Morgunblaðið - 03.11.2008, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 03.11.2008, Blaðsíða 34
FELIX Bergsson og Jóhanna Vig- dís Arnardóttir syngja á tónleik- unum Paris at Night ásamt sér- stökum gesti sínum, Eddu Þórarinsdóttur. Tónleikarnir verða í Salnum í Kópavogi, 4. og 5. nóv- ember og í Samkomuhúsinu á Ak- ureyri 12. nóvember. Paris at Night er byggt á ljóðum Jacques Prévert og tónlist Joseph Kosma og Karls Olgeirssonar. Þýð- ingar ljóðanna eru eftir Sigurð Páls- son. Kolbrún Halldórsdóttir er leik- stjóri. Texti um Jacques Prévert verður fluttur af Gerard Lemarquis. Fjögurra ára draumur Tónleikarnir byggjast á sýning- unni Paris at Night sem sýnd var í Borgarleikhúsinu árið 2004 við mikl- ar vinsældir. „Hugmynd að þeirri sýningu kviknaði eftir að Kolbrún Halldórsdóttir gaf mér ljóðaþýð- ingar Sigurðar Pálssonar á ljóðum eftir Jacques Prévert,“ segir Felix Bergsson. „Ljóðin höfðuðu strax mjög mikið til mín og það varð draumur okkar Kollu að búa til leik- sýningu úr þessum ljóðum. Við kom- umst að því að Joseph Kosma, Ung- verji sem bjó í Frakklandi, hafði samið gríðarlega fallega tónlist við ljóðin. Við Kolla fengum Jóhönnu Vigdísi í verkefnið með okkur og Karl Olgeirsson sá um tónlistar- stjórn og úr varð þessi leiksýning Paris at Night sem gekk fyrir fullu húsi. Þegar sýningum lauk áttum við aðstandendurnir þann draum að setja hana upp aftur og hafa hana þá í tónleikaformi og það er einmitt það sem við erum að gera núna.“ Eins og fiskur í vatni Felix Bergsson ber mikið lof á samstarfsfólk sitt: „Þýðingar Sig- urðar Pálssonar á ljóðum Prévert eru frábærar. Jóhanna Vigdís er eins og fiskur í vatni þegar kemur að flutningi á þessari tónlist, hún er fædd til að syngja þessi lög. Hljóm- sveitarstjórinn Karl Olgeirsson hef- ur svo samið nýja tónlist við nokkur ljóða Prévert sérstaklega fyrir þessa tónleika og það er mikill fengur að þeim. Það er okkur líka sérstök ánægja að Edda skuli hafa þekkst boð okkar um að vera þátttakandi í sýningunni. Hún hefur sést alltof lít- ið á sviði undanfarin ár og það er frá- bært að hafa hana innanborðs.“ Í góðum félagsskap Edda Þórarinsdóttur syngur þrjú lög í sýningunni, eitt þeirra er eftir Charles Dumont við ljóð eftir Edith Piaf en Edda lék og söng hlutverk Edith Piaf hjá Leikfélagi Akureyrar á sínum tíma. „Ég sá Paris at Night í Borgarleikhúsinu fyrir fjórum árum og varð yfir mig hrifin. Mér finnst ég í alveg sérlega góðum félagsskap í þessari sýningu,“ segir Edda. „Fyrir fjórum árum þekkti ég lítið ljóð eftir Prévert, en núna hef ég verið að grúska í ljóðum hans og hann er stórkostlega skemmtilegur. Ljóð hans eru lýsandi og leikhúsleg og það er nauðsynlegt að sýna tilfinn- ingar í túlkunum á þeim.“ Um Piaf-lagið sem Edda syngur á tónleikunum segir hún: „Þetta Edith Piaf-lag sem ég syng heyrist ekki mjög oft, en er flott og dramatískt. Það liggja ekki margir textar eftir Piaf en þennan samdi hún eftir að hafa misst stóru ástina í sínu lífi, hnefaleikarann Marcel Cerdan, í flugslysi. Textinn er ákall til hans og er þýddur af Þórarni Eldjárn fyrir Edith Piaf-sýninguna sem ég söng í á Akureyri árið 1985. Það var gríð- arlega vel sótt sýning og ég vona að það fólk sem þar var mæti aftur núna og rifji upp kynnin af Piaf.“ París og Prévert  Felix Bergsson, Edda Þórarinsdóttir og Jóhanna Vigdís Arnardóttir syngja á tónleikunum Paris at Night  Verða bæði á höfuðborgarsvæðinu og norðan heiða Morgunblaðið/Kristinn Edda og Felix „Mér finnst ég í alveg sérlega góðum félagsskap í þessari sýningu,“ segir Edda. 34 Menning MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2008 THE Photographers’ Gallery í London hefur tilkynnt hvaða fjórir listamenn sem vinna með ljós- myndamiðilinn, hafa verið valdir til að keppa um hin eftirsóttu verðlaun, Deutsche Börse Photography Prize. Listamenn- irnir, sem dóm- nefnd valdi úr hópi tilnefndra listamanna, eru hinn breski Paul Graham, Emily Jacir frá Palestínu og hin bandarísku Tod Papageorge og Taryn Simon. Paul Graham er tilnefndur fyrir bókina A Shimmer of Possibility, Jacir fyrir innsetningu sína á síðasta Feneyjatvíæringi, Papageorge er tilnefndur fyrir sýninguna Passing Through Eden – Photographs of Central Park í Michael Hoppen Gallery, og Simon fyrir sýninguna An American Index of the Hidden and Unfamiliar í The Photograph- ers’ Gallery. Sýning á verkum þeirra verður opnuð í galleríinu í febrúar og við lok sýningarinnar verður tilkynnt hver hlýtur verðlaunin, um fimm milljónir króna. Einar Falur Ingólfsson og Katrín Elvarsdóttir voru meðal listamann- anna sem tilnefndir voru til verð- launanna, fyrst íslenskra ljósmynd- ara. Fjögur keppa um Deutsche Börse-verð- launin Taryn Simon BLÚSKVÖLD Blúsfélags Reykjavíkur verða haldin fyrsta mánudag í hverjum mánuði á Rósenberg við Klapparstíginn í vetur. Kvöldið í kvöld er engin undantekning, en þá verður blásið til sér- stakra hátíðartónleika í tilefni af fimm ára afmæli Blúsfélags- ins. Veislan hefst kl. 21 og munu nokkrir af velunnurum félagsins koma fram á tónleik- unum. Í tilkynningu segir að þetta verði „blús- kvöld aldarinnar“ og eru allir hvattir til að mæta. Blúsfélag Reykjavíkur var stofnað hinn 6. nóv- ember árið 2003 á Kaffi Reykjavík, en forsprakki þess er Halldór Bragason. Tónlist Fimm ára afmæli Blúsfélagsins Halldór Bragason ENDURMENNTUN Háskóla Íslands verður með nokkur áhugaverð menningar- námskeið á dagskrá á næstu dögum og vikum og hefst eitt þeirra í kvöld. Þar mun dr. Vil- borg Auður Ísleifsdóttir, sagn- fræðingur, fjalla um eðli sið- skiptanna. Í námskeiðinu verður aðdragandi siðskipt- anna gerður að umræðuefni. Siðskiptin eru öðrum þræði gagnger stjórnskipunarbreyting, sem hafði áhrif á efnahagskerfi og félagskerfi íslensks samfélags. Nauðsynlegt er að athuga efnahagskerfi og stjórnkerfi miðalda úti í Evrópu og þróun kaþ- ólsku kirkjunnar. Nánar á endurmenntun.hi.is. Námskeið Aðdragandi og eðli siðskiptanna Vilborg Auður Ísleifsdóttir SÝNINGIN Handverk og hönnun hefur staðið yfir í Ráð- húsi Reykjavíkur um helgina, en henni lýkur í dag. Um er að ræða sýningu á íslensku hand- verki, listiðnaði og hönnun, en þetta er þriðja árið í röð sem sýningin er haldin. Sérstök val- nefnd valdi 54 einstaklinga til þátttöku á sýningunni, en um- sóknir voru fjölmargar. Á sýningunni eru það lista- mennirnir sjálfir sem kynna vörur sínar. Þetta er kjörið tækifæri fyrir almenning að kynna sér fjöl- breytt íslenskt handverk, listiðnað og hönnun. Op- ið er í dag frá kl. 10 til 19 og aðgangur er ókeypis. Nánari upplýsingar eru á handverkoghonnun.is. Sýning Handverk og hönnun í Ráðhúsinu Ráðhús Reykjavíkur Jacques Prévert fæddist árið 1900 og lést árið 1977. Ljóð hans eru gríð- arlega vinsæl í Frakklandi og eru kennd í skólum. Lög hafa verið gerð við mörg ljóða Préverts. Fjölmargir listamenn hafa sungið texta hans inn á plötur, þar á meðal Yves Montand, Edith Piaf og Joan Baez. Prévert skrifaði kvikmynda- handrit, þar á meðal handrit Les enfants du paradis sem Marcel Carné leik- stýrði og er af mörgum talin meðal bestu kvikmynda allra tíma. Ljóðabók hans Parole kom út í íslenskri þýðingu Sigurðar Pálssonar árið 1987 undir heitinu Ljóð í mæltu máli. Gríðarlega vinsæll STEINUNN Soffía Skjenstad sópransöngkona hlaut þriðju verð- laun í hinni alþjóðlegu Joseph Su- der ljóðasöngskeppni sem fram fór í Nürnberg í Þýskalandi 10.- 12. október. Þar tók Steinunn þátt ásamt þýska píanistanum Evu Barta og hlutu þær 2.100 evrur að launum. „Þetta gekk vel. Æfinga- tímabilið var erfitt en þegar á hólminn er komið ýtir maður öllu öðru til hliðar og nýtur þess að fá að gera tónlist fyrir fólk,“ segir Steinunn. Verðlaunin gætu opnað henni dyr í tónlistarheiminum þó ekkert sé fast í hendi. „Skipu- leggjendur reyna að útvega manni tónleika í framhaldinu, en ég hef ekkert heyrt ennþá.“ Það besta sem í henni býr Keppnin, sem fram fer annað hvert ár, er ætluð söngvurum 35 ára og yngri og leggur áherslu á ljóð þýska tónskáldsins Joseph Suder sem og þýsk sönglög frá 20. öld. Tilgangur keppninnar er að hvetja unga söngvara til að kynna sér þýskan ljóðasöng á 20. öld og fór hún fyrst fram árið 1994. „Ég söng lög eftir Suder og sam- tímamenn hans, Richard Strauss og önnur minna þekkt tónskáld. Ég reyndi að velja verk sem passa röddinni minni og setja saman fjölbreytt og gott prógramm. Ég vildi sýna það besta sem í mér býr,“ segir Steinunn. Í vetur stundar Steinunn fram- haldsnám í ljóðasöng í Hamborg, Þýskalandi ásamt Evu Barta und- ir leiðsögn Burkhard Kehring. Það er nóg að gera hjá henni á næst- unni í námi og starfi. „Það eru tónleikar framundan, en síðan er ekkert langtímaplan, nema að ljúka námi og reyna að koma sér áfram. Það er hér í Þýskalandi sem helsti markaðurinn fyrir ljóðasöng er. Það er mikið um að vera hér og þetta er mjög al- þjóðlegt, sem útlendingur fær maður alveg tækifæri líka.“ Á verðlaunapalli í ljóðasöngkeppni Þriðja sæti Steinunn Soffía. Í HNOTSKURN »Steinunn lauk B.Mus.-gráðu í söng frá Listahá- skóla Íslands undir leiðsögn Elísabetar Erlingsdóttur. » Í vor útskrifaðist hún meðmastersgráðu í óperusöng frá Síbelíusarakademíunni í Helsinki. BANDARÍSKI rithöfundurinn Studs Terkel lést á heimili sínu í Chicago á föstudaginn, 91 árs að aldri. Terkel hlaut Pulitzer- verðlaunin árið 1985 fyrir bók sína The Good War, en bókin samanstendur að mestu af viðtölum við hermenn í síð- ari heimsstyrj- öldinni, og að- standendur þeirra. „Faðir minn lifði löngu, fullnægj- andi, viðburðaríku, stormasömu en mjög góðu lífi,“ sagði sonur Terkels í yfirlýsingu. Auk ritstarfanna var Terkel út- varpsmaður í Chicago í fjörutíu ár. Þá fékkst hann einnig nokkuð við leiklist. Studs Terk- el látinn Studs Terkel

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.