Morgunblaðið - 11.07.2008, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2008 15
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
, ,
.
.
, C/-
.
.
0120
345
.
.
6
7
.
.
,-!"
,-D'
.
.
ÞETTA HELST ...
-:7
-
!" #$
E"!+< +-" 8
9:8+
;0<0=:8+
/>?<0=:8+
7@ ;:8+
< ; :8+
8+7 =8A 4
B9
4 <0=:8+
C=D /:8+
4 4:8+
:8+
EF,3
;G/6 8++:8+
:8+
H:8+
F * E 9-
*(":8+
; ; 9 1
; ; 9E
;0
EI6
7 / 6J0/
3K:
:8+
;? :8+
;? :8+
-D -934
L
; L0+
/<4 :8+
= :8+
G >-
!"
#"
"
$!"
#$"
"
"
"
#"
$"
"
!"
"
"
!#"
=;
4
0 04M
C=
!&+(&*+'%
&'+(*)+! )+"*'+%"
*'"+**"+ %+(**
G
*"&+')+&&
!"'+*%'+!&!
*+&"+&"'
'+*('+" *!+%)!+&'%
G
!"+)'(+")*
G
%))+% !*!+%"(
!+!!)+* G
G
G
%+%+ !+)+(
G
) ( ' )
( &)
!" !
!' *
!( '"
)*" * &% '
* % )%
! %"
&) %
G
!%( !"*% '' !'! "
G
G
G
'(& ! G
) ( ' &
( %*
!" !"
!' ("
!( (
)*% * &% &
* *"
% &
! %(
&& '
! !""& !'" G
& "
')" ! " "
6 ? 4
> =;
G
(
!)
!(
'
"
G
''
'
)
!(
G
)
G
G
!
!
G
G
G
!)
*
G
;
> +>
%+)+ !+)+ !+)+ !+)+ !+)+ !+)+ %+)+ !+)+ !+)+ !+)+ !+)+ !+)+ %+)+ !+)+ %+)+ '+)+ !+)+ !+)+ !+)+ *+(+ (+! *+(+ !+)+ !+)+ )+*+ ● ÚRVALSVÍSITALA kauphallarinnar
lækkaði um 0,7% í gær og endaði í
4.251 stigum. Century Aluminum
hækkaði um 5,9% og SPRON um
1,6%, en Bakkavör lækkaði um 4,6%
og Exista um 2%. Gengi krónunnar
veiktist um 0,3% í gær og var loka-
gengi gengisvísitölunnar 152,7 stig.
Gengi Bandaríkjadals var 75 krónur
við lokun markaða og evrunnar 119
krónur. halldorath@mbl.is
Lækkanir í kauphöll
● EINS og greint var frá í Morgun-
blaðinu í gær keypti Atorka bréf í
sjálfu sér fyrir tæpar sex milljónir
króna að nafnverði, eða um 37 millj-
ónir að markaðsvirði. Samkvæmt
upplýsingum frá Atorku var ákvörðun
tekin um kaupin vegna þess að fé-
lagið hafi séð kauptækifæri í bréf-
unum og að hlutabréfin hafi verið
vanmetin á markaði. Ekki er vitað
hver seljandi bréfanna var, en miðað
við að engin tilkynning hefur borist
til Kauphallarinnar má gera ráð fyrir
að hann hafi ekki verið stjórnandi,
stjórnarmaður eða hluthafi með yfir
5% í Atorku. bjarni@mbl.is
Sáu kauptækifæri
í fyrirtækinu
● ÍBÚÐAVERÐ á
höfuðborgar-
svæðinu lækkaði
um 0,1% að nafn-
virði í júní sam-
anborið við mán-
uðinn á undan, að
því er kemur fram
á vef Fasteigna-
mats ríkisins.
Vísitala íbúða-
verðs á höfuð-
borgarsvæðinu var 348,3 stig í júní
og lækkaði um 0,1% frá í maí. Síð-
astliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan
um 1,2% og undanfarna sex mánuði
hefur hún lækkað um 1,1%. Undan-
farið ár hefur íbúðaverð á höfuðborg-
arsvæðinu lækkað um 3,2%.
bjarni@mbl.is
Íbúðaverð lækkaði
áfram í júní
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
ÍSLENSKU póstfyrirtækin tvö, Ís-
landspóstur og Pósthúsið, vinna
hörðum höndum að undirbúningi
fyrir afnám einkaréttar Íslandspósts
á flutningi pósts undir 50 grömmum
en evrópsk tilskipun um afnám slíks
einkaréttar tekur gildi árið 2011.
Ingimundur Sigurpálsson, for-
stjóri Íslandspósts, segir stjórn fyr-
irtækisins hafa árið 2004 ályktað um
að vinna bæri að því að afnema
einkaréttinn. „Í evrópsku tilskipun-
inni segir að einkarétt beri að af-
nema ekki síðar en 2011 en hann
megi þó afnema fyrr. Við höfum ver-
ið á því að einkaréttinn megi afnema
fyrr hér á landi, eða það sem eftir
stendur af honum, en hann tekur að-
eins til bréfa sem eru 50 grömm eða
léttari að þyngd.“ Bendir Ingimund-
ur þó á að einkaréttinum fylgi hins
vegar einnig skylda til að sinna póst-
flutningum alls staðar á landinu.
„Undanfarin ár hefur mikil stefnu-
mótunarvinna verið unnin innan fyr-
irtækisins og höfum við t.d. hagrætt
töluvert í rekstri og byggt upp þjón-
ustumiðstöðvar víða um land.“
Ingimundur segir fátt benda til að
erlend fyrirtæki muni sækja inn á ís-
lenskan póstþjónustumarkað á
næstu árum. Ekki sé mikið fyrir er-
lend fyrirtæki að sækja á jafn litlum
markaði og þeim íslenska auk þess
sem næg tækifæri muni skapast á
meginlandi Evrópu árið 2011.
Rúm fyrir fleiri á markaðnum
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær fer nú fram umræða í
Frakklandi um hvort selja eigi 20-
30% hlut í franska póstinum og skrá
félagið í kauphöll. Segir Ingimundur
að tilskipun ESB taki ekki á eign-
arhaldi á póstfyrirtækjum og því sé
ekkert því til fyrirstöðu að Íslands-
póstur verði áfram í eigu ríkisins
þegar einkarétturinn hafi verið af-
numinn. Það sé hins vegar pólitísk
ákvörðun hvort eða hvenær eignar-
hlutur ríkisins í fyrirtækinu verði
seldur.
Hannes Hannesson, fram-
kvæmdastjóri Pósthússins, segir
fyrirtækið upphaflega hafa verið
stofnað til dreifingar á bréfapósti og
bögglum,eins og nafnið gefur til
kynna , en afnám einkaréttar í póst-
þjónustu hafi tekið lengri tíma en
menn hafi búist við. Því hafi fyrir-
tækið einbeitt sér að dreifingu dag-
blaða, tímarita og fjölpósts auk ann-
arra verkefna.
„Við sitjum þó ekki auðum hönd-
um þar til afnám einkaréttar gerist,
heldur erum við að styrkja starfsemi
okkar og dreifikerfi til að geta enn
betur tekist á við þau verkefni sem
bjóðast munu við afnám einkarétt-
arins.“
Segir hann að þrátt fyrir að einka-
rétturinn taki aðeins til bréfa undir
50 grömm að þyngd taki það yfir
90% af öllum bréfapóstflutningum á
Íslandi. „Ég geri ráð fyrir að tölu-
verð samkeppni verði á þessum
markaði að einkaréttinum afnumd-
um enda er rými fyrir fleiri aðila á
honum,“ segir Hannes.
Búa sig undir sam-
keppni í póstþjónustu
Morgunblaðið/Þorkell
Frelsi Póstfyrirtækin hafa keppt á markaði um flutning á bögglum og
þyngri pósti, en árið 2011 verður póstflutningsmarkaður frjáls að fullu.
Í HNOTSKURN
» Tilskipun Evrópusam-bandsins um frelsi í póst-
flutningum tekur gildi 1. jan-
úar 2011.
» Samkvæmt tilskipuninniverða ríki ESB og EES að
afnema einkarétt í póstflutn-
ingum, sem gjarnan er í hönd-
um ríkisfyrirtækja.
EINS og svo oft áður réð þróun olíu-
verðs því hvaða hlutabréf hækkuðu
og hvaða bréf lækkuðu í verði í
bandarískum kauphöllum í gær.
Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækk-
aði umtalsvert og má sem dæmi
nefna að Brent norðursjávarolían
hækkaði um 4,08% og kostar fatið nú
141,70 Bandaríkjadali.
Í kauphöllinni í New York hækk-
uðu fjármálafyrirtæki fljótlega eftir
opnun markaða, en þegar ljóst var
hvert stefndi með olíuverð lækkuðu
þau á ný, en olíufyrirtæki eins og
Chevron og Exxon Mobil hækkuðu
töluvert. Gengi bréfa Chevron
hækkaði t.a.m. um 2,5% og Exxon
um 2,1%. Fjármálafyrirtæki höfðu
hins vegar lækkað um 0,5% að með-
altali þegar markaðir lokuðu.
Verðbólga eða niðursveifla
Í grein Wall Street Journal segir
að hagfræðingar deili nú hart um
hvort bandarísku efnahagslífi stafi
meiri hætta af verðbólgu eða efna-
hagslegri niðursveiflu. Eru því skipt-
ar skoðanir um hvort seðlabanki
Bandaríkjanna eigi að hækka stýri-
vexti til að slá á verðbólgu eða lækka
þá til að ýta undir hagvöxt.
Í könnun sem blaðið lét gera töldu
22 hagfræðingar að seðlabankinn
ætti að huga meir að hagvexti, en 21
taldi að verðbólga væri mikilvægara
viðfangsefni. Tíu hagfræðingar vildu
ekki gera upp á milli verðbólgu og
efnahagslegrar niðursveiflu.
Dow Jones-vísitalan hækkaði um
0,73% í gær og S&P 500 um 0,70%. Í
Evrópu lækkaði breska FTSE-vísi-
talan um 2,22% og þýska DAX um
1,28%. bjarni@mbl.is
Eltir olíu-
verðið
DNB NOR, stærsti banki Noregs,
hagnaðist um 3.360 milljónir
norskra króna á öðrum fjórðungi
ársins, eða sem svarar til 49,5
milljarða íslenskra króna. Það er
samdráttur um 1% frá sama tíma-
bili í fyrra. Hagnaður bankans var
14% yfir meðalspá greinenda, en
DnB Nor er fyrstur stóru norrænu
bankanna til að skila uppgjöri fyrir
annan fjórðung.
Samdráttinn má einkum rekja til
aukins kostnaðar vegna vaxtar ut-
an landstein-
anna, en DnB
Nor tók yfir
fjögur félög á
síðasta ári. Enn
fremur hefur tap
vegna útlána tvö-
faldast á milli
ára.
Stjórnendur
bankans segjast ánægðir með nið-
urstöðuna í ljósi aðstæðna.
halldorath@mbl.is
Milljarðahagnaður
kt. 620483-0369, hefur birt lýsingu vegna töku skuldabréfa til viðskipta á
OMX Nordic Exchange Iceland hf. (OMX ICE) og gert aðgengilega almenningi
frá og með 11. júlí 2008.
Eftirfarandi skuldabréfaflokkur verður tekinn til viðskipta:
• Flokkur að heildarfjárhæð ISK 6.000.000.000. Skuldabréf að fjárhæð
ISK 6.000.000.000 voru gefin út þann 20. maí sl. og verða tekin til
viðskipta á OMX ICE þann 14. júlí 2008. Auðkenni flokksins á OMX ICE
er MARL 08 1. Skuldabréfin eru í ISK 5.000.000 nafnverðseiningum með
lokagjalddaga þann 20. maí 2009. Skuldabréfin bera fasta 20,56% vexti.
Lýsinguna er hægt að nálgast hjá útgefanda, Marel Food Systems hf.,
Austurhrauni 9, Garðabæ eða á vefsetri útgefanda,
www.marelfoodsystems.com fram til lokadags skuldabréfaflokkanna.
Reykjavík, 11. júlí 2008
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
B
I
43
00
3
07
/0
8
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
B
I
43
00
3
07
/0
8
Marel Food Systems hf.