Morgunblaðið - 03.11.2008, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 3. N Ó V E M B E R 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
301. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
Leikhúsin
í landinu >> 37
ÆRINGJARNIR Í SPRENGJUHÖLLINNI
VIÐ HÖFUM ALLTAF
VERIÐ MEÐ GÓÐ PLÖN
FIÐURFÉ Í FÖGRU HÚSI
Hænsni eru góð
búbót í kreppunni
Einhverri sögulegustu kosningabaráttu á síðari
tímum í Bandaríkjunum lýkur á morgun þegar
forsetaframbjóðendurnir Barack Obama og
repúblikaninn John McCain bíða örlaga sinna.
Eins og kunnugt er hafa hvítir karlar gegnt
embætti Bandaríkjaforseta allt frá dögum
George Washington, sem fyrstur gegndi þessu
valdamesta embætti heims á árunum 1789-97.
Með sigri myndi blökkumaðurinn Obama því
rjúfa eina rótgrónustu hefð stjórnmálanna og í
ljósi sögunnar eru lögregluyfirvöld nokkurra
stórborga við öllu búin, fari svo að hann tapi. | 16
AP
Álag Barack Obama á kosningafundi í Cleveland í Ohio í gær. Mikið hefur mætt á honum og John
McCain, forsetaefni repúblikana, síðustu daga. Tugþúsundir sjálfboðaliða taka þátt í kosningasmölun.
TAUGATITRINGUR
OG HÁSPENNA
Óttast að upp úr sjóði fari svo að Obama tapi
AÐALEIGENDUR 365 hafa ekki lengur
áhuga á að standa við samninginn um að
Fréttablaðið sameinist Árvakri, samkvæmt
heimildum Morg-
unblaðsins. Þetta
varð ljóst eftir að
365 samþykkti á
fundi sínum síðdeg-
is í fyrradag að
Rauðsól, félag í eigu
Jóns Ásgeirs Jó-
hannessonar, keypti
fjölmiðlahluta 365
út úr félaginu fyrir
1,5 milljarða króna
og tæki yfir skuldir
upp á um 4,4 millj-
arða.
Heildarskuldir
365 nema 11 millj-
örðum, skv. heimildum Morgunblaðsins, þar
af um 5,2 milljörðum í Landsbankanum.
Samkvæmt samningi um sameiningu Ár-
vakurs, Fréttablaðsins og Pósthússins sem
greint var frá 10. október sl., á 365 hf. að
koma inn í hluthafahóp Árvakurs með 36,5%
hlut. Í samningnum er gert ráð fyrir að
skuldir sem Fréttablaðið og Pósthúsið taki
með sér úr 365 nemi 2,8 milljörðum.
Í kaupsamningi Rauðsólar á fjölmiðla-
hluta 365, sem Landsbankinn hefur enn ekki
staðfest, er ráðgert að Rauðsól yfirtaki aðrar
skuldir upp á um tvo milljarða króna.
Vonlitlar einingar og miklar skuldir
Stjórn 365 samþykkti tilboði Rauðsólar
með öllum greiddum atkvæðum nema einu
en Árni Hauksson greiddi atkvæði gegn til-
lögunni og sagði sig síðan úr stjórn félagsins
í kjölfarið. Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins beindist aðalgagnrýni hans að því að
verið væri að taka kjarnastarfsemina út úr
félaginu en skilja vonlitlar einingar og mikl-
ar skuldir eftir í 365. | 2
Ekki
lengur
áhugi
Í HNOTSKURN
» Um 60% aftekjum 365 á
fyrri helmingi
þessa árs komu
frá fjölmiðla-
hlutanum.
» Tap 365 áfyrri árs-
helmingi var 2,2
milljarðar.
Jón Ásgeir vill
kaupa fjölmiðla 365
ÍÞRÓTTIR
Elísabet Gunnarsdóttir, nýráðinn
þjálfari sænska knattspyrnuliðsins
Kristianstad, reiknar með því að fá
íslenska leikmenn þangað og hana
langar til að taka við þjálfun ís-
lenska landsliðsins.
Elísabet er á leiðinni
á nýjar slóðir
Tindastóll frá Sauðárkróki vann
góðan sigur í Njarðvík í úrvals-
deildinni í körfuknattleik. Stjarnan
sigraði Skallagrím með yfirburðum
og Grindvíkingar héldu sinni sig-
urgöngu áfram og lögðu Þór.
Tindastóll sigraði í
Ljónagryfjunni
Badmintonsamband Íslands hefur
sagt landsliðsþjálfaranum upp
störfum vegna fjárskorts. Hann
hættir störfum rétt áður en lands-
liðið fer í sitt eina verkefni í vetur.
Landsliðsþjálfara
sagt upp störfum
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
MEÐAL þess sem komið hefur í ljós við skoðun
á efnahagsreikningum bankanna sem nýlega
fóru í þrot, Glitnis, Kaupþings og Landsbank-
ans, eru „stórfelldar stöðutökur gegn íslensku
krónunni“ eins og heimildarmaður Morg-
unblaðsins komst að orði. Hann vildi ekki koma
fram undir nafni en sagði það hafa komið á
óvart hversu háum fjárhæðum fjárfestinga-
félög, innlend og erlend, hafi verið tilbúin að
veðja á að íslenska krónan myndi veikjast.
Flestir samninganna eru milli tveggja aðila á
markaði sem bankarnir hafa milligöngu um.
Um er að ræða útgáfu afleiðutengdra skulda-
bréfa, í flestum tilfellum, þar sem ávöxtunin vex
eftir því sem krónan veikist.
Heildarupphæð þeirra samninga sem bank-
arnir höfðu milligöngu um nemur að minnsta
kosti 5 til 6 milljörðum dollara, það er 600 til 720
milljörðum króna að núvirði, samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins.
Ósannað að viðskiptin
hafi haft óeðlileg áhrif
Viðskipti sem þessi, þar sem ávöxtun fjár er
tengd gengi gjaldmiðla, eru algeng og í fullu
samræmi við lög og reglur. Samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins hefur ekkert komið fram
sem sanna þykir að fjárfestingafélög, sem veðj-
uðu á veikingu krónunnar, hafi haft óeðlileg
áhrif á gjaldeyrismarkað. Það fer gegn laga-
ákvæðum sem eiga að verja markaðinn fyrir
óeðlilegum áhrifum á hann.
Gengi krónunnar hefur verið í frjálsu falli það
sem af er ári. Gengisvísitalan var 119 í upphafi
árs en er nú rúmlega 207, samkvæmt skráðu
gengi Seðlabanka Íslands. Nokkurrar óvissu
gætir þó um raunverulega stöðu krónunnar þar
sem gjaldeyrisviðskipti hafa gengið treglega
síðan bankarnir voru yfirteknir af skilanefndum
Fjármálaeftirlitsins (FME).
Endurskoðunarfyrirtækin KPMG, Price
Waterhouse Coopers og Deloitte vinna nú að
tvenns konar athugunum á málum bankanna.
Annars vegar mati á sannvirði eigna og skulda
þeirra og hins vegar hvort eitthvað óeðlilegt eða
eftir atvikum ólöglegt hafi átt sér stað mán-
uðum og vikum áður en þeir fóru í þrot. Skýrslu
um þá athugun verður skilað til FME og stjórn-
ar skilanefnda bankanna þegar henni lýkur.
KPMG skoðar stöðu Glitnis, Price Water-
house stöðu Kaupþings og Deloitte stöðu
Landsbankans.
Veðjuðu á veikingu krónunnar
Samningar um stöðutöku gegn krónunni nema að minnsta kosti 600 til 720 milljörðum króna
Kemur á óvart hversu háar fjárhæðir innlend og erlend fjárfestingarfélög lögðu undir
Í HNOTSKURN
»Afleiða er samningur þar sem upp-gjörsákvæði byggist á breytingu á
tilteknu tímabili, s.s. á vöxtum, gengi,
verðbréfaverði eða hrávöru.