Morgunblaðið - 03.05.2008, Blaðsíða 24
Eftir Fríðu Björnsdóttur
fridabjornsdottir@gmail.com
Írúm fjögur ár hafa hjónin Guð-rún og Bjarni og tvítugur son-ur þeirra, búið í tveggja hæðaraðhúsi í Ásahverfi í Garðabæ.
Húsið keyptu þau ófrágengið að inn-
an og fengu því í lið með sér Björn
Skaftason arkitekt sem hannaði þar
allt sem hanna þurfti. Auk þess hefur
Björn meira að segja málað nokkur
málverkanna sem prýða veggi heim-
ilisins.
„Áður en við keyptum þetta 188
fermetra raðhús bjuggum við í Ásbúð
í Garðabæ,“ segir Guðrún Sverris-
dóttir hárgreiðslukona sem rekur
hárgreiðslustofuna Cleo á Garða-
torgi. Hún er sannur Garðbæingur
enda hefur hún búið í Garðabænum
allt frá því hún var 12 ára, með smá-
undantekningum þó. „Við vorum
mjög ánægð með húsið í Ásbúðinni og
þar fengum við hönnuðinn Þorkel
Gunnar Guðmundsson til að hanna
það í samræmi við óskir okkar og
smekk. Við ákváðum þó að breyta til
og keyptum þetta raðhús. Í Ásbúð-
inni bar meira á gráum litum, beyki
og hvítu, en hér er hins vegar allt hvít
og svart, í litunum okkar.“
Langar að komast nær sjónum
Á neðri hæð hússins er forstofa,
hol, risastórt herbergi fyrir soninn
auk baðherbergis. Svo er þar líka bíl-
skúrinn sem rúmar tvo bíla. Sonurinn
er mikill Jet Ski maður, en það far-
artæki er víst kallað sjóþota á ís-
lensku og kannski er það vegna
áhuga hans á að skemmta sér og
þjóta yfir hafflötinn á þessu töfratæki
að fjölskyldan er að undirbúa að færa
sig um set. Stefna hefur verið sett á
Nýhöfnina í Sjálandshverfi sem er
reyndar skammt undan. Guðrún og
Bjarni segja að Björn Skaftason arki-
tekt sé kominn í startholurnar, tilbú-
inn að hanna íbúðina sem fjölskyldan
hefur augastað á. Aðeins er beðið eft-
ir að einhver komi og undirriti kaup-
samning fyrir Ásahverfishúsið.
Það fer ekki milli mála að hvítt og
svart eru litir húsráðenda. Á gólfum
eru svartgráar mústangskífur, allir
veggir eru hvítmálaðir og loftin að
hluta til líka. Sums staðar eru eins
konar innfelldir kassar í loftunum
sem eru þó málaðir í gráum lit. Slíkir
kassar eða hólf eru víðar í húsinu og
þá innbyggðir í veggi og jafnvel hurð-
ir og bæði í hvítum lit og svörtum.
Þeir „hýsa“ margvísleg falleg lista-
verk. Í holinu á neðri hæðinni er gott
dæmi um það hvernig þessi hólf eru
notuð á óvenjulegan hátt. Þar sýnist
vera svartur viðarveggur undir stig-
anum sem liggur upp á loftið. Í
veggnum eru tvö upplýst hólf og í
þeim standa tvær hvítar styttur. Guð-
rún ljóstrar upp leyndarmáli. Þetta
er ekki venjulegur veggur heldur
hurð, svona snilldarlega hönnuð. Hún
þrýstir á hurðina sem opnast og bak
við hana, undir stiganum leynist
geymslurými. „Mér þykja hurðir
undir stigum svo leiðinlegar,“ segir
hún „og því var þessi leið farin til að
loka geymslunni.“
Arkitekt og listmálari
Á efri hæðinni er aðeins eitt svefn-
herbergi, auk baðherbergis og síðan
rennur þar saman í eitt stofa, borð-
stofa, sjónvarpsherbergi og eldhús
sem segja má að sé sannkölluð stofu-
prýði! Hvítt leðursófasett er í stof-
Síðustu eintökin T.v. við eldhúsgluggann er Síðustu eintökin, verk Þorkels Gunnars Guðmunds-
sonar, sem sýnir þurrkaða og gifsaða þorskhausa, tákn þess að þorskurinn sé að klárast í sjónum.
Á svölunum Hjónin Guðrún Sverrisdóttir og Bjarni Geirsson á svölunum þar sem fjölskyldan
nýtur þess að vera úti í góða veðrinu hvenær sem tækifæri býðst.
Óvenjuleg hurð Í holinu á neðri hæðinni eru tveir stólar, hönnun Þorkels
Gunnars Guðmundssonar, smíðaðir af Sverri föður Guðrúnar. Hún lét yf-
irdekkja þá með svörtu leðri. Hér sést líka hin mjög svo óvenjulega
geymsluhurð með upplýstum hófum og listaverkum.
Hönnunin í samræmi við
þarfir fjölskyldunnar
lifun
24 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Sk
ór
C O N C E P T S T O R E
Laugavegi 7 • 101 Reykjavík
Sími 561 6262 • www.kisan.is
Sonia Rykiel, Roberto del Carlo,
Maloles, Prairies de Paris, Pepe