Morgunblaðið - 03.11.2008, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 03.11.2008, Blaðsíða 40
„Við náðum að kreista síðustu dropana úr góðærinu,“ segir Snorri kankvís. „En við urðum ekki ríkir af þessu spileríi,“ bætir Bergur við. „Það fer mikið í skatta og skyldur og við unn- um allir fasta vinnu með. Við fórum ekki alla leið í að gera þetta að út- gerð. Við sláum ekki hendinni á móti giggum en markmiðið var ekki að gera þetta að peningamaskínu. Markmiðið er listrænt – en um leið höfum við ekkert á móti því að fá greitt fyrir að spila.“ Ný plata Sprengjuhallarinnar ber heitið Bestu kveðjur. Í poppfræðum er ávallt talað um „hina erfiðu plötu númer 2“, því að þá kemur fyrst í ljós hvort fyrsta platan hefur verið nýja- brum eitt, jafnvel hundaheppni. Eftir nokkuð magnaða ljós-myndunartörn við Rauða-vatn, þar sem Sprengjuhöll- in var í bókstaflegri merkingu á hálum ís keyrum ég, Bergur Ebbi Benediktsson og Snorri Helgason, söngvarar og gítarleikarar, rakleitt inn í Árbæinn. Förinni er heitið á Blástein, hinn einstaka hverfisveit- ingastað, þar sem ætlunin er að spjalla saman og snæða. Staðurinn er hins vegar lokaður, blaðamanni til mikillar hrellingar, og því er stímt á Ruby Tuesday í staðinn. Ekki nálægt því eins svalt, það verður að við- urkennast... Góðærið kreist „Við höfum alltaf verið með góð plön,“ segir Snorri, spurður um hugs- anlegar skýringar á gríðarlegri vel- gengni Sprengjuhallarinnar á síðasta ári en þá staflaði sveitin upp smell- um, spilaði fyrir alla og engan og seldi fyrstu plötu sína, Tímarnir okk- ar, í þúsunda tali. „Við setjumst niður og drögum upp áætlanir. Í alvörunni. En þetta gekk mun hraðar fyrir sig en við áttum von á, ég viðurkenni það.“ Bergur bætir í: „Þetta var eig- inlega eins og að vera í tölvuleik. Sim- City eða eitthvað. En bandið er a.m.k. vel rekið, það er klárt.“ Bandið spilaði og spilaði og vílaði ekki fyrir sér að taka inn árshátíðir. Sá bandið ekki heilmikla peninga? Ekki tími „Við erum búnir að vera stanslaust að síðan fyrsta platan kom út og höf- um hreinlega ekki haft tíma til að velta þessu fyrir okkur,“ segir Snorri. Bergur segir þá hins vegar hafa mjög gaman af öllum svona minnum úr poppsögunni, en platan „erfiða“ er hugtak sem lifir nær eingöngu í fag- ritum af þeim toga og í munni gagn- rýnenda. „Við elskum allar poppklisjur,“ segir Bergur með festu. „Við höfum ekkert á móti því að það gangi illa líka. Ég væri alveg til í að standa í málaferlum við útgáfuna, af því að slíkir hlutir gerast reglulega í popp- heimum. Ég fíla allt þetta í kringum það að vera í hljómsveit og við erum alveg meðvitaðir um þennan „leik“ sem þetta er.“ Bergur og co. hafa þá væntanlega fagnað því þegar „smáskífa“ þeirra frá því í sumar „floppaði“ og sló „ekki í gegn“ eins og öll síðustu lög sveit- arinnar sem sett hafa verið í spilun. Partur af prógramminu? Bergur hlær. „Ja … við vorum ekki svekktir eða neitt svoleiðis. Við höfum ekki pælt mikið í þessu. Og „Fló á Skinni“ lagið sem við sendum frá okkur fyrr á árinu gerði heldur ekki neinar glorí- ur. En ég hef trú á því að fólk upp- götvi lagið eftir ca. tuttugu ár. Þetta verður svona „falinn fjársjóður“ þeg- ar saga Sprengjuhallarinnar verður reifuð (hlær).“ Snorri segir enda að þetta hafi að sjálfsögðu verið markmiðsbundið flopp til að halda poppfræðingunum á tánum. „Við erum alltaf að passa okk- ur á því að halda þeim vel við efnið...“ Það var ekki svo að blaðamaður legði upp með að grilla þá Berg og Snorra eins og hamborgarana sem við gæddum okkar á. En það virðist hægðarleikur einn, auk þess sem það er freistandi, að skjóta svolítið á þá. En þeir hrökkva aldrei í vörn, heldur svara bara með hægð – og það af miklu öryggi. Óþolandi! „Ég held að við séum nú orðnir nokkuð þéttir,“ svarar þannig Bergur og brosir þegar blaðamaður ber það undir þá að þeir hafi verið kallaðir óþéttir, textarnir rími ekki, hann sé vita laglaus auk þess sem hann kunni ekki að spila á gítarinn. „En við verðum aldrei „full- komnir“. Við erum ekki að leita eftir þessum „þéttleika“ sem ballbönd vilja vera haldin. Og þetta með text- ana, ég kann alveg þessa bragfræði en stundum er bara sjarmerandi að ríma Herjólfur við „berja mig“ eða hvað það nú er. Það setur svona kæruleysislegt „twist“ á þetta.“ Í taugarnar Snorri segir að þeir félagar hafi komið vel undirbúnir í allar upptökur í Gróðurhúsi Valgeirs Sigurðssonar. Allir grunnar hafi verið klárir og vel æfðir en tónlistin flóði úr þeim í kjöl- far fyrstu plötunnar og þessi plata hefði þess vegna getað komið út fyrir löngu. Bandið sé nánara en nokkru sinni, mikil gengistilfinning sé í hópn- um enda voru þeir saman upp á hvern einasta dag í sumar. Snorri minnist þeirra tíma er hann var í grasrótardæminu eins og hann kallar það (hann var í hljómsveitinni SAAB ásamt Sigga trommara og Högna úr Hjaltalín) og þá var spilað á efri hæðinni á Dillon og slíkum stöðum „Það dæmi snerist bara um það að vera kúl,“ rifjar hann upp. „Svo kynnist ég strákunum og þá eru þeir alltaf smælandi á tónleikum og alltaf að fíflast. Mér fannst það meirihátt- ar. Þetta var eitthvað glænýtt, maður hafði ekki átt að venjast þessu. Það var hressandi að losna við þennan endalausa alvarleika“ Það var nefnilega mikið rætt og ritað um Sprengjuhöllina á sínum tíma og hún sögð leiða inn nýja bylgju í íslenskri tónlist þar sem gáska og gleði var skipt inn á fyrir al- varlegheit og íbyggni. Meðlimir horfðu hlæjandi fram í sal í stað þess að horfa djúpspakir niður á skóna sína. Þá vantaði ekki yfirlýsingarnar frá meðlimum, þeir voru (og eru) kokhraustir og hafa verið sakaðir um sjálfumgleði og spjátrungshátt vegna þessa. Þetta minnir helst á það þegar The Smiths kom fram á sínum tíma. Fyrir þeim voru hlutirnir einfaldir: Við erum bestir. „Maður veit alveg af þessu umtali,“ segir Snorri. „Þetta fer ekkert í taug- arnar á mér ...en ég skil vel að við för- um í taugarnar á fólki! (hlær).“ Sameinumst Snorri segir að velgengni sé nefni- lega í eðli sínu pirrandi, að maður tali ekki um svona „glimrandi success“ eins og Sprengjuhöllin naut í fyrra eins og hann orðar það. Endurkoma hinna almáttugu Sprengjuhöllin kom inn í íslenskt tónlistarlíf með … ja … mikilli sprengingu fyrir hartnær tveimur árum. Þessi mikla spútniksveit gefur út hina margfrægu „erfiðu plötu númer 2“ á föstudaginn sem er að sjálfsögðu „mun betri“ en síðasta verk að áliti sveitarmeðlima, sem eru að vanda með munninn kirfilega fyrir neðan nefið. Arnar Egg- ert Thoroddsen ræddi við tvo þeirra á Ruby Tu- esday, af öllum stöðum. Morgunblaðið/Valdís Thor Eitthvað glænýtt „Svo kynnist ég strákunum og þá eru þeir alltaf smælandi á tónleikum og alltaf að fíflast. Mér fannst það meiriháttar. Þetta var eitthvað glænýtt, maður hafði ekki átt að venjast þessu,“ segir Snorri Helgason um fyrstu kynni sín af hljómsveitarfélögunum. MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2008 / ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 6D - 7:30 - 8:30D - 10:10 B.i. 12 ára DIGITAL HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 5:30 LÚXUS VIP EAGLE EYE kl. 5:40 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára EAGLE EYE kl. 8 - 10:30 LÚXUS VIP SEX DRIVE kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 12 ára NIGHTS IN RODANTHE kl. 8 LEYFÐ THE DARK KNIGHT kl. 10:10 B.i. 12 ára DARK KNIGHT SÝND Í TAKMARKAÐAN TÍMA V/ FJÖLDA ÁSKORANA GEIMAPARNIR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ ZACH EFFRON OG VANESSA HUDGENS GERA ALLT VITLAUST Í HIGH SCHOOL MUSICAL 3! SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELDOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG SELFOSSI TOPP GRÍNMYND SEX DRIVE FER FRAM ÚR AMERICAN PIE Á 100 KM HRAÐA! „VIÐBJÓÐSLEGA FYNDIN OG SKEMMTILEG GRÍNMYND. KLÁRLEGA EIN AF ÓVÆNTARI RÆMUM ÁRSINS. TÉKKIÐ Á HENNI!” -TOMMI, KVIKMYNDIR.IS HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 5:40D - 8D - 10:30D LEYFÐ DIGITAL EAGLE EYE kl. 8D - 10:30D B.i. 12 ára DIGITAL SEX DRIVE kl. 8:20 - 10:30 B.i. 12 ára JOURNEY TO THE CENTER ... kl. 5:503D LEYFÐ 3D - DIGITAL WILD CHILD kl. 5:50 LEYFÐ „STÆRSTA OPNUN Á DANS & SÖNGVAMYND ALLRA TÍMA Í U.S.A“ VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.