Fréttablaðið - 13.05.2009, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 13.05.2009, Blaðsíða 37
MIÐVIKUDAGUR 13. maí 2009 17 Norræni kvikmynda- og sjón- varpssjóðurinn hefur tilkynnt að nú verði efnt til sérstaks átaks í dreifingu norrænna kvikmynda á markaðsvæði Norðurlanda: komið verður á fót nýju styrkja- og hvata- kerfi, undir nafninu Nordic High Five, sem ætlað er að auka fram- boð norrænna kvikmynda í kvik- myndahúsum Norðurlandanna, styrkja markaðshlut norrænna kvikmynda og auðvelda dreifingu þeirra um svæðið. Styrkurinn á að bæta rekstrarumhverfi rétt- hafa og dreifingaraðila norrænna mynda. Í fréttatilkynningu frá sjóðnum segir að á undanförnum árum hafi kvikmyndamarkaður- inn gert útgáfu á norrænum mynd- um æ erfiðari á Norðurlöndunum. Sjóðurinn vill, í gegnum Nordic High Five, bjóða upp á styrki sem er beinlínis ætlað til dreifingar á norrænum kvikmyndum til kvik- myndahúsa á öðrum Norðurlönd- unum. Sem sagt til að dreifa mynd- um frá Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi hérlendis, íslenskum myndum á hinum Norðurlöndun- um. Ein augljós afleiðing er sú að fleiri norrænar kvikmyndir verða einnig gefnar út á DVD-diskum, á VOD-leigum og sýndar í sjónvarpi viðkomandi landa. Nordic High Five er þriggja ára áætlun og eftir tvö ár verð- ur lagt mat á þann árangur sem náðst hefur. Þau fimm dreifing- arfyrirtæki sem hafa verið valin til verkefnisins eru Camera Film í Danmörku, BioRex í Finnlandi, Græna ljósið á Íslandi, Arthaus í Noregi og NonStop í Svíþjóð. Öll þessi fyrirtæki sérhæfa sig í list- rænum kvikmyndum og búa því yfir sérþekkingu í að dreifa minni gæðamyndum. Þessi fyrirtæki eru öll frekar lítil á sínum heima- markaði og unnu öll saman við kynningu og sýningar á myndum sem kepptu um Kvikmyndaverð- laun Norðurlandaráðs í fyrra og munu halda því samstarfi áfram á þessu ári. Styrkirnir eru að hluta til endurkræfir eins og er raunin með flesta styrki frá sjóðnum þótt sjaldan komi til endurgreiðslu. Fyrstu kvikmyndirnar sem dreift verður undir hatti Nordic High Five eru De Ufrivillige eftir Ruben Østlund, Kenny Starfighter eftir Calle Åstrand og Mats Lindberg, Valhalla Rising eftir Nicolas Wind- ing Refn, Letters to Pastor Jacob eftir Klaus Härö og Brúðguminn eftir Baltasar Kormák. Styrkirn- ir eru veittir til dreifingar í stök- um löndum. Þannig er Brúðgum- anum dreift í Svíþjóð á styrk, en Valhalla á Íslandi. Það er eiginlega til marks um veika dreifingu nor- rænna mynda milli málsvæðanna að styrkja þurfi þær tvær kvik- myndir sem báðar ættu að eiga möguleika á hefðbundinni dreif- ingu. Megintilgangur Norræna kvik- mynda- og sjónvarpssjóðsins er að styðja framleiðslu og dreifingu á vönduðum norrænum kvikmyndum og norrænu sjónvarpsefni. Árlega hefur sjóðurinn 70 milljónir dansk- ar krónur til umráða. Samstarfsað- ilar sjóðsins eru Norðurlandaráð sem leggur til mesta fjármagnið, kvikmyndamiðstöðvar Norður- landanna fimm og ellefu norræn- ar sjónvarpsstöðvar: DR, TV2 Dan- mark (DK), YLE, Nelonon Media (FI), RÚV, Stöð 2 (IS), NRK, TV2 Norge (NO), SVT, TV4 og Kanal 5 (SV). - pbb Bíódreifing styrkt KVIKMYNDIR Valhalla Rising, víkingamynd sem að hluta var tekin hér á landi, með Mads Mikkelsen fær styrk til dreifingar á Íslandi í nýju styrkjaátaki Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins. MYND SCANBOX/ZIKZAK HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Miðvikudagur 13. maí 2009 ➜ Tónleikar 20.00 Árnesingakórinn í Reykjavík heldur vortónleika í Fella- og Hólakirkju við Hólaberg, þar sem flutt verður trúar- tónlist úr ýmsum áttum. 20.00 Jón Gunnar Biering Margeirsson gítarleikari, verður með tónleika í Saln- um við Hamraborg í Kópavogi. Á efnis- skránni eru gítarverk eftir m.a. J.S. Bach, E. Granados og Jón Gunnar sjálfan. ➜ Leiklist 20.00 Í Iðnó við Vonarstræti verð- ur Spliinng!, lesin og leikin dagskrá sem fjallar bæði af gamni og alvöru um atvinnumissi og önnur viðkvæm málefni. Flytjendur eru Guðmundur Ólafsson, Arndís Hrönn Egilsdóttir, Bryndís Ásmundsdóttir og Höskuldur Sæmundsson. ➜ Námskeið 17.00 Sigurborg Kr. Hannesdóttir kynnir 5 Rythma dansnámskeið að Laugavegi 51. Mæta í þægilegum fötum. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. ➜ Ljósmyndasýningar Sýningin Heima - heiman hefur verið opnuð í heimkynnum Rauða krossins að Skólabraut 25a á Akranesi. Katrín Elvarsdóttir og Sigrún Sigurðardóttir standa að sýningunni sem er ætlað að gefa innsýn í líf flóttamanna og hælis- leitenda sem komið hafa til Íslands. Opið mán.-fös. kl. 12-19 og um helgar kl. 13-17. ➜ Myndlist Jessica Langley og Ben Kinsley hafa opnað sýninguna „The Thirteenth day“ í Skaftfelli, miðstöð myndlistar á Aust- urlandi á Seyðisfirði. Opið mið.-fim. kl. 13-17 og fös.-sun kl. 13-20. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ hrífandi listviðburður á Stóra sviðinu Í Óðamansgarði Verk eftir Sunleif Rasmussen Söngvarar: Bjarni Thor Kristinsson, Eyjólfur Eyjólfsson og Þóra Einarsdóttir Fyrsta færeyska óperan í samstarfi við Tjóðpallinn og Listhátíð í Reykjavík Aðeins tvær sýningar 22/5 og 23/5

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.