Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1910, Qupperneq 49
45
Sama árið, 1907, kom Kaupfjelag F’ingeyinga á fót
sláturhúsi á Húsavík. Ef til vill hafa fleiri sláturfjelög tek-
ið til starfa sama ár. Næstu árin: 1908 — 1909, fjölgaði
sláturhúsunum töluvert. Og nú er svo komið: að á öllu
svæðinu frá Skeiðarársandi, vestur og norður um land,
eru komin á föst fjelagssamtök, með sláturhús, —að meiru
eða minna leyti fyrir hvert hjerað —, þar sem annars get-
ur verið nokkuð, til muna, að ræða um útflutning á salt-
kjöti.
Tímaritinu er eigi kunnugt um, að nokkurt sláturfjelag
sje starfandi á Austurlandi, sem þá eigi viðunanlegt slát-
urhús.
Pað er eitt með öðru nauðsynlegu í þessum nýju til-
raunum, með endurbætta saltkjötsverzlun, að menn viti
nokkurn veginn um hversu mikið vörumagn er að ræða.
Það ætti að vera hvatning til sláturfjelaganna, að efla sem
bezt samvinnu og samhald, sín á meðal, og þá má bezt
sjá, hvort til þess er nokkuru kostandi. Petta á því og
að greiða fyrir væntanlegum fundi allra sláturfjelaganna
á þessu sumri.
Tímaritið hefir því lagt áherzlu á það, að afla sjer upp-
lýsinga í þessu efni, og verður nú sýndur árangur þeirr-
ar viðleitni.