Morgunblaðið - 19.12.2007, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 47
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.30,
vinnustofa opin 9-16.30, postulíns-
málning kl. 9, gönguhópur kl. 12, há-
degismatur kl. 12, postulínsmálning
kl. 13 og kaffi kl. 15.
Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, handav.,
smíði/útskurður kl. 9-16.30, heilsu-
gæsla kl. 10-11.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Jólaljósaferð um
Reykjanesið með Hannesi rútubíl-
stjóra verður farin kl. 15.30 frá
Bólstaðarhlíð. Kaffiveitingar á Garðs-
skaga. Verð 2.900 kr. Skráning í s.
535 2760. Hárgreiðsla, böðun,
handavinna, glerlist, morgunkaffi/
dagblöð, fótaaðgerðir, hádegisverður,
spiladagur, kaffi.
Dalbraut 18-20 | Vinnustofa í hand-
mennt opin kl. 9-12, leiðb. Halldóra,
leikfimi kl. 10, leiðb. Guðný.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Skrifstofa FEBK, Gullsmára 9, er opin
kl. 10-11.30, s. 554 1226. Í Gjábakka er
opið kl. 15-16, s. 554 3438. Félagsvist
í Gjábakka kl. 13.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinna kl. 10, félagsvist kl. 13. Viðtals-
tími FEBK kl .15-16. Bobb kl. 16.30,
línudans kl. 18, samkvæmisdans kl.
19. Skráning í skötuveisluna í Gjá-
bakka á Þorláksmessu kl. 12, s.
554 3400.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Mynd-
list kl. 9.05, ganga kl. 10, hádegis-
verður kl. 11.40, postulínsmálun og
kvennabridds kl. 13.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Opið í Jónshúsi kl. 10-16, heitur matur
frá Skútunni kl. 12-13 virka daga,
panta þarf með sólarhringsfyrirvara.
Máltíðin kostar 710 kr. Matseðil er að
finna á heimsíðu Skútunnar. Pönt-
unarsímar: Hulda, s. 512 1501/
617 1501 og Jónína, s. 512 1502/
617 1502.
Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustof-
ur opnar kl. 9-16.30. Dansæfing fellur
niður, spilasalur er opinn frá hádegi.
Uppl. í s. 575 7720 og www.gerdu-
berg.is. Strætisvagnar S4, 12 og 17
stansa við Gerðuberg.
Furugerði 1, félagsstarf | Aðst. við
böðun kl. 9, bókband kl. 13.15, létt
leikfimi kl. 14, framhaldssagan og
kaffiveitingar kl. 15.
Hraunbær 105 | Handavinna og út-
skurður kl. 9, ganga kl. 11, hádegis-
matur kl. 12, bridds kl. 13, kaffi kl. 15.
Hárgreiðslustofan Blær opin alla
daga, sími 894 6856.
Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa
kl. 9-16 hjá Sigrúnu, jólasokkar, tau-
málun o.fl. Samverustund kl. 10.30
lestur, spjall, kaffi og smákökur. Jóla-
bingó kl. 13.30, 8 umferðir, aðalvinn-
ingur matarkarfa. Kaffiveitingar. Böð-
un fyrir hádegi og hádegisverður kl.
11.30. Hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Leikskólinn Jörvi
kemur í heimsókn 20. des. kl. 14 til
sönghóps Hjördísar Geirs. Dansað í
kringum jólatréð og jólasveinninn
kemur í heimsókn. Á föstud. kl. 12
syngur kór Bústaðakirkju. Uppl. í s.
568 3132.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkr-
unarfræðingur frá heilsugæslunni
verður við kl. 10.30, leikfimi kl. 11,
handverksstofa opin kl. 13, kaffiveit-
ingar kl. 14.30, bingó kl. 15.
Norðurbrún 1 | Smíðastofan opin kl.
9-16, vinnustofa í handmennt opin á
sama tíma, Halldóra leiðb. við kl. 9-12.
Félagsvist kl. 14.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fóta-
aðgerðir kl. 9-12, aðstoð v. böðun, kl.
9.15-16, handavinna kl. 10-12, sund kl.
11.45, hádegisverður kl. 12.15, versl-
unarferð í Bónus kl. 13-16, tréskurður
kl. 14.30-15.45, kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja og
handavinnustofan opin, morgunstund
kl. 10, verslunarferð í Bónus kl. 12.15,
upplestur kl. 12.30, bókband og dans
kl. 14. Uppl. í síma 411 9450.
Kirkjustarf
Bessastaðasókn | Foreldramorgunn í
Holtakoti kl. 10-12. Jólaleg samveru-
stund í Litlakoti, starf eldri borgara
kl. 13-16. Jólalög og jólagleði, heitt
súkkulaði og meðlæti.
Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl.
12. Tónlist, hugvekja, fyrirbænir. Létt-
ur málsverður í safnaðarheimili.
Dómkirkjan | Bænastundir alla mið-
vikudaga kl. 12.10-12.30. Léttur há-
degisverður á kirkjuloftinu á eftir.
Bænarefnum má koma á framfæri í
síma 520 9700 eða með tölvupósti á
domkirkjan@domkirkjan.is.
Dómkirkjan | Hádegisbænir kl. 12.10-
12.30. Léttur hádegisverður á kirkju-
loftinu. Bænarefnum má koma á
framfæri í síma 520 9700 eða með
tölvupósti á domkirkjan@domkirkj-
an.is.
Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund kl.
12. Altarisganga og fyrirbænir. Boðið
er upp á léttan hádegisverð. TTT fyrir
10-12 ára í Rimaskóla og Korpuskóla
kl. 17-18.
Hallgrímskirkja | Morgunmessa kl. 8.
Hugleiðing, altarisganga. Morgun-
verður í safnaðarsal.
Hjallakirkja | Fjölskyldumorgunn kl.
10-12.
Kristniboðssalurinn | Háaleitisbraut
58-60. Samkoma kl. 20. „Guð réttir
út hendur sínar.“ Hugleiðing: Guð-
laugur Gunnarsson. Jól og jólaund-
irbúningur: Kristín Bjarnadóttir. Kaffi.
Laugarneskirkja | Foreldramorgunn í
umsjá sr. Hildar Eirar Bolladóttur kl.
10, gönguhópurinn Sólarmegin leggur
upp frá kirkjudyrum kl. 10.30. Kirkju-
prakkarastarfið hefst að nýju eftir
áramót.
Neskirkja | Fyrirbænamessa kl. 12.15.
Prestur sr. Örn Bárður Jónsson. Beð-
ið er fyrir sjúkum og hverjum þeim
sem þurfa á fyrirbæn að halda.
Vídalínskirkja, Garðasókn | Jóla-
stundin okkar kl. 13-16, pútt, lomber,
vist, bridds og spjall. Kaffiveitingar kl.
14.45. Akstur fyrir þá sem vilja, upp-
lýsingasími: 895 0169.
dagbók
Í dag er miðvikudagur 19. desember, 353. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Nýtt boðorð gef ég yður, að þér elskið hver annan. Eins og ég hef elskað yður skuluð þér einnig elska hver annan. (Jóh. 13, 34.)
Þó líklega tengi flestir Grasa-garð Reykjavíkur við sól ogsumar er ekki síður áhuga-vert að heimsækja garðinn
um hávetur.
Eva G. Þorvaldsdóttir er forstöðu-
maður Grasagarðsins og segir frá því
sem garðurinn býður gestum sínum nú
þegar vetur konungur ræður ríkjum:
„Búið er að skreyta lystihúsið með
skrautvafningum sem unnir eru úr lif-
andi greinum eðalþins, og sett hefur
verið upp ljósum prýtt jólatré utan-
dyra,“ segir Eva. „Leikskólar borgar-
innar hafa komið og heimsótt okkur, og
þykir yngstu gestunum ómótstæðilegt
að dansa kringum jólatréð. Þá höfum
við einnig, að kaþólskum sið, stillt upp
litlu fjárhúsi, þar sem sjá má Jesúbarn-
ið í jötu, Jósef, Maríu, og vitringana, og
vekur mikinn áhuga barnanna.“
Að sögn Evu er ekki síður gaman fyr-
ir fullorðna að heimsækja Grasagarðinn
um vetur: „Garðurinn er fallegur á vet-
urna. Þegar laufskrúðið er ekki á trján-
um má t.d. sjá betur fuglalífið í garð-
inum, en hér búa m.a. hrafnar, snjó-
tittlingar og auðnuitittlingar, og
svartþrestir hafa einnig sést í garðin-
um,“ segir Eva. „Þá veitir veturinn
skemmtilegt tækifæri til að sjá hvernig
trén eru uppbyggð því þegar þau eru í
vetrarskrúða sést vel hvernig greina-
byggingin er og karakterinn í trjánum.“
Eva segir notalegt að rölta um garð-
inn í vetrarkuldanum: „Hingað er gott
að koma til íhugunar og í gömlu húsi við
aðalinngang Grasagarðsins, Lauga-
tungu, eru borð og stólar þar sem kjörið
er að snæða nesti eða súpa heitt kaffi
eða kakó af brúsa. Kyrrð er í garðinum
og snjósælt, og varla að verði vart við
rok í skjólinu af gróðrinum.“
Og eins og Eva bendir á eru sumar
jurtirnar í blóma um hávetur: „Síðast-
liðin þrjú ár hefur blómstrað hjá okkur í
janúarbyrjun jólarós, sem er sígræn
jurt með hvítum blómum, mjög falleg
og í miklu uppáhaldi hjá öðrum Norður-
landaþjóðum,“ segir Eva.
Grasagarður Reykjavíkur er opinn
alla daga ársins, en garðskálinn og
lystihúsið eru opin frá kl. 10 til 17 á vet-
urna. Sumartími hefst 1. apríl, og er þá
opið 10 til 22. Aðgangur að garðinum er
ókeypis.
Útivist | Grasagarður Reykjavíkur er í vetrarskrúða og þar er margt að sjá
Kyrrð og skjól í jólaamstrinu
Eva. G. Þor-
valdsdóttir fæddist
í Reykjavík 1954.
Hún lauk stúdents-
prófi frá Versl-
unarskóla Íslands
1975, BS-prófi í líf-
fræði frá Háskóla
Íslands 1981 og
meistaraprófi frá
Landbúnaðarháskólanum á Ási í Nor-
egi 1990. Eva starfaði við kennslu hjá
Garðyrkjuskóla ríkisins og við fram-
haldsskóla, en hefur frá árinu 2000
verið forstöðumaður Grasagarðs
Reykjavíkur. Eiginmaður hennar er
Björn Gunnlaugsson verkefnisstjóri
og eiga þau tvær dætur.
Tónlist
Dómkirkjan | Eftir lokun verslana
gefst fólki tækifæri til að hlýða á
kyrrláta jólatónlist við kertaljós.
Á efnisskrá eru mótettur eftir
Praetorius og Brahms og jóla-
sálmar í fallegum útsetningum.
Tónleikarnir hefjast kl. 22 og er
aðgangur ókeypis.
Fríkirkjan í Reykjavík | Söng-
kvartettinn Kolka heldur jóla-
tónleika kl. 20.30. Á efnisskránni
Fyrirlestrar og fundir
Geðhjálp | Félagsfælnihópur
Geðhjálpar kemur saman kl
19.30-21.
Fréttir og tilkynningar
AA-samtökin | Neyðarsími AA-
samtakanna er 895 1050.
Blóðbankinn | Blóðbankabíllinn
verður við KFC (Kentucky Fried
Chicken) í Reykjanesbæ í dag kl.
10-17.
Bækur
Háskólatorg | Rithöfundarnir
Ingólfur Gíslason, Sigurbjörg
Þrastardóttir, Bragi Ólafsson og
Óskar Árni Óskarsson lesa upp kl.
16. Á morgun, 20. des. kl. 16, lesa
Gísli Hvanndal, Aron Pálmi, Sig-
urður Pálsson og Arnar Eggert
Thoroddsen. Háskólatorgið er
staðsett á milli Aðalbyggingar og
Íþróttahúss HÍ. Aðgangur öllum
leyfður.
eru jólalög og jólasálmar sem
verða flutt án undirleiks, ásamt
einsöngsperlum þar sem söng-
konurnar annast undirleik hjá
hvor annarri. Miðasala við inn-
ganginn, verð 1.500/1.000 kr.
Hafnarfjarðarkirkja | Mozart við
kertaljós kl. 21. Camerarctica hef-
ur leikið tónlist eftir Mozart á
kertaljósatónleikum í Hafnar-
fjarðarkirkju í fimmtán ár og þyk-
ir mörgum þeir ómissandi fyrir
jólin.
FRÉTTIR
NÝLEGA afhenti Artica, um-
boðsaðili Estée Lauder,
Krabbameinsfélaginu og Sam-
hjálp kvenna ágóða af söfnun í
tengslum við átak í október gegn
brjóstakrabbameini undir
merkjum Bleiku slaufunnar. Í
mörgum löndum hefur október-
mánuður ár hvert verið helgaður
árvekni um brjóstakrabbamein.
Íslendingar tóku nú í áttunda
sinn þátt í þessu átaki. Á þrjátíu
útsölustöðum Estée Lauder
snyrtivara og á nokkrum öðrum
stöðum var dreift bleikum slauf-
um, tákni átaksins, og tekið við
frjálsum framlögum í sérmerkta
söfnunarbauka. Ágóðanum, 2,4
milljónum króna, verður að
þessu sinni varið til kaupa á
tækjum fyrir Leitarstöð
Krabbameinsfélagsins.
Í frétt frá Krabbameinsfélag-
inu segir að félagið meti mikils
þennan stuðning við baráttuna
gegn brjóstakrabbameini.
Bleika slaufan Sigurður Björnsson, formaður KÍ, og Guðrún
Sigurjónsdóttir, formaður Samhjálpar kvenna, tóku við ávísun frá
Evu Garðarsdóttur Kristmanns og Guðlaugi Kristmanns hjá Artica.
Estée Lauder afhenti 2,4 millj-
ónir vegna Bleiku slaufunnar
Skólavörðustíg 21, Reykjavík
sími 551 4050
Glæsileg
brúðarrúmföt
í úrvali
Fréttir á SMS