Morgunblaðið - 10.06.2008, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
! "
#
$
%
&
'%
(
)
$ Eftir Andrés Þorleifsson
andresth@mbl.is
ALLS heimsóttu 316.002 stakir notendur mbl.is í
síðustu viku samkvæmt samræmdri vefmælingu
Modernusar og er um að ræða nýtt met.
Allir að horfa á hvítabjörninn
Aukningin stafar fyrst og fremst af mikilli um-
ferð erlendra netnotenda inn á frétt með mynd-
skeiði af drápi hvítabjarnarins á Þverárfjalli, en
sú frétt var lesin tæplega 45 þúsund sinnum.
Margar tilvísanir eru frá erlendum fréttamiðl-
um; þannig smelltu um þrettán þúsund notendur
vefjar Extra bladet í Danmörku á tengil í frétt-
ina, um þúsund komu í gegnum fréttavefinn
news.com.au í Ástralíu og rúmlega 800 komu í
gegnum vefsíðu The Sun í Bretlandi.
Þá mældust í síðustu viku rúmlega 16 milljónir
flettinga á síðunni og er það mun meira en hjá
nokkurri annarri íslenskri síðu.
Til samanburðar heimsækja að jafnaði um 280
til 290 þúsund stakir notendur mbl.is í hverri viku,
skv. upplýsingum frá Modernus.
Mikil áhrif einstakra atburða
Einstakir atburðir geta þó valdið stóraukinni
umferð, t.d. heimsóttu um 306 þúsund notendur
vefinn þegar ný borgarstjórn tók við og um 302
þúsund síðasta haust þegar Erla Ósk Arnardóttir
lenti í hremmingum á flugvelli í Bandaríkjunum. Í
því tilviki varð vart við aukna umferð frá útlönd-
um, en enska þýðingu var að finna á bloggi á vef-
svæði fréttavefjar Morgunblaðsins.
Samræmd vefmæling Modernusar var tekin
upp árið 2001 og taka nú um 150 vefir þátt.
Björninn veldur aukinni umferð
Ljósmynd/davidorri.com
Áhrifamikill Hvítabjörninn hefur merkjanleg
áhrif á netumferð inn á mbl.is.
„HÉR eru að jafnaði um 40 selir en svo kemur
fyrir að þeir eru ívið fleiri, allt að hundrað,“
segir Guðmundur Jóhannesson, selabóndi við
Illugastaði á vestanverðu Vatnsnesi við Húna-
fjörð. Guðmundur segir selinn mjög spakan og
auðvelt sé að fylgjast með honum á landi úr að-
eins hundrað metra fjarlægð, hann komi svo
enn nær þegar hann sé í sjónum. Guðmundur
segir að hreinlætisaðstöðu hafi verið komið upp
neðan við Illugastaði í námunda við látrin auk
þess sem unnt verði að tjalda þar í sumar. Á
döfinni sé svo að koma upp skýli svo ljósmynd-
arar og aðrir áhugasamir geti hafst við séu
veður slæm.
„Svo fer bráðum af stað rannsóknarverkefni
í samvinnu við Selasetur Íslands, þar sem at-
hugað verður hvaða áhrif aukinn fjöldi ferða-
manna hefur á selinn,“ segir Guðmundur.
Sellátrin verða lokuð til 20. júní næstkom-
andi vegna æðarvarps á svæðinu, en eftir það
eru selavinir velkomnir. | jmv@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Spakir selir í látrunum á Vatnsnesi
FRÉTTASKÝRING
Eftir Skúla Á. Sigurðsson
skulias@mbl.is
ÞEGAR dagskrá Ríkissjónvarpsins
raskast vegna beinna útsendinga
frá íþróttaviðburðum hverskonar
hitnar í kolunum á skiptiborðinu í
Efstaleiti. Meðal þeirra dagskrár-
liða sem þurfa um þessar mundir
að víkja fyrir Evrópumótinu í
knattspyrnu er Kastljós sem hverf-
ur af skjánum í tvær vikur. Þá
daga sem röskun verður á dag-
skránni berast gjarna á annan tug
kvartana.
„Ef dagskráin riðlast er alltaf
hringt,“ segir María Arna Sigurð-
ardóttir hjá Ríkisútvarpinu. Að
hennar sögn er þó ekki kvartað
meira nú en venjulega þegar dag-
skrá breytist vegna hverskyns stór-
móta og íþróttaviðburða. Hún segir
að á nýliðinn sunnudag hafi verið
óvenjumikið kvartað en þá hrjáðu
tæknileg vandamál Sjónvarpið plús.
Sú stöð sendir alla jafna út sömu
dagskrá og Ríkissjónvarpið klukku-
stund seinna en var um helgina
nýtt til útsendinga frá leikjum á
Evrópumótinu í knattspyrnu.
Fjöldi kvartana fer mikið eftir því
hvaða dagskrárliðir færast til.
Fastir liðir eins og fréttir og ýmsir
framhaldsþættir eru heilagri í aug-
um áhorfenda en annað efni og
minnist María sérstaklega á Leið-
arljós og Aðþrengdar eiginkonur í
því samhengi. „Fólk er vanafast og
vill hafa sína dagskrá, sérstaklega
fullorðna fólkið.“
Hluti af almannaþjónustu-
hlutverki Ríkissjónvarpsins
Að mati Þórhalls Gunnarssonar
dagskrárstjóra Ríkissjónvarpsins
er útsending stórviðburða á borð
við Evrópumótið í knattspyrnu og
Ólympíuleikana partur af þjónustu-
og menningarhlutverki stofnunar-
innar. Hann leggur áherslu á að þó
tímasetningar skolist til sé haldið
úti fullri fréttaþjónustu þegar stór-
viðburðir í íþróttum standi yfir.
Þórhallur bendir á að þó hægt sé
að túlka hið svokallaða almanna-
þjónustuhlutverk á margvíslegan
hátt sé skilgreiningin sem gengið
sé út frá mjög skýr. „Við eigum að
sinna afþreyingarefni, menningar-
efni, íþróttatengdu efni og frétta-
tengdu efni,“ segir hann og telur
beinar útsendingar á borð við þær
sem nú standa yfir frá Evrópu-
mótinu í knattspyrnu falla ágæt-
lega að þessari skilgreiningu.
Sjónvarpið plús
ekki íþróttarás
Ekki er á döfinni að taka íþrótta-
viðburði til sýningar í Sjónvarpinu
sem ekki hafa verið á dagskrá áður
að sögn Þórhalls. Ekki standi held-
ur til að að opna sérstaka íþrótta-
rás eða leggja Sjónvarpið plús und-
ir íþróttir þó hún hafi verið nýtt til
að senda út leiki liðinnar helgar.
Svipaður háttur verður hafður á
íþróttaumfjöllun og -útsendingum
RÚV og verið hefur og reynt að
þjónusta fólk með sem bestum
hætti.
Breytt dagskrá illa séð
Samræmist menningar- og þjónustuhlutverki RÚV segir Þórhallur Gunnarsson
Kastljós í tveggja vikna fótboltafrí Á annan tug kvartana á dag þegar mest er
ÓHEYRILEGUR dráttur á máls-
meðferð varð til þess að Héraðs-
dómur Suðurlands sá sig knúinn til
að refsa ekki bræðrum sem sak-
felldir voru fyrir líkamsárás. Bræð-
urnir sem eru á þrítugs- og fertugs-
aldri voru þó dæmdir til að greiða
fórnarlambi sínu miskabætur, alls
387 þúsund krónur.
Fórnarlambið hlaut við atlögu
bræðranna nefbrot, bólgu yfir nef-
hrygg og glóðarauga. Hann kærði
árásina daginn eftir að hún átti sér
stað, þ.e. 17. október 2005, og gaf
upp nöfn árásarmannanna. Ákæran
var þó ekki gefin út fyrr en 13.
mars sl. og skýrslur af sakborn-
ingum ekki teknar fyrr en snemma
í febrúar sl., þ.e. rúmum tveimur
árum eftir árásina.
Héraðsdómur taldi enga hald-
bæra skýringu hafa fengist á drætt-
inum. | andri@mbl.is
Sakfelldir
en ekki
gerð refsing
KARLMAÐUR á fertugsaldri hef-
ur verið dæmdur til tíu mánaða
fangelsisvistar fyrir umferðar-
lagabrot – ölvun undir stýri og
akstur án ökuréttinda. Dómurinn,
sem var kveðinn upp í Héraðs-
dómi Norðurlands eystra fyrir
helgi, er sannarlega ekki sá fyrsti
sem maðurinn hlýtur. Hann hefur
frá árinu 1986 hlotið fimmtán
refsidóma fyrir ölvun undir stýri.
Í fjórtán af fimmtán skiptum hef-
ur maðurinn jafnframt verið
dæmdur fyrir að aka án tilskilinna
réttinda.
Raunar má segja að maðurinn
hafi aðeins hlotið fjögurra mán-
aða fangelsisdóm í þetta skiptið
en með broti sínu rauf hann skil-
yrði reynslulausnar. Hann átti þá
eftir 180 daga afplánunar. Auk
þess var ævilöng ökuréttarsvipt-
ing mannsins áréttuð, enn einu
sinni. | andri@mbl.is
Með fimmtán
dóma á bakinu
ORKURÁÐ hefur úthlutað samtals
172 milljónum til jarðhitaleitar á 29
stöðum þar sem ekki nýtur hita-
veitu. Í fréttatilkynningu frá iðn-
aðarráðuneytinu kemur fram að
miðað við kostnaðaráætlanir um-
sækjenda verði á næstunni starfað
við jarðhitaleit fyrir nær 300 millj-
ónir króna.
152 milljónum kr. er nú úthlutað
sem hluta sérstaks átaks vegna
mótvægisaðgerða sem Alþingi sam-
þykkti á haustþinginu 2007, en 20
milljónum sem almennu jarð-
hitaleitarátaki. Umsóknir um
styrki voru samtals 35 og fékk
Súðavíkurhreppur hæsta styrkinn,
9,1 milljón króna.
172 millj. til
jarðhitaleitar
„Það er verið að flytja fréttir allan
guðs liðlangan daginn,“ segir frú
Helga Kristjánsdóttir um breyttan
fréttatíma þegar sent er út beint
frá Evrópukeppninni í knatt-
spyrnu. Ekki sýtir hún heldur aðrar
breytingar sem verða á sjónvarps-
dagskránni vegna útsendinganna
sem hún segir vera sitt uppáhalds-
sjónvarpsefni um þessar mundir.
Henni finnst röskunin léttvæg og
bendir á að fréttirnar fylgi alltaf
strax í kjölfar leikjanna þegar
þetta skarast.
Björn Þór Björnsson hönnuður og
bloggari er þeirrar skoðunar að
knattspyrnu sé gert of hátt undir
höfði í dagskrá RÚV. Honum þykir
ótækt að öllu öðru sé „sópað til
hliðar og kvöldfréttirnar faldar til
að vera ekki fyrir“. Nóg sé af
knattspyrnu í Sjónvarpinu þó ekki
séu tveir leikir sendir út beint á
dag. Hann talar um að knatt-
spyrnuæði renni á fólk og segir að
þar sem fótboltaáhugafólk sjái
fyrirheit um knattspyrnuveislu sjái
hann hótun um ofbeldi.
Með Á móti