Morgunblaðið - 10.06.2008, Síða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
„VANDINN sem
öfga-hægristefn-
an hefur í för
með sér verður
ekki leystur með
því einu að banna
NPD,“ segir
Angela Merkel,
kanslari Þýska-
lands. Reynt var
að fá í gegn bann
á flokkinn árið 2003 en sú tilraun
mistókst. Jafnaðarmenn (SPD) hafa
margir viljað láta reyna á slíkt
bann á ný en flestir talsmenn kristi-
legra demókrata (CDU) hafa verið
á móti. Ef slík tilraun mistækist á
ný yrði það sem olía á eld áróðurs-
vélar NPD.
Kallað hefur verið eftir því að
stjórnarflokkarnir komist að sam-
eiginlegri ákvörðun um hvernig
megi veikja stöðu NPD, en sam-
staða er um að hugmyndafræði
flokksins brjóti í bága við þýsku
stjórnarskrána.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
ÞÝSKI þjóðarflokkurinn, NPD,
vann sögulegan sigur í sveitar-
stjórnarkosningum í Saxlandi um
helgina. Flokkurinn er nú í fyrsta
sinn með fulltrúa á öllum héraðs-
þingum sambandslandsins en með-
limir hans þykja öfgafullir og hug-
myndafræði flokksins brjóta í bága
við stjórnarskrá landsins.
NPD hefur náð að fjórfalda fylgi
sitt í Saxlandi frá síðustu kosningum
fyrir fjórum árum, fór úr 1,3% í rúm
fimm prósent. Úrslitin hafa vakið at-
hygli og komið stjórnmálamönnum í
opna skjöldu. Kosningasigur NPD í
Sachsen var hve mestur í Rein-
hardtsdorf-Schöna-héraði, þar hlaut
flokkurinn rúm 25% atkvæða og var
rúmum fjórum prósentum yfir
kristilegum demókrötum (CDU).
Uppgangur flokksins í „nýju sam-
bandsríkjunum,“ þ.e. gamla Austur-
Þýskalandi, hefur verið rakinn til at-
vinnuleysis, aukins fólksflótta til
vesturs og félagslegra vandamála.
Ofbeldi og ógnanir af hendi öfga-
hægrisinna virðast færast í aukarn-
ar í Þýskalandi og ekki aðeins
austanmegin þar sem fylgi NPD
hefur verið sem mest. „Hægri öfga-
stefna er hluti af daglegu lífi í
Þýskalandi og fær ekki athygli nema
glæpirnir séu sérstaklega hrotta-
fengnir,“ hefur Der Spiegel eftir
Wolfgang Thierse, þingmanni jafn-
aðarmanna (SPD) og varaforseta
þýska þingsins.
Ofbeldið færist í aukana
Og tölurnar tala sínu máli. Í mars
síðastliðnum voru glæpir sem raktir
voru til kynþáttahaturs eða öfga-
hægristefnu 1,311 talsins en það eru
458 fleiri tilfelli en tilkynnt var um í
mars á síðasta ári. Í 72 tilfellanna
var um líkamlegt ofbeldi að ræða.
NPD hefur sýnt kænsku við að ná til
sín fylgismönnum. Ungliðahreyfing
flokksins, JN, hefur verið mjög öflug
við að lífga upp á ímyndina og reynt
að höfða til miðjunnar og mennta-
manna. Það hafa þeir m.a. gert með
því að blanda sér í samfélagsumræð-
una og vera sýnilegir á opinberum
vettvangi. Krúnurakaðir karlmenn í
hermannaklossum hafa að einhverju
leyti vikið fyrir „venjulegri“ liðs-
mönnum sem gefa kökur á basara og
bolta til íþróttafélaga.
Lögreglan hefur legið undir gagn-
rýni fyrir að aðhafast fátt þegar
félagsmenn fara yfir strikið eða
„gleyma“ að skrá niður nöfn ofbeld-
ismannanna. Þeir sem tilkynna um
ofbeldisverkin eru taldir „lifa við
áhættu“.
Uppgangur öfgahyggju
Söguleg kosning NPD í Saxlandi
Árásum þýskra nýnasista fjölgar
Reuters
Ofbeldi Meðlimur öfgahópsins „Storm 34“ bíður dóms vegna ofbeldisverka í
Dresden. NPD-flokkurinn er talinn styðja uppgang smærri öfga-hægrihópa.
LÍFSKJÖR bresks almennings
munu fara hríðversnandi á næstu
misserum, eftir því sem áhrif keðju-
verkandi hráefnisvöru- og elds-
neytishækkana vega sífellt þyngra í
útgjöldum heimilanna.
Þetta er kjarninn í svartri spá
breskra hagfræðinga um horfurnar
í efnahagsmálunum, sem, ef réttar
reynast, munu hafa gífurleg áhrif á
allt neyslumynstur almennings.
Breska dagblaðið The Daily
Telegraph fór yfir stöðuna á vef-
síðu sinni í gær, en þar var haft eft-
ir Michael Saunders, yfirhagfræð-
ingi Citigroup-banka í Bretlandi, að
þrýstingur á verðhækkanir kæmi á
versta tíma, í miðri lánsfjárkreppu
og sprunginni fasteignabólu.
Kemur þar einnig fram að verð á
hráefnisvörum fyrir matvælafram-
leiðslu og á eldsneyti, orku, efna-
vörum og málmum hafi farið stig-
hækkandi í síðasta mánuði, með
þeim afleiðingum að verksmiðjur
þurfi nú að greiða 27,9% meira fyr-
ir vörur en fyrir ári síðan.
Kostnaðurinn er þegar farinn að
velta út í verðlagið og greiða heild-
salar og matvöruverslanir nú 8,9%
meira fyrir vörur sínar en fyrir ári.
Launin fylgja ekki þróuninni
Þetta þýðir að jafnvel þótt versl-
anir taki á sig helming þessara
hækkana mun launaþróun ekki
halda í við þróunina. Segir þar
einnig að heimsmarkaðsverð á hrá-
olíu hafi hækkað um 83% á síðustu
12 mánuðum og er verðlagsvísi-
talan nú sögð sú hæsta síðan núver-
andi gagnasöfnun hófst 1986.
Breska hagstofan gengur lengra
og telur næsta víst að vísitalan hafi
ekki verið hærri frá árinu 1976.
Að samanlögðu eru leidd rök að
því að vegna þróunarinnar muni
breski seðlabankinn neyðast til að
hækka stýrivexti fyrir árslok. |
baldura@mbl.is
Reuters
Niðursveifla Þróunin mun koma
illa niður á buddunni hjá Bretum.
Harðnar
á dalnum
HANN virtist taka lífinu með ró kínverski ör-
yggisvörðurinn þar sem hann fylgdist með því
sem framhjá fór fyrir utan banka í Mianyang í
gær. Borgin er í Sichuan-héraði í suðvesturhluta
landsins, þar sem tugir þúsunda týndu lífi eftir
að skjálfti sem mældist 7,9 stig á Richter-
kvarðanum lagði fjölda bygginga í rúst 12. maí.
Ein afleiðing skjálftans var sú að stöðuvatnið
Tangjiashan myndaðist í fjalllendi héraðsins
þegar árfarvegur stíflaðist og hefur 250.000
manns verið gert að yfirgefa heimili sín í örygg-
isskyni ef til þess kemur að vatnselgurinn flæði
niður á láglendið. Herinn hefur gripið til ýmissa
leiða til að ræsa fram vatnið. Eftirskjálfti upp á 5
stig á Richter-kvarða reið yfir svæðið í gær.
Eftirskjálftar reyna á bakka „skjálftavatnsins“ í Sichuan-héraði
AP
Rólegur en við öllu búinn
BARACK Obama, forsetaefni demó-
krata, hóf í gær hálfs mánaðar ferð
um ríki þar sem repúblikanar hafa
verið hvað öflugastir í síðustu forseta-
kosningum og gaf til kynna að hann
hygðist hamra á efnahagsmálunum í
kosningabaráttunni.
Obama var í Norður-Karólínu í
gær og sagði að John McCain, for-
setaefni repúblikana, byði aðeins upp
á „fjögur ár í viðbót af dýrkeyptri
efnahagsstefnu Bush sem hefur aukið
ójöfnuðinn og skilið börnin okkar eftir
í botnlausri skuldasúpu“. Obama
sagði efnahagsstefnu sína miða að því
að hjálpa húseigendum sem ættu í
greiðsluerfiðleikum, tryggja öllum
heilsugæslu á viðráðanlegu verði og
„skattalöggjöf sem umbunar fólki fyr-
ir vinnu fremur en auð“.
Talsmaður McCains svaraði að
stefna Obama fæli í sér hærri skatta
og aukin ríkisútgjöld og myndi stuðla
að auknu atvinnuleysi. „Obama hefur
lofað hærri tekjuskatti, skatti til að
fjármagna almannatryggingar, fjár-
magnstekjuskatti og hærri sköttum á
fyrirtæki sem skapa atvinnu …
Obama skilur ekki efnahag Banda-
ríkjanna og það er breyting sem við
höfum ekki efni á.“ | bogi@mbl.is
Obama hamrar á efnahags-
málum í kosningabaráttunni
McCain sakar keppinautinn um að ætla að hækka skatta og auka ríkisútgjöld
Í HNOTSKURN
» John McCain bjó sig í gærundir fjáröflunarferðir til
Washington-borgar, Virginíu
og fleiri ríkja.
» Barack Obama hefur safn-að 264 milljónum dollara
(19,8 milljörðum kr.) á 16 mán-
uðum og McCain 115 milljón-
um dollara (8,6 milljörðum
króna) á 17 mánuðum.
Barack Obama John McCain
Á að banna
flokkinn?
Angela Merkel