Fréttablaðið - 06.05.2009, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 06.05.2009, Blaðsíða 34
18 6. maí 2009 MIÐVIKUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Enn einn dag- urinn! Guð- minngóður! Erfiðið! Opnun á húddi: 5000 krónur. Og þá er það hádeg- ismatur. Hmm. Ætti maður að rukka fyrir að lyfta vélinni? Jú ætli það ekki! Palli, viltu vera svo vænn að setja bollana í uppþvotta- vélina og setja hana af stað. Hvernig eiga þeir að snúa? Botninn upp, auðvitað. Þvottaefni? Já, fylltu bara litla hólfið. Klór? Nei! Maður notar það bara á föt! Ég skal segja þér það... Getur maður þá þvegið leirtau og föt saman? En ekki öll föt, bara hvít. Gleymdu þessu! Ég geri þetta sjálf! Enn og aftur er það erfiðasta sem ég geri að fá hjálp frá þér. Ég er ósnertan- legur! Hin alsjáandi spákona Sirrý Vá, rekin eftir tvo daga! Ekki sá ég það fyrir! Stærðfræði með Mjása og Lalla Einn... ... mínus einn... Á Samasem... Ekkert. Lóa? Lóa? Hafið þið séð Lóu? Já, hún er beint fyrir aftan þig. Ó. Það er miklu skemmti- legra hérna eftir að Lóa fór að skríða. Já, það er gaman þegar mamma hristir hausinn og muldrar svona. Ég er svo heppin að fá að vera með íslenska Eurovisionhópnum í Moskvu. Aðdáendur keppninnar eru komnir alls staðar að til að fylgjast með og hér er fólk sem pantaði sér hótelgistingu og flugfar á keppnina um leið og það lá fyrir hvar hún yrði haldin. Fyrir mörgum er Eurovision árlegur viðburður líkt og skíða-, golf- eða sólarlandaferðir eru fyrir aðra og á hótelinu okkar er til dæmis maður frá Suður-Afríku sem vill endilega fá undirspilið af Is it true, til að gefa það út á afrikaans. Ég hef aldrei áður komið til Rússlands og var í raun ekki búin að gera mér neina hugmynd um hvernig það yrði. Ég vissi reyndar að Moskva hefur lengi verið ein dýrasta borg í heimi og það er vissulega satt. Allt á hótelinu er á uppsprengdu verði, hvort sem það er samloka, vatnsflaska eða internetaðgangur, og matvörubúðin í nágrenninu er dýrari en dýrustu matvöruverslanir á Íslandi. Sem betur fer höfum við okkur til halds og trausts þau Igor og Júlíu sem eru ungir Rússar í sjálfboðavinnu fyrir keppnina. Þau hafa gefið okkur góð ráð og meðal ann- ars passað upp á að við séum ekki snuðuð í leigubílunum, sem eiga það víst til að keyra með útlendinga um alla borgina og rukka svo formúu fyrir. Eins og gefur að skilja er öryggisgæsla í kringum Ólympíuhöllina mjög ströng. Allar handtöskur eru grandskoðaðar áður en manni er hleypt inn og nauðsynlegt er að hafa Eurovisionpassann um hálsinn allan tímann. Allt er þetta þaulskipulagt og hver mínúta í dagskránni er planlögð. Það er eitt stórt ævintýri að vera hér og fylgjast með undirbúningnum, sem gengur vonum framar hjá íslenska hópnum, og það verð- ur spennandi að fylgjast með löndum okkar stíga á svið á þriðjudaginn. Eurovision beint í æð NOKKUR ORÐ Alma Guðmundsdóttir

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.