Fréttablaðið - 06.05.2009, Page 35

Fréttablaðið - 06.05.2009, Page 35
MIÐVIKUDAGUR 6. maí 2009 19 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Miðvikudagur 6. maí 2009 ➜ Fyrirlestrar 12.05 Dr. Tinna Lauf- ey Ásgeirsdóttir, lektor í hagfræði, flytur erind- ið „Bernska ofurseld valdi, hag- og sagn- fræðileg greining“ í sal ReykjavíkurAkademí- unnar við Hringbraut 121, 4. hæð. ➜ Tónleikar 18.00 Suzukideild Tónlistarskólans á Akureyri verður með úrskriftartónleika í sal skólans við Hvannavelli 14. 20.00 Vox feminae verður með tónleika í Hafnarborg við Strandgötu í Hafnarfirði þar sem á efnisskránni verða fluttir madrigalar og söngvar frá ýmsum löndum. 20.00 Grétar Geir Kristinsson gítar- leikari verður með tónleika í Salnum við Hamraborg í Kópavogi. Á efnisskránni verða meðal annars verk eftir Kjartan Ólafsson, Bach og Granados. 21.00 Plötuútgáfan Bedroom Comm- unity stendur fyrir tónlistartengdum viðburðum á Kaffibarnum við Berg- staðastræti, fyrsta miðvikudagskvöld hvers mánaðar. Í kvöld munu plötu- snúðar á vegum útgáfunnar leika tónlist af „demo“-diskum. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. 22.00 Bassaleikar- inn Norbert Marius verður með tónleika í jazzkjallaranum á Café Cultura við Hverfisgötu 18. Með honum koma fram Ólafur Jónsson, Kjartan Valdemars- son og Erik Qvick. Á efnisskránni verða jazzstandardar í bland við nýrra efni. ➜ Leiklist 16.30 Tjarnarhópurinn sýnir hryll- ingsleikritið Hótel Hrollstaðir í Iðnó við Vonarstræti 3. Viðburðurinn er hluti af hátíðinni List án landamæra. ➜ Opnanir 15.00 Á Borgarbókasafninu við Tryggvagötu verður opnuð sýning á stjörnum sem börn úr frístundaheimil- um Kringlumýrar hafa gert. Viðburður- inn er hluti af hátíðinni List án landa- mæra. ➜ Dagskrá 19.30 Í tilefni af 150 ára fæðingaraf- mæli rithöfundarins Knuts Hamsun verður dagskrá í Norræna húsinu við Sturlugötu. Trond Giske, menningar- og kikjumála- ráðherra Noregs, mun flytja ávarp og Leikararnir Gunnar Eyjólfsson og Þórir Sæmundsson lesa úr verkum Hamsuns. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. ➜ Handverkskaffi 20.00 Handverkskaffi verður haldið í Gerðubergi við Gerðuberg 3-5. Sigur- borg Stefánsdóttir listakona sýnir bók- verk og fjallar um þá möguleika sem listformið býður upp á. Fólk er hvatt til að hafa með sér prjóna- eða saumadót. ➜ Myndlist Tryggvi Ólafsson og Daði Guðbjörns- son hafa opnað sýningar í Gallerí Fold við Rauðarárstíg. Opið virka daga kl. 10- 18, lau. kl. 11-16 og sun. kl. 14-16. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is Í gær hópaðist starfsfólk Lista- safns Reykjavíkur saman og tekið var upp úr kösssum sem voru komnir langan veg frá París. Guðmundur Guðmundsson – Erró – hafði enn tekið til í geymslum sínum í úthverfi Parísar og bætt við gjöf sína fyrir tuttugu árum til Reykvíkinga. Þá gaf hann á Listasafn Reykjavíkur yfir 2.000 verk sem urðu ásamt gjöf Kjar- vals sem lengi var umdeild meg- instofninn í safnkosti Listasafns- ins og gera það um langan aldur í öllu starfi samtvinnað nöfnum þeirra tveggja, Nýja gjöfin telur um 150 verk, aðallega grafíkmyndir, klippi- myndir og olíuprent á striga. Gjafarinnar sem þáverandi borgarstjóri veitti viðtöku fyrir tveimur áratugum verður minnst með ýmsum hætti síðar á árinu. Erró er væntanlegur hingað til lands undir lok maí vegna gjafar- innar og nýrrar sýningar á verk- um hans. Danielle Kvaran, sem ritaði bókina Erró í tímaröð, sem nýlega kom út, hefur um nokk- urt skeið starfað að undirbúningi stórrar sýningar, Erró – Mannlýs- ingar, sem verður opnuð í Hafnar- húsinu 28. maí. Á sýningunni eru frásagnarportrettar eða mann- lýsingar af sögufrægum einstakl- ingum á sviði lista, bókmennta, vísinda og stjórnmála sem hafa að mestu leyti ekki verið sýnd- ar hér áður. Sýningin stendur fram á næsta ár, en hluti hennar er breytilegur og verður verkum skipt þar út reglulega. Glæsileg bók með textum ýmissa höfunda verður gefin út með sýningunni og fjöldi þekktra einstaklinga mun tengjast sýningunni með einu eða öðru móti í skipulögðum viðburð- um á árinu. pbb@frettabladid.is Erró gefur fleiri verk MYNDLIST Tekið upp úr kössunum á Listasafni Íslands í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ Vox feminae heldur tónleika í Hafnarborg í kvöld kl. 20, og þar verður flutt tónlist frá 16. og 17. öld undir yfirskriftinni „Þar sýprus grær“. Fluttir verða madri- galar og söngv- ar frá ýmsum löndum, þar á meðal eftir Clau- dio Monteverdi, Passerau, Giov- anni Gastoldi, John Dowland, Thomas Morley, Orlando Gibb- ons og O. Vecchi. Á tónleikunum koma ásamt Vox feminae fram einsöngvarar úr röðum kórfé- laga, Símon Ívarsson gítarleikari og Marion Herrera hörpuleikari. Listrænn stjórnandi tónleik- anna er Margrét J. Pálmadóttir. - pbb Madrigalar sungnir TÓNLIST Margrét J. Pálmadóttir söngstýra Lamisil Once 1% húðlausn inniheldur 10 mg af terbínafíni (sem hýdróklóríð). Lamisil Once er einskammta meðferð við fótsvepp (tinea pedis). Ekki má nota Lamisil Once ef til staðar er ofnæmi fyrir terbínafíni eða einhverju öðru innihaldsefni lyfsins. Lamisil Once er eingöngu ætlað til útvortis notkunar. Lyfið er eingöngu ætlað til húðmeðferðar á fótum. Lamisil Once á ekki að nota á meðgöngu nema brýna nauðsyn beri til. Konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Lamisil Once. Börn og unglingar undir 18 ára aldri eiga ekki að nota lyfið þar sem reynslu skortir af slíkri notkun. Lyfið á einungis að bera á einu sinni. Best er að bera Lamisil Once á húðina eftir sturtu eða bað. Lyfið verður að bera á báða fætur, jafnvel þótt einkenni sjáist einungis á öðrum fæti. Þetta tryggir eyðingu sveppsins. Hann getur leynst víðar á fótum þótt ekki sjáist nein merki um hann. Lamisil Once er mild lausn og ertir sjaldnast húðina. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið vandlega leiðbeiningarnar sem fylgja hverri pakkningu. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ. Drepur fótsveppinn - þarf aðeins að bera á einu sinni

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.