Morgunblaðið - 19.12.2007, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 49
Krossgáta
Lárétt | 1 skrölt, 4 hríð,
7 mjúkum, 8 stirðleiki,
9 hagnað, 11 ýlfra, 13 fall,
14 langar til, 15 maður,
17 mergð, 20 töf, 22 hæn-
ur, 23 Asíuland, 24 lofar,
25 aflaga.
Lóðrétt | 1 borguðu,
2 kvendýr, 3 fá af sér,
4 fjöl, 5 skrökvar, 6 lítil-
fjörlegan, 10 hroki,
12 kraftur, 13 skar,
15 málmur, 16 skrifum,
18 tjónið, 19 ljúka,
20 ósoðinn, 21 kosning.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 munntóbak, 8 náleg, 9 álfar, 10 lin, 11 renni,
13 særir, 15 skens, 18 störf, 21 kæn, 22 fögru, 23 aflar,
24 handfangs.
Lóðrétt: 2 uglan, 3 nagli, 4 óláns, 5 arfur, 6 snær, 7 hrár,
12 nón, 14 ætt, 15 sófi, 16 eigra, 17 skuld, 18 snaga, 19 öfl-
ug, 20 forn.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það er ekki hægt að skemmta sér
of vel. Stuð dagsins verður frábært um-
ræðuefni á öllum þeim samkomum sem
þér ber að mæta á í náinni framtíð.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú byrjar alltaf á því að vera al-
mennilegur, því það virkar oftast vel fyrir
þig – en ekki alltaf. Vei þeim sem hvetur
þig til að bregðast við samkvæmt eðli þínu
– vænisýki.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Að vinna mörg verk í einu er
uppáhaldsíþróttin þín núna. Þér finnst þú
svo framkvæmdasamur þegar þú gerir
milljón hluti í einu. Í kvöld bregstu furðu-
lega við ættingja.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú hefur verið ansi góður í að vera
þú sjálfur. Þótt þú spillir þér smá eyði-
leggur það ekki fyrir þér. Í raun er þér
best að láta eftir þörfum þínum núna.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú gerist óheppinn í ástamálum.
Ekki stimpla þig misheppnaðan – heppnin
snýr aftur eftir þrjá daga. Í kvöld
skemmtirðu þér við ódýra afþreyingu.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú spyrð þig hver vann verkið.
Nokkrir koma til greina, en ekki draga
neinar ályktar fyrr en þú hefur rannsakað
málið. Svarið er ekki augljóst.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú verður var við nýtt líf sem kviknar
innra með þér. Þú þróar með þér töfra og
ýmsa iðju sem víkkar vitundina. Brátt
skilurðu sannleikann. Gaman!
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Lífið er eiginlega eins og þrí-
víddarmynd núna. Horfðu djúpt á flatan
hluta, skiptu um stellingu og kipraðu aug-
un. Þú öðlast nýja sýn á lífið.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú hefur áhrif á fólk og lætur
því líða á vissan hátt. Reyndu að skilja
hvernig þessi áhrif og tilfinningarnar eru.
Spurðu beinna spurninga og fáðu svör.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Fljótasta leiðin að markmiði
þínu er að láta aðra vita að þeim er í hag
að vekja áhuga þinn. Náin kynni við valda-
mikla manneskju endurræsa vélina þína.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Lífið einfaldlega flæðir áfram
þegar þú vinnur einn. En málið er ekki að
allt sé auðvelt. Að vinna með öðrum skap-
ar gefandi áskoranir – sem þú vissir ekki
að þú þarfnaðist.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú gerir það sem þú vilt. Leyfðu
öðrum að gera slíkt hið sama. Ástvinir
dragast að þér því þeim finnst þeir frjálsir
með þér. Í kvöld verður hugur þinn eins
og galdrasproti. Passaðu þig!
stjörnuspá
Holiday Mathis
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. cxd5
Rxd5 5. e4 Rxc3 6. bxc3 Bg7 7. Bc4
c5 8. Re2 0-0 9. 0-0 Rc6 10. Be3 Bg4
11. f3 Bd7 12. Hb1 Hc8 13. Bd3 Dc7
14. De1 Hfd8 15. Df2 Be8 16. Hfd1
Da5 17. Hxb7 Da4 18. Hc1 cxd4 19.
cxd4 Dxa2 20. d5 Re5 21. Bb1
Hxc1+ 22. Bxc1 Dc4 23. Be3 a5 24.
h3 a4 25. Bc5 Ha8 26. Ba3 Bb5 27.
Rc1
Staðan kom upp á heimsbikar-
mótinu í skák sem er nýlokið í
Khanty–Mansiysk í Rússlandi.
Ísraelski stórmeistarinn Boris
Avrukh (2.641) hafði svart gegn
brasilískum kollega sínum Gilberto
Milos (2.592). 27. … Rg4! 28. Bd3
Dc3 og hvítur gafst upp enda liðstap
óumflýjanlegt þar sem svartur hótar
Bg7-d4.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.
Sniðganga.
Norður
♠85
♥ÁD7652
♦G54
♣Á8
Vestur Austur
♠ÁD97 ♠G102
♥10 ♥G843
♦9632 ♦108
♣KDG4 ♣10964
Suður
♠K643
♥K9
♦ÁKD7
♣752
Suður spilar 4♥.
Suður opnar á 1G og verður síðan
sagnhafi í 4♥ eftir yfirfærslu norðurs.
Hvernig á að spila með ♣K út?
Tólf slagir gætu verið til staðar í góðri
legu – ef trompið er 3-2 og spaðaás rétt-
ur. Í tvímenningi væri því best að spila
beint af augum: drepa á ♣Á, taka þrjá
efstu í trompi og fara svo í tígulinn. En
þá gerast þau ósköp að austur trompar
þriðja tígulinn og spilar ♠G í gegnum
kónginn. Þannig fær vörnin fjóra slagi.
Þetta er afleit lega, en í sveitakeppni
er ómaksins vert að taka hana með í
reikningsdæmið og reyna að sniðganga
austur. Til að byrja með dúkkar sagn-
hafi ♣K til að rjúfa þar samband. Segj-
um að vestur haldi áfram með lauf. Þá
er hjarta spilað úr borði og nían látin
heima. Vestur fær slaginn, en getur
ekki sótt að spaðanum frekar en fyrri
daginn. Sagnhafi nær því að aftrompa
austur áður en hann hendir spaða niður
í fjórða tígulinn.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
1 Landsvirkjun hefur stofnað nýtt dótturfyrirtæki sem ám.a. að annast útrás fyrirtækisins auk nýrra verk-
efna heima fyrir. Hvað heitir það?
2 Hver hlaut verðlaun Félags bóksala fyrir bestu skáld-söguna?
3 Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur fengið nýjan bak-hjarl til næstu fimm ára. Hver er bakhjarlinn?
4 Hermann Hreiðarsson og Margrét Lára Viðarsdóttirurðu efst í kjöri KSÍ á knattspyrnufólki ársins. Þau
eiga sömu heimabyggð. Hver er hún?
Svör við spurningum gærdagsins:
1. 200 ár eru liðin frá fæðingu
Jóns Guðmundssonar ritstjóra
og þess minnst um helgina.
Hvaða blaði stýrði hann? Svar:
Þjóðólfi. 2. Ljóðabókin Ástarljóð
af landi verður þýdd á frönsku af
Régis Boyer. Eftir hvern eru ljóð-
in? Svar: Steinunni Sigurða-
rdóttur. 3. Ráðinn hefur verið nýr
þjálfari kvennaliðs Breiðabliks.
Hver er þjálfarinn? Svar: Vanda
Sigurgeirsdóttir. 4. Eiður Smári
skoraði þriðja mark Barcelona í
3:0-sigri á Valencia sl. laugar-
dag. Hver skoraði hin tvö mörk-
in? Svar: Samuel Eto’o.
Spurter… ritstjorn@mbl.is
dagbók|dægradvöl
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
MAGNÚS Þorfinns-
son bóndi að Hæðar-
garði í Kirkjubæjar-
hreppi er sjötugur í
dag, 19. desember.
Magnús fæddist í
Hæðargarði í Land-
broti, sonur þeirra
sæmdarhjóna Þorfinns
bónda þar og konu
hans Júlíönu. Hann
ólst upp hjá foreldrum
sínum að Hæðargarði
en þegar Þorfinnur
faðir hans lést færðist
meiri ábyrgð á herðar
hans. Mannkostir Magnúsar komu
skýrt fram þegar hann rak hér bú-
skap ásamt móður sinni sem varð
með hverju misserinu úr heimi hall-
ari. Svo einlæg umhyggja, óbilandi
þolinmæði og ástúð var í látleysi sínu
svo hrífandi að við skildum að Magn-
úsi var eitthvað léð sem ekki var í
vörslu okkar hinna. Eins og próf. Jón
Helgason segir í einu kvæða sinna.
Magnús hefur nú látið af öllu bú-
skaparbasli enda hafa aðrar fram-
Magnús Þorfinnsson
kvæmdir jafnan staðið
hjarta hans nær en að
snúast í kringum
baulurassa. Vegagerð
hefur ávallt átt hug
hans allan og hefur
hann jafnan verið stór-
huga í þeim málaflokki.
Það eru yfir þrjátíu ár
síðan Magnús viðraði
þær hugmyndir sínar
að færa þjóðveginn
nær ströndinni. Brúa
Ölfusárósa, Þjórsá og
Markarfljót neðar og
byggja brú yfir Kúða-
fljót. Þetta hefur nú allt verið fram-
kvæmt og ekki er útséð um að fleiri
hugmyndir Magnúsa verði að veru-
leika í fjarlægri framtíð. Skipulags-
mál hafa jafnan verið Magnúsi hug-
leikin og hefur hann nú látið
skipuleggja stóran hluta jarðarinnar,
ekki bara sem sumarhúsabyggð held-
ur hefur hluti jarðarinnar verið af-
markaður sem byggingarsvæði fyrir
hugsanlega stækkun byggingarsvæð-
isins á Klaustri. Er þetta ekki eitt-
hvað svipað því sem svokallaðir at-
hafnamenn eru að gera hér á
höfuðborgarsvæðinu?
Nú situr Magnús eins og jarl á
landareign sinni en fjöldi leiguliða býr
í skjóli hans og komi maður tali sínu
við hann í góðu tómi kemur maður
sjaldnast að tómum kofanum. Hvort
sem um er að ræða vandamál lands-
ins eða framfaramál héraðsins hafa
þau mál öll verið gaumgæfð að Hæð-
argarði. Ásamt því að fylgjast grannt
með Formúlunni ferðast hann marg-
ar bæjarleiðir á traktor til að líta eftir
hinum ýmsu framkvæmdum í hér-
aðinu.
Það sem heillar landseta Magnúsar
til búsetu á staðnum er tvímælalaust
fegurð héraðsins. Fegurð er hugtak
sem erfitt er að skilgreina en vitrir
menn segja að hún felist meðal ann-
ars í fjölbreytninni. Í jurtagarði eru
það kynlegu kvistirnir sem leggja til
það sem rýfur hversdagslega uppröð-
un og fær okkur til að staðnæmast,
undrast og hrífast. Þannig er því líka
farið með mannlífið
Við leiguliðar Magnúsar að Garðs-
horni óskum honum á þessum tíma-
mótum alls góðs og biðjum honum
blessunar í framtíðinni.
Páll Árnason.
FRÉTTIRAFMÆLI
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi athugasemd frá Hall-
dóri Runólfssyni yfirdýralækni
vegna fréttar í gær um eyðni í mink-
um:
„Ég tel að þarna sé um misskiln-
ing hjá héraðsdýralækninum að
ræða.
Sjúkdómurinn sem ég tel að hann
eigi við er Plasmacytosis og er af
flokki parvoveira, sem er alls ekki
það sama og eyðniveiran. Parvoveir-
an er DNA-veira en eyðniveiran er
hins vegar RNA-veira af flokki
Retroveira, sem er allt annar veiru-
flokkur.
Samkvæmt sérfræðingum í veiru-
fræði á Keldum þá er ekki vitað til
þess að eyðniveiran eða skyldar
veirur hafi greinst í minkum hér á
landi.
Það er hins vegar alveg nauðsyn-
legt að vara minkabændur við og
þeir þurfa að gæta þess stranglega
að fá ekki inn í búin til sín villimink-
inn, sem getur verið smitaður af
þessari parvoveiru – eða Plasmacy-
tosis.“
Athugasemd