Morgunblaðið - 19.12.2007, Side 56

Morgunblaðið - 19.12.2007, Side 56
56 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ LEIKRITIÐ um hann Gosa spýtu- dreng er sýnt um þessar mundir í Borgarleikhúsinu og samkvæmt markhópnum er leikritið bráð- skemmtilegt. Það sama er hægt að segja um geisladiskinn um Gosa sem fylgir sýningunni og gerir aðdáendum spýtukarlsins kleift að upplifa gleðina aftur og aftur. Karl Ágúst Úlfsson semur leik- ritið um Gosa við tónlist Þorvaldar Bjarna Þorvaldssonar, en það er byggt á sögu Carlos Collodis. Á geisladisknum er Karl Ágúst í hlut- verki sögumanns og ekki er hægt að segja annað en að hann hafi ynd- islega nærveru sem fangar athygl- ina og hlustandinn bíður fullur eft- irvæntingar eftir framvindu sögunnar. Gosi, Tumi Engispretta, dísin, Jakob og allar hinar persón- urnar sem koma við sögu í þessu sí- gilda ævintýri hafa svo sannarlega lifnað við í glæsilegum flutningi leikenda. Handritið er grípandi og sagan flæðir hispurslaust. Dæmi- sagan um Gosa hefur margt gott fram að færa enda er hún spenn- andi, fyndin og sönn. Efniviðurinn í Gosa spýtukalli, sem er svo langt frá því að vera fúinn, á alltaf erindi við börn á öllum aldri enda er fjallað um vináttu, sorgir, fórnfýsi og mikilvægi þess að finna gleðina í lífinu – algjör klassík. Það sama má segja um tónlist Þorvaldar Bjarna og útsetningar hans, en þar er einn- ig algjör klassík á ferð. Þorvaldur, sem fékk búlgörsku sinfón- íuhljómsveitina til liðs við sig, fram- kallar ævintýralega tóna – fagra og fágaða. Útkoman minnir mig á hið besta úr klassískum Disney- myndum en einnig kom upp í huga mér fallegt tónverk Sergeis Proko- fievs um Pétur og úlfinn. Sú stað- reynd að hljómlistin virkar jafnvel og raun ber vitni á ef til vill rætur sínar að rekja til þess að hlust- endur gjörþekkja þennan stíl, enda er hann sígildur og margnýttur, en styrkur tónmáls Þorvalds Bjarna felst einmitt í því auk þess sem hann nær að forðast allar klisjur. Flutningur leikara á lögum sýning- arinnar er persónulegur og snjall. Víðir Guðmundsson, sem túlkar Gosa, er ferlega góður og vinur hans Tumi engispretta, leikinn af Sverri Þór Sverrissyni (Sveppa), er fyndinn og afar sprækur. Hin al- þýðlega einlægni, uppfull af hlýju og sannfæringu í allri túlkun, er til staðar og afrek í sjálfu sér að svo vel hafi tekist til í hljóðveri. Tvö góð dæmi eru flutningur Sveppa og Jóhanns Sigurðarsonar á „Ósk- astjörnunni“ og svo söngur Jóhanns í „Hvar ertu Gosi?“ sem er há- dramatískur og gott dæmi um metnaðinn sem allir leikarar leggja í flutning sinn. Fín myndskreytt textabók fylgir disknum. enda er passað upp á að allt sé fyrsta flokks. Rúsínan í pylsuendanum er svo að hægt er að nálgast öll lögin úr Gosa án söngs á heimasíðu Borgarleikhússins til nið- urhals – þá geta börn og fullorðnir sungið með af sannri innlifun. Að lokum er óhætt að segja að Gosi gefi öllum þeim sem efast um gæði barnaefnis samtímans langt nef enda eiga allir þeir sem koma að þessari útgáfu hrós skilið – Gosi lifir. Frábær Gosi Morgunblaðið/Kristinn Gosi Útkoman minnir á hið besta úr klassískum Disney-myndum. Jóhann Ágúst Jóhannsson TÓNLIST Geisladiskur Gosi bbbbb FIMMTÁN myndir hafa verið valdar í forval óskarsakademíunnar fyrir bestu tæknibrellurnar. Seinna fá svo 3-5 myndir tilnefningu. Transformers þykir hvað sigur- stranglegust, enda er aðal- samkeppnin framhaldsmyndir sem hafa notað svipaðar brellur áður. Myndirnar fimmtán eru: Beowulf The Bourne Ultimatum Evan Almighty The Golden Compass Harry Potter and the Order of the Phoenix I Am Legend Live Free or Die Hard National Treasure: Book Of Sec- rets Pirates Of The Caribbean: At World’s End Ratatouille Spider-Man 3 Sunshine 300 Transformers The Water Horse Töfrum líkast Tæknibrellurnar í Transformers þykja mjög vel gerðar. Bestu brellurnar / ÁLFABAKKA BEOWULF kl. 83D - 10:303D B.i.12.ára 3D BEOWULF kl. 5:30 - 8 B.i.12.ára LÚXUS VIP SIDNEY WHITE kl. 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ AMERICAN GANGSTER kl. 8 B.i.16.ára AMERICAN GANGSTER kl. 10:30 B.i.16.ára LÚXUS VIP SÝND Á SELFOSSI SÝND Í KEFLAVÍK SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI GRÍNLEIKARINN VINCE VAUGHN ER FRÁBÆR Í HLUTVERKI STÓRA BRÓÐUR JÓLASVINSINS JÓLAMYND SEM KEMUR ALLRI FJÖLSKYLDUNNI Í SANNKALLAÐ JÓLASKAP Paul GiamattiVince Vaughn FRED CLAUS kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ ALVIN OG ÍKORNARNIR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ BÝFLUGUMYNDIN m/ísl. tali kl.6D LEYFÐ BEE MOVIE m/ensku tali kl. 8 - 10:10 LEYFÐ DUGGHOLUFÓLKIÐ kl. 6 LEYFÐ SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK OG SELFOSSI VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á WWW.SAMBIO.IS ❄ ❄❄❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄ ❄❄ ❄❄ ❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄❄❄❄ ❄❄ ❄❄ ❄ Jólaþjónusta starfsfólks Jól í görðunum Á jólum kemur fjöldi fólks í Fossvogskirkjugarð, Gufuneskirkjugarð og Hólavallagarð við Suðurgötu til þess að huga að leiðum ástvina sinna. Við munum leitast við að leiðbeina ykkur eftir bestu getu. Hægt er að nálgast upplýsingar um staðsetningu leiða á vefnum: www.gardur.is Þjónustusímar 585 2700 og 585 2770 Aðalskrifstofan í Fossvogi, sími 585 2700 og skrifstofan í Gufunesi, sími 585 2770, eru opnar á Þorláksmessu og aðfangadag frá kl. 9.00 til 15.00. Þar veitum við upplýsingar, gefum leiðbeiningar um aðhlynningu leiða og afhendum ratkort ef þörf krefur. Þjónusta á Þorláksmessu og aðfangadag Á Þorláksmessu og aðfangadag, milli kl. 9:00 og 15:00, verða starfsmenn Kirkjugarðanna á vettvangi og taka á móti ykkur og leiðbeina að leiðum. Fossvogskirkja verður opin á aðfangadag frá kl. 10:00 til 15:00. Á aðfangadag frá kl. 09:00 til 15:00 er allur akstur um kirkjugarðinn í Fossvogi óheimill, nema fyrir hreyfihamlaða. Tilkynning frá Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæma Gleðilega jólahátíð Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæma www.kirkjugardar.is ❄❄❄❄❄❄❄ ❄ ❄❄❄❄❄ ❄ ❄ ❄ ❄❄❄ ❄❄❄❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.