Morgunblaðið - 10.06.2008, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Fáum við ekki skilagjald, við erum búin að nota hann?
VEÐUR
Tvær rússneskar sprengjuflug-vélar, svokallaðir birnir, flugu
hring í kringum landið í gær, með
svipuðum hætti og sams konar
flugvélar gerðu á tíma kalda
stríðsins.
Í stað þess aðbandarískar
flugvélar færu á
loft frá Keflavík-
urflugvelli til
móts við birnina
voru það fransk-
ar orrustuþotur
að þessu sinni.
Frakkland sinnir
nú loftrým-
isgæzlu við Ís-
land samkvæmt áætlun Atlants-
hafsbandalagsins.
Þarflaus peningaeyðsla, segjaVinstri grænir, „hernaðar-
andstæðingar“ og fleira bláeygt
kertafleytingafólk. Það þarf ekk-
ert að fylgjast með Rússunum. Lát-
um þá bara fljúga um loftin blá og
bjóðum þá velkomna.
Ef það þarf ekki að fylgjast meðRússunum, hvers vegna sendi
þá norska ríkisstjórnin (sem hefur
m.a. systurflokk VG innanborðs)
orrustuflugvélar á loft fimmtíu
sinnum í fyrrasumar til að fylgjast
með ferðum rússneskra flugvéla?
Hvers vegna hafa Danir aukið
eftirlit sitt við Grænland af sömu
orsökum?
Jú, til að sýna að fylgzt sé meðferðum þeirra. Ef Rússar sæju
aldrei NATO-flugvél þegar þeir
flygju inn í íslenzkt loftrými, gætu
þeir ályktað sem svo að þar ættu
herflugvélar þeirra frítt spil. Það
væri vissulega ánægjulegt fyrir
Rússland Pútíns, sem vill gjarnan
sýna umheiminum að það sé orðið
stórveldi á ný.
En finnst Vinstri grænum gamanað hjálpa Pútín að leika keis-
ara?
STAKSTEINAR
Rússneskar
sprengjuflugvélar.
Birnir og bláskjáir
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
*$BC
! "
#
$%
&
*!
$$B *!
! " # $
" $
%
&$'&
<2
<! <2
<! <2
!%$#() *(+ ,-)&(.
2D
/
"
'
'(
) "
*
$*
&
<7
!
+(
,
- "
#
$*
&
8
! -
&
,
(
'
"
$#
&
/0))
&11
()&$ 2&
-& *(
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti Íslands, veitti nýverið viðtöku fyrsta
eintakinu af bókinni Dögun vetnisaldar: Róteindin tamin. Bókin kemur út
samtímis í Reykjavík og Oxford, en höfundur hennar er Þorsteinn Ingi Sig-
fússon, prófessor við Háskóla Íslands og forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar
Íslands. Hið íslenska bókmenntafélag er útgefandi staðfærðrar íslenskrar
útgáfu sem Baldur Arnarson þýddi og staðfærði. Ensk útgáfa bókarinnar
heitir Planet Hydrogen: The Taming of the Proton og er ætluð alþjóð-
legum lesendahópi.
Í bókinni er stiklað á stóru í sögu vetnisþróunar og rakin þau skref sem
stigin hafa verið til að gera vetnisvædda veröld að veruleika á næstu árum
og áratugum. Innan nokkurra ára er reiknað með að nokkur hundruð
vetnisbifreiðar verði í umferð á höfuðborgarsvæðinu og að þeim muni
fjölga ört upp frá því. | silja@mbl.is
Forsetinn og höfundurinn Ólafur Ragnar Grímsson og Þorsteinn Ingi Sig-
fússon stinga saman nefjum í útgáfuveislu á vegum Háskóla Íslands.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Forsetinn veitti Dögun
vetnisaldar viðtöku
NÝVERIÐ kom í ljós galli í örgjörvum á endur-
nýjuðum Vísakortum sem gilda út júní 2011, en
nýbúið var að senda kortin út til viðskiptavina í
pósti. Gallinn lýsir sér í því að ekki er hægt að
nota kortin í hraðbönkum, hvorki hér- eða er-
lendis, auk þess sem kortin virka ekki hjá sölu-
aðilum erlendis sem eru með örgjörvaposa.
Að sögn Höskulds H. Ólafssonar, forstjóra
Valitors, er hér um einstakt tilvik að ræða sem
snýr að foritun örgjörvanna. Aðspurður segir
hann gallann ná til á þriðja þúsund korta. Segir
hann að þegar gallinn hafi uppgötvaðst hafi þeg-
ar í stað verið haft samband við alla viðskipta-
vini fyrirtækisins, ýmist í tölvupósti eða með
smáskilaboðum. Þar var viðskiptavinum sem
væru á leið til útlanda ráðlagt að klippa ekki
eldra kortið, þar sem það gildi út júnímánuð,
væri það ekki þegar búið að því, taka með sér
debetkort til að nota í hraðbönkum erlendis,
taka með sér annað kreditkort eða kaupa gjald-
eyri. Þess bera að geta að segulrönd nýju kort-
anna virkar sem skyldi og því ætti gallinn, að
sögn Höskuldar, ekki að koma illa við þá við-
skiptavini sem nota kortin einvörðungu innan-
lands. Spurður hvort einhverjir viðskiptavinir
hafi lent í vandræðum vegna þess svarar Hösk-
uldur því játandi en tekur fram að það séu sem
betur fer ekki margir. Að sögn Höskuldar verða
viðskiptavinum send ný kort á allra næstu dög-
um. | silja@mbl.is
Galli í örgjörva nýrra kreditkorta
Í HNOTSKURN
»Örgjörvavæðingin er alþjóðlegt verk-efni og liður í því að sporna gegn korta-
svindli.
» Í stað undirskriftarinnar eru korthafarbeðnir um að slá inn PIN-númer korts-
ins á kortalesara í verslunum til að stað-
festa greiðslu.
»Á þriðja þúsund endurnýjaðra Vísa-korta sem gilda út júní 2011 er gallað.
FRÉTTIR
Foreldraorlof
í Svíþjóð
FRAM kom í umfjöllun Morgun-
blaðsins um foreldraorlof í gær, að í
Svíþjóð fengju foreldrar greitt um
80% launa sinna í fæðingar/
foreldraorlofi, sem er 480 dagar.
Þetta er ekki rétt. Hið rétta er að for-
eldrar eiga rétt á tæpum 80% launa í
390 daga. Byggjast greiðslurnar á
upphæð sem sænska tryggingastofn-
unin reiknar út, svonefndri SGI-
upphæð.
Í ár er þessi upphæð að hámarki
307.500 sænskar krónur, en 410.000
sk. þegar um fæðingar/foreldraorlof
er að ræða, að því er fram kemur í
upplýsingum sænsku trygginga-
stofnunarinnar. Sú upphæð sam-
svarar um 5,2 milljónum íslenskra
króna. (Á Íslandi er hámarksgreiðsla
670 þúsund krónur á mánuði og fær
fólk þá greitt 80% þeirra launa.)
Aðra daga orlofsins fá foreldrar
180 sænskar krónur á dag fyrir börn
sem fædd eru eftir 1. júlí 2006.
Gróflega reiknað má ætla að par
sem er að hefja fæðingarorlof í
Svþjóð og hefur hvort um sig mán-
aðartekjur sem nema tæpum 450.000
íslenskum krónum fái í sínu orlofi
upphæð sem nemur alls um 4,3 millj-
ónum íslenskra króna. Íslenskir for-
eldrar með sömu tekjur fá um það bil
3,2 milljónir króna á níu mánaða
tímabili, en hægt er að dreifa greiðsl-
unum á allt að 18 mánuði. Í dæm-
unum að ofan er ekki tekið tillit til
skattgreiðslna af orlofspeningunum í
löndunum tveimur.
LEIÐRÉTT