Morgunblaðið - 03.11.2008, Blaðsíða 28
28 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2008
✝ SigurðurHelgason fædd-
ist á Kletti í Reyk-
holtsdal í Borg-
arfjarðarsýslu 2.
mars 1930. Hann
lést á gjörgæslu-
deild Landspítalans
við Hringbraut 23.
október síðastlið-
inn. Foreldrar Sig-
urðar voru hjónin
Ástríður Guðrún
Halldórsdóttir, f. á
Kjalvararstöðum í
Reykholtsdal 23.12.
1901, d. 30.5. 1981, og Helgi Sig-
urðsson bóndi, f. á Refsstöðum í
Hálsasveit 23.12. 1893, d. 2.7.
1983. Systkini Sigurðar eru Guð-
rún, f. 14.9. 1922, d. 25.2. 1983,
Guðný, f. 16.8. 1924 og Kristófer,
f. 18.1. 1926, d. 4.4. 1959.
Árið 1955 kvæntist Sigurður
Ólöfu Láru Ágústsdóttur. Þau
skildu. Sonur þeirra er Ágúst
Heiðar rafvirki, f. 27.6. 1954
kvæntur Margréti Haraldsdóttur,
f. 26.9. 1955. Börn: a) Ólöf Lára,
f. 7.8. 1981, unnusti Árni Jóhann-
es Hallgrímsson og eiga þau son
fæddan 24.10. 2008 b) Guðbjörg,
f. 21.9. 1984 og c) Ágúst Örn, f.
9.9. 1992.
Sigurður kvæntist 31. desem-
ber 1985 Soffíu Kristjánsdóttur,
f. í Reykjavík 4.7. 1952. For-
eldrar hennar eru Sigríður Sig-
urðardóttir, f. í Hólakoti í Hofs-
hreppi í Skagafirði 20.12. 1916,
d. 4.1. 1995, og Kristján Krist-
jánsson húsasmíðameistari, f. á
Geitastekk í Hörðudalshreppi
Dalasýslu 6.9. 1911, d. 9.4. 1958.
Dætur Sigurðar og Soffíu eru: a)
Álfheiður Sigurðardóttir há-
skólanemi, f. 19.8. 1982, unnusti
Daði Guðmundsson, f. 11.2. 1981,
og b) Helga Guðrún Sigurð-
ardóttir húsasmíðanemi, f. 21.2.
1984.
fyrir börn 1962, 1964 og 1965.
Sat í stjórn Frjálsíþrótta-
sambands Íslands 1965 til 1984
og fararstjóri íslenskra frjáls-
íþróttamanna og fulltrúi á Norð-
urlanda- og Evrópuþingum
frjálsíþróttamanna. Hann var
formaður útbreiðslunefndar FRÍ
1966 til 1984. Hann fór 13 ferðir
með ungt frjálsíþróttafólk á
Andrésar andar leika í Noregi.
Einnig var hann fararstjóri á
fyrsta heimsmeistaramótið í
frjálsum íþróttum í Helsinki
1983. Sigurður var einn af stofn-
endum Félags íþróttavina á Ís-
landi, heiðursfélagi í Ungmenna-
félaginu Íslendingi,
Ungmennafélaginu Snæfelli og
Kennarafélagi Vesturlands. Hann
var sæmdur Gullmerkjum FRÍ og
ÍSÍ, auk erlendra heiðursmerkja
fyrir störf að íþróttamálum. Sig-
urður söng með Karlakórnum
Fóstbræðrum frá 1972 og gegndi
ýmsum trúnaðarstörfum fyrir
kórinn 1974 til 1980. Einnig söng
hann með kirkjukór Fella- og
Hólakirkju um nokkurra ára
skeið. Sigurður var mikill nátt-
úruunnandi og fuglaáhugamaður
og merkti fugla og tók þátt í
fuglatalningu Náttúrufræðistofn-
unar Íslands í fimmtíu ár. Hann
hafði yndi af stangveiðum og
lagði stund á þær alla sína tíð.
Fiskirækt stundaði hann um 20
ára skeið í Bakká og Gríshólsá
og einnig í Valshamarsá ásamt
góðum vinum. Sigurður sat í
framkvæmdanefnd Skrúðs á
Núpi í Dýrafirði og nýtti þar
áhuga sinn og kunnáttu á skóg-
rækt. Allt frá árinu 1983 hafa
þau hjón, Sigurður og Soffía,
eytt öllum sínum frítíma í sum-
arbústað fjölskyldunnar í Borg-
arfirði sem þau nefndu Skjólhól.
Hafa þau þar unnið ötult skóg-
ræktarstarf og átt ómetanlegar
stundir.
Útför Sigurðar fer fram frá
Dómkirkjunni í Reykjavík í dag
og hefst athöfnin klukkan 13.
Sigurður ólst upp
á Heggsstöðum í
Borgarfirði. Hann
fór ungur að heiman
til náms og lauk
kennaraprófi frá KÍ
1949 og íþróttakenn-
araprófi frá Íþrótta-
kennaraskóla Ís-
lands á Laugarvatni
1951. Stundaði
framhaldsnám við
Íþróttaháskólann í
Osló 1956 og við Há-
skólann í Minneapol-
is í Minnesota 1963.
Sigurður var kennari við Barna-
og miðskólann í Stykkishólmi
1951 til 1959 og skólastjóri sama
skóla 1959 til 1965. Skólastjóri
Laugagerðisskóla á Snæfellsnesi
1965 til 1970. Deildarstjóri á
Fræðslumálaskrifstofu 1970 til
1971 og í menntamálaráðuneyt-
inu frá 1971 til 1999. Sigurður
sat í ýmsum nefndum á vegum
menntamálaráðuneytisins og sat
í samninganefnd ríkisins frá
1977. Varafulltrúi Íslands í Nor-
rænu skólamálanefndinni frá
1984. Í hreppsnefnd Eyjarhrepps
1966 til 1970. Fyrsti hvatamaður
að stofnun skólabúða á Íslandi á
Reykjum í Hrútafirði. Sigurður
var fjölhæfur íþróttamaður og
varð m.a. Íslandsmeistari í bad-
minton, frjálsum íþróttum og
sundi. Hann starfaði alla tíð mik-
ið að íþrótta- og æskulýðsmálum.
Íþróttakennari á vegum Ung-
mennafélagsins Snæfells í Stykk-
ishólmi 1951 til 1965 og jafn-
framt fyrsti þjálfari
körfuknattleiksliðs Snæfells.
Þjálfari á vegum Héraðssam-
bands Snæfells- og Hnappadals-
sýslu 1951 til 1970 og formaður
þess 1954 til 1955. Gegndi einnig
formennsku í Ungmennafélaginu
Snæfelli 1952 til 1954 og 1956 til
1961. Forstöðumaður sumarbúða
Hvíl þú væng þinn í ljóði mínu,
lítill fugl á löngu flugi
frá morgni til kvölds.
Styð þig, stjarna, við blóm í garði mínum
eitt andartak á ferð þinni
um tíma og rúm.
Eins og stráið í sandi við haf dauðans,
vaxa rætur þess, sem hvergi fer.
Enginn spyr, hvaðan hann komi.
(Jón úr Vör.)
Fyrir 20 árum síðan leiddi pabbi
minn mig á mína fyrstu jólaskemmt-
un í grunnskóla.
Það var gott að halda í höndina á
pabba. Hann leiddi mig í gegnum líf-
ið.
Ég reyndi að endurgjalda honum
greiðann og halda í hönd hans þegar
hann þurfti á að halda.
Daginn sem hann fór í hjartaað-
gerðina sat ég heima og ímyndaði
mér að ég héldi í hlýja hönd hans.
Þegar okkur var tjáð að allt hefði
gengið vel sleppti ég hönd hans um
stund. Á meðan kom sá er sterkustu
höndina hefur og leiddi föður minn á
annað tilverustig.
Í árum var hálf öld á milli okkar
pabba. Þessi ár komu mér að góðum
notum. Pabbi var mér allt í senn fað-
ir, afinn sem ég aldrei átti, góður vin-
ur, kennari og fyrirmynd.
Allt frá barnæsku hef ég verið stolt
af því að vera dóttir Sigurðar Helga-
sonar. Hann var mikill maður og ekki
bara í augum mínum.
Pabbi var sveitastrákur með stórt
hjarta og fullur af þjóðernisstolti.
Hann mátti ekkert aumt sjá og gjaf-
mildi hans voru engin takmörk sett.
Við systur fengum vel að njóta þess.
Bókmenntaáhugann áttum við
pabbi sameiginlegan. Pabbi þreyttist
ekki á að gefa mér bækur og græddi
ég vel á því að fara með honum á
bókamarkaði.
En besta bókin sem pabbi gaf mér,
var hann sjálfur. Hann var alfræði-
bók mín og þeirri bók lýk ég aldrei.
Pabbi fylgdist grannt með með-
göngu minni núna síðustu mánuðina
og fannst þessi lífssköpun svo ótrú-
leg.
Það er svo mikil synd að hann hafi
ekki fengið að fylgja henni eftir allt
til enda. En ég veit að pabbi er ekki
hættur að halda í hönd mína og hann
mun fylgjast með ófædda barna-
barninu eins vel og okkur hinum.
Missir okkar mæðgna er mikill.
Foreldrar mínir voru ekki bara elsk-
andi hjón heldur einnig afar sam-
rýmd og miklir vinir. Við munum
standa þétt saman og ekki mun okk-
ur skorta anda föður míns allt í
kringum okkur. Sumarbústaður for-
eldra minna er þar ómetanlegur.
Staðurinn þar sem föður mínum
fannst best að vera.
Allar góðu minningarnar munu
ylja okkur um hjartarætur þegar
hretar að.
Ég þakka föður mínum yndislegar
samverustundir og hlakka til að deila
minningum mínum um góðan mann
með ófædda afabarninu.
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
(Hallgrímur Pétursson.)
Takk fyrir að gefa mér allan heim-
inn, elsku pabbi. Ég elska þig.
Þín dóttir,
Álfheiður (Heiða).
Besti vinur minn er farinn. Hjarta
mitt fór alveg í hnút og ég vissi ekk-
ert hvernig ég átti að vera eða hvað
ég átti að segja. Ég hugsaði að þetta
gæti ekki verið satt.
En núna veit ég að þú ert á góðum
stað. Ég finn að þú ert hjá mér ennþá
og það kætir mig. Ég vil minnast
þess sem við gerðum saman, allra
þeirra yndislegu stunda sem við átt-
um saman í Skjólhól, sem var okkar
annað heimili. Þú elskaðir þennan
fallega stað, sem og við fjölskyldan
öll.
Fuglasöngurinn tók á móti okkur í
hvert einasta skipti og veðurblíðan í
Borgarfirðinum umlukti okkar fal-
legu lóð. Þið mamma gerðuð þennan
stað svo fallegan og öll trén sem við
fjölskyldan tókum þátt í að setja nið-
ur ár eftir ár eru stolt okkar og yndi.
Ég minnist þess þegar við fórum
tvö saman, nánast árlega, á Þorláks-
messu, afmælisdegi foreldra þinna.
Við tókum saman nesti, leiðiskerti og
brunuðum svo af stað upp í Borgar-
fjörð.
Við byrjuðum alltaf á því að fara
upp í bústað og athuga hvort ekki
væri allt í góðu. Nutum þess að vera
saman í vetrarblíðunni. Á heimleið-
inni fórum við í kirkjugarðinn í Borg-
arnesi. Þar settum við ljós á leiði
ömmu og afa.
Ég minnist þess einnig þegar við
tvö, eins og svo oft áður, fórum sam-
an í ferð með Særúnu. Þú vissir að
mig langaði svo mikið að sjá erni og
að það væri minn uppáhaldsfugl. Ég
fékk mína ósk uppfyllta þennan dag
og ég naut þess að vera með þér sem
er yndisleg minning.
Fyrir um það bil tveimur mánuð-
um spurði ég þig hvort þú værir sátt-
ur með allt sem þú hefðir gert og
upplifað um árin og þú sagðir bara
hreint og beint já við mig. Mér leið
svo vel að vita það.
Þú kenndir mér svo mikið og sagð-
ir mér frá svo miklu.
Þú kenndir mér að elska þá sem
eru mér næstir og einnig hvernig ég
ætti að elska þig. Þú sagðir mér að
vera vinur vina minna og að hjálpa
þeim sem ég gæti.
Þú kenndir mér allt um fuglana,
fuglana sem þér þótti svo vænt um.
Þú sagðir mér hvernig þú fórst að því
að telja þá og hvaða hljóð hver þeirra
gæfi frá sér.
Þú kenndir mér að negla nagla, í
sameiningu smíðuðum við lítil hús.
Þú sagðir mér hvernig var þegar þú
varst lítill, hvernig allt gekk fyrir sig
þá.
Þú kenndir mér að verða sú sem ég
er í dag.
Í dag vil ég þakka fyrir okkar tíma
saman.
Elsku pabbi minn, hvíl þú í friði.
Þú ert kominn á góðan stað og ert
umvafinn góðu fólki. Þau vernda þig
þangað til við hittumst aftur.
Ljúfar voru stundir
er áttum við saman.
Þakka ber Drottni
allt það gaman.
Skiljast nú leiðir
og farin ert þú.
Við hittast munum aftur,
það er mín trú.
Hvíl þú í friði
í ljósinu bjarta.
Ég kveð þig að sinni
af öllu mínu hjarta.
(Maren Jakobsdóttir.)
Þín litla stelpa,
Helga Guðrún.
Mig langar til að minnast tengda-
föður míns, Sigurðar Helgasonar frá
Heggsstöðum.
Ég man þegar ég hitti Sigurð í
fyrsta skipti heima í Hrafnhólunum
fyrir rúmum fimm árum síðan. Hann
tók mér strax vel og við urðum fljótt
góðir vinir. Það tók okkur ekki lang-
an tíma að finna út að við ættum sam-
eiginlegt áhugamál, íþróttirnar.
Hann sýndi mér og mínu fótbolta-
sprikli alltaf mikinn áhuga og var að
ég held orðinn harður stuðningsmað-
ur Fram í fótboltanum. Númer eitt,
tvö og þrjú hjá Sigurði var hins vegar
liðið hans, Snæfell. Þetta varð mér
strax ljóst. Sigurður var fyrsti þjálf-
ari Snæfells í körfubolta og í raun
frumkvöðull hvað varðar körfuknatt-
leiksiðkun í Hólminum og réttilega
afar stoltur af því. Hann fylgdist alla
tíð vel með gengi Snæfells og var
sannarlega búinn að smita mig af
þessum áhuga. Við fórum nokkrum
sinnum saman á Snæfellsleiki, núna
síðast í Laugardalshöllinni fyrir tæp-
um mánuði síðan.
Sigurður var ekki aðeins körfu-
boltaþjálfari. Hann þótti einnig lið-
tækur íþróttamaður sjálfur og keppti
meðal annars í sundi og frjálsum
íþróttum. Hann hreykti sér nú ekki
mikið af árangri sínum en ég þykist
vita að hann hafi verið allnokkur. Sig-
urður sat jafnframt í stjórn Frjáls-
íþróttasambandsins í mörg ár og var
sæmdur gullmerki þess.
Sínar bestu stundir átti Sigurður í
sumarbústað fjölskyldunnar, Skjól-
hóli, sem staðsettur er í landi Stóra-
Fjalls í Borgarfirðinum. Þau Soffía
dvöldu þar nánast öllum stundum öll
sumur og fóru líka í bústaðinn flestar
helgar sem veður leyfði á öðrum árs-
tímum. Þar hafa þau, ásamt Heiðu og
Helgu, komið sér upp ákaflega fal-
legum og góðum griðastað. Þangað
er alltaf gaman að koma og þaðan á
ég margar góðar minningar.
Ég kveð Sigurð með söknuði en er
jafnframt þakklátur fyrir þann tíma
sem ég fékk með honum. Ég leit upp
til hans, hann kenndi mér ýmislegt
og var mér góð fyrirmynd. Sárt þykir
mér að hann skuli ekki fá að kynnast
nýfæddu langafabarni sínu og rétt
ófæddu afabarni sem hann hafði beð-
ið svo spenntur eftir. Við sem eftir
stöndum munum tryggja að þau fái
að kynnast honum. Minningin um
skemmtilegan, traustan, góðan og
umhyggjusaman mann lifir.
Hvíl í friði.
Daði Guðmundsson.
Elsku afi.
Aldrei höfðum við hugsað út í að
þessi dagur kæmi að þú færir frá
okkur og hvað þá svona skyndilega.
Mikið var um blendnar tilfinningar
þann dag er þú varst tekinn frá okk-
ur því nýtt líf var að koma í heiminn
þú varst að verða langafi og varst þú
svo spenntur að sjá litla drengin sem
ákvað að koma í heiminn daginn eftir
að þú fórst. Minningarnar okkar um
þig, afi minn, eru einungis af hinu
góða, sú minning sem lifir sem lengst
er aðfangadagurinn þegar jólaafi
kemur í heimsókn þegar við sitjum
öll inni í eldhúsi og spjöllum um dag-
inn og veginn og ekki má nú gleyma
hangikjötinu sem pabbi kaupir á
hverju ári og við nörtum í með góðri
lyst. Þú hafðir alltaf mikinn áhuga á
náminu okkar og varst ávallt tilbúinn
að rétta fram hjálparhönd. Og stoltið
mátti sjá á þér við útskrift okkar
beggja.
Við erum ofboðslega fegnar því að
hafa fengið að koma á þínar heima-
slóðir á ættarmótinu sumarið 2007.
Þar fengum við að kynnast fjölskyldu
okkar og sjá þig í allt öðru ljósi, svo
hamingjusaman yfir að ættin væri
loksins komin saman í allri sinni
dýrð.
Elsku afi, með þessum sálmi vilj-
um við kveðja þig þó svo þú lifir ávallt
í minningu okkar.
Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð, leiddu mig,
og lýstu mér um ævistig.
Ég reika oft á rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt sem miður fer,
og man svo sjaldan eftir þér.
Sú ein er bæn í brjósti mér,
ég betur kunni þjóna þér.
Því veit mér feta veginn þinn
og verðir þú æ Drottinn minn.
(Pétur Þórarinsson.)
Guð geymi þig og varðveiti.
Ólöf Lára og Guðbjörg.
Við skyndilegt og ótímabært and-
lát Sigurðar Helgasonar, móður-
bróður míns, streyma fram minning-
ar frá samverustundum undanfarna
áratugi. Árlegar ferðir vestur í
Stykkishólm, og síðar í Laugagerði, í
upphafi sjöunda áratugarins voru
ævintýri líkastar í huga okkar systra.
Þar var dvalið í góðu yfirlæti hjá Sig-
urði, Ólöfu Láru og Ágústi Heiðari.
Sigurður hafði yndi af að sýna okkur
Snæfellsnesið, Hólminn sinn og
ógleymanlegar eru ferðir út í eyjar á
Breiðafirði. Þar var kennarinn og
náttúruunnandinn svo sannarlega í
essinu sínu. Ekki var spenningurinn
minni þegar von var á fjölskyldunni í
bæinn og þá gistu þau oft hjá okkur á
Kleppsveginum. Öllum þessum
minningum fylgir gleði, hlátur og
einstök hlýja. Sigurður og Soffía,
seinni kona hans, byggðu sér sum-
arbústað í Borgarfirðinum. Þar er nú
vaxin mikil gróðurparadís og ég vissi
að lengi framan af skráði hann
frændi minn hverja einustu plöntu
sem hann setti niður og skiptu þær
þúsundum. Þarna undu þau sér með
dætrum sínum þeim Álfheiði og
Helgu Guðrúnu. Það er gaman að
ganga um landið þeirra og sjá hve
vinnan þeirra hefur borið ríkulegan
ávöxt.
Systkinin á Heggsstöðum voru
fjögur og Sigurður var þeirra yngst-
ur. Ótal sögur höfum við heyrt frá
uppvaxtarárum þeirra og alltaf er
þar stutt í grín og gleði og væntum-
þykja systkinanna hvert til annars
skín þar í gegn. Kristófer dó árið
1959, aðeins 33 ára gamall, og Guð-
rún dó 1983, rúmlega sextug.
Á undanförnum árum hefur Sig-
urður verið að safna saman upplýs-
ingum um uppruna sinn og áa og
hann hefur leitað fanga víða. Fyrir
nokkrum árum fóru þau systkin,
Guðný og Sigurður, saman í dagsferð
á æskuslóðir sínar í Borgarfirðinum
þar sem þau rifjuðu upp atburði og
staðhætti ýmsa á Heggsstöðum, í
Kletti og á Hömrum. Guðný, sem er 6
árum eldri en Sigurður, fyllti sums
staðar í eyðurnar hjá honum og hann
skráði niður. Bæði töluðu oft um
hvað þetta hefði verið frábær ferð.
Sumarið 2006 boðaði Sigurður af-
Sigurður Helgason
Minningarkort
Minningar- og styrktarsjóðs
hjartaskjúklinga
sími 552 5744
Gíró- og kreditkortþjónusta
Minningarkort
Sími: 588 7555
www.skb.is