Fréttablaðið - 06.05.2009, Page 14
14 6. maí 2009 MIÐVIKUDAGUR
UMRÆÐAN
Sveinbjörn Ragnar
Árnason skrifar um
tengsl Íslands og
Kanada
Þá gæti kanadíski Seðlabankinn tekið
yfir stjórn peningamála
á Íslandi – Íslending-
ar myndu halda fánanum og það
yrði fækkað á Alþingi niður í sem
fæsta aðila með eftirliti frá Kan-
ada, fyrir hag íslensk almenn-
ings. Íslendingar hefðu áheyrn-
arfulltrúa á kanadíska þinginu
í staðinn. Hvernig væri að leita
eftir samvinnu við Kanadamenn
og taka upp Kanadadollara sem
gjaldmiðil í fullri samvinnu við
Seðlabanka þeirra? Íslending-
ar hafa ekki getu né kunnáttu til
stýringar á efnahag sínum, alla-
vega segir og sýnir sagan okkur
það. Við bjóðum þeim t.d. aðgang
að olíuleitarsvæðum við Ísland í
skiptum fyrir gjaldmiðil og fyrir
aðstoð við að reisa heila þjóð við
á Norður-Atlantshafi. Íslendingar
myndu losa sig við forsetann og
embættið í heild sinni og Bessa-
stöðum yrði breytt í demanta-
safn. Þetta kallar maður að búa
til sprotafyrirtæki úr engu.
Hvers vegna í ósköpunum bein-
um við ekki sjónum okkar til Kan-
ada? Nýtt Ísland í Vesturheimi
þar sem við eigum frændur og
vini? Spilling er lítil og mjög gott
fólk býr þar. Undirritaður hefur
ágætis viðmið á íbúum og venj-
um Kanadabúans frá veru minni
í Bandaríkjunum og Kanada
árin 1987 og 1991. Þetta er kurt-
eist fólk, líkara Íslendingum en
Ameríkönum. Munurinn er álíka
á Ameríkana og Kanadamanni og
á George Bush yngri og Barack
Obama forseta Bandaríkjanna.
Talið er að allt að 200 þúsund
Kanadamenn eigi rætur
að rekja til Íslands. Kan-
ada er annað stærsta land
í heiminum að flatarmáli.
Kanada er ríkjasamband
sem samanstendur af tíu
fylkjum og þremur sjálf-
stjórnarsvæðum (Ísland
það fjórða)?
Kanada er þingbund-
ið lýðræðisríki í Breska
samveldinu. Geta Kan-
adamenn ekki náð að lenda þess-
ari vitleysu fyrir okkur Íslend-
inga vegna skulda óreiðumanna í
útlöndum, sem eflaust geyma illa
fengin auðævi sín á leyndum stöð-
um. Við gætum gefið Evrópusam-
bandinu nokkuð langt nef, ekki
komu þeir nú neitt sérstaklega
vel fram við okkur Íslendinga
eftir að Bretar beittu Landsbank-
ann og Kaupþing hryðjuverka-
lögunum. Íslenskur almenning-
ur sættir sig ekki við að greiða
þessar skuldir útrásarvíkinga.
Látum Bretana eltast beint við
þessa útrásarvíkinga. Ég skal
senda þeim listann yfir þá, hann
er ekkert sérstaklega langur.
Framleiðslufyrirtæki í eigu
Kanadamanna á Íslandi sem
myndu skapa hundruð ef ekki
þúsundir starfa. Hjól atvinnu-
lífsins geta farið að snúast aftur
með miklum myndarbrag með
aðkomu Kanada á Íslandi, við
erum nú einu sinni aðeins rétt
rúmlega 300 þúsund manna þjóð
og þurfum ekki svo mikið til
að eitt lítið hagkerfið nái sér á
skrið eftir banka og útrásarvík-
inga sem rústuðu efnahag okkar
með óvæntri hjálp valinkunnra
stjórnmálaflokka.
Þegar siglingaleið opnast yfir
Norðurpól má búast við miklum
aukningum flutninga þá leið og
getur Kanada nýtt sér góða hafn-
araðstöðu á Íslandi sem myndi
skapa góða atvinnumöguleika.
Sameiginleg fiskimið og betri
markaðssetning á afurðum gæti
gert Kanada og Íslendinga að
bestu og stærstu fiskútflytjend-
um í heimi.
Flugstjórnarrými Íslands er
eitt það stærsta í heimi og með
kanadískri lofthelgi væri sam-
eiginleg lofthelgi nær óslitin
frá 10. gráðu á Atlantshafi til
135. gráðu vestlægrar á Kyrra-
hafi. Íþróttamannvirki eru orðin
mörg og glæsileg á Íslandi. Við
erum álíka lélegir í knattspyrnu
og Kanada en við gætum flutt
út handboltann og liðsinnt Kan-
ada til frekari afreka. Þeir gætu
hleypt nýju lífi í íshokkí og vetr-
aríþróttir á Íslandi, ekki veitir
af. Ábending um gott val á rétt-
um áburði undir gönguskíði á
stórmótum myndi tryggja okkur
allavega ekki að vera langsíðastir
í mark. Til lengri tíma litið geta
Kanadamenn komið okkur til
hjálpar með nýtingu og afhend-
ingar orku til Norður-Ameríku
í formi t.d. sæstrengs. Þarna
má sjá að Kanada gæti átt gríð-
arlega möguleika á spennandi
verkefnum sem við Íslendingar
gætum hvort eð er aldrei staðið
undir sjálfir. Hverjir hafa boðið
Íslendingum atvinnu nú í okkar
erfiðleikum og það án þess að við
báðum um það, jú frændur okkar
í vestri Kanadamenn. Eina þjóðin
sem bauð okkur aðstoð að fyrra
bragði við atvinnumöguleika
erlendis. Lítum til vesturs og
gerum alvöru bísness við Kanada
og ég fer fram á það að útrásar-
víkingar komi þar hvergi nærri
fyrir okkar hönd. Fyrir Kan-
ada er rakið mál að veita okkur
skjól og byggja upp frábært Nýtt
Ísland á rústum frjálshyggjunn-
ar sem á um sárt að binda í dag
á Íslandi. Blessuð sé minning
hennar.
Höfundur hefur verið atvinnu-
rekandi frá 1991.
UMRÆÐAN
Eiríkur Bergmann
skrifar um ESB
Mikið hefur verið fjallað um hugs-
anlega aðildarumsókn
að Evrópusambandinu
en minna hefur verið
rætt um það ferli sem
nauðsynlegt er að fara
í gegnum áður en Ísland
getur orðið aðili að bandalaginu.
Hinn formlegi ferill er einfaldur:
Ákveði ríkisstjórn Íslands að fara
í þessa vegferð sendir hún einfald-
lega aðildarumsókn til ráðherra-
ráðs ESB. Slík umsókn þarf alls
ekki að vera ítarleg, raunar gæti
textinn komist fyrir á einu blaði.
Sendiherrann í Brussel gæti þess
vegna skottast með hana yfir í
byggingu ráðherraráðsins sem er
bókstaflega steinsnar frá sendiráð-
inu. Viðhafnarútgáfan væri að for-
sætisráðherra færi með umsókn-
ina til leiðtoga þess ríkis sem fer
með formennsku í ráðherraráðinu
og afhenti í viðurvist fjölmiðla og
fyrirmenna.
Þetta er semsé sáraeinfalt. En
viðræður um aðild að Evrópu-
sambandinu eru hins vegar afar
umfangsmikið og flókið ferli þar
sem hverjum steini í samskipt-
um viðkomandi ríkis og ESB er
velt upp. Innan ESB er ferlið með
þeim hætti að ráðherraráðið myndi
eftir að umsóknin bærist beina
því til framkvæmdastjórnarinn-
ar að meta hvort Ísland væri yfir
höfuð hæft til að verða fullgildur
aðili að ESB. Öll aðildarríki ESB
eiga formlega aðild að aðildarvið-
ræðum en þau tala þó einum rómi
gagnvart viðsemjandanum. Ríkið
sem fer með forsæti í ráðherraráð-
inu hverju sinni kemur fram fyrir
hönd aðildarríkjanna og stýrir
vinnufundum ráðherra og aðstoð-
armanna þeirra. Framkvæmda-
stjórnin annast undirbúninginn
og metur stöðu þeirra ríkja sem
sækja um aðild, gerir til að
mynda ítarlegar skýrslur
um ástandið í öllum þeim
málaflokkum sem aðildar-
viðræðurnar og samstarfið
innan ESB taka til.
Aðildarskilyrðin
Eitt af því sem kemur til
athugunar er hvort umsókn-
in þyki yfir höfuð trúverð-
ug, hvort nægjanlega sterkt
pólitískt bakland sé til stað-
ar á Íslandi. Samfylkingin getur
því ekki laumað aðildarumsókn
framhjá samstarfsflokknum á
þingi með fulltingi Framsóknar-
flokksins og Borgarahreyfingar-
innar eins og lagt hefur verið til.
Olli Rehn, stækkunarmálastjóri
ESB, tók skýrt fram í fréttum nú
í vikunni að ríkisstjórnin sem slík
yrði auðvitað að standa að umsókn-
inni. Hins vegar getur VG auðvitað
sjálft ákveðið að fela þinginu málið
án þess að taka flokkslega afstöðu
til þess.
Og kjósi meirihluti þingheims að
sótt verði um aðild, þá sendi rík-
isstjórnin inn umsókn. Með slíku
lagi væri kominn fram nægjanleg-
ur trúverðugleiki.
Evrópusambandið setti aðildar-
skilyrði sín niður á ríkjaráðstefnu
í Kaupmannahöfn árið 1993. Sam-
kvæmt þeim geta lýðræðisríki í
Evrópu sem búa við virkt mark-
aðshagkerfi, stöðugt stjórnarfar
og trygg mannréttindi, auk þess að
hafa getu til að taka yfir lagagerð-
ir ESB, fengið aðild að ESB. Ísland
uppfyllir öll þessi skilyrði. Í ljósi
þess að bæði lagaumhverfi og efna-
hagslíf á Íslandi hefur nú þegar að
mestu verið lagað að innri markaði
ESB má gera ráð fyrir að aðildar-
viðræður fari fljótt af stað.
Ásteytingarsteinn
Það yrði svo í höndum fram-
kvæmdastjórnarinnar að taka
út stöðuna í íslensku þjóðfélagi
meðan á viðræðuferlinu stæði og
meta í skýrslum fyrir ráðherra-
ráðið, sem hefur lokaorðið um nið-
urstöðu samninga fyrir hönd ESB.
Í ljósi þess að Ísland yfirtekur nú
þegar bróðurpartinn af lagabálki
ESB í gegnum EES-samninginn
og Schengen-landamærasamstarf-
ið ættu viðræðurnar að geta geng-
ið greiðlega fyrir sig. En það eru
vissulega ýmis ljón í veginum.
Megináhersla Íslands yrði að
tryggja yfirráðin yfir auðlindum
sjávar og ástæðulaust að gera lítið
úr því viðfangsefni. Ísland verður
að fá óvéfengjanlega viðurkenn-
ingu á efnahagslögsögunni.
Aðildarviðræður EFTA-ríkj-
anna, Austurríkis, Finnlands,
Noregs og Svíþjóðar, tóku innan
við tvö ár. Ef Ísland verður ekki í
samfloti með öðrum ríkjum í aðild-
arviðræðum gætu samningar tekið
enn skemmri tíma. Ferillinn frá
því að Ísland sækir um aðild og þar
til samningar liggja fyrir þarf því
ekki að vera langur, jafnvel innan
við ár gangi allt að óskum. Næsta
skref yrði að setja aðildarsamn-
inginn í þjóðaratkvæðagreiðslu, en
pólitísk sátt er um það á Íslandi að
ekki verði gengið í ESB án þess að
þjóðin staðfesti aðildina í allsherj-
aratkvæðagreiðslu.
Stjórnarskráin
Áður en til aðildar getur komið
þarf að breyta stjórnarskránni.
Þegar EES-samningurinn var
gerður á sínum tíma komst nefnd
fjögurra lögfræðinga að þeirri nið-
urstöðu að hann bryti ekki full-
veldisákvæði stjórnarskrárinnar,
en það var þó afar umdeilt meðal
fræðimanna. Færa má rök fyrir
því að þróunin á rekstri EES-samn-
ingsins hafi síðan hann var gerður
verið með þeim hætti að hann tak-
marki fullveldi Íslands meira nú en
í upphafi og brjóti orðið fullveld-
isákvæði stjórnarskrárinnar. Full
aðild að ESB felur þar að auki í sér
að Ísland myndi með formlegum
hætti deila ákvarðanatökuvaldi, og
þar með fullveldi, með öðrum þjóð-
um. Því er það nokkuð samdóma
álit manna að breyta þurfi 21.
grein stjórnarskrárinnar áður en
Ísland geti gengið í ESB. Miðað við
stjórnarskrár annarra ríkja er til-
tölulega auðvelt að breyta íslensku
stjórnarskránni þótt það geti tekið
tíma. Einfaldur meirihluti þings
þarf að samþykkja breytinguna,
svo þarf nýtt þing að staðfesta
stjórnarskrárbreytinguna að kosn-
ingum loknum. Ef ekki væri búið
að breyta stjórnarskránni þegar
aðildarsamningur lægi fyrir gæti
það frestað ferlinu nokkuð.
Í klandri í Flandri?
Staðfestingarferlið fyrir ný aðild-
arríki ESB er enn fremur ansi
flókið. Náist samningar þurfa
Evrópuþingið og þjóðþing allra
aðildarríkjanna að staðfesta inn-
göngu umsóknarríkisins. Aðildar-
ríki Evrópusambandsins eru nú
27 talsins og starfa eftir marg-
víslegu fyrirkomulagi, hvert með
sínu nefi eftir hefðum heima fyrir
og innri stjórnskipan. Sum þing-
anna starfa í fleiri en einni mál-
stofu og önnur eru byggð eftir
sambandsríkjakerfi þar sem
hvert og eitt undirþing þarf einn-
ig að samþykkja inngöngu nýrra
ríkja. Í Belgíu einni þurfa til að
mynda sjö aðskilin þing að stað-
festa hverja einustu stækkun
ESB. Svæðisþingin þrjú; í Vallón-
íu, Flandri og Brussel-svæðinu,
þurfa öll að leggja blessun sína
yfir inngöngu nýrra ríkja, einnig
þing tungumálasvæðanna þriggja;
frönsku, flæmsku og þýsku. Svo
þarf sameinað þing Belgíu einnig
að votta allt saman.
Ólíklegt er að aðildarsamningur
strandi í staðfestingarferlinu, en
eigi að síður er rétt að hafa þetta
atriði í huga, sér í lagi sökum þess
að sumstaðar gætu leynst þing-
menn sem telja sig hafa harma að
hefna gagnvart Íslandi í kjölfarið
á falli bankanna. Því er ekki úti-
lokað að samningurinn gæti ein-
hvers staðar lent í klandri – til
dæmis í Flandri.
Enn lengra í evru
Að jafnaði ganga ríki í ESB næstu
áramót eftir að samningar og nið-
urstöður úr þjóðaratkvæði liggja
fyrir. Á þeirri reglu eru þó til
undantekningar. Líklega munu
því í það minnsta tvö ár líða frá
því umsókn er lögð fram þar til
Ísland gengur í ESB.
Það er svo ekki fyrr en inn í
Evrópusambandið er komið að
Ísland getur sótt um aðild að
Myntbandalagi Evrópu og hafið
þann feril sem nauðsynlegur
er áður en hægt er að skipta út
íslenskum krónum fyrir evru.
Fyrst þarf að sækja um aðild að
ERM II og verja í það minnsta
tveimur árum innan þess kerfis
áður en hægt verður að taka upp
evru, að uppfylltum ströngum
skilyrðum fyrir því sem lögð voru
í Maastricht-sáttmálanum.
Að lágmarki munu því fjögur ár
líða áður en Ísland getur gengið í
myntbandalag Evrópu og innleitt
evru í stað krónu, frá því ákvörð-
un um að sækja um aðild að ESB
er tekin. Líkast til mun taka tvö
ár að ganga í ESB og svo rúmlega
önnur tvö ár að aðlagast evrunni
eftir að inn í ESB er komið. Leng-
ur ef ekki tekst að koma böndum
á verðbólguna, lækka vexti og ná
jafnvægi í efnahagslífinu. Evran
er því alltaf í fjögurra ára fjar-
lægð, að lágmarki, þar til ákvörð-
un um aðildarumsókn liggur
fyrir.
Höfundur er dósent og forstöðu-
maður Evrópufræðaseturs.
EIRÍKUR
BERGMANN
Hvernig fá ríki aðild að Evrópusambandinu?
Að lágmarki munu því fjögur
ár líða áður en Ísland getur
gengið í myntbandalag Evrópu
og innleitt evru í stað krónu,
frá því ákvörðun um að sækja
um aðild að ESB er tekin.
SVEINBJÖRN
RAGNAR ÁRNASON
Ísland í Kanada − það er málið
Dagskráratriði óskast
Hitt Húsið Sími: 411 5500 17juni@hitthusid.is www.17juni.is
Frá sýningu götuleikhússins 2007
17. júní í Reykjavík
Auglýst er eftir skemmti- og sýningaratriðum fyrir þjóðhátíðarskemmtun
í Reykjavík. Dagskráin fer fram í miðborg Reykjavíkur og stendur hún
frá morgni til kvölds. Gert er ráð fyrir barna og fjölskylduskemmtunum
á sviðum, tónleikum, leiktækjum og ýmsum sýningum og götuuppá-
komum. Hægt er að sækja um fl utning atriða, uppákomur og viðburði
á vef þjóðhátíðarnefndar www.17juni.is. Umsóknum er einnig hægt að
skila í Hitt Húsið, Pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík á eyðublöðum sem
þar fást. Umsóknarfrestur rennur út þann 7. maí n.k.
Auglýsingasími
– Mest lesið