Fréttablaðið - 06.05.2009, Blaðsíða 16
16 6. maí 2009 MIÐVIKUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Fólk er hvatt til þess að leggjast í dá-
litla naflaskoðun í dag, velta fyrir sér
hvort megrunartilburðir séu ríkjandi
í lífi sínu og hvort þeir hafi verið til
heilla eða óheilla. Láta svo af þessum
tilburðum, þó ekki væri nema í dag,
og leyfa sér að upplifa fegurð og fjöl-
breytileika mismunandi líkamsvaxt-
ar. Það er boðskapur megrunarlausa
dagsins sem haldinn er hátíðlegur um
allan heim í dag.
„Áherslan í samfélaginu á megrun
er gríðarleg og fer alls ekki minnk-
andi,“ segir Sigrún Daníelsdóttir sál-
fræðingur, sem fer fyrir hópi baráttu-
fólks sem skipuleggur megrunarlausa
daginn hér á landi. „Þvert á móti virð-
ist þessi áhersla vera að aukast. Í tíma-
ritum og öðrum fjölmiðlum eru stöðug-
ar frásagnir af fólki sem hefur farið
í megrun og náð að grenna sig. Þess-
ar frásagnir eru villandi. Allir vita að
megrun hefur skammtímaárangur en
það er ekkert sem bendir til þess að því
fylgi árangur til lengri tíma. Það er full
ástæða til að hafa áhyggjur af fjölda
auglýsinga á alls kyns töfralausnum
til að grennast. Mörg fitubrennsluefni,
sem fólk tekur inn til að grennast sem
hraðast, eru stórvarasöm.“
Sigrún segir sérstaka ástæðu til að
hafa áhyggjur af detox-bylgjunni sem
fjölmargir Íslendingar hafa látið sann-
færast af. „Þetta eru ekkert annað
en sveltikúrar. Verið er að halda því
að fólki að ristilhreinsun sé agalega
grennandi. Það er tóm vitleysa og
ekkert sem bendir til þess að líkam-
inn þurfi á þessu að halda.“
Óformlegur hópur fólks stendur að
megrunarlausa deginum, sem haldinn
er hér á landi í fjórða sinn. Í ár var
honum fagnað með því að setja auglýs-
ingar í sjónvarp og öll kvikmyndahús
landsins og dreifa undurfallegum póst-
kortum vítt og breitt um Suðvesturland
sem minna á boðskap dagsins. Kortin,
sem listakonan Linda Loeskow hann-
aði, hafa hlotið verðskuldaða athygli
og útbreiðslu, meðal annars í Bret-
landi.
Sigrún segir nútímamenningu gegn-
sýrða af þeirri hugmynd að nauðsyn-
legt sé að leita allra leiða til að öðlast
grannan vöxt. „Það er ekki mikil virð-
ing borin fyrir því að við erum mis-
munandi og höfum rétt á því að lifa
góðu lífi í okkar líkama,“ segir hún.
„Megrunarlausi dagurinn er tilraun til
þess að skapa mótvægi við þessu og
benda fólki á að þetta sé ekki heilbrigð
lífssýn. Það er hægt að sættast við lík-
ama sinn, þótt hann sé ekki skapaður
samkvæmt ströngum fegurðarstöðl-
um nútímans. Og það er hægt að vera
hamingjusamur, þótt útlitið sé ekki
þungamiðjan í lífi manns. Líklega er
það meira að segja auðveldara.“
holmfridur@frettabladid.is
SIGRÚN DANÍELSDÓTTIR: SKIPULEGGUR MEGRUNARLAUSA DAGINN Í DAG
Fagna fjölbreytilegum vexti
BARÁTTUKONA Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur fer fyrir óformlegum hópi hugsjónafólks sem hefur veg og vanda af megrunarlausa deginum
sem haldinn er hátíðlegur í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Elsku sonur minn, bróðir okkar og mágur,
Kristján Eyþórsson
Borgarbraut 65a, Borgarnesi,
sem lést á Sjúkrahúsi Akraness miðvikudaginn
29. apríl, verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju
laugardaginn 9. maí kl. 14.00.
Vigdís Auðunsdóttir
María Eyþórsdóttir
Guðmundur Eyþórsson Ingibjörg Vigfúsdóttir
Ingibjörg Eyþórsdóttir Gísli Þórðarson
Þorsteinn Eyþórsson Anna Þórðardóttir.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir, amma og langamma,
Hanna Ingólfsdóttir
Johannessen
Reynimel 25A, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Neskirkju föstudaginn 8. maí
kl. 15.00.
Matthías Johannessen
Haraldur Johannessen Brynhildur Ingimundardóttir
Ingólfur Johannessen
Matthías H. Johannessen Saga Ómarsdóttir
Kristján H. Johannessen Lísa Margrét Sigurðardóttir
Anna H. Johannessen
Svava H. Johannessen
og barnabarnabörn.
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Jón Magnús Guðmundsson
Reykjum, Mosfellsbæ,
sem lést miðvikudaginn 22. apríl, verður jarðsunginn
frá Langholtskirkju fimmtudaginn 7. maí kl. 13.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Sjóð Odds
Ólafssonar, Reykjalundi, s. 585 2000, og líknarfélög.
Málfríður Bjarnadóttir
Sólveig Ólöf Jónsdóttir Pétur R. Guðmundsson
Guðmundur Jónsson Þuríður Yngvadóttir
Helga Jónsdóttir Magnús Guðmundsson
Bjarni Snæbjörn Jónsson Björg K. Kristjánsdóttir
Eyjólfur Jónsson Auður Ósk Þórisdóttir
Jón Magnús Jónsson Kristín Sverrisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ingólfur Guðmundsson
fyrrverandi stýrimaður og kaupmaður
Lynghaga 12,
sem lést á Landspítalanum í Fossvogi 27. apríl síðast-
liðinn, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju,
fimmtudaginn 7. maí kl 13.00.
Svava Ingimundardóttir
Ágúst Ingólfsson Vilborg Jónsdóttir
Örn Ingólfsson Hrafnhildur Bjarnadóttir
Einar Ingólfsson Bára Bjarnadóttir
afabörn og langafabörn.MOSAIK
MERKISATBURÐIR
1682 Loðvík 14. flytur með
frönsku hirðina til Versala
frá Tuileries.
1910 Georg 5. tekur við kon-
ungstign í Bretlandi eftir
lát föður síns, Játvarðs 7.
1912 Jarðskjálfti, sem talið er
að hafi verið um sjö stig
á Richter, kemur upp í
grennd við Heklu.
1937 Þýska loftskipið Hinden-
burg, sem ásamt Graf
Zeppelin II var stærsta
loftskip sögunnar, ferst í
New Jersey í Bandaríkjun-
um.
1986 Hornsteinn er lagður að
húsi Seðlabankans við
hátíðlega athöfn á 25 ára
afmæli bankans.
2005 Blaðið kemur fyrst út á
Íslandi.
MARLENE DIETRICH LÉST
ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1992.
„Mér hefur aldrei þótt
gaman að vinna að kvik-
myndum.“
Marlene Dietrich, sem fædd-
ist 27. desember 1901, var
þýsk leikkona, söngkona og
skemmtikraftur sem skaust
upp á stjörnuhimininn í hlut-
verki Lolu-Lolu í Bláa englin-
um árið 1930. Eftir það flutti
hún til Hollywood, þar sem
hún lék háskakvendi í fjöl-
mörgum kvikmyndum.
Á þessum degi fyrir
28 árum fengu lands-
menn fyrst að líta
sjónvarpsþáttinn Dall-
as í Ríkissjónvarpinu.
Þættirnir fóru fyrst í
loftið á CBS-sjónvarps-
stöðinni í Bandaríkj-
unum árið 1978 og
komu hingað til lands
í sigurför sinni um
heiminn. Fæstir geta
gleymt olíubarónin-
um J.R. Ewing, sem
sveifst einskis til að
komast yfir það sem
hugur hans girntist, og
hans drykkfeldu og óhamingjusömu eiginkonu
Sue Ellen. Heimilisfeður landsins létu sig dreyma
um fegurðardísina
Pamelu. Og heims-
byggðin grét þegar
Bobby lést og tók
gleði sína á ný, nokkr-
um árum síðar, þegar
í ljós kom að það var
allt saman draumur.
Dramatíkin var
botnlaus og vinsæld-
irnar slíkar að margir
misstu ekki úr þátt í
öll þau ár sem þætt-
irnir voru á skjánum.
Fáir sjónvarpsþættir
hafa náð viðlíka vin-
sældum og Dallas,
enda var hann framleiddur í þrettán ár, allt fram
til ársins 1991.
ÞETTA GERÐIST: 6. MAÍ 1981
Dallas birtist á skjáum landsmanna
AFMÆLI
George
Clooney
leikari er
48 ára.
Tony Blair
fyrrum
forsætis-
ráðherra
Breta er
56 ára.
Margrét
Sigurðar-
dóttir
vaxtarrækt-
arkona er
43 ára.
Einar Sig-
ur björns-
son guð-
fræðingur
er 65 ára.