Morgunblaðið - 19.12.2007, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 9
FRÉTTIR
MJÖG vel tókst til með útflutning á
fersku lambakjöti til Whole Foods
Market-verslunarkeðjunnar (WFM)
í Bandaríkjunum í haust, að sögn
Steinþórs Skúlasonar, forstjóra
Sláturfélags Suðurlands (SS).
Sú breyting varð í haust að SS og
Sláturhús KVH ehf. á Hvamms-
tanga komu inn í markaðsátak
Áforms í Bandaríkjunum og tóku við
sem birgjar lambakjöts fyrir WFM
af Norðlenska. Meirihluti kjötsins
kom frá SS og voru samtals send
ígildi um 45 tonna frá SS. Steinþór
sagði að mikil áhersla hefði verið
lögð á að hagræða í vinnsluferli
kjötsins og tryggja gæði þess. Var
m.a. byggt á þeirri reynslu sem SS
hefur fengið af útflutningi á fersku
lambakjöti til Danmerkur til margra
ára. Nær allt kjötið var í formi hlut-
aðs og sérskorins lambaskrokks sem
hentar kjötborðum WFM. Héðan
fóru fjórar sendingar frá SS og voru
þær allar samþykktar af bandarísk-
um yfirvöldum án athugasemda.
Steinþór sagði að á liðnum árum
hafi verið byggt upp mjög verðmætt
viðskiptasamband við Whole Foods-
verslunarkeðjuna fyrir ýmsar ís-
lenskar vörur fyrir tilstuðlan mark-
aðsstarfs Áforms. „Whole Foods-
keðjan er leiðandi í sölu á hágæða
matvörum með mikla áherslu á sjálf-
bæra framleiðslu, gæði og hrein-
leika. Fulltrúar Whole Foods hafa
margsinnis komið til Íslands til að
skoða aðstæður við sauðfjárbúskap
og mjólkurframleiðslu og láta einnig
gera sjálfstæða úttekt á þeim slát-
urhúsum og kjötvinnslum sem vinna
fyrir þá. Íslenskt lambakjöt hefur
verið í forgangi í sölu hjá þeim und-
anfarin haust,“ sagði Steinþór. Hann
sagði að mikil ánægja hefði verið hjá
WFM með gæði og frágang varanna.
Vegna þess að nýir birgjar komu
til sögunnar á liðnu hausti var byrj-
að með minna magni en ella. Stein-
þór reiknaði með að næsta haust
verði hægt að auka verulega við
magnið.
„Þrátt fyrir veikingu dollars var
peningaleg afkoma af þessu viðun-
andi og hún væri góð ef íslenska
krónan væri nálægt jafnvægis-
gengi,“ sagði Steinþór. Hann sagði
einnig að óvissa um afleiðingar af
niðurfellingu útflutningsskyldu
muni líklega hafa áhrif á þennan út-
flutning. Steinþór taldi mjög mikil-
vægt fyrir ímynd þeirrar hágæða-
vöru sem íslenskt lambakjöt er að
markaðsstarfinu verði haldið áfram.
Nýir birgjar
lambakjöts
Lambið Ánægja ríkir hjá WFM með
gæði og frágang vörunnar.
Vel tókst til við sölu til Whole Foods
SLÁTURFÉLAG Suðurlands (SS)
hefur lokað sölu- og markaðs-
skrifstofu sinni fyrir íslenskt
lambakjöt í Danmörku. Starfsemin
var rekin undir nafni Guldfoss A/S
í Herning og vörumerkinu Icelamb.
Steinþór Skúlason, forstjóri SS,
sagði að dregið hafi úr starfseminni
í Danmörku undanfarið vegna þess
að salan stóðst ekki væntingar í
magni. Einnig skiluðu aðrir mark-
aðir meiri arðsemi. Síðastliðin tvö
ár var aðeins eitt stöðugildi í þess-
um rekstri og sagði Steinþór að í
ljósi þess að útflutningsskylda
lambakjöts fellur niður í lok næsta
árs og að veruleg óvissa ríki um
framhald útflutnings hafi verið
ákveðið að loka skrifstofunni í lok
nóvember síðastliðins.
Íslenskt lambakjöt verður þó
áfram selt til valinna viðskiptavina
í Danmörku, líkt og Irma-
verslunarkeðjunnar, en þeirri sölu
verður stjórnað héðan frá Íslandi.
Loka skrif-
stofu SS í
Danmörku
LÖGREGLAN á Húsavík og sjúkra-
flutningamenn voru kölluð út
vegna umferðaróhapps við bæinn
Einarsstaði í Reykjadal í gærmorg-
un þar sem steypudælubíll hafði olt-
ið. Bílstjórinn lemstraðist og var
fluttur á sjúkrahús til aðhlynn-
ingar.
Óhappið varð á Hringveginum og
hafði bílstjórinn misst bílinn út í
vegkant með þeim afleiðingum að
hann fór heila veltu.
Steypudælu-
bíll valt
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
Svört sparipils
Mjódd, sími 557 5900
Nýjir toppar frá WEARHOUSE
Verið velkomnar
m
bl
9
50
50
4
Opið til kl. 22 Munið gjafabréfin
Náttföt,
náttsloppar
og náttkjólar
Flott úrval
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
Nýjar vörur
BOCAGE-skór
M
b
l 9
51
00
7
Hverafold 1-3 (hjá Nóatúni)
sími 562 6062
Fallegar nýjar vörur
Opnunartími
miðvikud. - föstud. 11.30-21.00
Laugardag og Þorláksmessu 11.30-22.00
Aðfangadag 10-12
Glæsilegur fatnaður í stærðum 38 til 60
Vertu þú sjálf - vertu bella donna
Opnunartímar til jóla: miðvikud. - laugard. 11.00 - 20.00
þorláksmessa 12.00 - 20.00, aðfangadagur 10.00 - 12.00
www.belladonna.is
Skeifan 11d • 108 Reykjavík • 517 6460
Fréttir á SMS