Morgunblaðið - 03.11.2008, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 03.11.2008, Blaðsíða 41
Sprengjuhöllin heldur útgáfu- tónleika vegna plötunnar nýju í Íslensku óperunni, þriðjudaginn 11. nóvember. Og Bergur botnar: „Mig langar ekki til að gera neitt nema að því tilskildu að ég standi við það og fylgi því eftir – í riti sem ræðu,“ segir hann. „Það var búinn að vera þessi andi í gangi hjá íslenskum hljómsveitum, „Ja … þeir hlusta bara sem vilja hlusta,“ sem er gott fyrir sinn hatt. En ég held að það séu þús- undir manna þarna úti sem þarf bara að ganga upp að og segja: „Hlustaðu á mig!“ Ekki misskilja mig, við lítum ekki á okkur sem einhverja bjarg- vætti rokksins. Við erum ekki veru- leikafirrtir. En með þessa nýju tíma ... ég var a.m.k. búinn að horfa of lengi á tónlist sem sundraði fólki frek- ar en sameinaði. Það var voða kúl að fíla þetta og þetta og mikil gjá á milli þessara hópa. Mér finnst þvert á móti fallegt ef tónlist nær að sameina þessa hópa alla – og það var það sem við lögðum upp með frá byrjun.“ arnart@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2008 / AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 8 B.i. 16 ára MAX PAYNE kl. 10:10 B.i. 16 ára HAPPY GO LUCKY kl. 8 LEYFÐ BANGKOK DANGEROUS kl. 10:10 B.i. 16 ára HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 6 - 8 LEYFÐ NIGHTS IN RODANTHE kl. 6 LEYFÐ EAGLE EYE kl. 8 B.i. 16 ára HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 8 LEYFÐ SEX DRIVE kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára BURN AFTER READING kl. 10:10 Síðasta sýn. B.i. 16 ára ÍSLENSKT TALSÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í KRINGLUNNI SÝND Í KEFLAVÍK SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI HÖRKUSPENNANDI MYND FRÁ STEVEN SPIELBERG MEÐ SHIA LABEOUF Í AÐALHLUTVERKI. ÞÚ HLÝÐIR, EF ÞÚ VILT LIFA! RICHARD GERE ÁSAMT DIANE LANE FARA Á KOSTUM Í ÞESSARI FALLEGU ÁSTARSÖGU. SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA -L.I.B.TOPP5.IS -T.S.K - 24 STUNDIR -ÁSGEIR J. - DV MAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR! SÝND Í KEFLAVÍK VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA SÝND AFTUR Í TAKMARKAÐAN TÍMA VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA SÝND Í KRINGLUNNI SÝND Á SELFOSSISÝND Í KEFLAVÍK ÞIÐ ráðið hvort þið trúið því eða ekki, en margir textar og lög á plötunni eru undir sterkum áhrifum frá Brúsa frænda, Bruce Springsteen. Snorri og Bergur eru forfallnir aðdáendur og standa linnulaust í því að kristna félaga sína. Það sem heillar er sú sterka rómantík og þeir brostnu draumar sem leika um plötur eins og Born to Run og Darkness on the Edge of Town. „Ég sendi einu sinni innblásið bréf til Bergs um hversu stór- kostleg Born to Run væri,“ segir Snorri. „Ég var með tárin í aug- unum. Þetta er það sem kallast að verða „brucified“.“ Þá var Bergur einu sinni rekinn út af bar fyrir að tala stanslaust um Bruce Springsteen. Umslag plötunnar vísar þann- ig í þennan hetjubundna rómans og textar við lögin „Draumur í „D““, „Vegurinn“ og „Á meðan vatnið velgist“ eru undir beinum áhrifum frá kveðskap Stjórans. Sprengjó og Springsteen!? Galdur Sprengjuhöllin stenst ekki kynngimagnaða töfra Bruce Springsteen frekar en aðrir. ENGU er líkara en að bandarískir hrollvekjuhugmyndasmiðir séu í þann veginn að leggja upp laupana. Craven, Carpenter og allt það ágæta gengi sem færði unnendum þessarar kvikmyndagreinar ómælda gæsahúð á ofanverðri öldinni sem leið, er þagnað að mestu. Skástu hrollvekj- urnar að vestan í dag eru ann- aðhvort gerðar af innfluttum leik- stjórum, endurgerðir erlendra mynda eða hvort tveggja. Quarantine, eða Sóttkví, er engin undantekning, byggð á [Rec], vin- sælum, spánskum hrolli, eftir þá Jaume Balagueró, Luiso A. Berdejo og Paco Plaza. Hann hlaut fína dóma og framboðið á hryllingsmynda- markaðnum virðist aldrei fullnægja eftirspurninni þar vestra og nú er endurgerðin komin í allri sinni kvöl og pínu. Söguhetjurnar eru fréttamað- urinn Angela (Carpenter) og Scott (Harris), tökumaðurinn hennar. Þeim er fengið verkefni, sakleys- islegt á yfirborðinu, að fylgja eftir slökkviliðsmönnum við störf sín í húsalengju í miðborginni, þaðan hef- ur borist hjáparbeiðni um neyðarlín- una. Ófögur sjón blasir við er frétta- mennirnir koma í húsið, íbúarnir haga sér undarlega, fyrr en varir er byggingin einangruð, svo virðist sem óhugnanleg drepsótt sé kviknuð innandyra. Við erum komin á kunnuglegar slóðir sviðsetta heimildarhrollsins, sem skaust upp á vinsældalistann í myndum eins og The Blair Witch Project allt til Cloverfield. Kvik- myndatakan er viðvaningsleg, með handheldri tökuvél, sem gefur Quar- antine hrátt, „trúverðugt“ yfirbragð. Leikstjórnin er býsna þétt og leik- urinn kemur notalega óvart. Jafnvel gamla, góða Rade Sherbedzija bregður fyrir, sem jafnan er ótví- ræður kostur. Hrottaleg mynd en spennandi, ógnvekjandi og óvænt. Ófögnuður í miðborginni KVIKMYND Laugarásbíó, Smárabíó, Borg- arbíó Akureyri Quarantine bbbnn Leikstjóri: John Erick Dowdle. Aðalleik- arar: Jennifer Carpenter, Jay Hernandez, Steve Harris, Rade Sherbedzija. 85 mín. Bandaríkin. 2008. Sæbjörn Valdimarsson Quarantine „Hrottaleg mynd en spennandi, ógnvekjandi og óvænt.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.