Morgunblaðið - 11.07.2008, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 11.07.2008, Blaðsíða 32
32 FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Atvinnuauglýsingar Umboðsmaður Umboðsmann vantar í Ólafsvík Upplýsingar veitir Ólöf Engilbertsdóttir í síma 569-1376 eða 669-1376 milli kl 8 og 16 virka daga Skemmtilegt starf Leikskólinn Undraland ehf. er lítill, notalegur, einkarekinn leikskóli í Kópavogi. Okkur vantar samviskusaman og lífsglaðan starfsmann í 100% starf frá 19. ágúst. Upplýsingar gefur Sonja, s. 899 8654 og Bryndís s. 862 3029. Raðauglýsingar 569 1100 Nauðungarsala Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Naustabúð 3, fnr. 211-4409, Snæfellsbæ, þingl. eig. Risabjörg ehf., gerðarbeiðendur Landsbanki Íslands hf., aðalstöðv., Snæfellsbær og Vörður tryggingar hf., þriðjudaginn 15. júlí 2008 kl. 11:45. Smiðjustígur 3, fnr. 211-6259, Stykkishólmi, þingl. eig. Erlar Jón Kristjánsson, gerðarbeiðendur Innheimtumaður ríkissjóðs, Lífeyrissjóður verkfræðinga og Vátryggingafélag Íslands hf., þriðjudaginn 15. júlí 2008 kl. 10:00. Sýslumaður Snæfellinga, 10. júlí 2008. Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Goðanes 12, vikur og steypust. (229-5132) Akureyri, þingl. eig. Eining- averksm. Borg Akureyri ehf., gerðarbeiðendur Akureyrarkaupstaður, Arnarfell ehf., Landsbanki Íslands hf., aðalstöðv. ogTrygginga- miðstöðin hf., miðvikudaginn 16. júlí 2008 kl. 10:00. Granaskjól 1, hesthús og hlaða (fnr. 215-2229) Akureyri, þingl. eig. Ar- nar Berg Grétarsson, gerðarbeiðandi Innheimtustofnun sveitarfélaga, miðvikudaginn 16. júlí 2008 kl. 10:30. Gránufélagsgata 49, verslun, (fnr. 214-6655) Akureyri, þingl. eig. Glerá ehf., gerðarbeiðendur Höldur ehf. og Vörður tryggingar hf., miðvikudaginn 16. júlí 2008 kl. 11:30. Hafnarstræti 77, íb. 01-0301, Akureyri (214-6926), þingl. eig. Rolf Jonny Ingvar Svard, gerðarbeiðendur Glitnir banki hf. og Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 16. júlí 2008 kl. 12:00. Hjallalundur 5E, íb. 03-0302, (fnr. 214-7374) Akureyri., þingl. eig. Helgi Kristinsson, gerðarbeiðandi Kaupþing banki hf., miðvikudaginn 16. júlí 2008 kl. 12:30. Hjarðarslóð 4e, íb. 01-0101 (fnr 215-4931) Dalvíkurbyggð, þingl. eig. Jónína Amalía Júlíusdóttir, gerðarbeiðendur Dalvíkurbyggð, Sjóvá- Almennar tryggingar hf. og Sýslumaðurinn á Akureyri, þriðjudaginn 15. júlí 2008 kl. 10:00. Huldugil 40, íb. og bílsk., Akureyri (214-7942), þingl. eig. Guðmundur Örn Guðjónsson, gerðarbeiðandi Hjördís Helga Birgisdóttir, miðvikudaginn 16. júlí 2008 kl. 13:30. Möðruvallastræti 1, íb. 01-0201 (fnr. 214-9375), Akureyri, þingl. eig. Bergur Ingi Ásbjörnsson, gerðarbeiðandi Akureyrarkaupstaður, miðvikudaginn 16. júlí 2008 kl. 14:30. Norðurvegur 7-11, íbúð ´65 01-0201 (fnr. 227-2883) Hrísey, Akureyri, þingl. eig. Birgir Rafn Sigurjónsson, gerðarbeiðandi Akureyrarkaup- staður, þriðjudaginn 15. júlí 2008 kl. 12:30. Ráðhústorg 5, íb. 01-0401 (fnr. 214-9821), Akureyri, þingl. eig. Sverrir Hermannsson, gerðarbeiðendur Akureyrarkaupstaður og Vörður tryg- gingar hf., miðvikudaginn 16. júlí 2008 kl. 15:00. Sjávargata 4, fiskverkunarhús (fnr. 215-6344), Akureyri, þingl. eig. Bir- gir Rafn Sigurjónsson, gerðarbeiðandi Akureyrarkaupstaður, þriðjudaginn 15. júlí 2008 kl. 12:00. Tröllagil 9, íb. 09-0101, (fnr. 215-1395), Akureyri, þingl. eig. Júlio Júlíus E. Soares Goto og Arlinda Rós Pereira Dias Goto, gerðarbeiðendur Akureyrarkaupstaður og Valitor hf., miðvikudaginn 16. júlí 2008 kl. 15:30. Sýslumaðurinn á Akureyri, 10. júlí 2008. Halla Einarsdóttir, ftr. Til sölu Bókaveisla Hin landsfræga og margrómaða júlíútsala hefst á morgun laugardag kl. 11.00. Fullt af fínum bókum á 150 kr. stk. 50% afsláttur af öðrum bókum. Látið ekki happ úr hendi sleppa. Við erum í Kolaportinu, hafnarmegin í húsinu. Opið 11-17 lau. og sun. Afi. Var Jónas bróðir þinn? spurði dóttursonur minn mig þegar ég sagði fjölskyldunni að Jón- as frændi væri látinn. Já, sagði ég. Hugurinn leitar aftur til kirkju- garðsins við Suðurgötuna þar sem við Jónas jörðuðum flugurnar í eld- spýtnastokk, hringdum bjöllunum og forðuðum okkur svo á harða- hlaupum undan kirkjugarðsverðin- um. Við ólumst upp á Ljósvallagötu 24 sem var ættaróðal Bergmanns- fjölskyldunnar og þar sem við vor- um systkinasynir og aðeins tvö ár á milli okkar vorum við óaðskiljan- legir og brölluðum ýmislegt saman. Þegar við vorum 10 og 12 ára fór- um við til Rikka í Brekku og keypt- um einn pakka af LM sígarettum, fórum upp í kvist á Ljósó og læst- um hurðinni. Þegar við vorum byrjaðir að púa sígaretturnar kom amma Munda að læstum dyrunum og bankaði. Við forðuðum sígarett- unum en eftir sat reykjarmökkur. Eruð þið nokkuð að reykja, dreng- ir mínir? spurði hún. Nei, nei, svör- uðum við. Æ, það var gott, sagði amma rólega. Í sumardvöl að Jaðri sigldum við með kött á fleka út á vatnið og hentum honum út í til að vita hvort hann gæti synt í land, söfnuðum Jónas Þór Bergmann ✝ Jónas Þór Berg-mann fæddist í Reykjavík 23. apríl 1947. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu 30. júní síðastliðinn og fór útför hans fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík 8. júlí. kvöldhressingunni sem var „Sæmundur á vinnufötunum“ í pappakassa með loki og tókum með okkur heim að dvöl lokinni. Af hverju farið þið aldrei út að hjóla strákar mínir? Vor- um við spurði nokkr- um dögum eftir að Jónas hafði hjólað fram af Torfunefs- bryggju í einni af heimsóknum hans til mín til Akureyrar eft- ir að ég fluttist þangað. Ég á Möve-hjólinu mínu og hann á DBS. Sem betur fer höfðum við merkt staðinn með því að skera rauf í bryggjuna, hjólið var veitt upp úr sjónum. Þegar ég var nýkominn með bíl- próf fengum við lánaða VW-bjöll- una hjá afa Andreasi til að fara með hana og bóna hana. Við fórum austur að Sandskeiði en þar svifum við út af veginum á fleygiferð en einhverra hluta vegna lentum við á hjólunum. Hvaða vonda lykt er þetta spurði Jónas þar sem við keyrðum aftur í bæinn í algjöru sjokki. Ég hef gleymt að taka handbremsuna af, sagði ég þá. Manstu ekki eftir þessu Tommi? Þú manst ekki neitt, sagði Jónas svo oft við mig en ég mun alltaf geyma minninguna um minn besta vin. Ég kveð hann ekki því við mun- um hittast hjá Guði. Elsku Nonni, Gústa, Addi, Ingi- björg, Halldór, Guðrún og fjöl- skyldur. Ég og fjölskylda mín sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur. Tómas Bergmann. Guðmundur L. Þ. Guðmundsson lést í Reykjavík 24. júní sl. Fyrir rúmum 30 ár- um kynntist ég Guðmundi. Frá fyrstu kynnum var ljóst að Guð- mundur var mikill mannkostamað- ur. Um ættir hans, uppruna og starfsferil væri hægt að fara mörgum orðum, en hér verður það ekki gert. Örlitlu ljósi verður hins vegar varpað á þennan mæta mann. Guðmundur var öðlingur sem snerti strengi í hjörtum allra sem voru svo heppnir að verða á vegi hans.Guðmundur var mikill mannvinur. Hann var glaðsinna, ljúfur, einlægur og blíður og fólk laðaðist að honum; gildir það bæði um fullorðna og börn. Börn voru sérlega elsk að honum og þegar talað var um afa Guðmund kom gleðiglampi í augu allra. Hann lét sér enda sérlega annt um barna- börnin sín og um fjölskyldu sína alla. Guðmundur var mikill fjöl- skyldumaður. Velferð sona hans og fjölskyldna þeirra skipti hann öllu máli og fylgdist hann grannt með öllu sínu fólki. Áhugamál þeirra voru einnig áhugamál hans. Þau hjónin, Guðmundur og Guð- rún, voru afskaplega samhent og þegar Guðmundur lést höfðu þau Guðmundur L. Þ. Guðmundsson ✝ GuðmundurLúðvík Þor- steinn Guðmunds- son fæddist í Hnífs- dal 4. desember 1921. Hann lést á hjartadeild Land- spítala 24. júní síð- astliðinn og var út- för hans gerð frá Bústaðakirkju 9. júlí. fagnað 61 árs brúð- kaupsafmæli sínu. Þegar ég leit inn til Guðmundar og Guð- rúnar núna rétt fyrir sl. jól bar brúð- kaupsafmælið á góma. Þau brostu enn til hvors annars með blik í augunum. Væntumþykjan og virðingin var ótvíræð og fölskvalaus. Guðmundur var húsgagnasmíða- meistari að mennt. Hann var handverksmaður og listasmiður. Munirnir sem Guð- mundur smíðaði og endursmíðaði eru einstakir. Verkstæðið í Litla- gerðinu var hluti af hans heimi, þar vann hann af mikilli elju og natni. Vandað var til allra verka. Vinnusemin og dugnaðurinn voru honum í blóð borin. Handverk Guðmundar lifir áfram meðal okk- ar og ber meistara sínum fagurt vitni. Á haustmánuðum sl. var mér boðið á heimili í Kaupmannahöfn. Þegar inn í stofuna kom blöstu við fegurstu mublur. Ég gat ekki orða bundist og spurði um sögu hús- gagnanna. Þau höfðu verið smíðuð á Íslandi fyrir mörgum áratugum. Þegar þau voru komin til ára sinna og þörfnuðust lagfæringar hófst leit að húsgagnasmiði sem gæti lagfært þau. Leitin stóð lengi en svo var eigendunum bent á listasmið sem þau skyldu reyna að fá til verksins. Maðurinn sá var Guðmundur L. Þ. Guðmundsson. Hann tók verkið að sér og þarna nokkrum árum síðar, í kóngsins Kaupmannahöfn, stóðu þessi gull- fallegu húsgögn. Handbragðið var einstakt. Þannig var Guðmundur. Allt sem hann kom nálægt gerði hann af vandvirkni og einstakri umhyggju. Guðmundur L. Þ. Guðmundsson lifði fögru lífi. Elskulegri konu hans, henni „ömmu Dúddu“, og fjölskyldunni allri votta ég samúð. Guð blessi minningu einstaks manns. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) María Solveig Héðinsdóttir. Einstakt ljúfmenni hefur kvatt. Hann er svo ljúfur hann Gummi frændi, sagði hún móðir okkar um hann Guðmund L.Þ. og við vitum að vel hefur verið tekið á móti honum. Vinátta og ræktarsemi þessa fólks náði allt frá foreldrum hans og systkinum, enda voru þau alin upp í nálægð, móðir okkar hjá Friðgerði móðursystur Guðmund- ar L.Þ. Þessi vinátta hélst alla ævi og á heimilum okkar eru hlutir sem hann smíðaði, eða keypti, fyr- ir foreldra okkar fyrir rúmum 60 árum í það minnsta. Fyrir allt þetta viljum við þakka. Í faðmi fjalla blárra, þar freyðir aldan köld, í sölum hamra hárra á huldan góða völd, sem lætur blysin blika um bládimm kletta-skörð, er kvöldsins geislar kvika og kyssa Ísafjörð. (Guðmundur Guðmundsson.) Elsku Dúdda og fjölskylda, minningin um einstakan heiðurs- mann lifir. Sigfríð, Ingi og Bára Björk, börn Dönu og Lalla.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.