Morgunblaðið - 03.05.2008, Blaðsíða 46
Hún skipar álíka sess
hjá Sjónvarpinu og
börn að borða þorramat í
leikskóla … 52
»
reykjavíkreykjavík
Hljómsveitar-
keppni Cod Music,
Þorskastríðið,
hefur nú staðið
yfir í 3 vikur og
hefur heldur bet-
ur slegið í gegn að
sögn aðstandenda. Á sjötta tug
hljómsveita hefur sent inn efni sem
er víst langt umfram það sem Cod
Music bjóst við. Lokað verður fyrir
innsendingar næsta þriðjudag 6.
maí og eru þeir aðilar sem ætla sér
að vera með hvattir til að senda inn
efni fyrir þann tíma. Úrslitin verða
svo kynnt föstudaginn 16. maí.
Ekkert kostar að taka þátt og
eina reglan er að lögin verða að
vera frumsamin. Hver listamaður/
hljómsveit skal senda inn minnst
tvö lög og mest fjögur lög. Nánari
upplýsingar á www.cod.is.
Stutt eftir af
Þorskastríðinu
Metal-hátíðin Eistnaflug verður
líkt og undanfarin þrjú ár haldin á
Neskaupsstað dagana 10.–13. júlí.
Dagskrá hátíðarinnar hefur líklega
aldrei verið jafnglæsileg og í ár en
hápunkturinn er óneitanlega tón-
leikar rokkkónganna í Ham sem
hafa ákveðið að leiða saman hesta
sína fyrir þessa þyngstu þunga-
rokkshátíð Íslandssögunnar. Á
meðal þeirra sem spila á hátíðinni í
ár eru: Ashton Cut. Ask the Slave,
Atrum, Blood Feud, Brain Police,
Diabolus, Forgarður Helvítis,
Gordon Riots, Innvortis, Moment-
um, Reykjavík!, Saktómiður, Sever-
ed Crotch, Skítur, Slugs, Sudden
Weather Change, Swords of Chaos,
Universal Tragedy og Æla.
Það er sem fyrr þungarokks-
hausinn og íþróttakennarinn Stef-
án Magnússon sem á veg og vanda
af hátíðinni.
Ham á Eistnaflugi 2008
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÉG og Evróvisjón-spekingarnir mínir þrír, Dr.
Gunni, Guðrún Gunnars og Reynir Þór, ætlum
fyrst og fremst að veita áhorfendum heima í
stofu leiðsögn í gegnum þennan mikla frumskóg
sem þessi blessaða keppni er orðin,“ segir Páll
Óskar Hjálmtýsson um nýjan sjónvarpsþátt sinn,
Alla leið, sem hefst í Sjónvarpinu kl. 19.40 í
kvöld. Í þáttunum verða skoðuð þau 43 lög sem
þátt taka í keppninni að þessu sinni. „Það er
bara engin leið fyrir venjulegan sjónvarpsáhorf-
anda að hlusta á 43 lög í einum graut og ætla
sér að mynda sér skoðun á þeim og velja svo
með símakosningu,“ segir Páll Óskar.
„Við ætlum hins vegar að skoða sérstaklega
þau lög sem keppa við Ísland í undankeppninni
22. maí, velta því fyrir okkur hvaða lög komast
upp úr þessari undankeppni og hvaða lög kom-
ast jafnvel alla leið,“ segir Páll Óskar, en 38 lög
þurfa að taka þátt í undankeppninni í tveimur
19 laga riðlum. Tíu lög komast upp úr hvorum
riðli og þar með í úrslit, alls tuttugu lög, auk
þeirra fimm þjóða sem samkvæmt reglum
keppninnar eiga sjálfkrafa sæti í úrslitakeppn-
inni. „Það er eru þessar „sjálfsögðu“ þjóðir,
Bretland, Þýskaland, Frakkland og Spánn, sem
er svolítið „íronískt“ því þessum þjóðum er al-
veg sama um þessa keppni. En svo eru Serbar
þarna auðvitað líka, af því að þeir unnu í fyrra.“
Hver einasti kjaftur söng með
Aðspurður segist Páll Óskar búinn að heyra
hvert einasta lag í keppninni, enda hafi hann
haft þau í eyrunum í rúman mánuð. Hans uppá-
haldslög koma frá Úkraínu og Armeníu. „Ég sá
drottningarnar sem flytja þau lög einmitt troða
upp í Evróvisjón-partýi í London um síðustu
helgi. Þangað komu fulltrúar tíu eða tólf þjóða,
meðal annars Regína Ósk og Friðrik Ómar, og
kynntu lögin sín. Það var stappað hús, svona
þúsund Evróvisjón-aðdáendur sem voru með öll
lögin á hreinu,“ segir Páll Óskar sem tók að
sjálfsögðu lagið, enda „gamall“ keppandi. „Það
var samt ekki hápunktur partýsins fyrir mér,
heldur var það að heyra Regínu og Friðrik
syngja „This Is My Life“, enda söng hver einasti
kjaftur í húsinu með allan tímann. Þarna rann
upp fyrir mér hversu mikinn mátt Youtube hef-
ur, enda hefur þessi smáskífa hvergi komið út,
þannig að það er ljóst að þessir aðdáendur
liggja á netinu og læra öll lögin utan að og eru
löngu búnir að mynda sér skoðun,“ segir Páll
Óskar og bætir því við að ekki hafi svo vel verið
tekið undir með hinum keppendunum.
Komumst upp úr undankeppninni
En aftur að nýju sjónvarpsþáttunum, sem
verða þrisvar sinnum 40 mínútna langir: „Það er
ljóst að við þurfum að fara hratt yfir sögu, og
við náum ekki að spila öll lögin í fullri lengd. Við
horfum aðeins á lögin, svo hefjast umræður, og í
lokin ýta spekingarnir á þar til gerða takka.
Þeir þurfa sem sagt að gefa lögunum rautt eða
grænt ljós. Ef lagið fær til dæmis tvö græn ljós
og eitt rautt er það komið áfram upp úr und-
ankeppninni að þeirra mati. Ég er hins vegar
bara með einn rauðan takka í borðinu hjá mér
sem ég ýti á ef mér finnst viðkomandi lag mjög
leiðinlegt, þá slekk ég bara á því í miðju kafi.
Þannig að ég forða áhorfendum frá því að sitja
yfir hundleiðinlegum lögum,“ segir Páll Óskar
og hlær.
Ekki er hægt að sleppa Páli Óskari án þess að
fá hann til að spá fyrir um gengi íslenska lags-
ins, jafnvel þótt hann eigi stóran hlut í því. „Ég
trúi að við komumst upp úr undankeppninni,“
segir hann. „Við höfum aldrei gert það því við
höfum alltaf verið í 13. til 16. sæti í þessum und-
ankeppnum, en aðeins tíu lög komast í gegn.
Hingað til hafa 24 lög verið í þessum und-
ankeppnum, jafnvel meira. Núna eru þau hins
vegar 19 og það eitt eykur líkur okkar til muna.
Og fyrir utan það er þetta lag sem við erum með
í höndunum flott popplag og grípandi, viðlagið
er rosalega flott, flytjendurnir afskaplega sterk-
ir og vita hvað þeir eru að gera,“ segir Páll Ósk-
ar. „En það er svo magnað að það skiptir engu
máli hvað veðbankarnir segja, hvernig mynd-
bandið er eða hvað fólk úti í bæ segir. Það eina
sem skiptir máli eru þessar þrjár mínútur sem
við erum á sviðinu. Það er stund sannleikans.
Framhaldið er svo í Guðs höndum.“
Þessar þrjár mínútur
Evróvisjónþáttur Páls
Óskars, Alla leið, hefst
í Sjónvarpinu í kvöld
Morgunblaðið/Frikki
Sérfræðingurinn „Ég trúi að við komumst upp úr undankeppninni,“ segir Páll Óskar bjartsýnn.
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
ÞAÐ var árið 2004 sem Hjörvar Hjörleifsson
gaf út plötuna Paint Peace undir listamanns-
nafninu Stranger. Hjörvar hafði þá verið við-
loðandi tónlistarbransann í 15 ár og leikið með
hljómsveitum á borð við Guði gleymdir, Los,
Gums og Monotone. Platan fór lágt en var hik-
laust með því besta sem út kom það ár, óvenju
heilsteypt verk þar sem fór þekkilegt og glúrið
nýbylgjurokk, þægilega lágstemmt og angur-
vært og auðheyranlegt að nostrað hafði verið
við verkið á öllum sviðum.
Hjörvar, sem nú kallar sig einfaldlega
Hjörvar, tók upp aðra sólóplötu sína, Copy of
me, í Puk-hljóðverinu á Jótlandi í maí 2006. Af
ýmsum sökum hefur hún legið uppi í hillu síð-
an en um helgina kemur Ken Thomas til lands-
ins í þeim tilgangi að hljóðblanda gripinn og
verða hann og Hjörvar innilokaðir í Sýrlandi
alla næstu viku vegna þess. Ken Thomas er
mikilhæfur upptökustjóri og stýrði hann m.a.
upptökum á meistaraverki Sigur Rósar, Ágæt-
is byrjun. Hann vann einnig með Wire í upp-
hafi ferils þeirra og starfaði með Buzzcocks og
P.I.L. og einnig með Queen í árdaga þeirrar
sveitar.
Þétt og gott
„Það var þéttur og góður mannskapur sem
fór með mér út á sínum tíma,“ rifjar Hjörvar
upp. „Þeir Guðni, Addi og Tobbi úr Dr. Spock,
hljóðmennirnir Hrannar Ingimarsson og Palli
Borg en einnig textasmiðurinn Davíð Stef-
ánsson og vinur minn Halldór Júlíusson, sem
er einnig hljóðmaður. Við rúlluðum upp 15 lög-
um á einni viku, efni sem við höfðum þaulæft
hér heima.“
Þegar heim var komið tóku við miklar annir
hjá þeim Guðna og Adda, sem leika á bassa og
trommur, og hafa Dr. Spock og Mugison verið
hvað frekastir á þeirra tíma. Tafir hafa því orð-
ið á eftirvinnslunni.
„Maður var hálfpartinn farinn að hafa
áhyggjur af því að platan myndi hreinlega
daga uppi,“ segir Hjörvar. „En nú hillir undir
endalokin. Þegar hljóðblöndun er lokið er æði
stutt í það að hægt sé að loka pakkanum.“
Plötuna gefur Hjörvar sjálfur út og vonast
til að koma henni út í sumar. Veglegir útgáfu-
tónleikar verða haldnir en fyrst þarf að ná
bandinu aftur.
„Ég þarf að leggjast í samningaviðræður við
Mugison,“ segir Hjörvar glettinn á svip. „Það
er ótrúlegt hvað strákarnir eru uppteknir um
þessar mundir, ég skil ekki hvernig þeir fara
að þessu. Og það er auðvitað ekkert nema já-
kvætt … en ég var samt með þá á undan
(hlær).“
Mugison stal bandinu
Hjörvar „Ég þarf að leggjast í samninga-
viðræður við Mugison.“
Hjörvar (áður Stranger) leggur lokahönd á aðra
sólóplötu sína með góðri hjálp frá Ken Thomas