Morgunblaðið - 10.06.2008, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 2008 11
FRÉTTIR
FRÉTTASKÝRING
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
BRÉF borgaryfirvalda til veitingastaðanna
Ölstofunnar og Vegamóta, þar sem farið er
fram á að stöðunum verði lokað fyrr um helg-
ar, eru ekki sögð liður í nýrri stefnu yfirvalda
um að stytta opnunartíma veitingahúsa um
helgar. Slík ákvörðun hefur ekki verið tekin.
Skýringa er miklu frekar að leita í afleið-
ingum reykingabanns á veitingahúsum og
ákvæðum nýrra laga um veitingahús, sem
tóku gildi 1. júlí á síðasta ári og gefa umsagn-
araðilum heimild til að mæla með styttingu
eða öðrum aðgerðum vegna kvartana ná-
granna eða skoðunar eftirlitsaðila.
Greint var frá umræddum bréfum í Morg-
unblaðinu í gær, og haft eftir eiganda Ölstof-
unnar að tilmælin hefðu komið honum í opna
skjöldu. Hjá borginni fengust þau svör í gær
að einn veitingastaður til viðbótar, Q Bar við
Ingólfsstræti, hefði áður fengið samskonar
bréf þar sem farið hefði verið fram á styttingu
opnunartíma. Til breytinga getur ekki komið
hjá fleiri stöðum nema við endurnýjun á
rekstrarleyfinu, samkvæmt upplýsingum
blaðsins.
Aðgerðaáætlun samþykkt
Tilmælin komu fleirum í opna skjöldu. Með-
al þeirra er Jakob Frímann Magnússon mið-
borgarstjóri sem nýlega leiddi saman veit-
ingahúsaeigendur, lögreglustjóra, borgar-
stjóra og fleiri til að ræða skemmtanahald í
miðborginni. Fór samráðsfundurinn fram
degi áður en umrædd bréf voru send frá borg-
inni. Að sögn Jakobs var sérstök aðgerða-
áætlun samþykkt á fundinum, þar sem allir
ætluðu að taka höndum saman um að manna
og kosta aðgerðir til að draga úr hávaða og
ónæði frá skemmtistöðum. Það hafi í versta
falli verið óheppileg tilviljun að daginn eftir
hafi tveimur veitingastöðum borist bréf með
tilmælum um að stytta opnunartímann. Í raun
sé um að ræða ferli tveggja óskyldra mála
sem hófust á mismunandi tíma. Áfram verði
unnið að undirbúningi aðgerðanna en heil-
brigðiseftirlitið þurfi að sinna sinni laga-
skyldu.
Rósa Magnúsdóttir, deildarstjóri umhverf-
iseftirlits hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur,
segir að hvert mál sé skoðað fyrir sig og um-
sögn gefin til lögreglunnar. Ef kvartanir ber-
ist þurfi að sannreyna hvort þær eigi við rök
að styðjast, eins og kvartanir vegna hávaða.
Komi fram annmarkar sé veitingastöðum til-
kynnt um það, og þeir hafi þá rétt á að and-
mæla eða sýna fram á að þeir geti dregið úr
ónæðinu. Í máli umræddra veitingastaða hafi
jákvæð umsögn verið gefin að öðru leyti en
því að mælt var með lokun fyrr.
Engin gleði án svefns
Rót þessa vanda má rekja til reykinga-
banns á veitingahúsum. Hávaði frá þessum
stöðum jókst til muna eftir að bannið tók
gildi 1. júní 2007 og reykingafólk varð að fara
út fyrir dyr. Hafa kvartanir borist ítrekað
vegna ákveðinna veitingahúsa og þá fyrst og
fremst frá nágrönnum.
Hér þurfa yfirvöld að feta vandrataðan
meðalveg, þar sem reynt er að koma í veg
fyrir að almenningur sé rændur bæði gleði
og svefni, og að viðskipti séu tekin af veit-
ingahúsaeigendum.
Umhyggja fyrir þeim sem orðið hafa að
þola óbeinar reykingar á skemmtistöðum
hefur óvænt bitnað á heilsu þeirra sem þurfa
á svefni og hvíld að halda, en eins og einn við-
mælenda blaðsins orðaði það verður engin
gleði án svefns.
Rakið til reykingabanns
Veitingamenn, borgaryfirvöld og lögregla glíma við afleiðingar reykingabanns Hvert tilvik skoðað
fyrir sig Miðborgarstjóri segir bréf til veitingahúsa daginn eftir samráðsfund „óheppilega tilviljun“
SAMKVÆMT lögum um veitingahús, gisti-
staði og skemmtanahald (nr. 85/2007) ber
heilbrigðisyfirvöldum að meta grenndar-
áhrif frá veitingastöðum, m.a. með tilliti til
hávaða og annars ónæðis.
Staðirnir þurfa innan tveggja ára frá gildis-
töku laganna, sem var 1. júlí 2007, að
endurnýja sín rekstrarleyfi og að fenginni
umsögn nokkurra aðila veitir embætti
lögreglustjóra nýtt leyfi. Umsögn þurfa að
gefa viðkomandi sveitarstjórn, heilbrigðis-
nefnd, slökkvilið, lögregla, vinnueftirlit og
byggingarfulltrúi. Tilmæli um opnunartíma
koma t.d. frá sveitarfélaginu og stofnunum
þess og ber lögreglustjóra að fara eftir
þeim umsögnum.
Sex þurfa að veita umsögn
BORGARYFIRVÖLD hafa gefið þremur veitingahúsum í mið-
borginni þá umsögn að þeim beri að loka fyrr um helgar. Um
er að ræða Ölstofuna og Vegamót og fyrr í vetur höfðu eig-
endur Q Bar fengið sömu tilmæli, samkvæmt upplýsingum
borgaryfirvalda. Núverandi eigandi segist hins vegar ekki
kannast við þau tilmæli og loki staðnum frá klukkan þrjú til
fimm, allt eftir aðsókn hverju sinni.
Veitingamenn eru margir hverjir óánægðir með aðgerðir
yfirvalda og íhuga samræmd mótmæli. Kormákur Geirharðs-
son, eigandi Ölstofunnar, segist nú hafa tíu daga til að bregð-
ast við tilmælunum. Lögmaður sinn sé kominn í málið og muni
m.a. óska eftir dagbókarfærslum frá lögreglunni.
Eigendur veitingahúsa í miðborginni ósáttir við borgaryfirvöld og lögreglu
Morgunblaðið/Golli og Árni Sæberg
Þremur veitingahúsum gert að loka fyrr
Akureyri | „Pabbi var skipstjóri á
Snæfelli á árunum 1952 til 1959 og
sjálfur fór ég fyrst til sjós með hon-
um árið 1956, þá einungis sjö ára
gamall,“ segir Bjarni Bjarnason um
fyrstu kynni sín af sjómennsku, en
hann hefur verið á einu sögufræg-
asta skipi Akureyrar, Súlunni, í
fjörutíu ár og þar af skipstjóri í þrjá
áratugi. „Við byrjuðum allir á skip-
inu barnungir, bræðurnir. Ég náði
til dæmis að veiða á herpinót eins og
gert var á síldarveiðum í þá daga.“
Bjarni fetaði í fótspor föður síns
og í mars sl. voru liðin 40 ár síðan
hann fór fyrst til sjós á Súlunni. Tíu
árum eftir að hann byrjaði sem há-
seti var hann orðinn skipstjóri.
Bjarni telur góða skapsmuni
fyrsta þeirra kosta sem góður skip-
stjóri þarf að búa yfir: „Það er mikið
atriði, að vera með taugakerfið í
þokkalega góðu lagi. Svo þarf hann
að geta aðlagast öðru fólki, enda eru
margir búnir að vera á Súlunni í
gegnum árin. Okkur hefur reyndar
haldist mjög vel á mönnum, og
nokkrir hafa starfað á henni í yfir
þrjátíu ár.“
Þegar Bjarni er inntur eftir því
eftirminnilegasta á löngum ferli sín-
um sem skipstjóri minnist hann
fyrst á það hve meiðsl á skipverjum
hafi verið fátíð. „Það er það bjart-
asta á ferlinum. Það hefur nánast
aldrei skaddast maður um borð í
skipi hjá mér og ég hef skilað öllum
heilum í land. Þetta er stærsti póst-
urinn í því og ég þakka forsjóninni
mest fyrir það.“
Að mati Bjarna hefur útgerð
breyst mikið á nokkrum áratugum.
„Í dag eru menn í járnklóm kvóta.
Fyrir vikið er ekki til neitt lengur
sem heitir aflamennska. Aflakóngar
og aflaklær eru ekki til í dag þar sem
enginn má lengur veiða svo mikið.
Kvótarnir eru orðnir það skertir í
dag. Áður fyrr var spennandi að bíða
eftir aflaskýrslum en það er liðin tíð.
Nú eru menn víttir fyrir að veiða of
mikið og menn forðast það eins og
heitan eld að veiða.“
Það er freistandi að áætla hvað
Bjarni hefur veitt mikið af fiski á
þessum fjörutíu árum. Bjarni viður-
kennir að hann hafi ekki tekið það
saman, en við finnum það út með há-
vönduðum slumpreikningi að miðað
við um 20 þúsund tonna veiði að
jafnaði síðustu áratugi gæti Bjarni
hafa tekið þátt í að veiða einhver 800
þúsund tonn. Og er þá ekki tilvalið
fyrir Bjarna að halda áfram og ná að
veiða upp undir milljón tonn af fiski?
„Jú, ég mun halda eitthvað áfram.
Ég er kornungur ennþá og í góðu
lagi.“
Ljósmynd/Margrét Þ. Þórsdóttir
Sjómannafjölskylda Sl. laugardag gáfu Bjarni og systkini Iðnaðarsafninu
módel af Snæfelli, sem faðir Bjarna stýrði. Frá vinstri: Baldvin, Freysteinn,
Bjarni, Árni, Guðlaug María, Sigríður og Jóhannes Bjarnabörn.
„Ég hef skilað öllum heilum í land“
Bjarni Bjarnason hefur verið skipstjóri á Súlunni í þrjátíu ár og man tímana tvenna á sjónum
Hóf sjómannsferil sjö ára og er hvergi nærri hættur Engir aflakóngar og -klær lengur
BJARNI Bjarnason og fjölskylda
hans afhentu Iðnaðarsafninu um
síðustu helgi veglega gjöf í tilefni af
tíu ára afmæli safnsins sem verður
næsta laugardag. Gjöfin er líkan
eftir Grím Karlsson af skipinu Snæ-
felli, sem var eitt stærsta og öflug-
asta skip sem smíðað var á Akur-
eyri í sinni tíð. Bjarni Jóhannesson,
faðir Bjarna, var skipstjóri á Snæ-
felli.
„Það er mjög vandað, algjör lista-
smíð,“ segir Bjarni um líkanið sem
er um einn og hálfur metri á lengd
og smíðað í hlutföllunum 1 á móti
25 eftir teikningum af Snæfelli.
Eitt stærsta og
öflugasta skipið
Eftir Hjálmar S. Brynjólfsson
hsb@mbl.is