Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1910, Qupperneq 22
*
Um verzlunarfjelögin í Arnessýslu.
Mest um Heklu.
Eptir tilmælum yðar, herra ritstjóri, sendi eg góða tíma-
ritinu yðar nokkur orð um verzlunarfjelögin í Arnessýslu,
og að auki stuttar athugasemdir, almenns efnis.
Sökum ókunnugleika get eg ekki lýst neinu fjelaginu,
svo sem eg vildi, nema ef til vill »Heklu«. Vandanum
þeim tel eg líka af mjer Ijett, að því er snertir hin fje-
lögin, af því menn úr stjórn þeirra hafa tjáð mjer, að
formenn fjelaganna muni senda »Tímariti Kaupfjelaganna«
yfirlit yfir viðskipti og efnahag fjelaga sinna; má ske líka
nokkuð meira, t. d. sögulegan fróðleik um undirbúning
fjelagsskaparins, stofnun hans, starfsemi og áhrif, Slíkum
upplýsingum þarf að safna í heild, smám saman, fyrir
öll helztu fjelög landsins. Hefir tímarit kaupfjelaganna
óskað þess, að svo væri gert, og flutt fróðleik um sum
samvinnufjelögin, einkum á Norðurlandi.
Mikils væri um það vert, fyrir samvinnufjelagsskap
landsins, að sjá og skilja, í einstökum greinum, hvað
það hefir verió, sem vel hefir gefizt, og hvað illa. Hvað
það er, sem batar, og hvað hitt, sem skaðar; hvað byggt
er á bjargi og hvað á sandi. Mætti sjálfsagt mikið læra
af áreiðanlegum og alveg óhlutdrægum upplýsingum frá
öllum svæðum samvinnufjelagsskaparins innanlands.