Morgunblaðið - 11.07.2008, Blaðsíða 34
34 FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
dagbók
Í dag er föstudagur 11. júlí, 193. dagur
ársins 2008
Orð dagsins: Hann stendur mér við
hlið til þess að veita mér lið og vernd.
(Daníel 11, 1.)
Einn af samstarfsmönnum Vík-verja er tvíburi og fólk hefur
stundum átt í erfiðleikum með að
þekkja þá bræður í sundur. Þetta
hefur valdið nokkrum vandræða-
gangi, en skemmtilegust er sagan
sem kolleginn sagði Víkverja sjálfur:
Það var eitt sinn kona sem ávarpaði
mig svo: Hvernig er það, eruð þið
bræður ekki trúlofaðir stúlku ofan af
Akranesi?
x x x
Víkverji er að velta fyrir sér orð-inu steik í fiski; talað er um
laxasteik, lúðusteik o.sv.frv. Vissu-
lega er steiktur fiskur herramanns-
matur, en Víkverji hyggur að þetta
steikatal í fiskmetinu sé öpun eftir
útlenzku og sölutrix á grillið. Vík-
verji biður einfaldlega um hnakka-
stykki, þegar þorskgállinn er á hon-
um, en hvorki þorskhnakkasteik né
heldur þorsksteik. Og þegar hann
syngur steikin mín þá er á hreinu að
hann er að syngja um kjöt en ekki
fisk. Þá væri það auðvitað: fiskinn
minn darararara.....
x x x
Víkverji fylgdist úr fjarlægð meðlandsmóti hestamanna á Gadd-
staðaflötum og hafði yndi og gaman
af. Þar urðu bæði sætir sigrar og sár
vonbrigði, en umfram allt skein í
gegn leikgleði og íþróttamennska
einsog hún gerist bezt.
Á engan hallar Víkverji þótt hann
nefni nafn Sigurbjörns Bárðarsonar,
sem kom tveimur hestum í A-flokks-
úrslit og var kominn með aðra hönd-
ina að minnsta kosti á bikarinn, þeg-
ar skeifa losnaði og gerði drauminn
að engu. Framkoma Sigurbjörns á
skjánum í þessum A-flokksmálum
öllum sýndi hversu þroskaður ein-
staklingur hann er og kann að taka
mótlæti ekki síður en meðbyr.
Sigurbjörn hlaut Gregersenstytt-
una fyrir prúðmannlega reið-
mennsku á vel hirtum hesti. Hana
átti hann skilið ekki síður en titilinn
Íþróttamaður ársins. Á landsmótinu
sýndi Sigurbjörn og sannaði að hann
stendur enn undir þessari nafnbót.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Reykjavík Ragnar Adam
fæddist 5. júní kl. 16.11.
Hann vó 4.810 g og var 55 cm
langur. Foreldrar hans eru
Joanna Kolka og Wojciech
Kolka.
Reykjavík Særós María
fæddist 20. apríl kl. 5.16.
Hún vó 4.085 g og var 51 cm
löng. Foreldrar hennar eru
Dóra Á. Breiðfjörð og Björn
Kristján Bragason.
Nýirborgarar
Krossgáta
Lárétt | 1 bragsmiður,
4 vínber, 7 kvendýrið,
8 ræktarlöndum, 9 tek,
11 klæða hlýlega,
13 hæðir, 14 menn,
15 þungi, 17 kjáni,
20 tímgunarfruma,
22 fuðrar, 23 kvabba,
24 trjágróður, 25 naut.
Lóðrétt | 1 örlagagyðja,
2 blíða, 3 fiður, 4 nöf,
5 ós, 6 vesæll, 10 gufa,
12 nöldur, 13 fjanda,
15 daunillar, 16 blauðan,
18 tími, 19 hreyfðist,
20 vaxi, 21 máttlaus.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hnullungs, 8 konur, 9 iðjan, 10 inn, 11 rósar,
13 nenna, 15 sunna, 18 snæða, 21 ryk, 22 næðið,
23 eðlan, 24 hranalegt.
Lóðrétt: 2 nánös, 3 lærir, 4 urinn, 5 grjón, 6 skær,
7 anga, 12 agn, 14 enn, 15 senn, 16 níðir, 17 arðan,
18 skell, 19 ærleg, 20 asna.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Sudoku
Þrautin felst í því að fylla út í
reitina þannig að í hverjum 3x3-
reit birtist tölurnar 1-9. Það verð-
ur að gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei
má tvítaka neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
www.sudoku.com
© Puzzles by Pappocom
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 d5 2. exd5 Dxd5 3. Rc3 Dd6 4. d4
Rf6 5. Rf3 a6 6. h3 b5 7. g3 Bb7 8. Bg2
e6 9. O–O Rbd7 10. Bf4 Db6 11. a4 Bd6
12. Be3 c5 13. axb5 axb5 14. Hxa8+
Bxa8 15. dxc5 Bxc5 16. Bxc5 Rxc5 17.
Dd4 b4 18. Ra2 b3 19. cxb3 O–O 20. b4
Rcd7 21. Dxb6 Rxb6 22. Hc1 Hb8 23.
Re5 Bxg2 24. Kxg2 Re8 25. Rc3 f6 26.
Rc6 Hb7 27. Hd1 Rc4 28. Hd8 Kf8 29.
Ra5 Hxb4
Staðan kom upp á Boðsmóti Tafl-
félags Reykjavíkur sem lauk fyrir
skömmu. Ingvar Þ. Jóhannesson
(2344) hafði hvítt gegn Torfa Leóssyni
(2137). 30. Hd4! Red6 31. Rxc4 Rxc4
32. b3! hvítur vinnur nú mann. Fram-
haldið varð: 32…Re3+ 33. fxe3 Hxb3
34. Hc4 Kf7 35. Kf3 h5 36. Hc7+ Kg6
37. Re4 Hb1 38. Rd6 Hb8 39. He7 og
svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Græðgi.
Norður
♠K64
♥96
♦97642
♣G98
Vestur Austur
♠D10852 ♠7
♥G74 ♥Á10852
♦10 ♦85
♣Á1054 ♣KD632
Suður
♠ÁG93
♥KD3
♦ÁKDG3
♣7
Suður spilar 5♦.
Græðgi er synd, við spilaborðið
sem annars staðar. Hér er syndasel-
urinn í vestur. Norðmaðurinn Mol-
berg vakti á Standard-tígli í suður og
makker hans með stutta nafnið, Aa,
skáldaði í spilin sín og sagði 1♠ á
kónginn þriðja – fannst aumingjalegt
að passa með fimmlit í tígli. Austur
doblaði til úttektar og Molberg „flís-
aði“ í fjögur lauf. Aa sló á slemmu-
drauma félaga síns með 4♠ og sú
sögn gekk til vesturs. Þar sagt á fleti
fyrir Þjóðverjinn Smirnov með feitan
fimmlit í spaða. Smirnov lét undan
græðginni og doblaði. Aa flúði snar-
lega í 5♦ og nú svekkelsisdoblaði
Smirnov. En það dugði skammt, ell-
efu slagir á borðinu með ♥Á réttum
og 750 í NS. Syndagjöldin við spila-
borðið eru greidd í beinhörðum stig-
um.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þér þykja stóru samtökin sem þú
vinnur fyrir dularfull. Kannski geta sér-
fræðingar ráðið gátuna seinna meir.
Þangað til ertu ánægður með að leysa lítil
vandamál.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Gamall og ryðgaður hlutur úr fortíð
þinni kemur öðrum að góðu gagni. Fyrr-
verandi elskhugar finna nýja elskhuga.
Það er eðlilegt að líða skringilega út af
því.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Veittu merkjunum eftirtekt. Það
sem kemur illa við þig núna mun keyra
þig um koll, ef þú gerir ekkert í málunum.
Reyndu að koma í veg fyrir það.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Stundum kallarðu fram vissa til-
finningu með vissum hugsunum, og hugs-
anir með tilfinningum. Hvort sem þú ger-
ir tekur þú örlögin í þínar hendur.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú ert ástfanginn af frammistöðu
einhvers, sem er auðvitað öðruvísi en að
verða ástfanginn af manneskjunni sjálfri.
Reyndu að kynnast henni.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú rekst á æskuna og barnslega
einlægnina. Þú vilt glaður aðstoða og
svara spurningum – að vissu marki. Þá er
líka gott að láta sig hverfa.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það tekur á taugarnar að koma til
móts við fólk. Þú ert miklu hamingjusam-
ari þegar þú fylgir eigin hugdettum.
Þannig færðu ekki endilega borgað.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Öruggi valkosturinn er ekki
jafn girnilegur og loforðið um ævintýri.
Þú hrindir því öllum hindrunum úr vegi
(aðallega úr höfðinu á þér) og ferðast að
eigin vild.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú ættir að fara þér hægar á
vissum sviðum lífsins, en þó ekki öllum í
einu. Til þess að þú missir ekki móðinn er
gott að hafa ánægju af öllu saman.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú ættir að meta það að hægja
aðeins á þér. Það gefur þér tækifæri til að
skoða eigin hugsanir, og sumar þeirra í
fyrsta sinn. Sköpunin blómstarar.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Það þarf tíma fyrir minnstu og
saklausustu áætlanir. Þess vegna viltu
ekki endilega vera með. Þú vilt frekar
sinna „nú-inu“ betur og gera gott úr því.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú hættir aldrei að vera forvitinn,
þótt þú þurfir stundum að hrista upp í for-
vitninni. Að sjá nýjungar endurnýjar þörf
þína til að vita hvernig hlutirnir virka.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
11. júlí 1945
Fyrsta áætlunarflugið til út-
landa var farið með Catalina-
flugbát Flugfélags Íslands frá
Skerjafirði til Glasgow. Flug-
menn voru Jóhannes Snorra-
son og Smári Karlsson en far-
þegarnir fjórir. Ferðin tók
sex klukkustundir.
11. júlí 1971
Þátturinn „Beint útvarp úr
Matthildi“ var fluttur í fyrsta
sinn í Útvarpinu. „Margir
munu hafa orðið hálf-klumsa
við þegar fréttalestur Matt-
hildar hófst, því frásögnin var
ekki í hefðbundnum stíl held-
ur útfærðum á skemmtilegan
hátt,“ sagði í Morgunblaðinu.
Umsjónarmenn voru Davíð
Oddsson, Hrafn Gunnlaugs-
son og Þórarinn Eldjárn.
11. júlí 1972
„Einvígi aldarinnar“ hófst í
Reykjavík. Bandaríkjamaður-
inn Robert Fischer og Sovét-
maðurinn Boris Spassky
kepptu um heimsmeistara-
titilinn í skák. Einvíginu lauk
1. september með sigri Fisc-
hers.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist þá…
Sigþór Sigur-
jónsson veitinga-
maður, Brúna-
landi 21, Reykja-
vík, verður
sextugur á morg-
un, laugardaginn
12. júlí. Eigin-
kona hans er
Kristín Auður
Sophusdóttir. Þau hjónin taka á
móti gestum á heimili sínu á morg-
un, afmælisdaginn, milli kl. 16.30
og 20.30. Sigþór biður þá sem vilja
gleðja hann í tilefni af afmælinu, að
láta SOS Barnahjálp njóta þess.
60 ára
„ÉG ætla að skella mér austur og vera með fjöl-
skyldunni á afmælisdaginn,“ segir Steinar Logi
Sigurþórsson, nýstúdent og handboltakappi, sem
er tvítugur í dag. Steinar Logi sleit barnsskónum
á Egilsstöðum en fluttist á heimavist á Selfossi að
loknu grunnskólanámi til að æfa með handbolta-
akademíu Fjölbrautaskóla Suðurlands, samhliða
námi á náttúrufræðibraut.
Steinar er einmitt mikill íþróttamaður því hann
hefur lagt stund á fótbolta og frjálsíþróttir, auk
þess sem hann keppti á sínum tíma á Norðurlanda-
mótinu í blaki með landsliði 17 ára og yngri. Hand-
boltinn hefur hinsvegar verið helsta áhugamálið síðustu 5-6 árin og
spilar hann stöðu miðjumanns í meistaraflokki karla með UMF Sel-
foss.
Steinar lauk stúdentsprófi í vor og fluttist í kjölfarið til Reykjavík-
ur, þar sem hugurinn stendur til framhaldsnáms í fjármálaverkfræði
við Háskólann í Reykjavík í haust. Hann segist því miður ekki hafa
færi á því að ferðast mikið þetta sumarið þar sem hann þarf að safna
peningum fyrir náminu næsta veturinn og vinnur hann því af kappi
flesta daga, en hann starfar í sumar sem pípulagningamaður hjá
Súperlögnum í Kópavogi. Steinari gefst þó sem betur fer tími til að
halda aðeins upp á afmælisdaginn, því hann ætlar að dveljast alla
helgina í faðmi fjölskyldunnar á Egilstöðum. unas@mbl.is
Steinar Logi Sigurþórsson tvítugur
Austfirðingur á heimaslóðir
;)Nýbakaðir foreldrar?Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum ásamtupplýsingum um fæðingarstað og stund,þyngd, lengd og nöfn nýbakaðra foreldra,á netfangið barn@mbl.is