Fréttablaðið - 06.05.2009, Blaðsíða 10
10 6. maí 2009 MIÐVIKUDAGUR
VELFERÐARMÁL Aukin hætta á afbrot-
um, mansali og heimilisofbeldi,
samfara kreppunni, er meðal
þess sem kemur fram í fyrstu
áfangaskýrslu Jafnréttisvaktar-
innar, vinnuhóps félagsmálaráð-
herra sem meta á áhrif efnahags-
ástandsins á stöðu kynjanna. Þá er
lagt til að þess sé gætt að umönn-
un sjúklinga verði ekki velt yfir á
heimilin með ótímabærri útskrift
þeirra af heilbrigðisstofnunum.
„Staða kynjanna var ójöfn fyrir
efnahagshrunið,“ segir Bryndís
Ísfold Hlöðversdóttir, formað-
ur nefndarinnar og bendir á að
bæði hafi tíðkast launamunur
kynjanna og mikil kynjaskipt-
ing innan atvinnugreina. Þannig
séu konur fjölmennari í störfum
hjá hinu opinbera og í láglauna-
stöfum. „Það skiptir því máli
að standa vörð um það jafnrétti
sem hefur náðst og halda áfram
í jafnréttisátt.“
Í skýrslunni er bent á að karl-
ar hafi mun frekar misst vinnuna
en konur. Hins vegar sé hætta á
að konur missi frekar vinnuna,
til lengri tíma litið og að þær fái
síður vinnu aftur en karlar.
Leggur skýrslan til að ríkisvald-
ið leggi áherslu á að verja störf
þeirra sem veikar standa, eins
og störf tekjulágra einstaklinga.
Þá verði það tryggt að aðgerðir í
þágu atvinnusköpunar takmarkist
ekki eingöngu við mannaflsfrekar
framkvæmdir sem gagnist körlum
frekar en konum og störf hjá hinu
opinbera varin.
„Sérfræðingar benda á að þegar
að þrengir og í miklu atvinnuleysi,
þá sé mikil hætta á auknu heimil-
isofbeldi,“ segir Bryndís. Því legg-
ur nefndin sérstaklega til að lögð
verði fram forvarna- og viðbragðs-
áætlun um aukinn viðbúnað gegn
hættu á heimilisofbeldi. Stuðning-
ur við fórnarlömb ofbeldis verði
aukinn, til dæmis í gegnum Stíga-
mót og Kvennaathvarfið. Þá verði
hugað að því að lögleiða „austur-
ísku leiðina“, sem gefur lögreglu
heimild til að fjarlægja ofbeldis-
mann af heimili.
„Skýrslur sýna að það eru fleiri
konur, sem hafa orðið fyrir heim-
ilisofbeldi, sem fara aftur heim í
óbreytt ástand. Þetta er birtingar-
mynd þess að í kreppu er erfiðara
að losa sig úr ofbeldissambönd-
um,“ segir Bryndís. Hún bendir
á að efnahagsleg staða einstæðra
foreldra sé verri en annarra og að
einstæðar mæður séu í meiri hættu
að falla í fátækt. „Þær sitja þá frek-
ar í ofbeldissambandi, sem er mjög
slæmt. Það þarf að tryggja að þær
fái meiri þjónustu, til dæmis frá
Kvennaathvarfinu og félagsþjón-
ustum, sem nái yfir lengri tíma.“
svanborg@frettabladid.is
Auka þarf viðbúnað
vegna heimilisofbeldis
Verja þarf störf tekjulágra í velferðarkerfinu, auka viðbúnað vegna hættu á
auknu heimilisofbeldi og að umönnun sjúklinga verði ekki velt yfir á heimilin,
er meðal þess sem lagt er til í fyrstu áfangaskýrslu Jafnréttisvaktarinnar.
BRYNDÍS ÍSFOLD HLÖÐVERSDÓTTIR Segir mikilvægt að standa vörð um það jafnrétti
sem hefur náðst og að halda áfram í jafnréttisátt.
SJÁVARÚTVEGUR Steingrímur J.
Sigfússon sjávarútvegsráðherra
segir að með frjálsum veiðum
í sumar sé verulega komið til
móts við álit mannréttinda-
nefndar Sameinuðu þjóðanna,
en nefndin átaldi íslenska
kvótakerfið og krafðist breyt-
inga á því.
Ráðherra segir gagnrýnina
hafa að mestu snúist að því að
leiðin inn í greinina væri ekki
greið og mönnum væri þannig
mismunað.
Hann segir að bréfaskipti hafi
átt sér stað á milli forvera hans
og nefndarinnar og hann hafi
beðið um skjól vegna ástandsins
í samfélaginu.
Steingrímur vildi ekki upp-
lýsa hvort ný ríkisstjórn myndi
breyta kvótakerfinu.
- kóp, ss
Steingrímur J. Sigfússon:
Frjálsar veiðar
bæta kerfið
UNGVERJALAND, AP Þúsundir syrgj-
enda komu í jarðarför Jeno
Koka á miðvikudag í Ungverja-
landi. Koka var fimmti ungverski
sígauninn sem myrtur hefur
verið á stuttum tíma. Ungverska
lögreglan telur sökudólgana alla
tilheyra sama hópnum.
Lögreglan býður nú tæplega
30 milljónir króna fyrir upplýs-
ingar um glæpina og hefur þeim
lögreglumönnum sem rannsaka
málin verið fjölgað.„Dæmi er
um óteljandi slík morð, en enn
sem komið er hefur lögreglunni
ekki tekist að hafa hendur í hári
glæpamannanna,“ segja mann-
réttindasamtök sígauna. - ss
Ungverjaland:
Fimm sígaunar
verið myrtir
NOREGUR Skothríð dundi í barna-
skólanum Kanebogen utan við
Harstad í Noregi þegar níu ára
gamall strákur skaut af hagla-
byssu, fyrst á nemanda fyrir utan
skólann og svo á aðra nemendur
sem voru inni á skólasvæðinu,
áður en kennara tókst að afvopna
hann.
Talið er að þetta sé í fyrsta sinn
sem nemandi í norskum skóla
skýtur haglaskotum í barnaskóla.
Áður hafa nemendur aðeins verið
teknir með loftbyssur.
Norska blaðið Aftenbladet rifj-
ar upp að lögreglu hafi grunað
að strákar allt niður í tíu ára hafi
skotið á nemendur við Porsgrunn-
skóla árið 2007. Árið 2005 hafi 29
ára gamall maður verið skotinn
í fótinn í átökum við 22 ára nem-
endur við Hersleb-skóla í Ósló en
enginn þeirra var í skólanum. - ghs
Skóli í Noregi:
Nemandi skaut
úr haglabyssu
PÁFUGLAR Í KABÚL Nokkrir páfuglar
voru til sýnis og sölu á götu í Kabúl í
Afganistan. Ríkir Afganar kaupa gjarn-
an slíka fugla til að hafa sem gæludýr,
og kostar parið um þrjátíu þúsund
krónur. NORDICPHOTOS/AFP