöl- fræði ríkislögreglustjóra fyrir árið 2007. Um er að ræða 167% fjölgun frá því í nóv- ember 2006 en þá voru skráð brot 1.477 talsins. Til samanburðar voru hraðakst- ursbrot í nóvember 2005 1.148 talsins. Hvað snertir aðrar tegundir brota á um- ferðarlögum kemur fram í skýrslunni að fjöldi skráðra ölvunarakstursbrota í nóv- embermánuði undanfarin ár hefur nánast verið sá sami, eða um 160. Aðra sögu er hinsvegar að segja um akstur gegn rauðu ljósi sem hefur minnkað umtalsvert. Þann- ig voru skráð brot úr þessum flokki 83 talsins í nóvember síðastliðnum en 142 á sama tíma í fyrra. Í nóvembermánuði 2005 voru brotin 126 talsins. Tæp 4 þúsund hraðakstursbrot

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.