Fréttablaðið - 06.05.2009, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 06.05.2009, Blaðsíða 40
24 6. maí 2009 MIÐVIKUDAGUR > LYKILMAÐURINN Hólmar Örn Rúnarsson styrkti lið Keflavíkur gríðar- lega mikið er hann gekk aftur í raðir liðsins frá Silkeborg í Danmörku skömmu fyrir tímabilið í fyrra. Hann var einn besti leikmaður mótsins og átti ríkan þátt í velgengni Keflavíkurliðsins sem að lokum varð að sætta sig við annað sæti deildarinnar. Það mun jafnvel mæða enn meira á honum í sumar þar sem Keflavík hefur misst marga sterka leikmenn frá síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ SPÁIR KEFLAVÍK 4. SÆTINU Í PEPSI-DEILDINNI 2009 GENGI SÍÐUSTU ÁRA 2008 2. sæti í A-deild 2007 6. sæti í A-deild 2006 4. sæti í A-deild 2005 4. sæti í A-deild 2004 5. sæti í A-deild 2003 1. sæti í B-deild JÓHANN B. GUÐMUNDSSON SÍMUN SAMUELSEN GUÐJÓN ÁRNI ANTONÍUSSON GENGI Á VORMÓTUNUM Sigrar Jafntefl i Töp 2 3 > X-FAKTORINN Markvörður og miðverðir Keflavíkur frá síðasta tímabili verða ekki með í sumar. Ómar Jóhannsson markvörður er meiddur og þrír miðverðir fóru frá liðinu í vetur. Það verður því nýtt hjarta sem mun slá í vörn Keflavíkurliðsins í sumar. Keflavík var hársbreidd frá því að vinna Íslands- meistaratitilinn síðasta sumar en missti hann í hendur FH-inga í lokaumferðinni. Síðan þá hefur liðið misst nokkra lykilmenn og segir Kristján Guðmundsson, þjálfari liðsins, að það muni um minna. „Hryggjarstykkið fór úr liðinu. Mér finnst því verið að spá okkur töluvert betra gengi en miðað við það sem á hefur gengið í okkar leik- mannamálum. En sennilega er þetta áunnin virðing fyrir því sem við höfum verið að gera undanfarin ár. Ég met það allavega þannig,” segir Kristján. Hann segir undirbúningstímabilið hafa gengið þokkalega. „Við höfum verið köflóttir í okkar leikjum í vetur en fórum til Portúgals í æfingaferð sem kemur til með að skila miklu inn í mótið fyrir okkur. Ég er öruggur á því,” segir Kristján. „En annars tel ég það ósann- gjarnt að ætlast til þess að liði spili alveg eins og í fyrra. Við munum vissulega reyna eins og við getum en ég tel að væntingarnar í okkar garð fyrir tímabilið séu fullmiklar.” Keflavík hefur misst átta leikmenn frá síðasta tímabili en fengið fjóra í staðinn, þar af tvo erlenda leikmenn. Þó nokkur lið hafa verið að bæta við sig erlendum leikmönnum á lokasprettinum fyrir mót og segir Kristján það ekki endilega víst að deildin verði lakari nú en í fyrra. „Kannski að munurinn á fjölda útlendinga á milli ára í deildinni verði ekki mikill þegar upp er staðið. En ég held að deildin verði mjög jöfn og lið svipuð að styrkleika. Það verða líka lið sem munu koma mjög á óvart.“ Hryggjarstykkið fór úr liðinu AÐRIR LYKILMENN KÖRFUBOLTI Þjálfarinn Benedikt Guðmundsson rær á ný mið á næstu leiktíð. Eftir að hafa gert karlalið KR að Íslandsmeisturum í annað sinn í vor hefur hann nú samþykkt að taka að sér þjálfun kvennaliðs félagsins næsta vetur. „Ég veit svo sem lítið um kvenna- þjálfun, en ég kem til með að þjálfa þetta lið alveg eins og ég hef allt- af þjálfað. Ég vona að stelpurnar aðlagist mér, því það er örugglega allt of seint að reyna að breyta svona gömlum hundi eins og mér,“ segir Benedikt léttur í samtali við Fréttablaðið. Spurður hvort hann eigi von á að skamma stelpurnar jafn mikið og strákana þegar liðið er ekki að standa sig segir Benedikt: „Ég hef nú oft reynt að mýkja mig upp í þessari þjálfun en það hefur ekki tekist til þessa. Leikmenn og dómarar hafa bara lært að taka mér eins og ég er og vonandi gera stelpurnar það líka,“ sagði Bene- dikt og bætir við að hann taki við góðu búi. „Þetta er virkilega skemmtilegt lið sem ég er að taka við og ef þær aðlagast mér fljótlega held ég að þetta verði gaman. Ég er að taka við mjög góðu búi. Þessar stelp- ur eru með mikinn metnað og æfa vel. Það verður fínt að vinna með þeim.“ En kom ekki til greina að fara frá KR? „Maður er auðvitað KR- ingur og þegar á reyndi var niður- staðan sú að mig langaði að halda áfram. Það voru nokkur félög í sambandi við mig sem fengu mig til að hugsa málið, en ég er í góðri vinnu hjá KR og er partur af skemmtilegu teymi sem ég vil halda áfram að vinna með,“ sagði Benedikt og reiknar með að vænt- ingarnar til liðsins verði miklar. „ É g m a n aldrei eftir KR öðruvísi en með himinháar kröfur, svo maður þekk- ir ekkert annað. Ég hef trú á þessu liði en það verður auðvitað erf- itt að toppa árangur síðustu ára,“ sagði Benedikt en KR varð bikarmeist- ari í vetur og var hársbreidd frá því að vinna Íslandsmeistara- titilinn í vor. „Svo getur auð- vitað vel verið að ég sé skelfilegur kvenna- þjálfari og þetta springi allt í höndunum á mér. Ég ræð að minnsta kosti ekkert við dóttur mína, svo það er ekkert víst að ég ráði við heilt kvenna- lið,“ segir Benedikt kím- inn. baldur@365.is Getur vel verið að ég sé skelfilegur kvennaþjálfari Benedikt Guðmundsson hefur samþykkt að taka að sér þjálfun kvennaliðs KR í körfubolta á næstu leiktíð. Hann hefur gert karlalið KR tvívegis að Íslandsmeisturum síðastliðin þrjú tímabil og var kjörinn þjálfari ársins nú í vor. BENEDIKT GUÐMUNDS- SON Á leið úr karlakörfunni í kvennakörfuna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÓTBOLTI Þróttarar hafa boðið til nýbreytni í samningum félagsins við styrktaraðila fyrir komandi knattspyrnusumar sem hefst nú um helgina. Félagið hefur komið á fót verkefni sem nefnist Banda- lagið og er regnhlífakerfi fyrir marga smærri styrktaraðila í stað þess að fá einn stóran styrktar- aðila fyrir félagið. Ásmundur Vilhelmsson, formað- ur knattspyrnudeildar Þróttar, segir þetta gert að danskri fyr- irmynd. „Við höfum lengi verið í samstarfi við Herfölge í Dan- mörku og það félag hefur not- ast við álíka kerfi í nokkur ár og reynst vel.“ Í stað auglýsingar frá fyrir- tæki á búningi Þróttar verður nú merki Bandalagsins. Fljótlega verður vefsíðunni bandalagid.is hleypt af stokkunum og verður það einn vettvangur þeirra fyrir- tækja sem vilja auglýsa sig með þeim hætti. „Fyrirtæki fá einnig auglýs- ingaskilti á vellinum og félags- svæði, merki á viðtalsveggi og þannig mætti áfram telja,“ segir Ásmundur. Hann segir að félaginu hafi gengið vel að fá fyrirtæki til að ganga í Bandalagið. „Það er ótrú- legt hvað stjórnendur fyrirtækja hafa tekið hugmyndinni vel. Þarna er líka vettvangur fyrir minni fyrirtæki að auglýsa sig á þessum vettvangi og þeim gef- inn kostur á að taka þátt í ýmsum skemmtilegum verkefnum með okkur. Það geta allir verið með, pípulagningarmenn og hár- greiðslustofur.“ Nánari upplýsingar um verk- efnið verður hægt að nálgast á bandalagid.is. - esá Þróttarar notast við styrktaraðilakerfi að danskri fyrirmynd: Margar hendur vinna létt verk STÓRU FYRIRTÆKIN VÍKJA Merki Bandalagsins mun prýða búninga Þróttara nú í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI skipta um dekk hjá Max1 Umfelgun og ný dekk á góðu verði Umfelgun og jafnvægisstilling á 4 fólksbíladekkjum á 12–16 tommu stálfelgum 6.458 kr. Kauptu sumardekkin hjá Max1 á góðu verði. Spyrðu okkur hvað við getum gert meira fyrir þig. Við erum góðir í að gera hlutina fljótt og vel og ódýrt – skoðaðu: www.max1.is Reykjavík, sími 515 7190: Bíldshöfða 5a, Bíldshöfða 8, Jafnaseli 6, Knarrarvogi 2. Akureyri, sími 462 2700: Tryggvabraut 5. Skoðaðu www.max1.is Sparaðu, láttu Ný sumardekk Dekkjaskipti sms - leikur www.pressan.is Þú sendir SMS skeytið JA PRESSAN á númerið 1900. Við sendum þér spurningu og þú svarar með því að senda SMS JA A, B eða C ti l baka á 1900. - Þú gætir unnið! 9. hver vinnur! SKEMMTILEGUR LEIKUR FYRIR SNJALLA FRÉTTAHAUKA! Aðalvinningur 7 5 . 0 0 0 k r g j a f a b r é f f r á I c e l a n d E x p r e s s * . . .og svo er fullt af veglegum aukavinningum s.s bíómiðar, gos, DVD myndir, tölvuleikir og margt f leira *Aðalvinningar dregnir út úr öllum innsendum skeytum Vinningar verða afhentir í ELKO Lindum, Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið. Þú færð 5.mín ti l að svara spurningu. Leik l íkur 13.maí kl 23:59 2009 Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.