Morgunblaðið - 19.12.2007, Page 44
44 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Svana Ragn-arsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 22.
janúar 1937. Hún
lést á gjörgæslu-
deild Landspítalans
13. desember síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Ragn-
ar Halldórsson, f.
8.5. 1896, d. 15.6.
1979, og Ragna
Guðrún Jóhanns-
dóttir, f. 30.7. 1901,
f. 2.10. 1958. Systir
Svönu er Helga,
hjúkrunarfræðingur, f. 25.6.
1943; eiginmaður hennar var
Gunnar S. Malmberg, f. 12.01.
1938, d. 13.6. 1998. Synir Helgu
eru a) Tómas Óskar Malmberg, f.
12.11. 1966, maki Arndís B.
Bjargmundsdóttir, f. 4.6. 1970,
börn þeirra eru Alexander og
Helga Fanney. b) Baldur Malm-
berg, f. 1.7. 1982.
Fyrri maður Svönu er Þórhall-
ur Jónsson, f. 1.10. 1927. Sonur
þeirra er Ragnar Gunnar, f. 14.11.
1955, maki Kolbrún Dögg Krist-
jánsdóttir, f. 28.9.
1972, sonur þeirra
er Gunnar Páll.
Svana giftist 10.4.
1960 Jóni Skúla
Þórissyni klæð-
skera, f. 16.7. 1931.
Dætur þeirra eru 1)
Jóhanna Þórey, f.
14.1. 1961, börn
hennar eru Dag-
björt Svana, f. 18.1.
1985 og Ólafur Þór-
ir, f. 2.8. 1995. 2)
Ragnheiður Helga,
f. 21.7. 1962, börn
hennar eru a) Jón Skúli, f. 25.4.
1980, sonur hans er Ingvar Breki,
f. 24.8. 2001, og b) Helga, f. 7.7.
1990. 3) Berglind, f. 17.12. 1967,
maki Rikharð Sigurðsson, f. 9.1.
1962, börn þeirra eru Sunna, f.
1.2. 1985, Teresa Tinna, f. 29.3.
1988, og Dagur Ingi, f. 9.11. 2006.
Svana var húsmóðir og bjó í
Reykjavík og Hafnarfirði öll sín
ár.
Útför Svönu verður gerð frá
Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í
dag og hefst athöfnin klukkan 15.
Elsku mamma.
Þessir dagar frá því þú fórst frá
okkur sem þótti svo vænt um þig hafa
verið erfiðir því sorgin er svo mikil að
missa þig svona fljótt og fyrirvara-
laust. Ég minnist þín mamma sem
móður og vinkonu sem ég gat leitað
til þegar eitthvað bjátaði á. Síðustu ár
hafa verið mér erfið og það var mér
mikil hjálp að geta leitað til þín og
pabba þegar ég þurfti á stuðningi og
hlýju að halda út af ákveðnum mál-
um. Mamma, þú áttir við erfið veik-
indi að stríða í langan tíma en alltaf
hugsaðir þú um að vera snyrtilega
klædd og vel vel til höfð, en það er nú
kannski ekki svo skrítið þar sem
elsku pabbi er klæðskerameistari og
alltaf mjög snyrtilegur til fara. Þú
varst svo lánsöm að kynnast pabba á
erfiðum tíma í lífi þínu og tel ég að
það hafi verið þín mesta gæfa. Ykkar
hjónaband varði í heil 47 ár og voruð
þið alltaf mjög samrýnd enda alltaf
saman, en það komu líka erfiðir
tímar.
Elsku mamma, ég minnist allra
góðu samverustundanna sem við átt-
um, mér eru sérstaklega minnisstæð-
ar sumarbústaðaferðirnar í Munaðar-
nesið síðustu ár, matarboðin við
eldhúsborðið heima hjá ykkur þar
sem þú og pabbi voruð svo skemmti-
leg, enda unun að fylgjast með ykkur,
og margar fleiri samverustundir.
Mamma, mig langar að þakka þér
fyrir allt. Ég á eftir að sakna þín mjög
mikið en lífið heldur áfram og ég ætla
að halda áfram að standa mig vel eins
og ég hef gert undanfarin ár. Ég ætla
líka að halda áfram í kórnum og að
hugsa um pabba sem nú hefur misst
svo mikið, og að sjálfsögðu börnin
mín. Ég kveð þig nú með miklum
söknuði og sorg í hjarta en líka með
gleði því nú ertu búin að fá hvíldina og
ert laus við þjáningarnar. Ég trúi því
að nú sértu á góðum og fallegum stað
hjá guði þar sem þér líður vel. Ég bið
guð að gefa okkur öllum styrk til að
halda áfram og ég sendi samúðar-
kveðjur til allra sem þekktu elskulega
móður mína, Svönu Ragnarsdóttur.
Vertu sæl elsku mamma mín og
hvíldu í friði.
Þín dóttir
Jóhanna Þórey.
Þetta er undarlega þung tilfinning
sem leggst einhvern veginn á allan
líkamann, að vera búin að missa þig,
elsku mamma mín. Ég verð þó að við-
urkenna að ég er þakklát fyrir hversu
lengi þú lifðir, þú hefur oft verið við
dauðans dyr á strangri ævi. Mér er
þakklæti efst í huga, sérstaklega fyrir
þessi síðustu ár. Ég hlaut mikla lausn
við að koma til þín með hjálp góðra
samtaka aðstandenda þar sem ég
horfðist í augu við framkomu mína öll
þessi ár. Að biðja þig fyrirgefningar
var dásamleg lausn sem færði okkur
nær hvor annarri. Við áttum þetta
litla leyndarmál saman sem við deild-
um þegar við föðmuðumst á nýjan
hátt. Takk elsku mamma, takk fyrir
að gera þitt besta fyrir mig og fyrir
Sunnu. Takk fyrir að leyfa mér að lifa
lífi mínu án þess að þú værir að skipta
þér af. Leyfa mér að gera mistök,
svala ævintýraþránni án þess að
dæma mig. Þú varst nefnilega ótrú-
lega æðrulaus og jákvæð þrátt fyrir
allt, talaðir vel um fólk, varst sko ald-
eilis engin kjaftakerling.
Ég er þér og pabba svo óendanlega
þakklát fyrir að kenna mér þetta já-
kvæða viðhorf til lífsins, að þurfa ekki
að uppgötva það dásamlega leyndar-
mál þegar í óefni er komið. Það verð-
ur ekki erfitt að efna loforðið sem ég
gaf þér fyrir ekki svo löngu, að hugsa
vel um hann pabba, ég nýt hverrar
mínútu með honum enda besti pabbi í
heimi. Við vitum vel að þú ert með
okkur nú og um alla eilífð og það
huggar okkur.
Við Rikharð, Sunna, Teresa Tinna
og Dagur Ingi kveðjum þig með kær-
leika í hjarta, þín
Berglind.
Mér þótti leitt að þú fórst með
þessum hætti og mér þótti líka leitt að
geta ekki verið hjá þér þegar þú lást
fyrir dauðanum á gjörgæsludeild
Landspítalans. En mér fannst gott að
þú gast farið svo þú fyndir ekki fyrir
sársaukanum. Ég sé eftir því að hafa
ekki hitt þig nógu oft. Ég minnist
þess þegar ég var lítill strákur og
kom í heimsókn til ykkar og gisti hjá
ykkur. En núna ætla ég að hugsa um
framtíðina og vera góður drengur.
Ég vildi samt að þú hefðir fengið að
lifa ferminguna mína eftir 1 1/2 ár. En
það er mikil sorg að missa þig, fyrir
afa og okkur öll. En núna þarf ég að
kveðja þig með mikilli sorg en ég
vona að þú sért á góðum stað hjá guði.
Vertu sæl elsku amma mín og takk
fyrir allar samverustundirnar og
hvíldu í friði. Þitt barnabarn,
Ólafur Þórir.
Elsku besta amma.
Voðalega á ég eftir að sakna þín
mikið. Þó svo að við höfum ekki sést
mikið seinustu árin, þá hefur mér allt-
af þótt ofboðslega vænt um þig.
Ég man eftir því þegar ég var yngri
og við sátum tvær saman í eldhúsinu
og hlustuðum á útvarpið. Tímunum
saman fékk ég að dunda mér við að
snyrta þig og punta. Það var líka allt-
af svo spennandi að fá að prófa alla
fínu skartgripina þína aftur og aftur
og alltaf varst þú jafn þolinmóð.
Þó að lífið væri ekki alltaf létt,
reyndir þú alltaf að vera jákvæð. Þú
varst alltaf líka glöð og hress þegar
ég kom í heimsókn þó að við vissum
báðar að sú væri ekki staðreyndin.
Ég er leið yfir því að geta ekki
kvatt þig núna, en ég lofa þér því að
þegar ég kem næst heim til Íslands
mun ég syngja fyrir þig og kveðja.
Það á eftir að vera erfitt að koma
heim og þú ekki lengur á Suðurbraut-
inni. Ég veit þó að þú átt alltaf eftir að
vera hérna hjá okkur og sérstaklega í
mínu hjarta.
Elsku amma mín, hvíl í friði
Þín,
Sunna.
Mig langar með örfáum orðum að
kveðja fyrrverandi tengdamóður
mína og vinkonu, Svönu Ragnars-
dóttur. Þrátt fyrir veikindi sín var
Svana ávallt kát og glöð við hlið Jóns
síns. Ég kynntist Svönu fyrir um það
bil 28 árum og ég á margar minningar
um hana, góðar minningar t.d. úr
sumarbústað þeirra hjóna í Grafn-
ingnum og trúi ég að allir sem þangað
komu hljóti að eiga stórskemmtilegar
minningar þaðan.
Fyrir mig var stórkostlegt að
kynnast þeim hjónum, ég hafði aldrei
upplifað önnur eins matarboð og hjá
þeim, með fallega mávastellið hennar
Svönu á borðum. Einnig á ég góðar
minningar frá fjölmörgum útilegum
með þeim hjónum þar sem ávallt var
glatt á hjalla. Svönu kveð ég með
trega og sorg í hjarta mínu. Ég votta
Jóni, börnum Svönu og fjölskyldum
þeirra mína innilegustu samúð og veit
að Guð mun gefa þeim styrk.
Trausti Rúnar Traustason.
Svana Ragnarsdóttir
Atvinnuauglýsingar
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti óskar eftir
að ráða aðstoðarmanneskju í mötuneyti
kennara frá 1. janúar 2008.
Starfsmaður aðstoðar forstöðumann
eldhúss við dagleg störf.
Laun samkvæmt stofnanasamningi FB
og SFR.
Umsóknarfrestur er til 21. des. 2007.
Allar upplýsingar gefur
aðstoðarskólameistari í síma 570 5600.
Skólameistari
Austurbergi 5 111 Reykjavík Sími 570 5600
Símbréf 567 0389 Tölvupóstur: fb@fb.is
www.fb.is
KÓPAVOGSBÆR
www.kopavogur.is - www.job.is
Hvammshús
• Hvammshús, sérúrræði í Kópavogi, aug-
lýsir eftir fjölhæfum kennara til starfa
eftir áramót.
Óhefðbundið og skapandi starf með frá-
bærum krökkum.
Upplýsingar um starfið gefur Birgir Svan
Símonarson í síma 554-0230.
Umsóknum skal skilað á fræðsluskrifstofu Kópa-
vogs, Fannborg 2, fyrir 4. janúar 2008.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar
sveitarfélaga og KÍ.
Hvetjum karla jafnt sem
konur til að sækja
um starfið.
ⓦ Óska eftir
blaðberum
sem fyrst
í Innri og
Ytri Njarðvík
Upplýsingar gefur
Ólöf í síma
899 5630
Vélstjóri - vélavörður
Vélstjóra eða vélavörð vantar á 140 brl.
dragnótabát sem gerður er út frá Þorlákshöfn.
Upplýsingar í síma: 840 0841/852 2962 Jóhann .
Háseti óskast á
Sighvat GK 57
Upplýsingar í síma 420 5700, skrifstofa og
856 5761, Unnsteinn skipstjóri.
Raðauglýsingar 569 1100
Tilkynningar
BORGARTÚN 3 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 3000 - MYNDSENDIR 411 3090
Auglýsing um nýtt
deiliskipulag í Reykjavík
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með
auglýst tillaga að deiliskipulagi í Reykjavík.
Fálkagötureitur
Tillaga að deiliskipulagi fyrir svæði sem afmarkast
af Tómasarhaga, Hjarðarhaga, Suðurgötu og lóðum
við Fálkagötu 1-13 og Tómasarhaga 7.
Tillagan gerir ráð fyrir auknu byggingarmagni á
lóðum að Fálkagötu 2, 4, 7, 10, 20, 25, 26 og 30
og að heimilt verði að setja flutningshús á lóðina
að Þrastargötu 1. Húsið skal vera svipað að stærð
og önnur hús við Þrastargötu. Heimilt verður að rífa
hús og byggja nýtt á lóðinni að Fálkagötu 25, end-
urbyggja hús að Þrastargötu 7 í hæð aðlægra húsa,
heimilt verði að byggja bílageymslu á lóðunum að
Tómasarhaga 7, 12 og 16 og á auðu svæði við
Arnargötu, ný lóð afmörkuð, verður gert ráð fyrir
bílskúrum fyrir hús að Arnargötu 4, 8, 10 og 12.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála skipulags- og
byggingarsviðs Reykjavíkurborgar að Borgartúni 3, 1.
hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 19. desember
2007 til og með 31. janúar 2008. Einnig má sjá til-
löguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru
þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að
kynna sér tillöguna.
Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal
skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is,
til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 31.
janúar 2008. Vinsamlegast notið uppgefið netfang
fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests,
teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 19. desember 2007
Skipulagsstjóri Reykjavíkur
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið