Morgunblaðið - 10.06.2008, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 2008 23
Tvenns konar fegurð Skemmtiferðaskipið Mona Lisa liggur í Sundahöfn. Hin dulúðuga fyrirsæta Leonardos Da
Vinci sýndi engin svipbrigði þótt léttklæddir karlar væru að störfum á skemmuþaki við höfnina.
G. Rúnar Blog.is
Ólína Þorvarðardóttir | 9. júní
Reykjavík er ljót borg
Þegar ég ók Vesturlands-
veginn í átt til höfuðborg-
arinnar í fyrradag ætlaði
ég að venju að líta í átt til
Korpúlfsstaða sem æv-
inlega gleðja augu mín frá
þjóðveginum. En þá blasti
við mér allt önnur sjón: Risastórt gímald
– ferhyrndur álkassi sem á víst að heita
hús og mun eiga að hýsa Rúmfatalager-
inn. Þetta hræðilega mannvirki dregur
að sér alla athygli þarna sem það stend-
ur. Það skyggir á formfagrar byggingar
gamla stórbýlisins á Korpúlfsstöðum
sem Thor Jensen reisti af metnaði og
rausn og sem hafa verið héraðsprýði. Nú
stendur Korpúlfsstaðabýlið eins og hálf-
gerður hundakofi í skugga þessarar risa-
byggingar sem virðist frá veginum séð
vera tíu sinnum stærri. Hinumegin við
Vesturlandsveginn er svo Bauhaus að
reisa annan kumbalda. Álíka stóran – ef
marka má húsgrindina sem komin er
upp – og líklega jafn ljótan. …
Meira: olinathorv.blog.is
Gestur Guðjónsson | 9. júní
Ríkisstjórnin tekur
ekki mark á mann-
réttindanefnd SÞ
Þetta svar við áliti mann-
réttindanefndar SÞ er
undarleg lesning. Fyrir það
fyrsta er fallinn úrskurður,
álit mannréttindanefndar
SÞ. Ísland greip til varna
gagnvart kærunni og nið-
urstaða fékkst. Þess vegna er hlálegt að
sjá viðbrögð þar sem I. hlutinn eru nýjar
og endurteknar varnir Íslands í málinu,
söguskýringar og útskýringar. Slíkt á
heima í málflutningnum sjálfum, ekki í
viðbrögðum við niðurstöðu hans. …
Meira: gesturgudjonsson.blog.is
Gunnar Rögnvaldsson | 9. júní
Fjármálageirinn
of stór í ESB?
Bloomberg segir í dag að
þó svo að hin alþjóðlega
fjármálakreppa hafi byrj-
að feril sinn í Bandaríkj-
unum þá sé það fyrst og
fremst ESB sem muni
fara verst út úr krepp-
unni. Ástæðan er að í Bandaríkjunum er
fjármálageirinn einungis 7% af öllum at-
vinnurekstri þjóðarinnar en í ESB er
þetta hlutfall 17%. Dresdner Kleinwort-
bankinn segir að eins og staðan er núna
þá hafi hagnaður fyrirtækja í BNA aðeins
dregist saman um 13,4%, en í ESB er
þessi tala 23,4%. Einnig gerir hið háa
gengi evru vörur frá evrópskum fyr-
irtækjum minna áhugaverðar en vörur
frá fyrirtækjum í BNA. …
Meira: tilveran-i-esb.blog.is
ÞAÐ ER ekki of-
sögum sagt að stjórn-
málamenn lifi í
áhættusömu umhverfi.
Atburðarásin í borg-
arstjórn Reykjavíkur
sl. mánuði sýnir
glöggt að mál sem
stjórnmálamenn í
góðri trú telja sig
vinna að, almenningi
til hagsbóta, geta snú-
ist þannig að þau kosti þá stöðu
þeirra. Þannig varð REI-málið svo-
kallaða til þess, að meirihluti Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknarflokks
féll og nú hefur oddviti Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík Vilhjálmur
Þ.
Vilhjálmsson ákveðið að stíga til
hliðar og láta Hönnu Birnu Krist-
jánsdóttur borgarfulltrúa eftir þá
stöðu.
Vilhjálmur hefur verið farsæll
borgarfulltrúi í 26 ár og einn for-
ystumanna flokksins á þeim vett-
vangi drjúgan hluta
þess tíma. Ég kynnt-
ist Vilhjálmi árið
2002, sem vinnusöm-
um og sívakandi
borgarfulltrúa, síðar
sem oddvita flokksins
sem rak okkur hin
áfram með harðri
hendi á vinnustaða-
fundi, málefnafundi,
borgarstjórnarflokks-
fundi og eftir síðustu
kosningar á fundi
með honum og emb-
ættismönnum um þau svið borg-
armálanna sem við störfuðum á.
Alls staðar var Vilhjálmur á heima-
velli hvort sem var úti á meðal al-
mennings eða inni á stífum fundum
um hin ýmsu málefni Reykjavík-
urborgar. Ávallt var hann til staðar
fyrir okkur sem vorum nýkomin
inn á þennan vandasama vettvang.
Að gera út um ágreining
Eitt af því sem mér hefur þótt til
fyrirmyndar við Sjálfstæðisflokkinn
er hvernig flokksmenn og forysta
hans halda á innri málum flokksins.
Innan hans eru ólíkar skoðanir í
fjölda mála, en flokksmenn hafa
lært af langri sögu að eigi stjórn-
málaflokkur að njóta trausts al-
mennings þarf að gera út um mál
innan flokksins; ráðgast við flokks-
menn- og -stofnanir, komast að
niðurstöðu, en standa saman um
hana út á við. Þetta brást í REI-
málinu.
Að málinu komu einstaklingar úr
einkageiranum þar sem skjótar
ákvarðanir, digrir bónusar og
áhættufjárfestingar voru daglegt
brauð. Stjórnendur þar taka slíkar
ákvarðanir og þurfa ekki nema í
takmörkuðum mæli að bera þær
undir eigendur fyrirtækjanna. Í
stjórnmálum og við meðferð eigna
almennings gilda aðrar leikreglur.
Ákvarðanir stjórnar REI fengu
ekki þá lýðræðislegu meðferð sem
skyldi. Það skal fúslega viðurkennt.
En það verður líka að horfast í
augu við, að í þeirri atburðarás
sem þá tók við innan Sjálfstæð-
isflokksins var sú hefð að gera út
um mál innan flokksins ekki virt
sem skyldi.
Kastljós fjölmiðlanna kallar ekki
alltaf fram þá yfirveguðu rökræðu
og niðurstöður, sem stjórnmál
krefjast og áður var lýst. Þetta
blasti við kjósendum og afstaða
þeirra kom skýrt fram í skoð-
anakönnunum. Því miður hefur það
í þessu tilfelli ekki einungis haft
áhrif á stöðu Sjálfstæðisflokksins,
heldur einnig hugsanlega mögu-
leika Orkuveitunnar til þess að
koma í verð áratuga fjárfestingu í
þekkingarverðmætum.
Samstaða og traust borgarbúa
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur
með ákvörðun sinni um að hætta
sem oddviti Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík sett hagsmuni borg-
arbúa og Sjálfstæðisflokksins ofar
persónulegum hagsmunum sínum.
Slíkt er of sjaldgæft í stjórnmálum.
Hann mun þó starfa áfram sem
formaður borgarráðs þar til hann
tekur við starfi forseta borg-
arstjórnar við sumarlok. Þannig
mun löng reynsla hans og þekking
nýtast borgarbúum áfram.
Á sameiginlegum blaðamanna-
fundi hans og Hönnu Birnu Krist-
jánsdóttur sl. laugardag kom skýrt
fram að þau hafa nú snúið bökum
saman og borgarstjórnarflokkurinn
styður óskiptur þeirra ákvörðun.
Mikilvægt er fyrir borgarstjórn-
arflokk Sjálfstæðisflokksins að
læra af atburðarás sl. mánaða,
standa þétt saman og einhenda sér
í að endurheimta traust borgarbúa.
Vilhjálmur hefur lagt sitt af mörk-
um. Nú er komið að okkur hinum.
Eftir Bolla
Thoroddsen » Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson hefur
með ákvörðun sinni sett
hagsmuni borgarbúa og
Sjálfstæðisflokksins of-
ar persónulegum hags-
munum sínum.
Bolli Thoroddsen
Höfundur er varaborgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins og er sem
stendur í leyfi og stundar nám við
Waseda-háskóla í Tókýó.
Áhætta, hollusta og traust í stjórnmálum
Á RÁÐSTEFNU Mat-
vælastofnunar Sameinuðu þjóð-
anna (FAO) í Róm lagði formað-
ur Samfylkingarinnar áherslu á
sjálfbærni í matvælaframleiðslu
og fæðuöryggi þjóða. Heima á
Íslandi leggur hún hins vegar til
hömlulausan innflutning á hrá-
kjöti sem vitað er að lama mun
innlendan landbúnað og skerða
matvælaöryggi íslensku þjóðar-
innar.
Slík tvöfeldni hefur oft ein-
kennt „kratismann“. Á Alþingi virðist forysta
Samfylkingarinnar taka höndum saman með
einokunarrisunum á matvörumarkaðnum um
að klekkja á íslenskum landbúnaði og inn-
lendri matvælaframleiðslu. Allt annað er hins
vegar sagt í Rómaborg.
Áratuga gömul stefna Alþýðuflokksins og
nú Samfylkingarinnar í landbúnaðarmálum á
Íslandi hefði örugglega þótt
heldur forneskjuleg og gam-
aldags á fundinum í Rómaborg.
Þar keppist nú alþjóða-
samfélagið við að leita leiða til
að efla landbúnaðarframleiðslu
hinna ýmsu landa og tryggja
matvælaöryggi þjóða með sjálf-
bærum hætti.
Kannski er það bara best fyr-
ir íslensku þjóðina að formaður
Samfylkingarinnar verði áfram
og sem lengst erlendis og tali
til okkar þaðan. Á matvæl-
aráðstefnunni vakti Ingibjörg
Sólrún réttilega athygli á hlut kvenna í fæðu-
framleiðslu í heiminum sem er talinn vera
um 60%. Mikilvægt væri því að tryggja að-
komu kvenna að ákvörðunum um fæðu-
öryggi.
Þetta er hægt að segja í Róm en hér á Ís-
landi þykir ríkisstjórninni ekkert mál að gal-
opna fyrir innflutning á hráum kjötvörum
sem mun einmitt rústa hundruðum ef ekki
þúsundum kvennastarfa á Íslandi.
Ályktun þingeyskra kvenna
Ef til vill heyrir Ingibjörg Sólrún til Róm-
ar raddir 400 þingeyskra kvenna sem héldu
aðalfund Kvenfélagssambands Suður-
Þingeyinga í apríl síðastliðnum. En á þeim
fundi var samþykkt ályktun þess efnis að
matvælafrumvarp ríkisstjórnarinnar myndi
„ekki aðeins skaða innlenda landbún-
aðarframleiðslu og veikja varnir gegn smit-
sjúkdómum í búfé heldur svipta komandi
kynslóðir þeim lífsgæðum sem felast í því að
eiga greiðan aðgang að þeirri gæða-vöru,
hreinleika og heilbrigði sem íslenskar land-
búnaðarvörur sannarlega eru. Þá kemur
þessi breyting til með að hafa ófyrirsjáanleg
áhrif á matvælaiðnaðinn í landinu þar sem
hætt er við að fjöldi starfa í greininni gæti
lagst niður“.
Að ganga berfætt til Rómar
Hér er skýrt að orði kveðið um frumvarp
sem ráðherrar Samfylkingarinnar lögðu
áherslu á að yrði samþykkt. Sem betur fór
tókst með miklu átaki að stöðva frumvarp
ríkisstjórnarinnar um galopinn innflutning á
hráu kjöti í bili. Þótt þúsundir fólks í mat-
vælavinnslu og landbúnaði andi um stund
léttar er ein orusta unnin en stríðið heldur
áfram.
Matvælaöryggi, hollusta og gæði inn-
lendrar fæðuframleiðslu er sameiginlegt
hagsmunamál þjóðarinnar allrar. Það ætti
ekki að þurfa að fara til Rómar til að sjá það.
Eftir Jón Bjarnason » Þótt þúsundir fólks í mat-
vælavinnslu og landbúnaði
andi um stund léttar er ein or-
usta unnin en stríðið heldur
áfram.
Jón Bjarnason
Ingibjörg Sólrún talar frá útlöndum
Höfundur er þingmaður Vinstri grænna.
Hildur Helga Sigurðardóttir | 9. júní
Stéttaskipting
í bloggheimum
Er fyrst að fatta það
núna, í b(j)arnaskap mín-
um, að það ríkir stétta-
skipting í bloggheimum.
Í þessum heimi, sem
ég hélt til skamms tíma
að væri svo skemmtilega
anarkískur, er fólk sem vill ekki láta svara
sér, heldur bara hlusta á sig og lesa sig –
svo lengi sem það fær engin viðbrögð.
Meira: hildurhelgas.blog.is