Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1910, Side 66
62
3. Liög sambandsfjelagsins.
Síðasti aðalfundur gerði allmiklar breytingartillögur við
fjelagslögin. Lögin sjálf, breytingartillögurnar ásamt at-
hugasemdum var allt prentað í fyrsta hepti tímaritsins, f.
á. Deildir sambandsins hafa, eflaust, kynnt sjer þetta og
rætt málið á fundum sínum, eins og lögin ætlast til. Nú
verða þessi endurskoðuðu lög lögð fram á sambands-
fundinum til umræðu og úrslita. Nýjar breytingartillögur,
sem eigi hafa áður verið auglýstar í deildunum, geta
naumast náð fram að ganga á þessum fundi, fyr en þá
eptir það að hin endurskoðuðu lög hafa verið samþykkt
og þá um leið breytingartillagan nr. 20. F*ar á eptir geta
breytingar komizt að, ef þær eru samþykktar með 4/s
greiddra atkvæða og meiri hluti sambandsstjórnar er þeim
fylgjandi.
4. Lög og reglugerðir sambandsdeilda.
F*að er vonandi að fundurinn leggi sterka áherzlu á
það, að nú verði farið að vinna kappsamlega að því, að
koma til leiðar samræmi í skipulagi fjelagsdeildanna. Lög
sambandsins telja þetta eitt af meginatriðunum í fram-
kvæmdaráttina og mætti því eigi lengur skjóta málinu á
frest. Hjer er líka um óumflýjanlega nauðsyn að ræða,
eins og tímaritið hefir áður Ijóslega bent á. Engar veru-
legar framkvæmdir af hálfu sambandsins, sem útheimta
ábyrgð eða fjárframlög, eru í raun rjettri hugsanlegar eða
rjettmætar, nema sambandið fyrst og fremst þekki lög og
reglugerðir sambandsdeildanna og þar næst samrœmi þau
atriði, sem nauðsynleg eru til þess, að sambandið geti
byggt starfsemi sína á traustri undirstöðu.
F*að ætti að vera auðskilið mál, að sambandið, sem
starfandi fjelag, getur enga tiltrú fengið, út á við, nema
skipulag þess sjálfs sje í skýru, föstu og lögmætu formi.
F’etta verður aptur að byggjast á því, að hin sjerstöku
lög sambandsdeildanna komi eigi í bága við ákvæði sam-
bandslaganna.