Fréttablaðið - 13.05.2009, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 13.05.2009, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 13. maí 2009 3 Undanfarin ár hefur Háskólinn á Hólum boðið upp á BA-nám í ferðamálafræði við ferðamála- deild. Fyrsta árið hefur verið bæði í fjarnámi og staðnámi en seinni tvö árin hafa einungis verið í stað- námi þar til nú. „Frá og með kom- andi hausti ætlum við að verða við ítrekuðum óskum og bjóða upp á öll þrjú árin í ferðamálafræði til BA-prófs í fjarnámi,“ segir Guð- rún Helgadóttir, deildarstjóri ferðamáladeildar við Háskólann á Hólum. „Þá hafa nemendur okkar val um hvort þeir ætla að koma í háskólaþorpið á Hólum og vera þar í staðbundnu námi eða vera í fjarnámi en mikil eftirspurn virð- ist vera eftir því, sérstaklega hjá fólki sem starfar í ferðaþjónustu eða er jafnvel að reka sín eigin fyrirtæki og á erfitt með að taka sig upp og flytja,“ segir Guðrún og nefnir að fjarnám henti því vel þessari atvinnugrein. Að hennar sögn hefur áhugi á ferðamálafræði farið stigvaxandi. „Við lítum á þetta sem starfsnám á háskólastigi og þarf námið því að vera fræði- legt og hagnýtt í senn. Við notum fræðin til að gera fólk enn betra í því sem það er að gera þannig að það geti litið gagnrýnum augum á þróun í ferðaþjónustu og hvernig best er að standa að málum.“ Mikið er lagt upp úr að skoða afþreyingu í ferðaþjónustu og greina hvert aðdráttaraflið sé. „Við erum með námskeið sem hjálpa fólki að kortleggja og átta sig á hvar auðlindir eru á hverj- um stað fyrir sig, bæði í náttúru og menningu. Síðan erum við með námskeið sem fjalla um þjónustu við ferðamanninn, allt frá gisti- og veitingaþjónustu til upplifunar. Við erum með námskeið á sviði afþreyingar, útivistar og göngu- leiðsagnar og svo fjöllum við um umhverfismálin en sjálfbær þróun er leiðarljós í náminu,“ segir Guð- rún en auk þessa er boðið upp á menningartengda ferðaþjónustu og diplómanám í viðburðastjórnun sem varð til í kjölfar þess að ýmiss konar hátíðir færðust í aukana um land allt. „Mikil viðburðavæðing menningar hefur verið áberandi á heimsvísu og spennandi hefur verið að fylgjast með þróun í þeim geira,“ segir hún og bætir við: „Síðast en ekki síst eru það allar rekstrargreinarnar en sjálfbærni þýðir líka að þú getir rekið fyrir- tæki þannig að það skili hagnaði og standist tímans tönn. Í náminu er því líka námskeiðaflokkur sem fjallar um rekstur, markaðsmál, stjórnun og fjármál fyrirtækja.“ Fylgst hefur verið með því í hvaða störf nemendur fara og virð- ast þeir sækja í sjálfstæðan rekst- ur, inn á ferðaskrifstofur en líka töluvert í ráðgjafar- og stjórnun- arstörf í kringum ferðaþjónustu sem og uppbyggingu ferðaþjón- ustu víða um land. „Í BA-náminu viljum við mennta fólk þannig að það geti tekið forystu og hafi skýra hugmynd um gæðamál og stefnu- mörkun í greininni,“ segir Guðrún ákveðin. „Engin ein atvinnugrein kemur til með að bjarga öllu en ferðaþjónustan er vissulega mjög sterk atvinnugrein og mikill þekk- ingariðnaður. Forsenda fyrir góðri uppbyggingu er því að byggja upp mannauðinn í greininni. Þetta er orðinn svo fjölbreyttur atvinnu- vegur og finna má allt frá gisti- þjónustu yfir í jökla- og fjallaklifur og heilsuþjónustu. Ferðaþjónusta á Íslandi snertir því flestar aðrar atvinnugreinar líka. Mikilvægt er því að þeir sem starfa í ferðaþjón- ustu átti sig á þessu samspili og geti sett sína grein í samfélagslegt og efnahagslegt samhengi.“ hrefna@frettabladid.is Bjóða fjarnám í ferðamálafræði Háskólinn á Hólum hefur undanfarin ár boðið upp á BA-nám í ferða- málafræði. Nú er hins vegar bryddað upp á nýjung í greininni frá og með komandi hausti þar sem hægt er að taka öll þrjú árin í fjarnámi. Forsenda fyrir góðri uppbyggingu ferðaþjónustu er að byggja upp mannauðinn í greininni, að mati Guðrúnar Helgadóttur, deildarstjóra ferðamáladeildar á Hólum. Nám til BA-prófs í ferðamálafræði við Háskólann á Hólum er fjölbreytt og snertir ýmsar atvinnugreinar. Einnig er hægt að ljúka diplómaprófi í greininni. MYND/SÓLRÚN HARÐARDÓTTIR VERSLUN / VERKSTÆÐI Helluhrauni 4 220 Hafnarfjörður Sími 555 4900 Allar nánari upplýsingar um þjónustu og vörur á www.rotor.is. lang - stærsti húsbílavefurinn Viðgerðir Kæliskápar Reiðhjólagrindur Ferðasalerni Fortjöld Húsbílaþjónusta og fylgihlutir í ferðalagið Allt í húsbílinn... ...í settum fyrir handlagna Rótor ehf býður upp á viðgerðaþjónustu á rafbúnaði húsbíla og vagna ásamt uppsetningu og tengingu á þeim búnaði sem við seljum á einu besta þjónustuverkstæði landsins. Gasmiðstöðvar 1900 - 2800W Vatnshitarar 13L gas / 220V Sólarsellusett í úrvali.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.