Morgunblaðið - 10.06.2008, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 2008 37
Þjóðleikhúsið Af öllum sviðum lífsins
551 1200 | midasala@leikhusid.is
Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl.12:30-18:00, aðra daga vikunnar frá kl. 12:30 til
20, og alltaf klukkustund fyrir sýningu ef um breyttan sýningartíma er að ræða.
Stóra sviðið
Ástin er diskó - lífið er pönk
Ath. pönkað málfar
Gríman - íslensku leiklistarverðlaunin
Borgarleikhúsið
568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Dauðasyndirnar-guðdómlegur gleðileikur (Litla sviðið)
Fim 12/6 kl. 20:00 Lau 14/6 kl. 20:00 Ö Sun 15/6 kl. 20:00 U
Miðasala opnar kl. 14.00 8. júní
Sumarnámskeið Sönglistar
Mán 16/6 kl. 10:00
Mán 23/6 kl. 10:00 U
Mán 30/6 kl. 10:00 U
Mán 7/7 kl. 10:00
Mán 14/7 kl. 10:00
Mán 21/7 kl. 10:00
Landnámssetrið í Borgarnesi
437 1600 | landnamssetur@landnam.is
Saga til næsta bæjar (Á Sögulofti)
Sun 15/6 kl. 20:00
gamansögur
Sun 22/6 kl. 20:00
úrslitakvöld
Landskeppni sagnamann
BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið)
Lau 14/6 kl. 20:00
Sun 15/6 kl. 16:00 Ö
Lau 28/6 kl. 15:00
Lau 28/6 kl. 20:00 Ö
Þrjár tilnefningar til Grímunnar
Mr. Skallagrímsson eftir Benedikt Erlingsson
(Söguloftið)
Lau 14/6 kl. 15:00 U
Lau 21/6 kl. 15:00 U
Lau 21/6 kl. 20:00 U
Möguleikhúsið
5622669 / 8971813 |
moguleikhusid@moguleikhusid.is
Aðventa ((Möguleikhúsið/ferðasýning))
Lau 5/7 kl. 22:00 F
edinborgarhúsið ísafirði
Iðnó
562 9700 | idno@xnet.is
Tónleikar Inga Backman, Hjörleifur Valsson og
ArnhildurValgarðsdóttir
Mið 11/6 kl. 20:00
Sigurður Guðmundssonog Memfismafían / Oft
spurði ég mömmu
Sun 15/6 kl. 13:00
Hvanndalsbræður Tónleikar
Fös 13/6 kl. 21:00
Benni Hemm Hemm og Ungfónía. Sitjandi
tónleikar.
Fim 19/6 kl. 19:00
Benni Hemm Hemm og Ungfónía.
Fim 19/6 kl. 22:00
Frú Norma
4711166 | norma@frunorma.is
Soffía mús á tímaflakki (Sláturhús -
Menningarsetur )
Lau 14/6 frums. kl. 16:00 F
Sun 15/6 kl. 16:00 F
Þri 17/6 kl. 16:00 F
Þri 17/6 kl. 18:00 F
Fim 19/6 kl. 18:00 F
Verkið er sýnt í Sláturhúsinu - Menningarsetur, við Kaupvang,
Egilsstöðum
Kómedíuleikhúsið Ísafirði
8917025 | komedia@komedia.is
Act alone á Ísafirði (Hamrar/Edinborgarhúsið)
Mið 2/7 kl. 20:00
steinn steinarr/búlúlala - öldin hans
steins
Fim 3/7 kl. 12:00
örvænting, það kostar ekkert að tala í
gsm hjá guði, álfar, tröll og ósköpin öll,
kínki skemmtikraftur að sunnan, lífið
hans leifs, englar í snjónum
Fös 4/7 kl. 12:00
munir og minjar, súsan baðar sig, ég
bið að heilsa, sinfóníuhljómsveit sex
strengja, fragile, aðventa
Lau 5/7 kl. 13:00
eldfærin, jói, langbrók, pétur og einar,
blúskonan einleikinn blúsverkur,
völuspá, superhero
Sun 6/7 kl. 14:00
chick with a trick, vestfirskir einfarar,
aðrir sálmar
Leiklistarhátíð
Búlúlala - Öldin hans Steins (Hamrar
Ísafirði/Ferðasýning)
Lau 21/6 kl. 17:00
snjáfjallasetur
Mið 2/7 kl. 21:30
Ég bið að heilsa - Jónasardagskrá
(Edinborgarhúsið)
Fös 4/7 kl. 16:30
Gísli Súrsson (Haukadalur Dýrafirði/ferðasýning)
Mið 9/7 kl. 16:00 U
169 sýn.
Pétur & Einar (EinarshúsBolungarvík)
Fim 19/6 kl. 20:00 Lau 5/7 kl. 17:00
FRÉTTASKÝRING
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
TÖLUVERÐ óeining virðist vera
meðal kvikmyndaframleiðanda hér-
lendis og átakalínurnar virðast vera á
milli stærri framleiðenda og minni og
eins á milli framleiðenda leikinna
mynda og heimildarmynda. Nú er
unnið að stofnun Félags sjálfstæðra
kvikmyndaframleiðanda (FSK) þótt
þegar sé til staðar Framleiðenda-
félagið SÍK. Sumir stofnenda nýja fé-
lagsins eru þegar í SÍK en aðrir fá
ekki inngöngu í félagið sökum
strangra inntökuskilyrða. Böðvar
Bjarki Pétursson, forstöðumaður
Kvikmyndaskóla Íslands, ritaði pistil
á logs.is þar sem hann reifar væring-
arnar.
Sem stendur raða kvikmyndagerð-
armenn sér í eftirtalin þrjú félög:
SÍK, Samtök kvikmyndaleikstjóra
(SKL) og Félag kvikmyndagerð-
armanna (FK). Hið síðastnefnda er
opið jafnt leikstjórum og ljósamönn-
um, á meðan aðgönguskilyrðin að hin-
um félögunum þykja ströng. SÍK not-
ast við punktakerfi sem hentar þeim
sem gera heimildarmyndir mjög illa.
Þessu stendur til að breyta og eru
þær breytingar í lagabreytinganefnd,
enda segir Baltasar Kormákur, for-
maður SÍK, að þetta sé arfleifð fyrri
tíma. Hins vegar liggja einnig fyrir
tillögur stjórnar um að atkvæðavægi,
sem er nú jafnt á meðal fyrirtækj-
anna, verði breytt þannig að hlutfall
framleiðslugildis ráði vægi atkvæða.
„Núna hefur einyrki með engan
nema sjálfan sig í vinnu jafnmikið at-
kvæðavægi og fyrirtæki sem framleiða
nokkrar bíómyndir í einu og eru með
nokkra framleiðendur í húsinu hjá sér.
Það er alls ekki eðlilegt hlutfall,“ segir
Baltasar og tekur dæmi; „Ég og Agnes
í mínu fyrirtæki erum bæði starfandi
framleiðendur en erum bara með hálft
atkvæði hvort á meðan einyrkinn er
með eitt, og sömuleiðis fyrirtæki sem
hafa ekki gert bíómynd í tíu ár.“ Ýmsir
minni kvikmyndagerðarmenn upplifa
þessar tillögur þó þannig að með þessu
verði þeir þriðja flokks meðlimir og
hafi því minni áhuga en annars á inn-
göngu.
Einn þeirra er Ingvar Þórisson,
heimildarmyndagerðarmaður, sem er
einn þeirra sem kemst ekki inn í SÍK
en er meðal forsprakka FSK. „Við er-
um búnir að vinna að þessu í 2 mánuði
og munum hittumst 19. júní og kjósa
stjórn og lög fyrir félagið og þar með
ætti félagið að vera komið í gang,“
segir Ingvar og segir rúma þrjátíu
framleiðendur vilja vera með. „Við
eigum réttinda og hagsmuna að gæta
sem enginn hefur verið að passa upp
á. Þegar maður framleiðir heimild-
armynd þá á maður framleiðendarétt-
indi sem lenda inni hjá SÍK og leik-
stjóraréttindi sem lenda inni hjá
SKL. Þeir fá úthlutað IHM-gjöldum,
ég ætla að reyna að sækja um þá en á
engan aðgang að þeim, á hvorugum
staðnum.“ Hann segir framleiðendur
kvikmynda, sjónvarpsefnis, auglýs-
inga og margmiðlunarefnis verði vel-
komnir í nýja félagið, „og við sjáum
fyrir okkur í framtíðinni að það geti
allir verið þarna inni.“
Til merkis um vanþroska iðnað
Böðvar Bjarki segir að það þurfi að
„opna félagið, deildaskipta því í 3-4
gildi, auglýsingar, tölvuleiki og annað
slíkt, heimildarmyndir, stuttmyndir,
lengri leiknar myndir o.s.frv. En að
halda áfram ströng skilyrði um að
þetta séu virk og alvarleg fyrirtæki,“
segir Böðvar og telur að félagið eigi
síðan að hegða sér eins og vinnuveit-
endasamband. „Það ætti að ganga í
Samtök iðnaðarins og Samtök at-
vinnulífsins og FK ætti að verða laun-
þegasamband og sjá um einstakling-
ana, þá kemst á þetta eðlilega módel
sem við þekkjum í iðnaði út um allt,
en þetta er ekki enn komið hjá okkur
sem er í raun táknmynd um hve at-
vinnugreinin er vanþroska.“
Þessi misklíð hjálpar skaðar samn-
ingastöðuna við Ríkissjónvarpið að
sögn Hjálmtýs Heiðdals, kvikmynda-
gerðarmanns og formanns FK, sem
segir að RÚV hafi nýtt sér samstöðu-
leysi kvikmyndagerðar manna og deilt
og drottnað síðustu 40 árin. Baltasar
segir SÍK hafi reynt að semja við RÚV
um lágmarksverð en það gangi hægt.
„Þeir sýndu fyrst sáttavilja en hafa
verið ansi þungir, það hefur verið mjög
stirt á milli SÍK og RÚV mjög lengi,
menn nánast ekki talað saman. En ég
vona að þeir Þórhallur Gunnarsson og
Páll Magnússon lagi þetta, það hefur
verið vilji fyrir því, en á sama tíma er
verið að breyta Ríkissjónvarpinu
þannig að það hefur líklega ekki verið
forgangsverkefni hjá þeim.“
Hjálmtýr Heiðdal, sem er vara-
maður í stjórn SÍK, er þungorður í
garð félagsins. „Það heyrist sjaldan
múkk í stjórninni og þetta er allt í
skralli. Það er ekki búið að halda aðal-
fund og formaðurinn er í raun orðinn
ólöglegur, hann má bara sitja í fjögur
ár. Ég hef verið í laganefnd að reyna
að breyta lögunum, það er búið að
ganga í fjögur ár og hefur ekkert
gengið. Öll félagsmál kvikmynda-
framleiðenda hafa verið í skralli og
ekkert hefur gengið að breyta þeim.“
Engin stórmál liggja fyrir
Baltasar segir Hjálmtý Heiðdal
hafi staðið í stöðugum árásum á SÍK
síðan hann náði ekki endurkjöri í
stjórn félagsins og varð formaður FK.
Þá hefur hann sínar hugmyndir um
tímasetningu greinar Böðvars
Bjarka. „Kvikmyndaskólinn var að
fara fram á stuðningsyfirlýsingu til
SÍK, þá báðum við um það að fá kynn-
ingu á skólanum, hver árangurinn
væri og hversu margir væru að skila
sér út í fagið, enda vitum við að það
eru áætlanir hjá ríkinu að stofna til
háskólanáms líka. Við vildum bara
vera faglegir og ganga úr skugga um
að þetta væri ekki illa skipulögð pen-
ingahít heldur vandað nám sem skil-
aði góðum starfskröftum inn í fagið.
Og Böðvar bregst við með þessari
grein þegar hann gat ekki fengið
þessa stuðningsyfirlýsingu í hend-
urnar eftir eina helgi,“ segir Baltasar
sem er bjartsýnn á starf SÍK.
„Það eru ýmislegt í gangi hjá SÍK.
Þetta er ólaunað starf og menn að
vinna í ýmsum hlutum öðrum, en það
hefur náðst ágætis árangur síðustu
ár, nýlega náðist að tvöfalda kvik-
myndasjóð og ég held að menn geti
alveg verið sáttir.“ Um frestun á aðal-
fundi segir Baltasar að aðalfundur sé
yfirleitt haldinn á vorin en leyfi sé til
að fresta honum fram á haust. „Það
liggur fyrir að ég er formaður og er
ekki á landinu fyrr en í júlí og ég klára
mitt tímabil í haust, en það hefur ekki
verið neinn titringur fyrr en núna,“
segir Baltasar og segir titringinn orð-
um aukin. „Ég veit ekki um neinn sem
er að skrá sig úr félaginu,“ bætir hann
við og segir að ekki sé búið að ákveða
dagsetningu á aðalfundi. „Menn eru
ekki á launum við þetta og ég get ekki
hætt að gera bíómynd til að halda að-
alfund; það liggja engin stórmál fyr-
ir.“
Vanþroska kvikmyndaiðnaður?
Morgunblaðið/Þorkell
Himnaferð Baltasar Kormákur segir að leiðrétta þurfi atkvæðavægi framleiðenda í SÍK eftir stærð þeirra. Frá tök-
um á A Little Trip to Heaven, kvikmynd sem Baltasar gerði árið 2005.
Deilur eru uppi í félagi kvikmyndaframleiðenda Heimildamyndir gegn leiknum
Hverjir eru í stjórn SÍK?
Baltasar Kormákur er formaður,
Skúli Malmquist er varaformaður,
Kristín Atladóttir er gjaldkeri og þeir
Páll Baldvin Baldvinsson og Friðrik
Þór Friðriksson eru meðstjórnendur.
Varamenn eru Hjálmtýr Heiðdal og
Ásthildur Kjartansdóttir.
Hverjir verða í FSK?
Ingvar Þórisson, Hjálmtýr Heiðdal,
Ásdís Thoroddsen, Hrafnhildur Gunn-
arsdóttir, Dúi Landmark og Jón Þór
Hannesson meðal annarra.
Hvað er IHM?
Stendur fyrir Innheimtumiðstöð
gjalda, tekjur sem eru tilkomnar
vegna skattlagningar á mynd-
bandaspólur, mynddiska og skyldar
vörur, n.k. stefgjöld kvikmyndagerð-
armanna. Þeim er úthlutað eftir
ákveðnu kerfi til listamanna og ljóst er
að mun fleiri verða um hituna ef inn-
tökuskilyrði í SÍK verða rýmkuð.
Hvernig virkar punktakerfið?
Til þess að fá inngöngu í SÍK þarf
700 punkta. Fyrir bíómynd í fullri
lengd fá menn 900 punkta en fyrir
klukkutímalanga heimildarmynd að-
eins 120 punkta – sem þýðir að menn
þurfa að gera sex slíkar til þess að fá
inngöngu í félagið. Þetta punktakerfi
er svo haft til hliðsjónar þegar greitt
er úr sjóðum SÍK og myndi vænt-
anlega ráða atkvæðavægi ef breyt-
ingar þar á verða samþykktar.
S&S