Fréttablaðið - 13.05.2009, Síða 6

Fréttablaðið - 13.05.2009, Síða 6
6 13. maí 2009 MIÐVIKUDAGUR UMHVERFISMÁL „Það stendur til að fegra umhverfið hérna allt saman og þessar fjörur eru eitt af því,“ segir Sævar Sigurðsson, staðarhald- ari á starfssvæði Íslenska gámafé- lagsins í Gufunesi. Þar í fjörunni er mikið brak úr byggingum af svæð- inu auk annars konar rusls. Ruslið í fjörunni er mest járn- bentir steypuklumpar. Sævar segir þá vera úr byggingu sem hafi verið rifin eftir sprengingu í Áburðar- verksmiðjunni í byrjun október 2001. „Húseignirnar voru rifnar niður á svæðinu og þessu var ýtt þarna út eins og einhvers konar landfyllingu. Það var á vegum borgarinnar sem það var gert á sínum tíma,“ segir Sævar og fullyrðir að síðan hafi engum úrgangi verið ekið í fjör- una. Engu að síður eru nýleg hjól- för fram á fjörukambinn: „Það var og er pollamyndun á planinu og við vorum að ýta til efni til að jafna það út. Þarna safnast saman gífurlega mikið vatn sem við vildum losa svo menn þyrftu ekki að vera í klofstígvélum á bakkan- um,“ segir Sævar. Áður en Íslenska gámafélag- ið tók við Gufunessvæðinu höfðu Áburðarverksmiðjan, Reykjavík- urborg og Ístak þar aðstöðu. Norð- an megin við bryggju sem er þar er falleg klettaströnd með ljósum sandi. Sævar segir starfsmenn Áburðarverksmiðjunnar hafa kall- að þessa vík „litlu ylströndina sína“. Þar beint ofan við er nú mikill plast- úrgangur sem Sævar segir á leið til endurvinnslu hjá fyrirtækinu Plast- mótun. Sævar segir augljóst að það sé ekki fallegt að hafa málaða steypu- veggi ofan í fjöru enda sé það alls ekki náttúrulegt. Umgengni um svæðið að öðru leyti virðist einn- ig talsvert ábótavant. Sævar segir Íslensa gámafélagið hafa tekið við Gufunesinu í mjög slæmu ástandi. „Það stendur til að bæta ásýnd svæðisins til muna, til dæmis með því að mála byggingar og skipu- leggja. Í raun er það búið að standa yfir í nokkur ár þrátt fyrir ýmislegt sem gengið hefur á hjá okkur eins og öllum öðrum íslenskum fyrir- tækjum,“ segir Sævar sem kveðst telja auðvelt og ekki ýkja kostnaðar- samt að færa fjöruna til betri vegar. „Þetta er alveg hægt að laga með því að setja grjót yfir og snyrta til.“ gar@frettabladid.is Gufunesfjara er þakin steypubrotum og rusli Staðarhaldari Íslenska gámafélagsins á Gufunesi segir að til standi að bæta afar slæma ásýnd svæðisins. Fjara við bryggjuna er þakin steypuklumpum sem ýtt var þangað eftir að sprenging eyðilagði byggingu hjá Áburðarverksmiðjunni. SÉÐ TIL VIÐEYJAR Útsýnið frá fjörunni er í gegn um járnarusl og steypubrot. „LITLA YLSTRÖNDIN Þessi gullfallega vík er í jaðri ruslsins á Gufunesi. LJÓT FJARA Steypklumpar og annað rusl er í forgrunni í fjörunni í Gufunesi. Rétt handan ruslahaugsins er endurvinnslustöð Sorpu og frárennslisstöð í holræsakerfi borgarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM                       STJÓRNMÁL Ríkisstjórnin kynnti í gær þá ákvörðun sína að vinna að sóknaráætlun fyrir alla landshluta og síðan landið í heild með það fyrir augum að efla atvinnulíf og auka lífsgæði. Markmiðið er að koma auga á styrkleika landsins og hvernig megi nýta þá til að setja Ísland á lista með tíu samkeppnishæfustu ríkjum heims árið 2020. Með sóknaráætluninni á að kalla fram sameig- inlega framtíðarsýn og samþættar verði áætlanir í samgöngumálum, fjarskiptamálum, ferðamálum og byggðaáætlanir, eins og segir í yfirlýsingu frá ríkis- stjórninni. Enn fremur kemur fram í yfirlýsingunni að áætlanir um eflingu sveitarstjórnarstigsins, ýmsir vaxtarsamningar, aðrar opinberar stefnumótanir og framkvæmdaáætlanir verði teknar til endurskoðun- ar þar sem forsendur hafi breyst í kjölfar efnahags- hrunsins. Almenningi á að gefast færi á að kynna sér framgang vinnunnar, að því er segir í yfirlýsingunni. Forsætisráðuneytið mun hafa forystu um sóknar- áætlunina. Tillaga að verkefnisáætlun á að liggja fyrir 1. júní næstkomandi en áfangaskil eiga að vera um áramót. Þingið mun því, á vetri komanda, þurfa að taka mið af þeim. - jse Ríkisstjórnin gerir sóknaráætlun fyrir alla landshluta: Meðal tíu fremstu eftir áratug RÍKISSTJÓRNIN FYRIR NORÐAN Ný ríkisstjórn var í sóknarhug á Akureyri í gær þótt nú sé í vök að verjast. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN Maður klemmdist í skipi Vinnuslys varð á Hornafirði á mánu- daginn þegar maður klemmdist á hendi um borð í skipinu. Maðurinn var fluttur til Reykjavíkur. Ekki er vitað hvort hann er alvarlega slasaður. HORNAFJÖRÐUR Vilja sumarhús burt Skipulagsstofnun hefur borist krafa um að hún sjái til þess að frístunda- hús á Borðeyri verði fjarlægt. Stofnunin hefur óskað eftir afstöðu Bæjarhrepps. Það var oddvitinn sem veitti tengdaforeldrum dóttur sinnar leyfi fyrir húsinu í trássi við skipulag. BÆJARHREPPUR INDÓNESÍA, AP Veraldlegur stjórn- málaflokkur forseta Indónesíu vann stórsigur í þingkosningum, en flokkar trúaðra múslima biðu afhroð. Úrslitin benda til þess að almenningur í þessu fjölmenna múslimaríki vilji í auknum mæli halda stjórnmálum og trúmálum skýrt aðskildum. Lýðræðisflokkurinn hlaut 21 prósent atkvæða samkvæmt lokaúrslitum sem birt voru um helgina, rúmum mánuði eftir að kosningarnar fóru fram. Flokkur- inn hefur því þrefaldað fylgi sitt síðan í síðustu kosningum, þegar hann fékk 7,5 prósent atkvæða. Susilo Bambang Yudhoyono forseti, sem jafnframt er leiðtogi Lýðræðisflokksins, þykir nú lík- legur til að verða endurkjörinn. - gb Úrslit kosninga í Indónesíu: Veraldlegur sig- ur í múslimaríki SVÍÞJÓÐ, AP Fulltrúar Sama í Sví- þjóð hafa kært sænska ríkið fyrir að hafa brotið gegn veiðiréttind- um þeirra í norðanverðu landinu. Samtök Sama segja að stýring ríkisins á bæði fiskveiðum og dýraveiðum í norðri brjóti í bága við lög sem tryggja Sömum veiði- rétt á svæðinu. Samar líta svo á að ákvörðun sænsku stjórnarinn- ar um að heimila frjálsar veiðar á þessu svæði raski bæði almennu dýralífi á svæðinu og sérstak- lega nýtingu Sama á hreindýrum. Um tuttugu þúsund Samar búa í norðanverðri Svíþjóð, og hafa um tíu prósent þeirra lifibrauð sitt meðal annars af hreindýrum. - gb Deilur um veiðistjórnun: Samar kæra sænska ríkið Minni afli í apríl Fiskaflinn í nýliðnum aprílmánuði varð 28 prósentum minni en í fyrra. Alls veiddust 94 þúsund tonn nú samanborið við 130 þúsund í fyrra. SJÁVARÚTVEGUR Fylgist þú með fyrstu umferð- inni í Pepsí-deildinni í fótbolta? JÁ 28,5% NEI 71,5% SPURNING DAGSINS Í DAG: Horfðir þú á flutning íslenska lagsins í Eurovision-keppninni? Segðu skoðun þína á Vísir.is KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.