Morgunblaðið - 03.05.2008, Blaðsíða 22
Þegar sólin skín Þá er gott að skella sólgler-
augum á litla nebba. 999 kr. í Einu sinni var.
Morgunblaðið/Valdís Thor
Til ferðalaga Skrautleg
taska fyrir flakkið.
72.500 kr. í Kisunni.
Brjáluð hauskúpa Boltar eru enda-
laus uppspretta leikja hjá börnum.
Kostar 1.390 krónur í Einu sinni var.
Fögnum sumri
Fyrir blómarósir Dásam-
lega léttur og leikandi
kjóll. 36.000 kr. í Kisunni.
Fjölnota Stórir klútar
eru til margs nýtilegir.
16.500 kr. í Kisunni.
Út að leika Hjólbörur hvetja
framkvæmdasöm börn til dáða.
1.590 kr. í Einu sinni var.
Fyrir skvísur í rigningu Stíg-
vél (1.590 kr.) kennd við
ensku rósirnar og regnhlíf
(1.990 kr.) með kátri fljúg-
andi stelpu. Hvort tveggja
fæst í Einu sinni var.
Mjúkir Sumarlegir inniskór fyrir kríl-
in sem nýtast á pallinum heima eða í
bústaðnum. 2.990 kr. í Einu sinni var.
|laugardagur|3. 5. 2008| mbl.is
daglegtlíf
Eftir langan dimman vetur kann fólk sér vart kæti
þegar hlýnar í veðri og vaxandi birta gefur fyr-
irheit um yndislegt íslenskt sumar. Sandalar,
stuttbuxur, léttir kjólar, bolir, pils og sólgleraugu
eru dregin fram og börnin leika sér úti langt fram
á kvöld. Á sumrin skín þó ekki endilega sól alla
daga, því þá er líka stundum rigning og hún getur
verið fjarska góð. Það er til dæmis gaman að
skarta flottum gúmmístígvélum eða gúmmítúttum
og litríkri regnhlíf þegar droparnir ofan úr himn-
inum vökva gróður og ilmurinn af trjánum verður
ómótstæðilegur. Og hún fellur aldrei úr gildi
gleðin sem fylgir því að hoppa í drullupollum, svo
ekki sé minnst á sköpunina í því að drullumalla.
Handtaska Þessi er
skrautleg og skemmtileg.
19.900 kr. í Kisunni.