Fréttablaðið - 06.05.2009, Page 2
2 6. maí 2009 MIÐVIKUDAGUR
Tómas, ertu ekki örugglega á
landgrunninu ennþá?
„Nei, ég er að berjast gegn ólögleg-
um fiskveiðum á fundi FAO í Róm.
Mig dreymir hins vegar um að fara
með kafbát suður eftir Reykjanes-
hrygg og sjá landgrunn okkar með
berum augum.“
Tómas H. Heiðar er þjóðréttarfræðingur
hjá utanríkisráðuneytinu sem gerir kröfur
um að landgrunn Íslands nái 850 mílur
frá landinu suður eftir Reykjaneshrygg.
Tómas er nú á ráðstefnu í Róm.
KRÓATÍA, AP Króatísk stjórnvöld
sögðust í gær hafa fallist á að deila
þeirra við grannríkið Slóven-
íu um lögsögu-
mörk í Adría-
hafi yrði leyst
fyrir alþjóð-
legum gerð-
ardómi. Deil-
an, sem staðið
hefur allt frá því
bæði Slóvenar
og Króatar lýstu
yfir sjálfstæði
við upplausn gömlu Júgóslavíu
fyrir átján árum, stefndi annars í
að verða hindrun í vegi fyrir inn-
göngu Króatíu í Evrópusamband-
ið. Króatar hafa gert sér vonir um
að af henni geti orðið árið 2011.
Stipe Mesic Króatíuforseti
sagði að allir flokkar landsins
hefðu fallist á að reynt yrði að
leiða landamæradeiluna til lykta
með þessum hætti. Slóvenar, sem
gengu í ESB fyrir fimm árum,
þurfa líka að fallast á þessa máls-
meðferð til að af henni verði. - aa
Króatía og Evrópusambandið:
Lögsögudeila
fyrir gerðardóm
STJÓRNMÁL Þingflokkarnir sem áttu sæti á Alþingi
fyrir síðustu kosningar eyddu rúmlega 54 millj-
ónum króna í auglýsingar í kosningabaráttunni,
samkvæmt samantekt Creditinfo sem Fréttablaðið
hefur undir höndum. Sjálfstæðsflokkur og Sam-
fylking eyddu mestu fé; tæpri þrettán og hálfri
milljón hvor flokkur. Vinstri græn koma skammt
á hæla þeirra, en þar á bæ eyddu menn tæplega
þrettán milljónum í auglýsingar.
Creditinfo fylgdist með eyðslu flokkanna frá
30. mars og fram að kosningum hinn 25. apríl. Í
aðdraganda kosningabaráttunnar komu flokkarn-
ir fimm sér saman um að eyða ekki meira en fjór-
tán milljónum króna í auglýsingar, og virtu allir
flokkarnir þau mörk. Eyðsla Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingar nam rúmlega 96 prósentum af þeim
fjórtán milljónum sem flokkarnir höfðu komið sér
saman um, á meðan Vinstri græn eyddu rúmum
92 prósentum af þeirri upphæð. Sérblöð eru ekki
innifalin í útreikningum Creditinfo, þar sem sam-
komulag flokkanna var ekki nægjanlega skýrt um
það atriði. - kg
Samantekt Creditinfo um eyðslu þingflokka í kosningabaráttunni:
Eyddu 54 milljónum í auglýsingar
PAKISTAN, AP Friðarsamkomulag ríkisstjórnar Pakist-
ans við talibanahreyfinguna í norðvesturhluta lands-
ins er runnið út í sandinn. Pakistansher býr sig undir
enn harðari átök í Swat-dal, þar sem herinn hefur sótt
hart að talibönum undanfarið.
Herinn gerði hlé á átökum í gær til að gefa íbúum
tækifæri til að forða sér. Ríkisstjórnin sagðist
reikna með að um hálf milljón manna notaði sér
tækifærið.
Asif Ali Zardari, forsætisráðherra, er á leiðinni
til Bandaríkjanna að ræða við þarlenda ráðamenn.
Bandaríkjamenn hafa viðrað áhyggjur af því að Pak-
istanar ráði ekki við uppreisnarsveitir talibana, sem
taldar eru hafa gott svigrúm til að athafna sig í hér-
uðum pastúna norðvestan til í Pakistan.
Talibanar njóta víðtæks stuðnings meðal ættbálka
pastúna, sem eru fjölmennir beggja vegna landa-
mæranna í Afganistan og Pakistan.
Muslim Khan, talsmaður talibana, fullyrðir að tali-
banar ráði yfir níutíu prósentum Swat-dals, þar sem
átökin við stjórnarherinn hafa verið hörðust.
Hann sakar stjórnina um að hafa sent herinn á
vettvang vegna þrýstings frá Bandaríkjunum: „Allt
kemst í samt lag aftur strax og leiðtogar okkar hætta
að bugta sig og beygja fyrir Bandaríkjamönnum,“
sagði hann. - gb
Pakistansher býr sig undir stríð við talibana í Swat-dalnum:
Samkomulagið út um þúfur
ÍBÚAR FLÝJA ÁTAKASVÆÐIÐ Stjórnarherinn gerði hlé á átökum
í gær til að gefa íbúum tækifæri til að forða sér. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FÓLK „Mér finnst þetta vera svo
mikið svínarí. Í raun og veru er
þetta eins og svikin vara,“ segir
Björg Gunnarsdóttir, sem er afar
ósátt við að minnismerki á leiðum
foreldra hennar í Gufuneskirkju-
garði sé þeim til fóta.
Frétt Fréttablaðsins frá því
síðastliðinn föstudag um leiðin í
kirkjugörðum höfuðborgarsvæð-
isins hefur vakið nokkur viðbrögð
meðal eftirlifandi aðstandenda.
Fram kom að hinir látnu snúa allir
í sömu átt og að vegna stígakerfa
garðanna þýðir það að á helmingi
leiðanna eru legsteinar til fóta.
Þórsteinn Ragnarsson, for-
stjóri Kirkjugarða Reykjavíkur,
segir fyrirkomulagið alls ekki
einsdæmi. „Þetta skipulag er í
gamla Hólavallagarðinum, í Foss-
vogi, norður á Akureyri og víðar
á Íslandi og í allflestum görðum í
borgum í Evrópu. Það er einfald-
lega verið að nýta plássið,“ segir
Þórsteinn.
Aðspurður segist Þórsteinn ekki
muna eftir því á fimmtán ára ferli
að óskað hafi verið eftir flutningi á
kistum á þessum tilteknu forsend-
um. Stundum sé fólk flutt til en það
sé til að sameina skyldmenni.
Móðir Bjargar var borin til graf-
ar árið 2001. „Við uppgötvuðum
þetta bara þegar kistan hennar
mömmu var látin síga niður í gröf-
ina. Pabbi minn var alltaf óánægð-
ur með þetta og við vorum að spá í
að láta flytja hana,“ segir Björg.
Aldrei varð þó af því að óskað
væri eftir flutningi á kistu móður
Bjargar. Hún segir þau feðginin
hins vegar hafa rætt við starfs-
menn kirkjugarðsins sem hafi
sagt mögulegt að hafa legstein
við höfðalagið þótt hann myndi þá
vera úti við stíginn. Af þessu hafi
heldur ekki orðið enda hafi þeim
fundist steinninn mundu stinga
í stúf við önnur minnismerki. Á
árinu 2007 hafi faðir hennar látist
og nú sé hann jarðsettur við hlið
konu sinnar.
Þórsteinn segir koma til greina
að minnismerki séu úti við stíg,
jafnvel þótt það torveldi umhirðu
í garðinum. „Það er enginn sem
segir að það þurfi allt að vera í ein-
hverri rúðustrikaðri línu,“ svarar
hann.
„Mér finnst þeim bera skylda til
að láta mann vita um þetta. Maður
áttar sig bara ekki á þessu þegar
stæði er valið. Ég er alveg hund-
óánægð ennþá í dag með þetta,“
segir Björg.
Um þetta segir Þórsteinn að
það séu útfararstofur og stund-
um prestar sem sæki um grafir
fyrir fólk. Það væri því helst þess-
ara aðila að upplýsa aðstandendur.
Þótt það sé það mikill minnihluti
sem geri athugasemdir geri hann
ekki lítið úr tilfinningum þeirra
sem það geri. „En það er mjög mik-
ill meirihluti sem lætur sér þetta í
léttu rúmi liggja.“
gar@frettabladid.is
Grafir með legsteina
til fóta sagðar vörusvik
Björg Gunnarsdóttir segir grafstæði foreldra sinna í Gufuneskirkjugarði svikna
vöru. Láta eigi vita áður ef legsteinar verði til fóta. Flestir láta sér það í léttu
rúmi liggja, segir kirkjugarðsforstjóri. Skipulagið sé eins og í borgum Evrópu.
FRÉTTABLAÐIÐ 1.
MAÍ Kona sem fylgdi
eiginmanni sínum til
grafar í febrúar sagðist í
Fréttablaðinu á föstu-
dag óánægð með að
legsteinn hans – og þar
með síðar hennar – væri
til fóta á leiðinu.
FÓLK „Hugsaðu þér vonbrigðin,“ segir Ingibjörg Auður Ingvadóttir, sem í febrúar jarðsetti eiginmann sinn og komst síðan að því að leg-steinninn á gröfinni verður að vera til fóta.
Eiginmaður Ingibjargar hvílir í Gufuneskirkjugarði í Grafarvogi. Þar snúa allir hinir látnu ásjónu mót austri. Vegna uppbyggingar garðsins snýr helmingur leiðanna þannig að höfuð hinna látnu snúa að göngustígum en helmingur frá þeim. Síðan er reglan þannig að legsteinar og krossar á leiðun-um eiga að vera í þeim enda leið-anna sem snýr frá stígunum. Þetta þýðir að við helming leiðanna eru legsteinar til fóta og helmingur við höfðalagið. Þetta á líka við um aðra nýrri kirkjugarða á svæði Kirkju-garða Reykjavíkurprófastsdæm-is að sögn Þorgeirs Adamssonar garðyrkjustjóra.
„Ég á að vera við hliðina á mann-inum mínum og sætti mig ekkert við að vera með fæturna upp við steininn sem ég ætla að hafa við höfðalagið,“ segir Ingibjörg, sem sjálf er orðin 74 ára gömul og er farin að svipast um eftir sameigin-legum legsteini fyrir þau hjón-in. Hún kveðst hafa beðið um að maðurinn hennar yrði fluttur. „Þá var mér sagt að ég yrði að fara í kirkjumálaráðuneytið og að það væri ansi mikið mál. Ég veit ekki hvað ég geri.“
Þorgeir Adamsson segir ekk-ert hægt að gera fyrir Ingibjörgu úr því að eiginmaður hennar hafi þegar verið jarðsettur. „Þetta er búið og gert. Það er algjört neyðar úrræði að færa til kistur
og við gerum það helst ekki,“ segir hann.
Að sögn Þorgeirs gera fáir athugasemdir við fyrirkomulagið sem tíðkast. „Allur þorri aðstand-enda sættir sig við þetta eins og það hefur verið undanfarna ára-tugi,“ segir hann en bendir á að sé óskað eftir því fyrir fram að minnismerki komi við höfðalagið sé hægt að verða við því.Þorgeir segir hugmyndafræðina að baki því að allir snúi ásjónu mót austri vera þá að þá vísi þeir mót sólarupprásinni. Þetta sé þó ekki þannig í Fossvogskirkjugarði en þar snúi þó allir eins. „Undanfarna
áratugi hefur það verið vinnuregla að minnismerki eru sett þannig á grafirnar að þau vísi út að stígun-um en snúi ekki í þá baki,“ segir Þorgeir og útskýrir að það auð-veldi bæði álestur á legsteinana og umhirðu í garðinum að hafa þá ekki út við stígana.
Ingibjörg telur hins vegar að hönnun garðanna sé mistök. „Arkitektinn hlýtur að hafa getað hannað göturnar þannig að allir gætu notað höfðalagið. Það er allt-af verið að stjórna fólki og það má helst enginn vita neitt. Það var bara tilviljun að ég komst að þessu.“ gar@frettabladid.is
Legsteinninn til fóta
við aðra hverja gröfIngibjörg Auður Ingvadóttir segir það hafa verið mikil vonbrigði að uppgötva eftir jarðsetningu eiginmanns síns að legsteinn við gröf þeirra hjóna verði að vera þeim til fóta. Búið og gert, segir garðyrkjustjóri Kirkjugarða Reykjavíkur.
Í GUFUNESKIRKJUGARÐI Ásjónur hinna látnu vísa allar mót sólarupprásinni en helm-
ingurinn snýr þannig við stígakerfi kirkjugarðsins að legsteinarnir eru til fóta en ekki
við höfðalagið.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
j, kg g ðir til óbóta. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
M i
u
pt
túni
í
r-
til
m-
ð
ti-
rir
ví
ð-
n
ð
h
ni:
tt
LÖG
bor
fjór
veg
brot
und
Þr
tekn
þeir
fjórð
eftir
kynn
eru a
Ein
Héra
krafi
vegn
á Self
í Hve
regla
handt
vegna
Gr
Fj
h
y
J
I
d
s
f
b
d
m
h
þú
in
H
gr
áð
ÞÓRSTEINN
RAGNARSSON
Atvinnuleysi 9,5 prósent
Spá um þróun atvinnuleysis segir til
um að atvinnuleysi verði hér hæst
9,5 prósent fram í júní, en muni svo
lækka aftur fram í september. Þetta
kom fram á blaðamannafundi ríkis-
stjórnarinnar í gær.
ATVINNUMÁL
EYÐSLA FLOKKA Í AUGLÝSINGAR
FYRIR KOSNINGAR
Flokkur Samtals eyðsla Hlutfall*
Sjálfstæðisflokkurinn 13.477.348 96,3%
Samfylkingin 13.456.589 96,1%
Vinstri græn 12.942.255 92,4%
Framsóknarflokkurinn 11.489.344 82,1%
Frjálslyndi flokkurinn 3.107.204 22,2%
Samtals 54.472.740 77,8%
Tölur í milljónum króna
*Hlutfall af þeim 14 milljónum sem hver flokkur mátti eyða
Heimild: Creditinfo
SVEITARSTJÓRNIR Ólafur F. Magn-
ússon borgarfulltrúi tilkynnti
í gær að hann segði skilið við
Frjálslynda flokkinn og að
hann hygðist leiða nýtt framboð
óháðra í borgarstjórnarkosning-
um á næsta ári.
Í ræðu sem Ólafur hélt á borg-
arstjórnarfundi í gær sagðist
hann ekki hafa getað stutt
Frjálslynda flokkinn í nýaf-
stöðnum alþingiskosningum
vegna þess að forysta flokks-
ins hefði boðað „gegndarlitla
ofveiði-ofurvirkjanastefnu“ og
ekkert hugsað um næstu kyn-
slóðir. Sjálfur hefði hann í borg-
arstjórn oftast einn staðið vörð
um verndun umhverfisins og
náttúruminja.
Ólafur áætlar að bjóða fram
undir merkjum H-lista og með
einkunnarorðunum „Hrein-
skilni, hæfni, heiðarleiki“. - gar
Ólafur F. Magnússon:
Slítur samstarfi
við F-listann
ÓLAFUR F. MAGNÚSSON Sakar forystu
Frjálslynda flokksins um dugleysi, óráð-
síu og illt umtal um félagana.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STJÓRNMÁL „Ég tel það heppilegt
ef aðrir en fulltrúar Samfylkingar
verða í forystu í viðræðunefnd
við Evrópusambandið ef af þeim
verður,“ segir Birkir Jón Jónsson,
varaformaður Framsóknarflokks-
ins. Ástæðuna segir hann vera að
óljóst sé hvaða samningsmarkmið
Samfylkingin hafi sett sér. „Skil-
yrðin þurfa að vera mjög skýr,“
segir Birkir Jón.
Hann minnir á að ekkert hafi
komið frá ríkisstjórnarflokkunum
um stöðu þessara viðræðna og því
verði ekki tekin afstaða til málsins
fyrr en niðurstaðan verði ljós. - ss
Framsóknarflokkurinn:
Treystir ekki
Samfylkingu til
forystu í ESB
STJÓRNMÁL „Á landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins var ákveðið
að ef þingið færi að hreyfa sig
í þessu máli [Evrópumálum]
myndum við krefjast tvöfaldrar
atkvæðagreiðslu. Við munum
ekki hlaupa frá því,“ segir
Bjarni Benediktsson um mögu-
legan stuðnings hans flokks við
þingsályktunartillögu um aðild-
arviðræður við Evrópusam-
bandið.
Hann segir það skipta máli
að ríkisstjórnin sé einhuga um
málið á þingi. Ekki sé hægt að
taka því af alvöru ef Samfylk-
ingin standi ein að baki því. - ss
Sjálfstæðisflokkurinn:
Munu vilja tvö-
falda kosningu
STIPE MESIC
SPURNING DAGSINS