Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1910, Side 7
3
hjer á landi væri því nokkur vísir til þess, er kaupfjelögin
víðast hvar í öðrum löndum œtla að koma í framkvæmd,
eða taka að sjer með tímanum.*
F*etta eru þau hlutverk, sem kaupfjelögin hjer eru nú
að fást við, og ætla að framkvæma á betri og hagfelld-
ari hátt en kaupmennskunni hefir tekizt hingað til, með
því aðallega að markmiði:
að koma á skuldlausri verzlun, alinnlendri,
að koma á vöruvöndun yfirleitt, og
að safna fje til reksturs kaupfjelagsskaparins, m. fl.
Það má með sanni segja að hlutverk þetta er afarstórt
og þýðingarmikið, og að kaupfjelögin eru enn stutt á
veg komin að ná þessum tilgangi sínum. Pað má í raun
rjettri segja, að sumum þeirra hefir ekkert áunnist; þau
hafa lent á villigötum, ekki fylgt fastri stefnu, og þrætt um
of stigu kaupmennskunnar, svo þau eru nú stödd á
flæðiskeri. Og þrátt fyrir það, að ýmsum fjelögum hefir
nokkuð unnist á leiðina, verður samt tæplega sagt að
nokkurt þeirra haldi hiklaust hina rjettu leið, heldur
beri þau öll í sjer þau mein, er bráðra lækninga þurfa
við, ef vel á að fara.
Eg hefi, fyrir hálfu öðru ári síðan drepið á það, í tíma-
riti þessu, með fáum orðum, hvar eg álít helzt að mein.
'n liggi. Tók eg það fram, að það væri einkum hinn
andlegi jarðvegur, sem rækta þyrfti, áður en vjer gætum
vænst þess, að þessi fjelagsskapur bæri hjer verulega
ávexti. Okkur vantaði, svo tilfinnanlega, fjelagslegan
þroska, samvinnuhug og það hugsjónalíf, sem eitt getur
borið uppi lifandi fjelagsskap. í tímariti þessu hafa fallið
orð frá öðrum mönnum í sömu átt, og á fleiri stöðum;
en þrátt fyrir það ætla eg að fara nokkrum orðum um
Þetta efni.
Það er má ske eðlilegt að framkvæmdalíf okkar Islend-
A Englandi og Þýzkalandi hafa sanibandskaupfjelögin, þegar fyrir
nokkru, komið upp öflugum bankastofnunum.
5. J.
V