Morgunblaðið - 03.05.2008, Side 14
14 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
● VIÐSKIPTI með hlutabréf voru
áfram í minna lagi í gær, veltan nam
4,4 milljörðum króna, þar af fyrir 1,9
milljarða með bréf Glitnis og 1,3
milljarða með Kaupþing. Skulda-
bréfavelta nam 25,5 milljörðum.
Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,8% í
5.171 stig, en í aprílmánuði hækk-
aði hún um 3,4%. Kaupþing lækkaði
mest vísitölufélaga, um 1,5% en FL
Group hækkaði um 2,3%. 365 hf.
lækkaði um 3,7% og Eik banki um
3,1%.
Vísitalan 0,8% lægri
● JAN Petter
Sissener, hinn lit-
ríki fyrrverandi for-
stjóri Kaupþings í
Noregi, hefur
stefnt bankanum
og krefur hann að
sögn norska við-
skiptablaðsins
Dagens Nærings-
liv um meira en
10 milljónir
norskra króna.
Að sögn blaðsins er Sissener
ósáttur við að kaupaukapottur sá
sem skipt er á milli starfsmanna hafi
verið minnkaður um 35 milljónir
norskra króna án þess að neinn hafi
verið látinn vita. Ástæða þess að
potturinn dróst saman eru erfiðleikar
á markaði.
Sissener stefnir
Kaupþingi
Höfuðstöðvar
Kaupþings.
● Í LOK fyrsta ársfjórðungs hafði
Kaupþing lausafé til þess að tryggja
rekstur bankans í 380 daga. Í apríl
hefur lausaféð aukist. Þetta sagði
Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri
Kaupþings, í samtali við sænsku
fréttastofuna Direkt í vikunni en
bætti því við að þótt staðan á mark-
aði hefði skánað væri Kaupþing búið
undir áframhaldandi þrengingar.
Í samtali við Reuters hefur Hreiðar
Már sagt að stefnt sé á að fjár-
mögnun ársins 2009 verði lokið í
ágústmánuði og staðfestir hann þar
með orð Sigurðar Einarssonar, starf-
andi stjórnarformanns, í samtali við
Finansavisen í apríl.
Lausafé í 380 daga
í lok mars
INTERNET á Íslandi (ISNIC) hef-
ur skrifað undir samning við The
Internet Corporation for Assigned
Names and Numbers (ICANN) um
hlutverk ISNIC sem rótarléns-
rekstraraðila fyrir lénsendinguna .is.
ICANN fer með hlutverk IANA,
(http://iana.org/) sem kalla má stjórn
netsins í heiminum.
„Samningurinn tíundar réttindi og
skyldur hvors aðila, sem fyrst og
fremst fela í sér að tryggja rekstr-
aröryggi .is léna á heimsvísu,“ segir
Jens Pétur Jensen, framkvæmda-
stjóri ISNIC. „Þá lofa aðilar báðir að
viðhafa hlutlausa og réttláta skrán-
ingu léna og koma eins fram við alla
viðskiptavini,“ segir Jens.
„ISNIC hefur eins og önnur
fyrirtæki og stofnanir sem þessu
sinna þessu hlutverki gert það án
sérstaks samnings hingað til – enda
var netið lengst af þróunarverkefni
fremur en virðisaukandi þjónusta
eins og nú. Þá var ICANN ekki til
sem slíkt frekar en netið sjálft. Með
samningnum er staða ISNIC hins
vegar tryggð sem rekstraraðila
rótarnafnaþjónanna fyrir .is lén.“
ISNIC er fertugasti aðilinn sem
gerir slíkan samning við ICANN og
segir Jens að í honum felist mikil við-
urkenning á gæðum starfseminnar
og sé hann um leið opinber trausts-
yfirlýsing af hálfu þess aðila sem
samræmir og stjórnar netinu.
Í dag verður haldinn hluthafa-
fundur ISNIC og Modernus um
samruna félaganna tveggja, en
gengið var frá samningi þess efnis í
lok árs 2007. Stærsti hluthafi fyrir-
tækisins verður Íslandspóstur.
ISNIC skrifar undir mikil-
vægan samning við ICANN
Staða ISNIC tryggð sem rekstraraðili rótarnafnaþjóna fyrir .is lén
viðtali við sjónvarp Bloomberg að
„við værum nær endalokum þessa
vanda heldur en upphafi hans“.
Staðan markar viðsnúning frá því
sem var fyrir nokkrum mánuðum,
eins og greint er frá í grein New
York Times. Þá virtist hinn almenni
efnahagur tiltölulega heilbrigður en
á Wall Street rak hvert húsnæðis-
lánatapið annað. Ekki er óalgengt að
Wall Street sé nokkuð á undan í
þessum efnum, en tíminn mun þó
leiða í ljós hvort um markaðurinn sé
einfaldlega að „jafna sig“ eða hvort
lausn sé í sjónmáli.
Bjóða rýmri lánalín-
ur í Bandaríkjadölum
Hefur lægðinni verið varpað af Wall Street yfir á almenning?
Reuters
Wall Street Tæknivísitalan Nasdaq lækkaði í gær um 0,2%, öfugt við hinar
tvær helstu viðmiðunarvísitölurnar Dow Jones og Standard & Poor’s.
Eftir Halldóru Þórsdóttur
halldorath@mbl.is
ÞÓTT borgararnir séu farnir að
hrukka ennið er ögn bjartara yfir
Wall Street. Nýjustu tíðindin af fjár-
málamörkuðum vestanhafs eru af
aðgerðum seðlabankans, sem til-
kynnti að hann hygðist veita bank-
arískum bönkum allt að 150 millj-
arða dala lán til eins mánaðar í maí.
Þetta er helmingi hærri upphæð en
sú sem áður bauðst, 100 milljarðar
dala, og er meiningin að hleypa lífi í
efnahaginn með auknu lausafé.
Þá hafa seðlabankar Evrópu og
Sviss rýmkað lánalínur sínar í
Bandaríkjadölum um nær helming,
upp í 50 milljarða dala og 20 millj-
arða dala. Ráðamenn bandaríska
seðlabankans telja hluta af vandræð-
um dollarans endurspegla þrýsting
frá evrópskum bönkum sem skorti
lausafé í Bandaríkjadölum.
Upp um 11% á þremur vikum
Þrátt fyrir vátíðindi af fallandi
húsnæðisverði og vaxandi atvinnu-
leysi hafa hlutabréf á Wall Street
hækkað. Vísitölur Dow Jones og
Standard & Poor’s hafa t.a.m. hækk-
að um 11% síðan þær náðu tíma-
bundnu lágmarki fyrir þremur vik-
um. Greina má jákvæðan tón í
greinendum og framkvæmdastjór-
um í fyrsta sinn svo mánuðum skipt-
ir. Fjármálaráðherra Bandaríkj-
anna, Henry M. Paulson, sagði í
Í HNOTSKURN
»20.000 voru nýskráðir at-vinnulausir í Bandaríkjunum
í apríl, mun færri en spáð hafði
verið. Þetta er fjórði mánuður-
inn í röð þar sem atvinnulausum
fjölgar. Atvinnuleysi vestanhafs
mælist nú 5%.
» Í lausafjárvanda annarraleitar ríkasti maður heims,
Warren Buffett að „nægilega
stórri“ fjárfestingu, kaupverðið
sé helst 40-60 milljarðar dala.
OLÍUSKIP Olíudreifingar, Keilir, sem hefur ver-
ið í siglingum við Íslandsstrendur í um fimm ár,
hefur verið sett í sölumeðferð. Hörður Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri Olíudreifingar, segir
að ástæðan sé sú að dregið hafi verulega úr verk-
efnum skipsins hér við land. Strandsiglingar fé-
lagsins muni þó ekki breytast verði Keilir seldur,
því skip verði þá leigð til flutninganna.
Hörður segir að Keilir hafi á sínum tíma leyst
tvö eldri skip af hólmi og þá hafi verið verkefni
fyrir skipið við Íslandsstrendur í um 260 til 270
daga á ári. „Það hefur fjarað undan flutningunum
hægt og rólega og nú höfum við ekki vinnu fyrir
skipið hér nema í um 120 daga á ári. Við þurfum
því að leita að vinnu fyrir skipið erlendis í um tvo
þriðju hluta af árinu.“
Segir hann að þessi staða sé mjög ótrygg,
mörg skip keppi um hituna á þessum markaði og
útkoman geti verið sú að engin verkefni sé að fá í
marga daga á ári, sem geri reksturinn mjög erf-
iðan.
„Þetta hefur versnað mikið með hverju árinu.
Það gekk til að mynda mun betur að fá vinnu fyr-
ir skipið erlendis í fyrra en í ár. Þar fyrir utan
eru kröfur á skip í eldsneytisflutningum stöðugt
að aukast, sem gerir rekstur á einu skipi erfiða.
Til viðbótar skiptir einnig máli að Keilir flytur
ekki svartolíu, en hún er að aukast mikið hjá
bræðslunum og skiptaflotanum. Önnur skip sinna
þeim flutningum og það dregur úr flutningunum
hjá okkur.“
Samtals eru 11 menn um borð í Keili hverju
sinni og er um helmingur þeirra Íslendingar, sem
eru í yfirmannastöðum. Hinir skipverjarnir komi
víða að úr heiminum.
„Strandsiglingar okkar munu ekkert breytast
þó Keilir verði seldur, því við munum þá leigja
skip til flutninganna. Við erum með um 30
birgðastöðvar um landið og langflestar þeirra eru
þjónustaðar af sjó og það breytist ekki. En ég
legg áherslu á að þetta er ekki frágengið þó skip-
ið hafi verið sett í söluferli,“ segir Hörður.
Keilir kominn í sölumeðferð
Fjarað hefur undan verkefnum olíuskipsins við Íslandsstrendur með hverju árinu
Morgunblaðið/Sverrir
Í stað tveggja Keilir leysti tvö eldri skip af hólmi
þegar það kom til landsins fyrir um fimm árum.
NÁNASTA framtíð karlmanna-
fataverslunarkeðjunnar Moss
Bros ræðst að öllum líkindum um
helgina,“ segir í frétt á vef
breska blaðsins Times í gær. Get-
gátur um hvort Baugur ætli að
gera formlegt 40 milljóna punda,
tæpra sex milljarða króna, yf-
irtökutilboð í keðjuna fari vax-
andi. Heimildarmenn Times kváð-
ust vænta ákvörðunar eða
„samskipta af einhverju tagi“ í
gær, þó að enginn vissi hvernig
þau myndu hljóða.
Gunnar Sigurðsson, forstjóri
Baugs, sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi að verið
væri að vinna að málinu með það
fyrir augum að gera tilboð í Moss
Bros. Ekki lægi fyrir hvenær
ákvörðun yrði tekin um slíkt til-
boð. Baugur hefði á sínum tíma
haft samband við stjórn Moss
Bros og fengið að skoða bókhald-
ið til að kanna stöðu félagsins.
Í síðustu viku rann út sam-
komulag félaganna tveggja um
einskorðaðan tilboðsrétt Baugs í
Moss Bros.
Vænta svara
um framtíð
Moss Bros
Baugur Breskir fjölmiðlar hafa
sýnt tilboðinu mikinn áhuga.
Morgunblaðið/Kristinn
!" # !$
%&'(
)*+
!"#
$
%
&#
'()*+
'
,
-./.
0#1
2
!
345
#"
" 61
"(##
(7
81
!"# "
+9#/
'
01 - -
:
-
"#$!%
;#
1
-/
&'
: -
0 -< =
$
'
>?@@A4B
>5@3C5>C
3435>BCB>
?C@AB33@
?C??@C5C3B
4@454B5
?B5?BD5@
?BA4BCD?3A
?4DC4@D45
B4AB@@@
D5>D?C4D
>>5DAB5DB
?A5@@@@
3334CD
?35>53C
@
@
?DD5D33
?5CB?33
>B@@@
3DC3DA@
,
,
??AA?CC>
,
,
BDC>B@@@@
,
,
DEB4
35EA5
??EC5
4E4B
?DE@5
B?EB5
B?ED@
A3CE@@
BCE4@
ACE>@
>EC@
?BE4C
3E4C
C4E5@
?E3?
4E4C
B3AE@@
?>??E@@
3>?E@@
@EA>
?>AE@@
,
,
,
,
,
5B4@E@@
?@E@@
,
DE3>
34E?@
?BE@3
4E4>
?DE?@
B?E55
B?EA@
A>@E@@
BCEA@
C@E3@
>EC5
?BEDB
3ED3
CDE@@
?E33
4ED3
B>?E5@
?>BCE@@
35@E@@
@EA5
?5BE@@
,
B?EC5
,
,
,
53B@E@@
,
4E@@
/
- 5
?3
5C
?C
4D
>
4
?>4
B4
?
>B
>D
3
?
>
,
,
3
3
?
D
,
,
?
,
,
?C
,
,
F#
-#-
B5B@@A
B5B@@A
B5B@@A
B5B@@A
B5B@@A
B5B@@A
B5B@@A
B5B@@A
B5B@@A
B5B@@A
B5B@@A
B5B@@A
B5B@@A
B5B@@A
B5B@@A
BC>B@@A
3@>B@@A
B5B@@A
B5B@@A
B5B@@A
B5B@@A
?@3B@@A
?D>B@@A
3@>B@@A
4?BB@@D
BBAB@@D
B5B@@A
BC>B@@A
D3B@@A
*&G *&G
H
H
*&G ,G
H
H
F6I#
+
H
H
0'
F
H
H
*&G-?5
*&G">@
H
H
● DANSKA fríblaðið Nyhedsavisen
hefur fengið 117 milljónir danskra
króna, um 1,8 milljarða íslenskra
króna, til rekstrarfjár frá helsta eig-
anda sínum, Morten Lund. Þetta
kemur fram á vef Börsen.
Þá hefur Hermann Haraldsson,
framkvæmdastjóri knattspyrnu-
félagsins Bröndby, tekið sæti í stjórn
Dagsbrun Media. Hermann segir
ljóst að rúm sé fyrir blað eins og Ny-
hedsavisen á dagblaðamarkaðnum.
Aukið rekstrarfé og
nýr stjórnarmeðlimur