Morgunblaðið - 10.06.2008, Side 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
NÝTT safn, tileinkað menningu
Gyðinga, var opnað í San Franc-
isco um helgina. Hönnuður þess er
Daniel Liebeskind, hinn heims-
frægi arkitekt sem einnig hefur
hannað Gyðingasöfn í Berlín,
Kaupmannahöfn og Osnabrück.
Þau hafa vakið mikla athygli, en ef
marka má grein Edwards Roth-
stein í New York Times í gær, hef-
ur honum ekki tekist að skila þeirri
sérstöðu sem safnið í San Franc-
isco átti að hafa, með byggingunni
sjálfri. Rothstein segir hana hvorki
„sérstaklega þægilega né til þess
fallna að vekja með manni traust“.
Í menningarlegum skilningi
fremur en trúarlegum
Evrópsku söfnin þrjú hverfast
að miklu leyti um hrikaleg örlög
Gyðinga í hildarleik stríðsátaka
síðustu aldar og útrýming-
arherferð nasista. Safnið í San
Francisco lýtur öðrum lögmálum
og er ætlað að sýna fram á hvað
gyðingdómur hefur lagt til nær-
umhverfis síns á vesturströnd
Bandaríkjanna í menningarlegum
skilningi fremur en trúarlegum.
Sýningum þar er ætlað að leggja
áherslu á framlag Gyðinga til
menningarinnar, til vísinda, lista,
viðskipta, menntunar og stjórn-
mála. Minni áhersla er lögð á sagn-
fræði en samtímann og safnið
byggir ekki á hefðbundinni safn-
eign heldur sýningum á menning-
arlegum nótum. | fbi@mbl.is
Liebes-
kind um-
deildur
Nýtt Gyðingasafn
opnað í San Francisco
Gyðingasafnið Hús Daniels
Liebeskind í San Francisco.
ÓPERUHÚSIÐ í
New York hefur
fengið banda-
ríska tónskáldið
Charles Wuor-
inen til þess að
skrifa óperu upp
úr Brokeback
Mountain, sögu
Annie Proulx
sem kvikmynduð
var árið 2005 og
vann til þriggja Óskarsverðlauna.
Búist er við því að óperan verði
frumsýnd árið 2013.
Sagan segir frá tveimur kúrek-
um sem fella hugi saman þegar
þeir kynnast á fjalli nokkru árið
1963, en í kvikmyndinni fóru þeir
Jake Gyllenhaal og Heath heitinn
Ledger með hlutverk þeirra.
„Mig hefur langað til þess að
semja óperu upp úr þessari mögn-
uðu sögu allt frá því ég las hana
fyrst,“ segir hinn sjötugi Wuor-
inen sem hefur meðal annars sam-
ið óperu eftir sögu Salmans
Rushdies, Haroun and the Sea of
Stories.
Ópera eftir
Brokeback
Mountain
Heath Ledger í
kvikmyndinni.
ANNAÐ kvöld heldur þríeykið
Inga Backman, Hjörleifur
Valsson og Arnhildur Val-
garðsdóttir tónleika í Iðnó. Á
dagskránni verða lög Jakobs
Hallgrímssonar, organista,
fiðlukennara og tónskálds,
sem lést árið 1998, langt fyrir
aldur fram, en skildi eftir sig
fjársjóð sönglaga.
Ofangreint tríó tók sig til og
hljóðritaði diskinn Ó undur lífs
með þessum fallegu sönglögum Jakobs. Texta
sótti hann til helstu skálda okkar, t.d. Halldórs
Laxness og Davíðs Stefánssonar. Tónleikarnir
hefjast kl. 20 og miðaverð er 1.000 krónur. Veit-
ingasalan í Iðnó verður opin.
Tónlist
Tónleikar til minn-
ingar um Jakob
Hjörleifur
Valsson
ÚT er komin bókin Dada
Collage and Memoirs, ævi-
minningarbrot Franks Ponzi
listsagnfræðings (1929-2008).
Höfundur segir frá æskuárum
sínum og uppvexti í fjölskyldu
ítalskra innflytjenda í Penn-
sylvaníuríki í Bandaríkjunum
og frá listnámi í New York og
Oxford-háskóla. Hann kvæntist
íslenskri eiginkonu sinni í New
York, þau ákváðu að flytjast til
Íslands og nema land í Mosfellsdal og þar átti
hann heimili til æviloka. Eftir Frank liggja bækur
um Ísland á fyrri öldum, byggðar á sýn erlendra
listamanna í málverkum og ljósmyndum. Bókin er
á ensku, 237 bls. með 24 síðum af ljósmyndum.
Bókmenntir
Æviminningar
Franks Ponzi
Frank
Ponzi
Í SUMAR mun Leikhús frú
Normu ferðast um allt Austur-
land með barnaverkið Soffía
mús á tímaflakki. Verkið verð-
ur frumsýnt á laugardaginn,
þann 14. júní, í Sláturhúsinu,
menningarsetri á Egilsstöðum.
Soffía mús á tímaflakki er nýtt
íslenskt barnaleikrit samið af
Sigríði Láru Sigurjónsdóttur
fyrir Leikhús Frú Normu.
Tónlist við verkið samdi Bára
Sigurjónsdóttir. Verkið fjallar um Soffíu sem fer
ásamt vinkonu sinni að reyna að finna tíma og þær
lenda í ýmsum ævintýrum. Þær hitta líka ýmsar
skrýtnar skepnur á leið sinni. Nánari upplýsingar
má finna á www.frunorma.is.
Leiklist
Soffía mús á flakki
um Austurland
Sigríður Lára
Sigurjónsdóttir
GUNNAR Þórðarson tónskáld segir
verkið „Bæn“ vera tónaljóð og hann
hafi samið það við íslenska þýðingu á
ljóðum Stricklers. Tónaljóð er annað
hvort sungið eða spilað og eitthvert
þema gegnumgangandi í því, í þessu
tilfelli bænin í víðu samhengi.
„Þetta stykki tekur um hálftíma í
flutningi og það eru átta ljóð eftir Al-
bert (Strickler). Ég set það ekki nið-
ur í hólf, það er flutt óslitið í rúman
hálftíma,“ segir Gunnar. Hann hefur
samið tvær messur og segir ekki svo
ólíkt að semja tónaljóð. „Ég hef aldr-
ei samið svona langt stykki í einu,
svona allt saman tengt.“ Gunnar
segir það hafa tekið um þrjá mánuði
að semja verkið. Nú heitir verkið
Bæn og því liggur beinast við að
spyrja Gunnar að því hvort hann sé
trúaður. „Ég ekkert meira trúaður
en hinn venjulegi Íslendingur. Þessi
verkefni koma bara upp í fangið á
mér,“ segir Gunnar. „Músík er bara
músík,“ bætir hann við.
Æfingar eru ekki hafnar á verk-
inu enda átti Gunnar eftir að klára
útskrift fyrir hljóðfærin þegar
blaðamaður ræddi við hann í gær.
Verkið verður flutt þrisvar, 3. og 4.
júlí í kirkjunni í Rosheim og 6. júlí í
tónleikahöllinni í bænum Barr.
Ekki hólfað niður
Verkið Bæn flutt á þrennum tónleikum
ROSHEIM er smábær í Alsace-
héraði á norðausturodda Frakk-
lands, um 25 km suðvestur af Strass-
borg. Rosheim er þekktur fyrir vín-
gerðarlist en einnig byggingarlist í
rómönskum stíl, þ.á m. hina friðuðu
kirkju Eglise Saints-Pierre et Paul
frá 12. öld, þar sem tónleikarnir
verða haldnir. Erkibiskupinn af
Strassborg, Jean-Pierre Grallet, gaf
sérstakt leyfi fyrir tónleikahaldinu.
Erkibiskupinn er verndari hátíð-
arinnar og verður sérstakur boðs-
gestur á tónleikunum ásamt Tómasi
Inga Olrich, sendiherra Íslands í
Frakklandi.
Byggingarlist og vín
Kirkjan í Rosheim Í bænum Barr.
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
NÝTT tónverk eftir Gunnar Þórð-
arson, Bæn, verður frumflutt í Róm-
önsku kirkjunni í Rosheim, Eglise
Saints-Pierre et Paul, á árlegri sum-
arlistahátíð í Alsace-héraði í Frakk-
landi hinn 3. júlí næstkomandi.
Flutningurinn verður jafnframt há-
punktur hátíðarinnar. Sigrún
Hjálmtýsdóttir sópran, Diddú, mun
flytja verkið með íslenskum söng-
kvartett, kammersveit og píanistan-
um Yolande Uytter undir stjórn Há-
kons Leifssonar. Bæn er hluti af
verkefni sem ber á íslensku titilinn
Mósaík Trílógía en í því mætast
þrjár listgreinar; myndlist, ljóðlist
og tónlist.
„Það var nú þannig að ég var að
syngja í Alsace-héraði fyrir þremur
árum á tónleikum og þá kom einn
fremsti skúlptúrmeistari Frakk-
lands, mósaíkskúlptúrlistamaðurinn
Gérard Brand. Hann varð svona
impóneraður af mínum söng að hann
sá fyrir sér að hann yrði að búa til
skúlptúra sem ég myndi umvefja
rödd minni á einhvers konar sýningu
[…] síðan hannaði hann þetta og þró-
aði hugmyndina áfram, fann út hvers
konar þema hann vildi hafa á verk-
unum. Hann er búinn að búa til átta
skúlptúra, þeir eru tólf samtals
vegna þess að eitt verkið inniheldur
fleiri en eitt verk,“ útskýrir Diddú.
Brand fékk svo vin sinn, ljóðskáld-
ið Albert Strickler, til að semja ljóð
út frá skúlptúrunum og Gunnar
Þórðarson var fenginn til að semja
tónlist við ljóðin. „Þetta er alveg gíf-
urlega fallegt verk,“ segir Diddú um
Bæn, það sé jafnvel himneskt.
Þrískipt
bæn
Frumflutningur á tónverki Gunnars
Þórðarsonar hápunktur hátíðar í Alsace
Í HNOTSKURN
» Sumarlistahátíðin í Al-sace, Chemin d’Art Sacré
en Alsace, hefst 1. júlí og lýkur
1. október. Diddú segir skúlpt-
úristann Gérard Brand fyrst-
an myndlistarmanna fá að
halda sýningu í kirkjunni í
Rosheim sem er friðuð. Verk-
efnið hefur fengið mikla at-
hygli í Frakklandi.
» Mósaík Trílógía er þver-faglegt samstarfsverkefni
franskra og íslenskra lista-
manna. Listahátíðin í Frakk-
landi dregur að þúsundir
gesta víða að ár hvert.
» Gérard Brand er sagðurhafa þróað nýja tegund
mósaíklistar, mósaíkhögg-
myndir í þrívídd. Albert
Strickler er ljóðskáld og rit-
höfundur og vinsæll fyrirles-
ari í heimalandi sínu.
» Tónleikarnir verða teknirupp fyrir sjónvarpsstöðv-
arnar TV ARTE og FR3.
Morgunblaðið/Kristinn
Tónskáld og sópran Diddú syngur verk Gunnars Þórðarsonar, Bæn, í
Frakklandi í júlí. Þau fengu sér kaffisopa á Sólon í blíðviðrinu í gær.
Brand Við eitt verka sinna.