Fréttablaðið - 06.05.2009, Side 21
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Öll fjöll hafa eitthvað til síns
ágætis. Áður var ég einskorðaður
við Tröllaskagann en þetta verk-
efni jók mjög á víðsýni mína,“
segir prófessorinn Bjarni Guð-
leifsson um gönguferðir á sýslu-
fjöllin 23. Útsýnið er honum
ógleymanlegt frá ýmsum stöðum.
„Fallegustu minningarnar eru frá
Sauðhamarstindi á Lónsöræfum í
Austur-Skaftafellssýslu og Snæ-
kolli í Kerlingarfjöllum í Árnes-
sýslu. Litbrigðin eru svo stór-
kostleg í líparítinu. Það er líka
sterk upplifun að ganga á há og
hrikaleg fjöll eins og Hólamanna-
hnjúk í Skagafirði, Herðubreið í
Suður-Þingeyjarsýslu og Snæfell
í Norður-Múlasýslu.“ Hann segir
sum hæstu fjöllin standa á sýslu-
mörkum, til dæmis Tröllakirkju
á Holtavörðuheiði; þar mætast
Strandasýsla, Dalasýsla og Mýra-
sýsla.
Garparnir eru þrír sem lögðu
öll fjöllin 23 að baki. Auk Bjarna
eru það Rögnvaldur Gíslason,
bóndi í Strandasýslu, og Sigurkarl
Stefánsson líffræðingur. Fleiri
slógust í för, misjafnlega oft. „Við
gengum líka á nokkra jökla og í
misgripum á fjöll sem ekki reynd-
ust þau hæstu í sýslunum þegar til
kom. En við vorum ekkert að flýta
okkur heldur tókum í þetta tólf ár
og nutum hverrar ferðar,“ segir
Bjarni og kveðst aðspurður aðeins
einu sinni hafa skipt út gönguskóm á
tímabilinu. „Ég er svo íhaldssamur í
klæðaburði,“ segir hann brosandi.
En komust félagarnir aldrei í
hann krappan? „Jú, við lentum í
hættu á Herðubreið. Þar kom grjót-
hrun þvert á gönguleiðina og hnull-
ungarnir flugu rétt við hausana á
okkur. Ég segi síðan að fólk eigi að
ganga með hjálma á Herðubreið. Í
Jökulgilstindum í Suður-Múlasýslu
fórum við líka yfir mjög torfarinn
jökul en að öðru leyti gekk allt vel,“
svarar Bjarni.
Listi yfir fjöllin og lýsing á
gönguferðunum í máli og myndum
er í bókinni Á fjallatindum sem
Bjarni hefur nýlega sent frá sér.
Hann kveðst hafa punktað eitthvað
í hverri ferð. „Það er góð regla að
skrá ýmislegt sem fyrir augu ber,
það opnar svo mikið skynfær-
in,“ lýsir hann en segir hugmynd
að útgáfunni hafa kviknað síðar.
„Ánægjan var mikil í gönguferð-
unum og síst minni þegar ég fór
að skrifa bókina, skoða myndir og
kort. Þá endurupplifði ég allt.“
gun@frettabladid.is
Horft af hæstu tindum
Margir vita hvernig tilfinning það er að komast upp á tind. En að sigra hæstu fjöll hverrar sýslu á landinu
þekkja aðeins þrír menn. Einn þeirra er Bjarni E. Guðleifsson, höfundur nýju bókarinnar Á fjallatindum.
Bjarni á hátindi Snæfells, hæsta fjalls Suður-Múlasýslu. Það var upphafið að ævintýrinu. MYND/BRYNJÓLFUR BJARNASON
LEIÐSÖGUNÁM á háskólastigi er námsbraut hjá Endur-
menntun HÍ. Námið er sextíu eininga nám á grunnstigi háskóla
og er kennt á tveimur misserum. Námið hentar þeim sem vilja
búa sig undir starf leiðsögumanns á Íslandi með erlenda ferða-
menn. www.endurmenntun.is