Fréttablaðið - 13.05.2009, Blaðsíða 38
18 13. maí 2009 MIÐVIKUDAGUR
> ÁNÆGÐ MEÐ ÚTLITIÐ
Lindsay Lohan hefur grennst
mikið síðan sambandi hennar
og Samönthu Ronson lauk fyrir
nokkrum vikum. Kenningar
hafa verið á lofti um að Lohan
svelti sig en því neitar hún.
„Það er ekki rétt. Ég er gagn-
rýnd þegar ég er of grönn og
þegar ég er of þung. Ég er
ánægð með útlit mitt.“
Tónlistarmaðurinn Bob Dylan
skellti sér nýverið í skoðunar-
ferð um Liverpool og heimsótti
meðal annars æskuheimili Johns
Lennon. Dylan greiddi rúmar
þrjú þúsund krónur fyrir skoðun-
arferðina.
„Við ætluðum ekki að trúa
því þegar umboðsmaður hans
hringdi í okkur og spurði hvort
Bob gæti komist í ferð hjá okkur
til að sjá hús Johns. Hann eyddi
óratíma í að skoða myndaalbúm
og var yfir sig hrifinn af minja-
gripunum,“ sagði talsmaður
samtakanna sem sjá um rekstur
hússins við Daily Mirror.
Dylan
heimsækir
Lennon
BOB DYLAN Skoðaði æskuheimili Bítils-
ins Johns Lennon í Liverpool.
Stórtækar breytingar gætu verið yfir-
vofandi hjá karlatímaritinu Playboy.
Mikið tap hefur verið á útgáfu blaðsins
og stjórnendur þess skoða nú ýmsar
aðgerðir til að mæta því. Meðal þess
sem kemur til greina er að hækka
áskriftar- og lausasöluverðið, fækka
útgáfudögum eða minnka dreifingu
blaðsins.
Playboy Enterprises, sem rekur
blaðið, segir að vel komi til greina að
selja það. Mikið tap var á síðasta árs-
fjórðungi og auglýsingatekjur hafa
dregist umtalsvert saman. Alls hafa
auglýsingatekjur dregist saman um 26
prósent og spár gera ráð fyrir að þær
dragist saman um 39 prósent á þessum
ársfjórðungi.
„Það er ljóst að þetta fyrirtæki
getur ekki þolað umtalsvert tap í
geira sem nær ekki yfir nema fjórð-
ung tekjusviðs fyrirtækisins,“ segir
Jerome Kern, stjórnarformaður Play-
boy Enterprises. „Af þessum sökum
munum við gera róttækar breytingar á
tímaritinu.“
Playboy dregur saman seglin
TAP HJÁ PLAYBOY Playboy-kóngurinn Hugh Hefner getur ekki verið sáttur við að mikið tap hefur
verið á útgáfu Playboy-tímaritsins. Ráðist verður í sparnaðaraðgerðir til að rétta reksturinn af. Hér
sést Hefner með Playboy-stúlkunum Kendru Wilkinson og Bridget Marquardt. NORDICPHOTOS/GETTY
folk@frettabladid.is
Hinn undarlegasti fjöl-
miðlasirkus er að mynd-
ast í kringum líkamsárás
Kiefers Sutherland á gala-
kvöldverði búningastofn-
unar Metropolitan-safnsins
á Manhattan fyrir nokkru.
Leikarinn er sakaður um að
hafa skallað þekktan tísku-
hönnuð.
Málavextir eru þeir að Kiefer
sótti þessa árlegu veislu þar sem
margar af helstu stórstjörnum
Hollywood sameinast tískuhönn-
uðum og fyrirsætum í góðu glensi.
Veislan þykir mikill viðburður
í samkvæmislífi hinna ríku og
frægu og eftirsóknarvert er að fá
boðskort þangað inn. Teitið fékk
á sig eilítið blóðuga mynd þegar
stjarnan úr sjónvarpsþáttunum
24 tók sig til og skallaði fatahönn-
uðinn Jack McCollough. Að sögn
talsmanns Kiefers var leikarinn
eingöngu að halda uppi vörnum
og heiðri leikkonunnar Brooke
Shields. McCollough þótti, að
sögn talsmannsins, sýna óviðeig-
andi hegðun í garð leikkonunnar
og Kiefer lét hann finna, með bók-
staflegum hætti, fyrir vandlæt-
ingu sinni.
Brooke hefur hingað til ekki
viljað tjá sig um málavexti en
samkvæmt New York Daily News
hefur hún tekið sér stöðu við hlið
Kiefers. Sem þykir nokkuð óvænt-
ur snúningur á þessu furðulega
máli. Í yfirlýsingu frá lögfræð-
ingi hennar kemur nefnilega fram
að McCollough hafi átt upptökin,
hann hafi viljandi rekist utan í
leikkonuna og Kiefer hafi brugðist
við. „Sutherland hefur alltaf verið
sannur herramaður þegar Shields
er annars vegar,“ segir í yfirlýs-
ingu Shields.
New York Daily News er hins
vegar ekki alveg jafn sannfært
um sakleysi Sutherlands og grein-
ir frá því að leikarinn eigi erf-
itt með að hemja skap sitt þegar
hann á annað borð fær sér í glas.
Blaðið hefur eftir ónefndum sam-
starfsfélaga Sutherlands að eftir
vinnu settist leikarinn yfirleitt við
næsta bar, sæti þar í fjóra tíma og
drykki ótæpilegt magn af áfengi.
„Hann er síður en svo skemmti-
legur með víni,“ segir samstarfs-
maðurinn ónafngreindi. Blaðið
segir einnig frá lítilli flugferð með
einkaflugvél fyrir skemmstu þar
sem leikarinn hafi drukkið fjór-
ar sterkar vínblöndur á innan við
klukkutíma. Eftir að Sutherland
hafði rennt þeim niður gjörbreytt-
ist skapið og hann hótaði að lemja
alla um borð. Flugvélin náði þó að
lenda áður en til þess kom.
Talsmaður Sutherlands sagði
við blaðið að leikarinn myndi
halda áfram að sinna sínu starfi
þrátt fyrir að lögreglan í New
York hefði kært hann fyrir lík-
amsárás. Sutherland á að mæta
fyrir dómara á Manhattan hinn
9. júní en þangað til
mun hann meðal
annars fara á
Emmy-verð-
launahátíð-
ina, en hún
er einmitt
ha ld i n í
New York
á hverju
ári.
Brooke Shields kemur Kiefer til varnar
Í VONDUM MÁLUM Kiefer
Sutherland er ekkert í alltof
góðum málum eftir að hann
skallaði þekktan fatahönn-
uð í veislu á Manhattan,
Hann segist þó vera
saklaus af öllum ákærum,
fatahönnuðurinn hafi átt
upptökin. Hér mætir hann í
skýrslutöku hjá lögreglunni
í New York.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Tónlistarmaðurinn Yusuf Islam
lék á fyrstu tónleikum sínum í
Bandaríkjunum í 33 ár á mánu-
dagskvöld. Islam, sem flest-
ir þekkja eflaust sem Cat Ste-
vens, fagnaði útgáfu nýrrar plötu
sinnar með 400 manna tónleikum
í Los Angeles.
Það var árið 1976 sem Islam lék
síðast á tónleikum í Bandaríkj-
unum en hann gerðist í kjölfarið
múslimi og hætti að kalla sig
Cat Stevens. Islam átti að spila í
New York í byrjun mánaðarins en
fresta varð þeim tónleikum vegna
vandræða með vegabréfsáritun
hans. Tónlistarmaðurinn grínað-
ist með þessi vandræði við áhorf-
endur í LA og verðlaunaði þá með
slögurum á borð við Peace Train,
Where Do the Children Play? og
Wild World.
Spilaði loks í
Los Angeles
YUSUF ISLAM Hélt tónleika í Los Angeles
eftir að hafa leyst úr vandræðum með
vegabréf sitt. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
TEKUR UPP HANSKANN Brooke
Shields tekur upp hanskann
fyrir Kiefer Sutherland í yfirlýs-
ingu sem lögfræðingur hennar
sendi fjölmiðlum.
NORDICPHOTOS/GETTY
FÆRÐUBRJÓSTSVIÐAEÐA
SÚRT BAKFLÆÐI?...
...Nú færðu Losec mups* án lyfseðils í næsta apóteki!
Nýtt!
annt um líf og líðan
Notkunarsvið: Losec Mups sýruþolnar töfl ur innihalda efnið omeprazol sem hemur magasýruframleiðslu. Losec Mups er notað við tilfallandi
brjóstsviða og súru bakfl æði. Ekki má nota lyfi ð ef þú ert með ofnæmi fyrir omeprazoli eða einhverju öðru innihaldsefnanna eða samhliða lyfjum sem innihalda atazanavir. Gæta
skal varúðar ef þú færð einhver af eftirtöldum einkennum: Verulegt þyngdartap, endurtekin uppköst, kyngingarerfi ðleika, blóðuppköst eða blóð í hægðum. Þá skal hafa samband
við lækni. Látið lyfjafræðing vita um önnur lyf sem eru notuð eða hafa nýlega verið notuð. Meðganga og brjóstagjöf: Losec Mups má nota á meðgöngu. Konur með barn á brjósti
eiga að leita ráða hjá lækni áður en notkun hefst. Skömmtun: Ein Losec Mups 20 mg tafl a ekki oftar en einu sinni á sólarhring. Ef einkennin hafa ekki horfi ð eftir 14 daga stöðuga
notkun skal hafa samband við lækni. Gleypa á töfl urnar heilar með ½ glasi af vökva. Hvorki má tyggja þær né mylja. Töfl urnar má leysa upp í vatni eða einhverjum súrum vökva
(t.d. ávaxtasafa) og taka þannig inn. Það skiptir ekki máli hvort Losec Mups er tekið inn með eða án matar. Algengustu aukaverkanir eru: Höfuðverkur, niðurgangur, ógleði/
uppköst, kviðverkir, hægðatregða og aukinn vindgangur. Lesið vandlega allan fylgiseðilinn sem fylgir lyfi nu. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Mars 2009.
*Omeprazol