Fréttablaðið - 06.05.2009, Blaðsíða 32
SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð
Eins og kunnugt er kynnti banda-
ríski leikstjórinn David Lynch
áhugasömum Frónbúum inn-
hverfa íhugun um síðustu helgi.
Leikstjórinn heldur því fram að
með íhugun megi bæta andlegt
ástand mörlandans og færa það
upp á nýtt svið í margvíslegum
skilningi orðsins. Stefnt er að því
að safna saman hópi fólks til að
ýta landinu með hugleiðslu upp
úr þeim spólförum sem það situr
í. Ef vel gengur má geta sér þess
til að Lynch fái stöðu sendifull-
trúa andlega sviðsins hér á landi
og muni sitja við hlið Franeks
Rozwadowski sendi-
fulltrúa sem sinn-
ir ytri og verald-
legu hliðinni í nafni
Alþjóða gjaldeyris-
sjóðsins.
Sendifulltrúi
andlega sviðsins
70 prósentum munar á verði fasteigna á Vestfjörðum og á höfuðborgarsvæðinu sam-kvæmt tölum Fasteignaskrár um þróun íbúða-
verðs á síðasta ári. Verðið er lægra fyrir vestan.
1.111milljóna króna tap varð á rekstri N1 hf. eftir skatta á síðasta ári, samanborið við 860,9 milljóna
króna hagnað á árinu 2007.
11,9 prósenta verðbólga var í apríl samkvæmt mælingu Hagstofu Ísland og hefur hún ekki verið minni síðan í apríl í fyrra, þótt
mælingin væri lítillega yfir væntingum.
Nefnd sem metur hæfi umsækj-
enda um starf seðlabankastjóra
lýkur störfum 28. maí. Allmargir
sóttu um og skrafar áhugafólk
um hagfræði og peningamála-
stjórn nokkuð um málið. Margir
hafa viljað meina að búið væri
að eyrnamerkja starfið fyrrum
aðalhagfræðingi Seðlabankans,
Má Guðmundssyni. Síðan kynni
að verða til samstíga par með
því að skipa Arnór Sighvatsson
(sem var aðalhagfræðingur
þar til fyrir skömmu) aðstoð-
arseðlabankastjóra. „Dýnamískt
dúó“ mætti hins vegar búa til
með því að skipa Yngva Örn
Kristinsson, fyrrum yfirmann
verðbréfasviðs Landsbankans,
sem aðstoðarseðlabankastjóra,
en hann þykir hafa margt til
brunns að bera í starfið.
Dýnamískt dúó
eða samstíga par?
Aðrir telja óvarlegt að gefa sér
nokkuð um niðurstöðu í ráðning-
armálum Seðlabankans. Draugar
fortíðar í Landsbankanum kunni
að verða til þess að Yngvi Örn
þyki ekki vænlegur kostur. Þá
sé Már Guðmundsson ekki held-
ur laus við fortíðarvanda, enda
sé hann, þótt enginn efist um
hæfi hans og tengsl í alþjóðleg-
um bankaheimi, einn af höfund-
um peningastefnunnar sem hér
hefur verið rekin síðustu ár, með
hörmulegum árangri. Krónan
hafi jú hrunið á undan fjármála-
kerfinu. Sama gildi um Tryggva
Pálsson, framkvæmdastjóra
fjármálasviðs Seðla bankans.
Því þurfi að kalla nýtt fólk að
stjórn Seðlabankans og heyrist
þá nafn Þor vald ar Gylfasonar
háskólaprófessors oft-
ast nefnt. Grugg er
meira í spákúlunni
þegar að því kemur
að spá fyrir um hver
verði aðstoðar-
bankastjóri.
Eða algjör
uppstokkun?